Morgunblaðið - 11.02.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
Lax fluttur utan
fyrir 69 milljónir
Þar af seiði til frekara eldis fyrir 57 milljónir
ÚTFLUTINGUR á laxi héðan á
síðasta ári nam alls 69 milljónum
króna. Hann var ýmist fluttur
utan frystur, isaður eða sem seiði
fyrir laxeldi. Seiðin eru stærsti
þátturinn í útflutningnum eða
tæpar 57 milljónir króna.
Fiskifélag Islands hefur tekið
saman tölur um þennan útflutning,
BORGARRÁÐ staðfesti á fundi
sínum í gær ráðningu Einars
Hákonarssonar listmálara, í starf
listráðunauts á Kjarvalsstöðum
til fjögurra ára.
Einar var einn umsækjenda um
starfið og lagði minnihluti borgar-
sem er unninn úr útflutningsskýrsl-
um Hagstofunnar. Samkvæmt þeim
höfum við flutt til Noregs 11,3 lest-
ir að verðmæti 17,6 milljónir króna
og 16,8 lestir til írlands að verð-
mæti 39,3 milljónir króna. Hér mun
að öllum líkindum eingöngu átt við
seiði til frekara eldis, enda er verð
á kíló til Noregs 1.558 krónur og
ráðs til að staðan yrði auglýst að
nýju með það í huga að listfræðing-
ur fengist í starfið. Þessi tillaga var
felld og ráðnig Einars samþykkt
með einu mótatkvæði og fer því til
endanlegrar afgreiðslu borgar-
stjórnar.
2.346 til írlands. Seiðin, sem flutt
voru til írlands, voru mun stærri
en þau, sem fóru til Noregs. Til
Vestur-Þýzkalands voru flutt 60
kíló að verðmæti 15.572 krónur,
meðalverð 259,53 krónur. Til
Bandaríkjanna voru fluttar 35,3
lestir af ísuðum laxi að verðmæti
9,4 milljónir króna, meðalverð 266
krónur og til Bretlands 698 kíló að
verðmæti 132.959 krónur, meðal-
verð 190 krónur.
Af frystum laxi voru fluttar til
Bandaríkjanna 7,2 lestir að verð-
mæti 2,5 milljónir króna, meðalverð
348,42 krónur. Til Frakklands fóru
527 kíló á samtals 114.689 krónur,
meðalverð 217,63 krónur. Til Vest-
ur-Þýzkalands fóru 20 kíló á
samtals 4.920 krónur, eða 246
krónur að meðaltali á kíló.
Alls voru því fluttar út á árinu
72 lestir að verðmæti 69,1 milljón
króna.
Ráðning listráðunauts
Kjarvalsstaða staðfest
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veóurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 500 km suðsuðaustur af Dyrhólaey
er 985 millibara djúp lægð sem þokast suðaustur. Yfir Norðursjó
er önnur lægð, 975 millibara djúp, sem fer norðnorðaustur. Yfir
norðaustanverðu Grænlandi er 1020 millibara hæð.
SPÁ: Norðaustan gola eða kaldi (3-5 vindstig) um mestallt land
og vægt frost víðast hvar. Dálítil él verða við noröur- og austur-
ströndina, en bjart veður suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR OG FÖSTUDAGUR: Fremur hæg austanátt verð-
ur ríkjandi á landinu, víða él um austan- og suðaustanvert landið
en að mestu úrkomulaust annars staðar. Frost á bilinu 3 til 4 stig.
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■JO" Hrtastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[7 Þrumuveður
"W'i m F
* 1 W1
F W' .
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 0 slydda
Reykjavík 0 skýjað
Bergen 2 slydda
Helsinki -12 léttskýjað
Jan Mayen -2 lóttskýjað
Kaupmannah. 1 þoka
Narssarssuaq -B snjókoma
Nuuk -14 alskýjað
Osló —6 snjókoma
Stokkhólmur -6 alskýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Algarve 11 rlgnlng
Amsterdam 7 skýjað
Aþena 16 heiðskírt
Barcelona vantar
Bertín 6 rigning
Chicago vantar
Glasgow 6 úrk. f gr.
Feneyjar S þoka
Frankfurt 8 rigning
Hamborg 6 þokumóða
Las Palmas 20 léttskýjað
London 7 skýjað
LosAngeles 16 alskýjað
Lúxemborg 4 skúr
Madríd 8 skýjað
Malaga 13 alskýjað
Mallorca 14 þokumóða
Miami 9 léttskýjað
Montreal -21 skýjað
NewYork -4 léttskýjað
París 9 léttskýjað
Róm 12 rigning
V/n 2 þoka
Washington -2 akýjað
Winnipeg -3 alskýjað
Morgunblaðið/Einar Falur
Hjá kaupmanninum á horninu
Innbrota- og skemmdar-
verkafaraldur:
Enn lagt til at-
lögu í Síðumúla
Tveir unglingar handteknir við inn-
brot í bát
MIKLAR annir voru hjá lögreglu
á mánudagskvöld og aðfaranótt
þriðjudags vegna innbrota og
skemmdarverka sem framin
voru víða á höfuðborgarsvæðinu.
Var þar bæði um að ræða inn-
brot í íbúðarhús og fyrirtæki og
meðal annars var lagt til atlögu
í fyrirtæki við Armúla og Síðum-
úla, skammt frá þeim stað þar
sem unnin voru mikil skemmdar-
verk um helgina. Að sögn
lögreglu munu þeir sem hér hafa
verið að verki ekki hafa haft
mikið fémætt upp úr krafsinu
en tjón vegna skemmdarverka
er talsvert.
Á mánudagskvöld var tilkynnt
um innbrot í íbúðarhús í Kópavogi
og stuttu síðar í íbúðarhús við Há-
teigsveg. Sama kvöldið var ráðist á
þungaða konu í Fossvogsdal, eins
og greint var frá í frétt Morgun-
blaðsins í gær. Konunni tókst að
forða sér en tapaði veski sínu, sem
fannst skömmu síðar á svipuðum
slóðum, með öllu sem í því var, að
sögn Helga Daníelssonar, yfirlög-
regluþjóns hjá RLR.
Innbrot og skemmdarverk héldu
áfram um kvöldið og fram eftir
nóttu og meðal annars var tilkynnt
um innbrot í skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í Kópavogi. Þá voru
tveir unglingar staðnir að verki við
Listamannaíbúð í
París:
Þrír skipa
nefnd um
reksturinn
SVERRIR Hermannsson mennta-
málaráðherra hefur skipað Sigurð-
ur Pálsson formann Rithöfunda-
sambands íslands, fulltrúa
menntamálaráðuneytisins og Seðla-
banka íslands í stjóm nefndar sem
sjá mun um rekstur listamanna-
íbúðar í París.
Þá samþykkti borgarráð á fundi
sínum í gær, tilnefningu menninga-
málanefndar um fulltrúa fyrir hönd
borgarinnar í nefndinni. Það eru
þær Elín Pálmadóttir blaðamaður
og Herdís Þorvaldsdóttir leikkona.
innbrot í bát við Ægisgarð um
klukkan 23.00 á mánudagskvöld.
Um miðnætti var tilkynnt um inn-
brot við Lokastíg og skömmu síðar
um innbrot í íbúð við Miklubraut.
Um klukkan 6 á þriðjudagsmorgun
var tilkynnt um innbrot í júdódeild
Ármanns og lakkrísgerðina Kólus
í Ármúla og unnin mikil skemmdar-
verk á síðamefnda staðnum. Þá var
ennfremur tilkynnt um innbrot í
Prentþjónustuna Korpus við Árm-
úla og innbrot í fyrirtæki við
Síðumúla og eins hjá Magnúsi Kjar-
an h.f. svo nokkuð sé nefnt.
Þessa sömu nótt var tveimur
bílum var stolið af bílaverkstæði
Ásgeirs í Ármúlanum og fannst
annar þeirra á þriðjudagsmorgun í
Vogum á Vatnsleysuströnd. Hinn
bíllinn var hins vegar ófundinn er
Morgunblaðið frétti síðast í gær-
kvöldi.
Framhalds-
stofnfund-
ur um fisk-
markað
FRAMHALDSSTOFNFUNDUR
um stofnun fiskmarkaðar í
Reykjavík verður haldinn á morg-
un, fimmtudaginn 12. febrúar kl.
16, í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu.
Á stofnfundi sem haldinn var í
byrjun desember síðastliðinn, var
ákveðið að bíða átekta þar til laga-
frumvarp um rekstur fiskmarkaðar
hefði veriðlagt fram á Alþingi. Frum-
varpið var lagt fram skömmu fyrir
jól og að mati undirbúningsnefndar
um stofnun fiskmarkaðar í
Reykjavík, mun það fá þá afgreiðslu
að óhætt sé að stofna félagið.
INNLEN-T