Morgunblaðið - 11.02.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
fclk f
fréttum
Reuter
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar systir Liberace, Ange-
lina Farreli, er leidd út úr
kirkjunni að útförinni lokinni.
í baksín má sjá hluta aödá-
enda stjörnunnar látnu.
Jarðarför Liberace
Bandaríski píanóleikarinn Liber-
ace var jarðsunginn á föstudag
í Palm Springs, en útför hans var
gerð frá Vor frúar-kirkju þar. Á
meðan jarðarförinni stóð var leikin
angurvær orgeltónlist og þúsundir
ARriARHOLL
□ □ □□□□□
Þorra fiski
kerta loguðu, en að öðru leyti var
athöfnin ekki íburðarmikil. Aðdá-
endur hans héldu sig í hæfilegri
íjarlægð að ósk nánustu aðstand-
enda skemmtikraftsins, en þeir voru
einnig með kerti og sumir hveijir
jafnvel með ljósastiku eins og Liber-
ace kom ávallt fram með, en ljósa-
stikan á flyglinum mátti heita
vörumerki Liberace, ef frá er skilinn
íburður í klæðnaði. Heyra mátti
grátstafi aðdáenda píanóleikarans
langar leiðir, en margir þeirra lágu
auk þess á bæn.
Sonur
Zappa
Þeir sem einhvemtíman hafa
komið hið minnsta nálægt
popptónlist hafa heyrt minnst á
Frank Zappa. Zappa þótti löngum
vera frægur fyrir skringileg uppá-
tæki, magnaðan gítarleik og ótrú-
lega eljusemi.
Erkihippinn Frank er þó fyrir bí
og hinn ábyrgi fjölskyldufaðir
Zappa tekinn við. En hvað er að
vera ábyrgur?
Zappa skírði son sinn Dweezil
og lét ekki þar við sitja, heldur
nefndi hann systur hans Moon Unit,
sem þýðir „tunglstöð". Þegar systk-
inin rifust læsti Frank þau inni á
baði, tók rifrildið upp á segulband
og lék það á fullum styrk fyrir þau
án afláts, allt til þess þau urðu leið
á því. Þegar Dweezil tilkynnti föður
sínum fimmtán ára gamall að hann
hygðist hætta námi til þess að ein-
beita sér að rafmagnsgítarleik, tók
gamli maðurinn því vel og sagði
syninum að hann væri að taka rétta
ákvörðun fyrir lífíð.
Flestum fyndist þetta e.t.v. gá-
leysislegt hjá Zappa, en til þessa
virðast ráð hans hafa gefist vel.
Dweezil, sem nú er 17 ára er heil-
brigður unglingur, í litlu frábrugð-
inn jafnöldrum sínum — ef undan
er skilin sú staðreynd að hann er
orðinn stórstjama án aðstoðar
pabba gamla. Að vísu má segja að
Frank hafí hjálpað syni sínum með
því að gefa honum nafnið Dweezil
og e.t.v. skaðar ættamafnið ekki
heldur.
Dweezil hefur reynt fyrir sér á
ótal sviðum. Fyrst kom hann fram
sem gítarleikari, þá 15 ára og hafa
aðrir gítarleikararar á borð við
Eddie Van Halen og Steve Vai lok-
ið einróma lofi á hann. Fyrir
skömmu gaf hann út sólóplötuna
H L A Ð B
í tilefni afþorranum býÖur Arnarhóll mat-
argestum sínum upp á glœsilegtfiskihlað-
borÖ i hádeginu fyrir aðeins kr. 695.-
Blaöburóarfólk
óskast!
^ I
AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Þingholtsstræti o.fl. Hávegur og Traðir
Meðalholt Kársnesbraut
Stórholt frá57-139
VESTURBÆR
Aragata o.fl.
Reuter
Köttur í
bóliapa?
Kötturinn Smokey situr hér makindalega á
höfði vinar síns, Kókó, en mynd þessi
birtist í nýútkominni ævisögu Kókó. Bókin er
að vísu ekki sjálfsævisaga, en ævisaga samt.
Hana reit Dr. Francis Patterson, og fjallar
um líf górillunnar frá fæðingu fram á þennan
dag. Það sem gerir Kókó svo sérstaka er það
að hann getur tjáð sig með táknmáli — ekki
ósvipað því og heyrnalausir gera, en að
sjálfsögðu miklu einfaldara. Kókó kann tæplega
eitthundrað tákn, en þar af notar hann ekki
nema um 20 að ráði. í bókinni er reynt að
skyggnast inn í hugarheim dýrs og segja þeir
sem lesið hafa bókina að athyglisverðast sé að
lesa um athugasemdir og skoðanir Kókós á
mannfólkinu. Þykir Kókó stundum nóg um
læti fólks og jafnvel greindarskort þegar svo
ber undir!