Morgunblaðið - 11.02.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
5
greiðslukerfisins yrði ekki eins
einföld og að var stefnt. „Annnars-
staðar hafa svipuð kerfí sprungið á
því að hver hópurinn á fætur öðrum
hefur komið með undanþágur. Eins
og þetta var sett upp hér fyrst var
um mjög mikla einföldun á skatta-
kerfinu að ræða. Síðan komu
sjómenn fljótlega inn í dæmið með
sérundanþágur og ég held að það
blasi nokkuð við, af því litla sem
maður hefur séð af frumvarps-
drögunum, að einstæðir foreldrar
séu næstir á dagskrá með hliðarráð-
stafanir, annars færi sá hópur illa
út úr breytingunni. Það má gera
það gegnum mæðralaunin, en þama
eru komnir tveir hópar og sjálfsagt
verður ekki langt að bíða þess að
sá þriðji bætist við,“ sagði Björp.
Bjöm vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um frumvarpið að svo stöddu
þar sem BSRB hefði ekki verið
kynnt frumvarpsdrögin, en lagði
áherslu á að athuga yrði vel hvaða
þýðingu skattbreytingin hefði fyrir
einstaka hópa og stéttir og meðal-
tölin hefðu minni þýðingu.
Ás.nundur Stefánsson forseti ASÍ um hugmyndir um staðgreiðslukerfi:
Austurstræti 22
Sýnist frumvarpið sam-
ræmast okkar hug'myiidum
Kerfið ekki eins einfalt og fyrst virt-
ist, segir Biörn Arnórsson hagfræð-
ingur BSRB
FORSETI Alþýðusambands ís-
lands, Ásmundur Stefánsson,
segir að í fljótu bragði sýnist
honum frumvarp um stað-
greiðslukerfi skatta, sem verið
er að kynna þessa dagana, fylgi
í meginatriðum hugmyndum sem
ASÍ setti fram við gerð kjara-
samninga á síðasta ári. Hinsveg-
ar segir hann að enn sé óljóst
hvaða áhrif staðgreiðslukerfið
samkvæmt frumvarpinu komi til
með að hafa á hina ýmsu hópa
og frekari upplýsingar þurfi að
liggja fyrir áður en endanlegt
mat er lagt á frumvarpið. Ás-
mundur mun i dag funda með
Þorsteini Pálssyni fjármálaráð-
Verðlækk-
un á gamla
kjötinu
VERÐ á birgðum kindakjöts
frá haustinu 1985 hefur verið
lækkað. Ríkissjóður hefur
hækkað niðurgreiðslur á kjöt-
inu til að koma því út en
kjötið hefur selst hægar en
búist var við. Eru nú til 772
tonn af gamla kjötinu í frysti-
geymslum sláturhúsanna.
Heildsöluverð á lqöti i 1. verð-
flokki lækkaði um 20%, miðað
við heila skrokka.
Hámarkssmásöluverð á kjöt-
inu frá 1985 er nú 201,80
krónur, miðað við 1. verðflokk,
í heilum skrokkum skipt að ósk
kaupenda. Verð á sama verð-
flokki af kjöti úr síðustu slát-
urtíð er 244,30 krónur kílóið.
herra um staðgreiðslukerfið.
„Það er búið að vera að vafstra
með staðgreiðslukerfíshugmyndir í
áratugi en mér sýnist við nær því
núna en nokkru sinni að þær geti
orðið að raunveruleika og það hljót-
um við að telja miklu skipta. Það
er hinsvegar nokkuð óljóst hvemig
þessar breytingar koma út fyrir
hinar ýmsu fjölskyldugerðir og hópa
þannig að við þurfum að fá frekari
upplýsingar um slík atriði áður en
við leggjum endanlegt mat á frum-
varpið. Þetta eru það miklar
breytingar að það er ekki auðvelt
að nota þumalfingurinn til að finna
meðaltöl heldur verður að nota nán-
ari upplýsingar úr skattframtölum
til að fá yfirsýn yfir þessi mál. En
í meginatriðum sýnist mér verið að
koma til móts við okkar óskir um
að fá einfalt staðgreiðslukerfi,“
sagði Ásmundur Stefánsson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Ásmundur sagði ennfremur að
með staðgreiðslukerfi væri aðeins
verið að leysa einn af annmörkum
skattakerfísins og nauðsynlegt væri
að skoða áfram ýmislegt sem liti
að skattlagningu fyrirtækja, sjálf-
stæðum atvinnurekendum, meðferð
á eignatekjum og fleiru.
Bjöm Amórsson hagfræðingur
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja sagðist í samtali við Morgun-
blaðið óttast að framkvæmd stað-
Singapore
flensan hefur
ekki greinst
hérlendis
SAMKVÆMT úttekt Alþjóða heil-
brigðismálastofnunar á út-
breiðslu innflúensu í heiminum
hefur svonefnd Singapore innflú-
ensa, af stofninum A (HlNl),
heijað á Norðurlöndin síðan í
haust. Að sögn Ólafs Ólafssonar
landlæknis hafa ekki greinst hér
á landi tilfelli af þessari tegund
innflúensu.
Landlæknir sagði að Singapore
innflúensan hefði verið nokkuð lengi
í gangi í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi eða síðan löngu fyrir jól og
því væri ljóst að hér væri ekki um
skæðan faraldur að ræða. Hann
sagði að önnur tegund Asíu-innflú-
ensu hefði einnig greinst í nágranna-
löndum okkar og virtist sú líka vera
vægari en ráð hafði verið fyrir gert.
Hvorug þessara innflúensa hefði
greinst við athuganir á blóðsýnum
hér á landi. Landlæknir sagði að
búið væri að bólusetja um 18 þúsund
manns hér á landi við Singapore
innflúensunni og um 25 þúsund
manns við hinni Asíuflensunni.
^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80