Morgunblaðið - 11.02.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
Spánska blaðið
ElPais:
Iranir keyptu
vopn frá Spáni
Madrid. AP.
SPÁNSKA stjórnin leyfði, að
Irönum væru seld vopn fyrir 280
millj. dollara þótt slík sala væri
bönnuð með lögum. Var þessu
haldið fram í eær í dagblaðinu
EI Pais.
Blaðið hefur það eftir ónefndum
heimildamönnum innan spænska
vopnaiðnaðarins og í vamarmála-
og utanríkisráðuneytinu, að á út-
flutningsskýrslum hafi Líbýa og
Sýrland verið nefnd sem viðtakandi
vopnanna en þaðan hafi þau farið
til Irans. Talsmaður stjómarinnar,
Miguel Gil, sagði í gær, að stjómin
hefði ekki leyft neina vopnasölu til
írans, aðeins til landa, sem ekki
væru á bannlista stjómvalda.
E1 Pais segir, að um fyrstu
vopnasendinguna eftir að Persa-
flóastríðið braust út hafi verið
samið árið 1983 og að sú síðasta
hafi farið til írans í maí á síðasta
árí. Þá hafi ríkisstjóm Miðflokka-
sambandsins selt Irökum vopn árið
1981 fyrir 100 milljónir dollara.
Tilgreinir blaðið ýmsa vopnafram-
leiðendur og hefur eftir þeim, að
þeir hafi talið sig knúna til þessara
viðskipta eftir að bannað var að
selja vopn til Líbýu og Sýrlands.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI Bandaríkjadollara
lækkaði enn gagnvart helstu
gjaldmiðlum í gær. Verð á gulli
lækkaði einnig.
í Tókýó kostaði doliarinn
152,95 japönsk jen (154,42) þegar
gjaldeyrisviðskiptum lauk í gær.
í London kostaði sterlingspund-
ið 1,5325 dollara (1,5165) síðdegis
í gær.
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var á þann veg að dollarinn kost-
aði: 1,7965 vestur-þýsk mörk
(1,8290), 1,5280 svissneska
franka (1,5407), 6,0350 franska
franka (6,0975), 2,0465 hollensk
gyllini (2,0540), 1.292,375 ít-
alskar lírur (1.300,00) og 1,3344
kanadíska dollara (1,3337).
í London kostaði trójuúnsa af
gulli 402,70 dollara (405,85).
Franskir lögreglumenn á leið niður í holræsi Marseilleborgar. Ekkert hefur spurst til ræningjanna en talið er, að þeir hafi komið upp
á yfirborðið í nokkur hundruð metra fjarlægð frá bankanum og forðað sér burt á bíl.
Bankaránið í Marseille:
Ræningjarnir höfðu lögreglu-
garpinn að ginningarfífli
unnar: „Þið getið komið inn. Þeir
eru farnir."
„Þeir eru horfnir. Við höfum
verið blekktir," sagði Broussard
náfölur og skjálfandi af reiði þeg-
ar hann kom inn í bankann.
Þegar lögreglumennimir fóm
niður í göngin gaf þar aldeilis á
að líta. Vom þau einna líkust
stássstofu, teppalögð með símum
og ýmsum hægindum auk alls
kyns búnaðar, sem ræningjamir
skildu eftir. Er augljóst, að þeir
hafa unnið að gangagreftinum í
margar vikur eða mánuði.
Marseillebúar hafa sína skýr-
ingu á ófömm lögreglunnar. Þær
hafí stafað af því að kallað var á
einhveija kraftaverkamenn frá
París í stað þess að láta einn
færasta lögreglumanninn í Mar-
seille, Víetnamann N’guyen Van
Loc, fást við málið.
ROBERT Broussard, sem lengi hefur verið talinn mesti garpur-
inn meðal franskra lögreglumanna, er ekki sérstaklega upplits-
djarfur þessa stundina. í fyrradag höfðu ósvífnir bankaræningjar
hann að ginningarfífli og létu sig hverfa niður um göng eftir
að hafa tæmt mörg hundruð bankahólf.
Ræningjamir grófu göng undir
bankanna frá holræsum Mar-
seilleborgar og komust inn í
bankann kl. átta á þriðjudags-
morgni. Tóku þeir í gíslingu 10
starfsmenn og 13 árrisula við-
skiptavini og létu síðan greipar
sópa um bankahólfin. Nokkur
hundmð vel vopnaðara lögreglu-
þjóna komu strax á vettvang,
komu sér fyrir á nálægum húsa-
þökum og bak við brynvarða bíla,
en ræningjamir héldu þeim í
skefjum með því að skjóta að
þeim öðm hvom. Vom þeir að
allan daginn og þegar komið var
fram á kvöld kom sjálfur Brouss-
ard á vettvang frá París og
skoraði á ræningjana að gefast
upp, þeir væm umkringdir og
ættu sér ekki undankomuleið.
„Þetta er ekki til neins. Við
viljum fá 30 milljónir franka og
tvo bíla,“ svömðu ræningjamir í
blekkingarskyni og vafalaust hef-
ur þeim hlegið hugur í bijósti því
að göngin biðu þeirra, teppalögð
og jafnvel búin símtækjum. Á
áttunda tímanum í fyrrakvöld
lauk svo leiknum þegar einn
bankastarfsmannanna hljóp út úr
bankanum og kallaði til lögregl-
Broussard og N’guyen Van Loc
við vettvangsrannsókn.
Borgarstjóra-
bíllínn of lítill
TEDDY Kollek, borgarstjóra í Jerúsalem, gramdist
þegar keyptir voru sjö splunkunýir glæsivagnar
af beztu gerð frá Volvo fyrir ráðherra í ríkisstjórn-
inni, en þegar að því kom að mótmæla í verki urðu
honum mislagðar hendur.
Við það efnahagsástand,
sem ríkir í fsrael þótti Kollek
sem ríkisstjómin færi ekki á
undan með góðu fordæmi er
hún pantaði glæsivagnana.
Ákvað hann að láta ekki sitja
við orðin tóm, heldur kaupa
franskan smábíl af gerðinni
Renault 5 þegar að því kom
að endumýja útjaskaða emb-
ættisbifreið borgarstjórans,
sem var af gerðinni Ford Si-
erra.
En þegar Runóinn var af-
hentur kámaði gamanið, því
þá kom í ljós að hann var ekki
sniðinn fyrir íturvaxna borgar-
stjóra. Gerði Kollek árangurs-
lausar tilraunir til að skáskjóta
sér inn í bílinn smáa en allt kom
fyrir ekki. „Við reyndum meira
að segja skóhom, en útilokað
var að koma Teddy inn,“ sagði
einn af aðstoðarmönnum hans.
Á endanum beygði hans sig
fyrir bláköldum staðreyndum
og skipti í snarhasti yfir í Pe-
ugeot-305. Hann er af yfír-
stærð í samanburði við
Renault-5 og passaði Kollek
vel. Og alltént þarf Kollek ekki
að éta ofan í sig fyrri yfirlýsing-
ar um bmðl því Peugeot-inn
kostaði ekki nema þriðjung af.
verði hverrar ráðherrabifreiðar.
(Byggt á Jerusalem Post)
w
Sovétstjórnin hyggst
versla með frelsi manna
- að sögn Anatolys Shcharansky
Jenisalem, Reuter.
ANDÓFSMAÐURINN þekkti Anatoly Shcharansky sagði á mánu-
dag að þúsundum gyðinga kynni brátt að verða heimilað að
flytjast frá Sovétríkjunum. Sagði hann að með þessu vildu Sovét-
menn knýja fram tilslakanir af hálfu vestrænna ríkja á sviði
hátækni og alþjóða samskipta.
Tæpt ár er nú liðið frá því
Shcharansky settist að í ísrael.
Hafði hann þá setið í níu ár í fang-
elsi og vinnubúðum í Sovétríkjun-
um. I viðtali sem birtist í gær
sagði hann að samkvæmt nýrri
löggjöf, sem tók gildi um áramót-
in, yrði 30.000 gyðingum veitt
fararleyfi á næstu fímm árum.
Sagði hann níu af hveijum tíu
gyðingum í Sovétríkjunum ekki
geta sótt um leyfi samkvæmt lög-
gjöfínni en í henni er kveðið á um
að viðkomandi verði að eiga ætt-
menni í því landi sem hann vill
flytjast til. 500 fararleyfi voru
veitt í síðasta mánuði, að sögn
Gennadys Gerasimov, talsmanns
sovéska utanríkisráðuneytisins.
..Löggjöfin sýnir ljóslega áform
Sovétstjómarinnar," sagði
Shcharansky. „Gorbachev hyggst
sleppa gyðingunum til að knýja
fram tilslakanir af hálfu vest-
rænna ríkja." Shcharansky sagði
ráðamenn eystra stefna að því að
treysta viðskipti við vestræn ríki
og fá aðgang að upplýsingum um
ýmsan hátæknibúnað. Þá kvað
hann þeim vera umhugað um að
tryggja þátttöku Sovétríkjanna í
alþjóðlegri ráðstefnu um hvernig
koma megi á friði í Miðaustur-
löndum. Stjóm ísraels hefur lýst
yfir að Sovétmenn geti einungis
sent fulltrúa á slíka ráðstefnu ef
stjórnvöld heimili gyðingum að
flytjast úr landi.