Morgunblaðið - 11.02.1987, Side 60
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
JHíjirgnnMafrih
!<Wr5T-Ti. ii
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Vandræðaástand á Hlemmi
Margar ferðir með
fólk í fangageymslur
UNDANFARNA tvo daga hefur lögreglan í Reykjavík þurft
að hafa afskipti af fólki sem sest hefur að í biðskýli Stræt-
isvagna Reykjavíkur við Hlemm. Fyrir hádegi í gær voru
farnar þijár ferðir með fólk í fangageymslur lögreglunnar
og sömu sögu var að segja á mánudag.
Starfsfólk í biðskýlinu hefur
fengið hótanir um líkamsmeiðingar
og jafnvel líflát. Einn starfsmaður
sagði að ástandið væri jafnvel að
færast í svipað horf og þegar það
var verst fyrir nokkrum árum.
Böðvar Bragason lögreglustjóri
sagði að taka þyrfti á þessu vanda-
máli svo að biðskýlið gæti sinnt
því þjónustuhlutverki sem því er
ætlað. Hann sagði það ekki lausn
á þessu máli að lögregluvörður
væri við biðskýlið allan daginn.
Sjá bls. 24.
.Skvetta mjólkar
allra kúa mest
KYRIN Skvetta á Syðri-Bægisá í Öxnadal mjólkaði allra kúa
mest á síðasta ári, samkvæmt skýrslum nautgriparæktarfélag-
anna. Skvetta mjólkaði 8.914 kg yfir árið, sem er meira en
tvöfaldar afurðir meðalkúa.
Önnur afurðahæsta kýrin varð
Líf á Efri-Brunná og Kotasæla á
Búrfelli í því þriðja. Efsta kýrin á
á árinu 1985, Freyja á Sólheimum,
og Islandsmeistarinn, Fía á
Hríshóli, hafa fallið niður eftir
metorðastiganu m.
Bestu meðalafurðimar í fyrra
vom á búi Guðmundu Tyrfings-
dóttur í Lækjartúni, Ásahreppi í
Rangárvallasýslu, 6.114 kg á kú.
Morgunblaðið/Bjami
Skvetta í góðum höndum eigenda sinna, Steins Snorrasonar og
Helga Steinssonar, í fjósinu á Syðri-Bægisá í Öxnadal í Eyjafirði.
Félagsbúið í Baldursheimi í Mý-
vatnssveit varð í öðm sæti og
Búrfell í Ytri-Torfustaðahreppi í
því þriðja. Sturlaugur Böðvarsson
á Efri-Brunná varð í fjórða sæti
að þessu sinni, en bú hans var
með bestu meðalafurðimar árið
1985, 9.207 kg að meðaltali, og
er það íslandsmet.
Sjá nánar á bls. 24 og 25.
GERTKLART
Morgunbiaðið/Einar Falur
Vertíð hefur g’engfið vel það sem af er og gæftir yfirleitt verið góðar. Við Grandagarð voru þess-
ir sjómenn að gera netin klár í gær fyrir næsta róður.
Samningamál opinberra starfsmanna:
Kjaradeilur gætu
leitt til þingrofs
sagði Friðrik Sophusson á Varðarfundi í gærkvöldi
TVÖ MÁL, samningar opinberra
starfsmanna og fræðslustjóra-
málið, gætu orðið til þess að þing
verður rofið og efnt til kosninga
fyrr en ætlað er, sagði Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, á fundi hjá
málfundafélaginu Verði i gær-
kvöldi.
Friðrik minnti á, að enn ætti eft-
ir að semja við stóra hópa á
vinnumarkaðinum, s.s. opinbera
starfsmenn. Ef reynt yrði að nota
þessa samninga í pólítísku skyni,
þá kynni svo að fara, að efnt yrði
til kosninga fyrr en ætlað er og
þjóðin verði látin segja álit sitt á
málinu.
Málflutning framsóknarmanna í
fræðslustjóramálinu sagði Friðrik
vera sýndarmennsku og tillögurnar
um rannsóknarnefndir lagðar fram
í þeirri vissu að þær yrðu felldar.
Ef svo færi, að samstarfsflokkur
Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn,
léti þær ná fram að ganga, væri
það bein ögrun við Sjálfstæðisflokk-
inn. Þá ætti að rjúfa þing og efna
til kosninga, sagði Friðrik Sophus-
son.
Verðmæti útfluttrar
Ríkisspítalar:
Tæplega 400 hafa
sagt upp störfum
UPPSAGNIR háskólamenntaðra starfsmanna, sjúkraliða og fóstra,
við Ríkisspítalana taka gildi 1. apríl næstkomandi, ef fer sem horf-
ir. Hér er um að ræða samtals 348 manns, en sjúkraliðar eru stærsti
hópurinn, tæplega tvö hundruð manns. Að sögn Davíðs Á. Gunnars-
sonar, forstjóra Ríkisspítalanna, fer ekki hjá því að loka þurfi
mörgum deildum ef allt þetta fólk hættir störfum á sjúkrahúsunum.
Fjármálaráðherra fer með samn-
ingsgerð við alla opinbera starfs-
■^jpínn. Viðræður standa yfir við
íuéttafélögin, en engar sérstakar
viðræður eru í gangi við þessa hópa
sem nú hafa sagt upp störfum, að
sögn Indriða Þorlákssonar skrif-
stofustjóra í launadeild fjármála-
ráðuneytisins. Indriði sagði að
uppsagnimar hefðu engin áhrif á
þær viðræður sem í gangi væru,
fe'Tria væri það baráttuleið sem ekki
ætti heima hér. Hann vísaði til laga
nr. 94 frá 29. desember 1986 og
sagði að í ljósi þeirra væru uppsagn-
ir sem settar eru fram til að knýja
á um kjarasamninga ekkert annað
en ólögleg verkföll.
„Ef fólk er í kjarabaráttu með
þessum hætti, þá stríðir það gegn
þeim lögum sem stéttarfélög þess-
ara aðila tóku þátt í að semja og
óskuðu eftir að Alþingi samþykkti,
hvað það gerði fyrir tæpum tveimur
mánuðum," sagði Indriði Þorláks-
son.
Auðna Ágústsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, sagði að þegar uppsagn-
imar hefðu verið lagðar fram hefði
lítið verið farið að ræða ný samn-
ingsréttarlög. Uppsagnifnar væm
frá 1. október og hefðu átt að koma
til framkvæmda um áramót, en
verið framlengdar af ríkisvaldinu
um þtjá mánuði. Auðna sagðist alls
ekki líta svo á að hér væri um ólög-
lega verkfallsaðgerð að ræða,
heldur væri um að ræða hópa af
einstaklingum sem væm að mót-
mæla sínum ömurlegu kjömm og
myndu hætta störfum ef ekki yrði
úr bætt.
rækju hefur tvöfaldazt
ÚTFLUTNINGUR á frystri rækju
á síðasta ári nam alls 12.389 lest-
um að verðmæti 3,67 milljarðar
króna. Árið 1985 voru fluttar utan
8.461 lest að verðmæti 1,8 millj-
arður króna. Verðmæti hefur því
tvöfaldazt og magn aukizt um
46,4%. Frá því 1982 hefur útflutn-
ingur á rækju og verðmæti hans
margfaldazt.
Fiskifélag íslands hefur tekið
saman yfirlit yfir útflutning frystrar
rækju á síðasta ári. Af skelflettri
rækju vom þá fluttar utan 8.001
lest að verðmæti 2,9 milljarðar
króna. Mest var flutt til Bretlands,
3.957 lestir að verðmæti 1,6 millj-
arður króna og til Danmerkur 1.775
lestir að verðmæti 671,5 milljónir
króna. Mikið af skelflettri rækju var
einnig flutt til Noregs, Banda-
ríkjanna og Vestur-Þýzkalands.
Af óskelflettri rækju vom fluttar
utan 4.387 lestir að verðmæti 733,5
milljónir króna. Mest var flutt til
Japans,' 2.091 lest að verðmæti
463,4 milljónir og Noregs, 1.877
lestir að verðmæti 210,4 milljónir.
Meðalverð fyrir skelfletta rækju var
362,79 krónur á hvert kíló, en fyrir
óskelfletta rækju 167,17 krónur.
Árið 1982 voru fluttar utan
1.639,2 lestír að verðmæti 123,2
milljónir króna. Árið 1983 vom flutt-
ar utan 2.788,3 lestir að verðmæti
505.1 milljón króna. 1984 vom flutt-
ar utan 5.373,7 lestir að verðmæti
839.1 milljón og árið 1985 vom flutt-
ar út 8.416,3 lestir að verðmæti 1,8
milljarður króna.
Grunaðir um að-
ild að innbrotum
TVEIR ungir menn voru hand-
teknir í gær vegna rannsóknar á
nokkrum innbrotum og skemmd-
arverkum, sem framin hafa verið
á höfuðborgarsvæðinu að undan-
förnu.
Mikið hefur verið um innbrot og
skemmdarverk á höfuðborgarsvæð-
inu síðan um síðustu helgi og keyrði
um þverbak á mánudagskvöld og
aðfaranótt þriðjudagsins.
Sjá frétt á bls. 4