Morgunblaðið - 12.02.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987
5
Heimsreisuklúbbur Útsýnar:
Kínaferð í haust
Kynnt á árshátíð Heimsreisu-
klúbbsins á Hótel Sögu á sunnudag
ATTUNDA heimsreisan á veg-
um Útsýnar verður farin í
haust undir kjörorðinu Kína-
ferðin mikla á slóðir Marco
Polo. Eins og í fyrri heimsreis-
um verður lögð áhersla á
fullkomnasta aðbúnað farþeg-
anna.
Kínaferðin hefst í bytjun nóv-
ember og verður alls 24 dagar.
Farið verður til allra frægustu
staða í Kínaveldi og dvalist í borg-
unum Peking, Xian, Guilin,
Shanghai og Guangzhou. Hér
bætast frægir staðir í safn heims-
reisufara, svo sem Kínamúrinn
og „hlið hins himneska friðar" að
viðbættum óteljandi listfjársjóð-
um í einu elsta og merkasta
menningarríki heims. Flogið er
um Hong Kong og dvalist þar í 3
daga. Einnig er höfð viðdvöl í
Thailandi og geta heimsreisufarar
hvílt sig á Pattay-ströndinni í viku
í lok ferðar.
Kynning á Kínaferðinni fer
fram á árshátíð Heimsreisu-
klúbbsins sem haldin verður á
veglegan hátt í Súlnasal Hótel
Sögu nk. sunnudagskvöld. Félag-
ar Heimsreisuklúbbsins hafa
forgang um miða, en annars er
öllum heimill aðgangur að kynn-
ingunni og margrétta veislukvöld-
verði í heimsreisustíl, sem hefst
kl. 20.00.
Sölustjóri flugfélagsins THAI
og umboðsmaður fyrir Kínaferð-
ina mæta til veislunnar með
kynningarefni og austurlensk
blóm handa öllum veislugestum.
Margt verður til skemmtunar á
hátíðinni og verðlaun veitt fyrir
spumingakeppni um Kína og úr
síðustu heimsreisu til Vestur-
heims og Hawaii. Myndir verða
sýndar og minningar rifjaðar upp
úr síðustu heimsreisu, heims-
söngvaraefni syngur vinsæl lög
og aríur og margt fleira verður
til skemmtunar á Hótel Sögu á
sunnudagskvöldið.
(Fréttatilkynning frá Útsýn)
Kammersveit
Reykjavíkur á
Kjarvalsstöðum
Kammersveit Reykjavíkur, lield-
ur tónleika á Kjarvalsstöðum í
kvöld og hefjast þeir klukkan
20.30.
Leikin verða þijú verk eftir
Villa—Lobos, Blásarakvintett í Cho-
ros—stíl, Bachianas Brasileiras nr.
1 og Bachiana Brasileiras nr. 5.
Eru seinni verkin tvö fyrir átta
selló, en Bachiana nr. 5 er auk
þess fyrir einn sópran og syngur
Elín Osk Óskarsdóttir með kam-
mersveitinni í kvöld.
Sjá ennfremur viðtöl á blaðsíðu
17.
Ekkí gott að verða
bara teoríuhestur
segir Hannes Hlífar Stefánsson, fimm-
faldur Norðurlandameistari í skólaskák
HANNES Hlífar Stefánsson heitir 14 ára gamall piltur sem
undanfarið hefur vakið athygli fyrir góðan árangur í skák
og meðal annars vann hann sinn aldursflokk á Norðurlanda-
mótinu í skólaskák fyrir skömmu, fimmta árið í röð.
„Mér fannst ég ekki þurfa að því þar tefldi ég við fjóra stórmeist-
hafa jafn mikið fyrir sigrinum nú
og í fyrra, en þetta er líka í seinna
skiptið sem ég tefli í flokki 13-14
ára,“ sagði Hannes þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann. „Aðstaðan
og framkværriuin hefur hinsvegar
aldrei verið betri en nú. Mótið var
haldið í Otta í Noregi og við bjugg-
um á sama hóteli og við tefldum,
það var gefið út mótsblað á hveijum
degi og verðlaunin voru veglegri
en venjulega."
Hannes segist hafa lært að tefla
fimm ára gamall af bræðrum
sínum. Hann fór snemma að tefla
í Taflfélagi Reykjavíkur og er nú
meistari félagsins. „Við fengum
góða þjálfun í Taflfélaginu enda
teflir þar mikið af strákum,“ sagði
Hannes. „Þar eru unglingaæfingar
á laugardögum og síðan geta þeir
tekið þátt í mótum félagsins og
teflt þar við eldri og sterkari and-
stæðinga. Við fáum mun meiri
tækifæri á þesum aldri hér á Is-
landi en til dæmis á Norðurlöndun-
um en þar keppa jafnaldrar okkar
eingöngu á mótum innan skól-
anna.“
Hannes vakti fyrst athygli þegar
hann varð í öðru sæti á Reykjavík-
urmótinu í skák, veturinn 1985-86,
á eftir jafnaldra sínum, Þresti Árna-
syni. Hannes og Þröstur hafa,
ásamt Sigurði Daða Sigfússyni.sem
einnig er 14 ára, náð góðum ár-
angri í skákinni og borið talsvert
af jafnöldum sínum hérlendis..
Þetta varð til þess að Hannesi og
Þresti var boðin þátttaka á
Reykjavíkurskákmótinu síðar um
veturinn og síðan kepptu þeir í
landsliðsflokki á íslandsmótinu sem
haldið var í Grundarfirði síðastliðið
sumar.
„Það var bæði gott og skemmti-
legt að taka þátt í Reykjavíkurskák-
mótinu," sagði Hannes. „Þar tefldi
ég við tvo stórmeistara og fékk
talsverða reynslu. En það var ekki
síður gott að tefla á íslandsmótinu
ara. Það er ekki svo oft sem maður
fær tækifæri til að tefla við íslensku
stórmeistarana, nema þá í hrað-
skákmótum, því þeir keppa ekki
nema annað hvert ár á íslandsmót-
unum þegar Olympíuskákmótin
eru.“
Hannes sagðist ek’ki vera búinn
að setja sér nein markmið í sam-
bandi við skákina, það væri of
snemmt að hugsa um slíkt og yrði
að koma í ljós með tímanum. Hann
viðurkenndi líka að hann ætti eftir
að læra ýmislegt til að geta staðið
jafnfætis stórmeisturunum. „Ég
kann lítið í byijunum og ég þarf
að skoða endatöflin betur; ég keypti
mér einmitt tvær endataflabækur
um daginn. Ef maður vill komast
langt þarf að leggja mikla vinnu í
þetta og stúdera mikið. Það er þó
ekki gott að verða bara teoríuhestur
og kunna ekkert annað,“ sagði
Hannes.
Engin mót eru fyrirsjáanleg í
náinni framtíð sem Hannes stefnir
á. Hann sagði að til dæmis heims-
meistaramót unglinga undir 16 ára
Morgunblaðið/Júlíus
Hannes Hlífar Stefánsson, fimm-
faldur Norðurlandameistari i
skólaskák.
væru yfirleitt haldin á fjarlægum
stöðum á hnettinum og það væri
því of dýrt að sækja þau. En næg-
ir honum að beija á jafnöldrum
sínum á Norðurlöndum, sem standa
honum varla jafnfætis? „Ég veit það
ekki. Ég get keppt á mótinu í fimm
ár í viðbót og það verður sennilega
erfiðara seinni árin. Og svo er ekki
einu sinni víst að ég komist í liðið,"
sagði Hannes Hlífar Stefánsson.
Innbrot í íbúð
í Hlíðunum
BROTIST var inn í mannlausa
ibúð í Bólstaðahlíð síðastliðinn
þriðjudag og stolið þaðan um 26
þúsund krónum í peningum.
Lögreglunni barst tilkynning um
innbrotið laust eftir kvöldmat er
húsráðendur komu heim og upp-
götvuðu að brotist hafði verið inn
í íbúðina. Höfðu þjófarnir komist
inn um kjallaraglugga, sem að öll-
um líkindum hefur verið skilið eftir
opinn, og létu greipar sópa um íbúð-
ina, sem er á jarðhæð.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur nú til meðferðar fjölmörg innbrot
og skemmdarverk sem framin hafa
verið á höfuðborgarsvæðinu undan-
farna daga. Eins og fram hefur
komið í frétt Morgunblaðsins voru
tveir ungir menn handteknir á
þriðjudag, grunaðir um að eiga
aðild að einhveijum þessara af-
brota. Þeir voru í yfirheyrslum hjá
RLR í gærdag, en ekki fengust
nánari upplýsingar um gang rann-
sóknarinnar.
Auðveld og hröð lánafyrirgreiðsla
Eigendur TT-reiknings eiga kost á
Hraðláni, að ákveðnu hámarki. Hrað-
lánið er tveggja mánaða víxill. Þetta lán
fæst afgreitt í afgreiðslu bankans án
milligöngu bankastjóra.
Ennfremur eiga TT-reikningseig-
endur kost á Launaláni, sem er
skuldabréfalán, að vissu hámarki.
Launalánið er til allt að átján mánaða
og er einnig afgreitt í afgreiðslu bank-
ans án heimsóknar til bankastjóra.
í þessu tvennu felst jafnt öryggi sem
tímasparnaður.
V/6RZUJNRRÐRNKINN
-vúmtcitHeðftét!
Tækifæristékkareikningur
...með allt í einu hefti!
Hraðlán og
Launalán