Morgunblaðið - 13.02.1987, Síða 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
36. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Israelar gera loft-
árásir í Líbanon
Verkfail í
Grikklandi
Rúm ein milljón grískra verkamanna lagði niður
vinnu í gær til að að mótmæla ströngum að-
haldsaðgerðum ríkisstjórnar Andreas Papandre-
ou forsætisráðherra. Verkalýðshreyfingin krefst
þess að atvinna verði aukin og laun hækkuð í
landinu. Samgöngur gengu úr skorðum og víða
var rafmagnslaust. Samtök vinstri öfgamanna,
sem nefna sig „Byltingarsamtök alþýðunnar“,
kváðust hafa komið fyrir sprengju sem sprakk
v 3 stjórnarbyggingu í Aþenu snemma í gær-
norgun. Bankastarfsmenn studdu sólarhrings-
vi;rkfall verkalýðshreyfingarinnar og kváðust
mundu leggja niður vinnu fram til næsta fimmtu-
dags. Olli þessi yfirlýsing mikilli ringulreið og
þustu landsmenn í banka til að taka út fé sitt.
Seðla- og peningabirgðir nokkurra banka í Aþenu
gengu til þurrðar.
Reuter
Bonn, Vín, Reuter.
YULI Kvitsinsky, sendiherra
Sovétríkjanna í Vestur-Þýska-
landi, sagði i gær að öll sósialísk
ríki ættu að taka „byltingar-
kennda“ endurbótaherferð
Mikhails Gorbachev, leiðtoga
Sovétríkjanna, sér til fyrirmynd-
ar.
Kvitsinsky lét þessi ummæli falla
á blaðamannafundi í Bonn þar sem
texti ræðu Gorbachevs á miðstjórn-
arfundi sovéska kommúnistaflokks-
ins 29. janúar var birtur í heild.
Þess má geta að ræða Gorbachevs
hefur enn ekki verið birt í heild í
Austur-Þýskalandi.
Vestrænir stjórnmálaskýrendur
segja að Erich Honecker, leiðtogi
Austur-Þýskalands, virðist efast
um réttmæti endurbótastefnu
Gorbachevs og telja þeir líklegt að
hann reyni að spyrna við lýðræðis-
straumum frá Moskvu. Tékkar
virðast einnig vera hikandi í þessum
efnum.
„Að minni hyggju hafa þær
ákvarðanir, sem teknar voru á mið-
stjórnarfundinum, aukið aðdráttar-
afl sósíalismans og það er verkefni
okkar allra, hvar sem við erum nið-
ur komnir: í Austur-Þýskalandi,
Sovétríkjunum, Póllandi," sagði
Kvitsinsky.
Bandamenn Sovétmanna í Var-
sjárbandalaginu hafa deilt hart um
þær endurbætur, sem nú er unnið
að í Sovétríkjunum, enda vita þeir
af reynslu að illa getur farið ef los-
að er um stjórnartaumana í efna-
hagsmálum og pólitík. Einnig eru
valdamenn í Austur-Evrópu hrædd-
ir við þær breytingar, sem kunna
að verða ef embættismönnum verð-
ur gert að axla meiri ábyrgð, því
að þá fengju þeir einnig aukin völd.
Bókaforlag í Köln gefur út bækl-
ing með ræðu Gorbachevs og er
hann sextíu þéttritaðar síður að
lengd. Ber hann titilinn „Vér þörfn-
umst lýðræðis rétt eins og lofts til
að anda“.
Tel Aviv, Beirút, Reuter.
ÍSRAELAR gerðu í gær loftárás-
ir á búðir palestínskra skæruliða
í Líbanon, að þvi er talsmaður
Israelshers sagði. Fréttaskýr-
endur segja að Israelar hafi þar
sýnt að þeir væru ekki undir
þrýstingi frá Bandaríkjamönn-
um um halda aftur af sér vegna
bandarískra gísla í Beirút.
Lögregla í Líbanon sagði að tveir
menn hefðu látið lífið og fimm særst
í árásinni skammt frá þorpinu Miyeh
Aftonbladet:
Lokun
Barsebáck
flýtt?
Stokkhólmi, Reuter.
í SÆNSKU dagblaði sagði
frá þvi í gær að Sviar ætluðu
að láta undan þrýstingi Dana
og loka Barsebáck-lgarnorku-
verinu, sem stendur við
Eyrarsund, gegnt Kaup-
mannahöfn.
í Aftonbladet sagði að Ingvar
Carlsson forsætisráðherra hefði
í gær ætlað að greina leiðtogum
stjómarandstöðunnar frá til-
lögu um að loka kjamorkuver-
inu árið 1995. Það er 15 ámm
á undan áætlun.
í blaðinu var haft eftir heim-
ildarmönnum innan stjómar-
innar að verinu yrði lokað þegar
raforkuver, sem ekki nota
kjamorku, gætu uppfyllt þá
orkuþörf, sem Barsebáck-verið
sinnir í Suður-Svíþjóð.
Kjarnorkuverið er í tuttugu
km fjarlægð frá Kaupmanna-
höfn og hafa Danir krafist þess
af aukinni hörku að því verði
lokað eftir kjamorkuslysið í
Chemobyl í fyrra.
Miyeh. Sagði að þrír hinna særðu
væm félagar í Patah-hreyfingu
Frelsissamtaka Palestínu (PLO).
Saksóknari í Jerúsalem sagði í
hæstarétti í gær að ekkert væri
hæft í fregnum fjölmiðla um að ísra-
elar væm að semja um að láta 400
arabíska fanga lausa fyrir ísraelskan
flugmann, sem er í haldi í Líbanon,
og þrjá bandaríska og einn indversk-
an gísl.
Vestrænir erindrekar sögðu að
ýmislegt benti til þess að gíslamir
hefðu verið fluttir til bæjarins Baal-
bek í austurhluta Líbanon til að
draga úr hættu á að Bandaríkja-
menn létu til skarar skríða.
Sprengjuflaugar Sýrlendinga draga
til Baalbek.
Nú er talið að einn helsti aðstoðar-
maður Yassers Arafat, leiðtoga PLO,
hafi talið mannræningjana á að
þyrma lífi gíslanna fjögurra og sagt
að aftaka þeirra myndi leiða til árás-
ar Bandaríkjamanna.
Reuter
Vopnaðir sítar fela sig fyrir leyniskyttum í flóttamannabúðunum Bouij al-Barajneh. Ekki hefur verið
hægt að flytja vistir til búðanná tvo daga í röð og hafa bardaga blossað upp milli amal sita og Pa-
lestínumanna inni í búðunum. Myndin var tekin í gær.
Norðurlönd gera tillögu um
48 klukkustunda vopnahlé
- í flóttamannabúðum í Líbanon
Sameinuðu þ|óðunum, Reuter.
NORÐURLÓND hafa lagt til að gert verði 48 klukkustunda vopna-
hlé á bardögum í flóttamannabúðum í Líbanon til þess að hægt sé
að flytja konur, börn og gamalmenni á brott, að því er stjórnarerind-
rekar hjá Sameinuðu þjóðunum sögðu í gær. Búist var við að aðilar
að öryggisráði SÞ myndu eiga óformlegar viðræður um málið.
Tom Vraalsen, sendiherra Nor-
egs, sem átti frumkvæði að málinu,
sagði að tryggja ætti að börn, kon-
ur og gamalt fólk yrðu flutt úr
flóttamannabúðum, sem hafa verið
umsetnar sveitum síta vikum sam-
an.
Zehdi Terzi, eftirlitsmaður Frels-
issamtaka Palestínu (PLO) hjá
Sameinuðu þjóðunum, sagði að til-
lagan væri út í hött: „Og hvert
ætla þeir að flytja fólkið. Þeir verða
að flytja fólkinu vistir, ekki að flytja
það brott."
Vraalsen sagði að tillaga Norður-
landa hefði verið gerð af mannúð-
arástæðum vegna hins slæma
ástands í búðunum. Greint hefur
verið frá því undanfarið að fólk í
flóttamannabúðum hafi þurft að
leggja sér ketti, hunda og jafnvel
rottur til munns vegna skorts á mat.
Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
biðu þess í gær að vopnaðar sveitir
múhameðstrúarmanna leyfðu að
flytja vistir í flóttamannabúðir í
Beirút, þar sem Palestínumenn
lepja dauðann úr skel. Setið hefur
verið um Bouij al-Barajneh búðirn-
ar í fimmtán vikur. Vörubílar stóðu
hlaðnir vistum og sögðust starfs-
menn geta flutt þær inn í flótta-
mannabúðimar með klukkustundar
fyrirvara.
Sírlendingar hvöttu í gær til að
samið yrði um vopnahlé og kenndu
PLO um blóðsúthellingar í flótta-
mannabúðum. „Átök þjóna aðeins
óvininum: Israelum."
Sveitir síta, sem eru undir for-
ystu Nabihs Berri dómsmálaráð-
herra Líbanon, hafa setið um Bourj
al-Barajneh og Shatilla-búðirnar í
Beirút síðan 29. október og Ras-
hidiyeh-búðirnar skammt frá
bænum Týrus síðan 30. september.
Sítar vilja koma í veg fyrir að Pal-
estínumenn nái sömu fótfestu í
Líbanon og þeir höfðu þar til ísrael-
ar gerðu innrás árið 1982.
Sovéskur sendiherra:
Austur-Evrópa fylgi
fordæmi Sovétmanna