Morgunblaðið - 13.02.1987, Blaðsíða 15
+.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
15
Sýnir í Gallerí
Svart á hvítu
SÝNING á olíumálverkum Krist-
ins Harðarsonar opnar í Gallerí
Svart á hvítu við Óðinstorg laug-
ardaginn 14. febrúar kl. 14.00.
Kristinn er fæddur 1955 og
stundaði nám við MHÍ 1973 til
1977. Frá 1977 til 1978 var hann
við nám í De stichting de Vrije
Academie voor Beeldende Kunsten
í Haag í Hollandi. Hann hefur tek-
ið þátt í samsýningum hér heima
og erlendis, af helstu samsýningum
má nefna Basel Art Fair 1982, XII
Biennale de Paris 1982 í Musée
d’art Modema í París, Museum
Fodor Amsterdam 1983, Franklin
Fumance New York 1984, Lista-
safn íslands 1984 og Malmö
Konsthall Malmö 1984.
Þá eru verk eftir Kristinn í KEX
(Konst fran Island och Norge) sem
er samsýning ungra myndlistar-
manna sem opnaði í Stokkhólmi í
lok janúar sL Þetta er farandsýning
sem sett verður upp í öllum Norður-
löndunum. Fyrstu einkasýningu
sína hélt Kristinn í Gallerí Suður-
gata 7 árið 1979 en hann hefur
einnig haldið einkasýningar í Ný-
listasafninu (1983), Gallerí Gangin-
um (1985), Studio Arti Visive,
Siracusa, Ítalíu (1983), Studio Halle
de I’lle, Genf, Sviss (1984) og
Lens-rifazioni, Parma, Italíu
(1986).
Lionessur með
flóamarkað
Lionessuklúbbur Reykjavíkur
heldur sinn árlega flóamarkað
Iaugardaginn 14. febrúar kl.
14.00 í Lionsheimilinu Sigtúni 9,
Reykjavík. Allur ágóði rennur til
líknarmála.
y=
í Kaupmannahöfn
FÆST
Í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁOHÚSTORGI
Kristinn hefur einnig gefið út
ljóðabókina „Eilífir sólargeislar"
(1986) og unnið fyrir leikhús.
Á sýningunni í Gallerí Svart á
hvítu sýnir Kristinn olíumálverk frá
ámnum 1984 til 1986. Sýningin
stendur til 1. mars og er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 14.00
til 18.00. Einnig er í Gallerí Svart
á hvítu verk eftir ýmsa listamenn
í umboðssölu gallerísins.
Unglingamót
í f imleikum í
Laugardalshöll
UNGLINGAMÓT í fimleikum
verður haidið laugardaginn 14.
febrúar í Laugardalshöll og
hefst kl. 14.
Keppnin er tvískipt. Kl. 14 er
keppt í 4. þrepi íslenska fimleika-
stigans og kl. 16 er keppni í 3. og
2. þrepi.
Álls munu keppendur verða um
200 piltar og stúlkur.
Kristinn Harðarson við nokkur verka sinna.
Afhenti
trúnaðarbréf
HINN 6. febrúar sl. afhenti Páll
Ásgeir Tryggvason, sendiherra,
dr. Richard von Weizsaecker for-
seta Sambandslýðveldisins
Þýskalands, trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra Islands í Sam-
bandslýðveldinu Þýskalandi.
amm m—íl
Fra
aiaugardögum
Aukin þfónusta
Bílavarahlutaverslun Heklu hf. verður framvegis opin á
laugardögum frá kl. 10°°-1300, auk venjulegs opnunartíma
virka daga frá kl. 830-1800.
í varahlutaverslun okkar eru sérhæfðir afgreiðslumenn ávallt
reiðubúnir til aðstoðar, hvort sem þig vantar varahluti, auka-
hluti eða upplýsingar varðandi viðhald bílsins. Til að tryggja
gæðin verslum við eingöngu með viðurkenndar vörur með árs
ábyrgð gagnvart göllum.
Nú bjóðum við viðskiptavinum okkar úti á landi, að fá alla
algengustu bílavarahlutina, án flutningskostnaðar hvert á
land sem er. Beinn sími sölumanna í varahlutaverslun er:
(91) 695650. Verið velkomin.
MfTSUBISHI
RAIMGE ROVER
fulHEKIA
t:, L« I Laugavegi 170-172 Sfm
HF
i 69 55 OO