Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
25
Fyrsta tapárið hjá
Norsk Hydro
Osló, Reuter.
NORSK Hydro tilkynnti í gær
að tap hefði orðið á rekstri fyrir-
tækisins í fyrra, en það er í
fyrsta sinn frá árinu 1944, sem
halli verður á rekstrinum.
Gífurlegar sveiflur urðu í rekstri
Norsk Hydro milli ára. Tapið í fyrra
nam 324 milljónum norskra eða
nímlega 1,8 milljarði ísl. króna.
Árið 1985 skilaði fyrirtækið hins
vegar miklum hagnaði, 2,08 mill-
jörðum norskra króna, eða jafnvirði
11,7 milljarða ísl. króna.
Torvild Aakvág, forstjóri Norsk
Hydro, sagði í gær að helztu ástæð-
ur fyrir tapresktrinum í fyrra væru
lágt olíuverð og samdráttur í áburð-
arsölu. Hann sagði að dregið yrði
saman í rekstri fyrirtækisins vegna
útkomunnar á síðasta ári. Mun það
einkum bitna á umsvifum fyrirtæk-
isins í Frakklandi og Noregi.
Ráðstafanimar myndu miðast við
að spara sem næmi einum milljarði
norskra króna, tæplega sex mill-
jörðum ísl. kr., á næstu misserum.
Norsk Hydro stundar olíu- og
gasvinnslu í Norðursjó og er einnig
umsvifamikill ál- og áburðarfram-
leiðandi. Tekjur fyrirtækisins af
olíu- og gassölu minnkuðu um
Í42ár
44,7% í fyrra, en þá lækkaði olíufat-
ið úr tæplega 30 dollurum í 9
dollara. Námu tekjur Norsk Hydro
af olíu og gassölu 2,08 milljörðum
norskra króna í fyrra.
Eftirspum eftir áburði var lítil í
Evrópu í fyrra og nam áburðarsala
fyrirtækisins aðeins 11 milljónum
norskra króna miðað við 1,14 mill-
jarð árið áður. Norsk Hydro keypti
margar áburðarverksmiðjur í Vest-
ur-Evrópu í fyrra og telja stjómend-
ur fyrirtækisins að það eigi eftir
að verða því til framdráttar þegar
fram í sækir.
Færeyingar töpuðu
um 160 milljónum
á skipasölunni
Fœreyjum, frá Hilmari Jan Hansen, fréttaritara Morgunblaðsins.
FÆREYSKA landssljórnin
tapaði í það minnsta 22 millj-
ónum d. kr. (um 110 millj. ísl.)
þegar tvö kaupskip hlutafé-
lagsins Transmar voru seld á
uppboði í Rotterdam á mið-
vikudag. Færeyski sjóvinnu-
bankinn átti 10 milljónir
danskra króna hjá skipafélag-
inu og fæst sú skuld að
líkindum aldrei greidd.
Svo sem fram hefir komið í frétt-
um vom skipin tvö, Markland og
Vínland, seld á uppboði á miðviku-
dag og var kaupverð þeirra samtals
101 milljón danskra króna (tæpar
580 millj. ísl). Verðið sem fékkst
fyrir skipin nægir til að greiða
skuldir fýrsta kröfuhafa. Þar með
þykir ljóst að landsstjómin og Sjó-
vinnubankinn hafa orðið fyrir
miklum fjárhagslegum skakkaföll-
um.
Hollenskt hlutafélag keypti skip-
in en nú gengur sá orðrómur fjöllum
hærra að danska hlutafélagið Kos-
angas hyggist kaupa þau.
Meðlimir landsstjómarinnar hafa
fundað dag og nótt undaníarna
daga og reynt að finna leiðir til að
forða fleiri færeyskum skipum frá
því að vera seld á nauðungampp-
boði. Svo virðist sem ágreiningur
sé uppi í stjóminni og hafa heyrst
raddir um að hún kunni að klofna.
Þó hafa embættismenn ennþá ekki
gefð yfirlýsingar sem benda fil
þessa.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI Bandríkjadollara
ýmist hækkaði eða lækkaði
gagnvart helstu gjaldmiðl-
um í gær.
í Tókýó kostaði dollarinn
153,85 japönsk jen (152,95).
í London kostaði sterlings-
pundið 1,5235 dollara
(1,5225).
Gengi annarra helstu gjald-
miðla var á þann veg að
dollarinn kostaði: 1,8165
vestur-þýsk mörk (1,8180),
1,5355 svissneska franka
(1,5345), 6,0395 franska
franka (6,0475), 2,0455 hol-
lensk gyllini (2,0459),
1.291,25 ítalskar límr
(1.289,25) og 1,34375
kanadíska dollara (1,3395).
Egyptaland:
Þjóðaratkvæði um
þingrof og kosningar
Kairó, Reuter.
Þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram í Egyptalandi í gær.
Kosið var um tillögu Hosnis Mubarak forseta þess efnis
að þing skuli rofið og efnt til kosninga í aprílmánuði.
Ítalía:
Sovéskar flug-
vélar á sveimi
Napólí, Reuter.
ÍTALSKAR orustuþotur flugu í
gær veg fyrir tvær sovéskar
flugvélar skammt utan lofthelgi
Italíu. Að sögn heimildarmanna
innan flughersins voru sovésku
vélarnar af gerðinni Tupolev.
Herþotumar vom sendar á loft
eftir að sovésku flugvélamar höfðu
komið fram á ratsjá og vom þær
þá staddar yfir Adríahafi. Þotumar
flugu samhliða sovésku flugvélun-
um og tóku ítölsku flugmennimir
myndir af þeim. Tubolev-vélamar
snem loks frá og héldu í austurátt.
Líklegt er talið að sovésku flug-
vélamar hafi verið að fylgjast með
umsvifum Bandaríkjaflota í ná-
grenni Líbanon.
Hosni Mubarak Egyptalands-
forseti greiðir atkvæði sitt á
kjörstað í Kairó í gær.
13 milljónir manna vom á kjör-
skrá og er búist við að tillaga
forsetans verði samþykkt. Taln-
ingu atkvæða mun að líkindum
ljúka á morgun.
Mubarak boðaði til þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar fyrir rúmri
viku. Þingmenn em almennt
hlynntir því að þingið verði rofíð.
Fréttaskýrendur segja að forsetinn
hyggist með þessu tryggja endur-
kjör sitt í nóvember þegar þingið
kýs nýjan forseta til sex ára. 448
menn sitja á þingi og em þeir
kjömir til fímm ára. Þingkosningar
fóm síðast fram árið 1984 og fékk
flokkur Mubaraks 391 mann kjör-
inn. Mubarak sagði atkvæða-
greiðsluna styrkja lýðræðiskennd
þjóðarinnar og vísaði á bug ásök-
unum um að lýðræðið væri fótum
troðið í Egyptalandi.
Kosningamar fóm friðsamlega
fram en þátttaka var fremur dræm
fram eftir degi.
Hreínar, faUegar og jafnstórar
Miit K Trtfpffi Tmfmt a> mTjuTT m TfFrjlTU S2 iT lijiTffTííTí]! íí i j í fi i fm liuMji * i'1 j i 21 S2 «s S=|
íoíU. ULj r r f r í f I imliiii itlHim fULlU.LL inilim,. JLUliiUl
/ "V Y v \
/ a 'ngki . •/ \ \
I 4 Y' « 1 ■ m: I t / / ■ ■ | Æ
°0
o
3
<
PÖKKUN OG DREIFING: ÞYKKVABÆJARKARTÖFLUR HF, GILSBÚÐ 5,
GARÐABÆ.