Morgunblaðið - 13.02.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
Steinullarverksmiðjan Sauðárkróki:
Stjórnarmenn bjart-
sýnir á reksturinn
Peningaskápurinn
fannst undir brúnni
LÖGREGLAN fann í gær pen-
ingaskáp, sem stolið var í
innbroti hjá fiskverkuninni
Hafnfirðingi M. i Hafnarfirði
aðfaranótt miðvikudags. Skáp-
urinn fannst í Elliðaánum,
undir brú skammt frá efri
stíflunni. Hafði hann verið
sprengdur upp og var tómur.
Þegar skápnum var stolið voru
ekki neinir peningar í honum, en
10 ávísanahefti, tölvuforrit og
ýmsir pappírar. Tékkheftin eru fiá
aðalbanka Landsbanka íslands.
Peningaskápurinn fannst undir
brúnni. Búið var að sprengja
hann upp eins og sést á inn-
feUdu myndinni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Albert Guðmundsson og Biwott iðnaðarráðherra Kenya.
Iðnaðarráðherra Kenýa íheimsókn
Iðnaðarráðherra Kenýa, K.N.
K. Biwott, kom til landsins í
gær, til viðræðna við stjórnvöld
og verktaka um hugsanleg
verkefni á sviði virkjunarmála
í Kenýa. Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra tók á móti
honum. Biwott mun dvelja hér-
lendis til nk. þriðjudags. í för
með Biwott eru eiginkona hans
og dóttir, ráðuneytisstjóri fjár-
málaráðuneytis Kenýa og
forstjóri rafveitu landsins.
Lækkun umboðslauna til SÍS eitt af skil-
yrðum ríkissjóðs fyrir hlutafjáraukningu
STJÓRN Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki fundaði í
Reykjavík í gær um framtíðarhorfur verksmiðjunnar og þann
árangur sem náðst hefur í að endurskipuleggja og endurfjár-
magna rekstur hennar, svo hann verði tryggður í framtiðinni.
Vilyrði hluthafa lágu fyrir, þegar endurskoðun hófst, um að auka
hlutafé verksmiðjunnar um samtals 60 milljónir króna, næðist
samkomulag um heildarendurskipulagningu rekstrarins. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru stjórnarmenn fremur
bjartsýnir á, að þær aðgerðir sem unnið hefur verið að að undan-
förnu, beri tilætlaðan árangur, þó endanleg niðurstaða í því efni
liggi enn ekki fyrir.
Þegar endurskipulagning og
endurskoðun rekstrarins hófst,
lágu fyrir vilyrði hluthafa verk-
smiðjunnar um að auka hlut sinn
í henni í samræmi við eignarhlut,
að uppfylltum ákveðnum skilyrð-
um, samtals um 60 milljónir króna.
Ríkið á 40% í verksmiðjunni og
gaf þar af leiðandi vilyrði fyrir því
að leggja fram 24 milljónir í hluta-
íjáraukninguna. Sauðárkróks-
kaupstaður stendur að baki
Steinullarfélaginu hf. sem 37%
eignaraðili, Samband íslenskra
Framf ærslu ví sitalan:
Mælir 11,9% verð-
bólgu á síðasta ári
FRAMFÆRSLUVÍSITALAN í
febrúarbyijun reyndist vera
1,47% hærri en í janúarbyijun
og hefur hún hækkað um 11,9%
siðustu 12 mánuði. Siðustu þijá
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 4,8% sem jafngildir 20,5%
verðbólgu, en árshækkunin er
19.1% ef hækkunin milli mánað-
anna janúar og febrúar er tekin
ein og sér.
Samkvæmt útreikningum kaup-
lagsnefndar reyndist vísitala
framfærslukostnaðar vera 187,77
stig í febrúarbyijun, en 100 mið-
ast við febrúar 1984. Þetta er
1,47% hækkun milli mánaða og
stafa 0,4% af hækkun á verði
matvöru, 0,3% af hækkun hús-
næðisliðs, 0,1% af hækkun á verði
nýrra fólksbíla og um 0,7% af
hækkun á verði ýmissa vöru- og
þjónustuliða.
Vísitala framfærslukostnaðar
nú í febrúar er 0.04% hærri en
miðað var við í jólaföstusamningi
Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambands íslands.
samvinnufélaga á 16,5% og Kaup-
félag Skagfirðinga 6,5%.
Það, sem einkum vartil umræðu
á fundinum í gær, var hvemig
tekist hefur að uppfylla skilyrði
hluthafanna, til þess að þeir standi
við hlutaúárloforð sín. Telja
stjórnarmenn að horfurnar séu
nokkuð bjartar, þar sem vilyrði
hefur fengist frá finnska bankan-
um Union Bank um að skuldbreyta
láni bankans til verksmiðjunnar
(100 milljónum) og lækka vexti
af því. Norðmenn hafa enn ekki
svarað, en líklegt er talið að já-
kvæð niðurstaða fáist frá þeim.
Lán þeirra er mun lægra, eða
nálægt 30 milljónum króna.
Þá er verið að semja um endur-
skipulagningu markaðsmála og
lækkun umboðslauna til Sam-
bandsins. Það er eitt af skilyrðum
ríkissjóðs fyrir þátttöku í hluta-
íjáraukningunni og er búist við
að SÍS verði reiðubúið að semja
um lækkun. Telur stjómin því að
flest skilyrðin verði uppfyllt, en
enn hefur ekki fengist svar frá
Iðnlánasjóði og Iðnþróunarsjóði
um hvort verksmiðjan fær 30 millj-
óna króna viðbótarlán.
Stefnt er að því á næstu dögum
að lokaniðurstaða fáist í endur-
skoðunarmálum verksmiðjunnar,
þannig að unnt verði að kynna
hluthöfum niðurstöður í endanleg-
um búningi.
Útboðsgögnin útiloka
önnur félög en Rainbow
- segja fulltrúar annarra bandarískra skipafélaga og íhuga mótmæli
Washington, frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
„ÞETTA er sviðssett í þágu Rain-
bow Navigation," sagði David
Oberlin, forseti Fednav-skipafé-
Fiskmarkaður stofn-
aður í Reykjavík
HLUTAFÉLAG um rekstur fisk-
markaðar, Faxamarkaðurinn hf.,
var formlega stofnað í gær. Um
sextiu einstaklingar og félög hafa
Hnífstungnmálið í
Hamarshúsinu:
Konanjátar
verknaðinn
38 ÁRA gömul kona hefur játað
að hafa stungið mann með hnifi
í íbúð í Hamarshúsinu i fyrradag.
Hún hefur verið úrskurðuð i
gæsluvarðhald til 15. apríl nk. og
geðrannsókn á meðan rannsókn
fer fram.
Maðurinn var stunginn í bijósthol
og skurður var á hálsi. Maðurinn,
sem er 39 ára gamall, er úr lífshættu,
en ekki hefur verið hægt að yfír-
heyra hann. Konan og maðurinn eru
fyrrverandi sambýlisfólk og kallaði
konan sjálf lögregluna á staðinn í
fyrradag.
lagsins, á fundi, sem haldinn var
í gær í höfuðstöðvum sjóflutninga-
deildar bandariska flotans i
Washington. Tilgangur fundarins
var að skýra útboð í flutninga á
vegum vamarliðsins á Keflavfkur-
flugvelli.
Fulltrúar nokkurra bandarískra
skipafélaga mættu á fundinn og
ræddi fréttaritari Morgunblaðsins við
þá George Crighton frá Dock Ex-
press, áðumefndan David Oberlin frá
Fednav, og James A. Kelly, lögfræð-
ing, sem mætti fyrir Crawley-skipa-
félagið.
Þessum talsmönnum bandarísku
skipafélaganna þótti einsýnt að út-
boð sjóflutningadeildarinnar útilok-
aði tilboð af þeirra hálfu. Einkum
skráð sig fyrir tæplega 11 milljón
króna hlutafé. Vonast er til að
markaðurinn hefji starfsemi sina
í april næstkomandi.
Tilgangur með stofnun félagsins
er að reka uppboðsmarkað með fisk
á íslandi, baeði staðbundinn markað,
sem og uppboðsmarkað gegnum fjar-
skipti. Faxamarkaðurinn hf. verður
til húsa í Faxaskála í Reykjavíkur-
höfn og hefur þegar verið hafíst
handa við að innrétta húsnæðið. Að
sögn Ágústs Einarssonar í Hrað-
frystistöð Reykjavíkur, nýkjörins
formanns stjómar hlutafélagsins,
standa vonir til að lokið verði við
innréttingamar á næstu sex vikum.
Leitað hefur verið eftir óformlegum
tilboðum í tæki til markaðarins og
umsóknir hafa borist um stöðu fram-
kvæmdastjóra.
Auk Ágústs vom iqömir í stjóm
þeir Brynjólfur Bjamason, varafor-
maður, Jón Ásbjömsson ritari, Gísli
Jón Heimannsson og Gunnar B.
Bjömsson. í varastjóm vom kjömir
Ágúst Einarsson, Lýsi hf., Hannes
Valdimarsson, Sigurbjöm Svavars-
son, Ríkharður Jónsson og Ævar
Guðmundsson.
gagnrýndu þeir ákvæði um 300 feta
hámarkslengd flutningaskipa á veg-
um bandarískra tilboðsaðila og það
skilyrði að viðkomandi skip risti í
mesta lagi 16 fet. David Oberlin
gramdist svo mjög að hann yfirgaf
fundinn þegar upplýstist að þessum
skilyrðum verður ekki breytt. Hann
tjáði fréttaritara Morgunblaðsins
símleiðis eftir fundinn að hann væri
að velta því fyrir sér að bera fram
formleg mótmæli innan tveggja
vikna. Fulltrúar hinna bandarísku
félaganna íhuga einnig mótmæli.
Mark Young, forstjóri Rainbow
Navigation, var á fundi sjóflutninga-
deildarinnar í gær og kvaðst telja
útboðsgögnin í fullu samræmi við
þær skyldur sem lagðar em á Banda-
ríkjaflota. Hann sagðist bjartsýnn
að eðlisfari og vonast til að fá áfram
að flytja vömr til íslands.
Ákvæðin, sem fulltrúum sumra
bandarískra skipafélaga þóttu ámæl-
isverð, eiga ekki við um þann hluta
flutninganna, sem falla mun íslenzk-
um aðilum í skaut. Fund sjóflutn-
ingadeildarinnar í gær sóttu fulltrúar
Eimskips, þeir Birgir Harðarson og
Hjörleifur Jakobsson, ennfremur
Nancy Hart frá umboðsaðilum Skipa-
deildar Sambandsins í New York, og
Finnbogi Gíslason á vegum Víkur-
skipa. Frestur til að skila tilboðum
í vömflutninga á vegum flotans renn-
ur út 6. marz nk. Búizt er við að
upplýsingar um lægstu tilboð liggi
fyrir í apríl og að aðilar hefli flutn-
inga í maímánuði.
Það skipafélag, bandarískt eða
íslenzkt, sem gerir lægsta tilboðið,
hlýtur 65% flutninganna. Afganginn
hlýtur skipafélag það frá hinu
landinu sem gerir lægst tilboð þeirra.
Morpinblaðið/Júlíus