Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
Dagskrár-
spjall
Eg heyri ekki nógu vel í rás 2 á
FM 102 en því betur í Bylgj-
unni á 98,9! Úr því ég minnist á
Bylgjuna er í lagi að minna á ferð
þeirra Bylgjumanna í Sjallann um
helgina. Þessi ferð hefur að mínu
mati verið full rækilega auglýst á
Bylgjunni en einkastöðvamar eru
býsna duglegar við að auglýsa hvers-
kyns dagskrárauka. Starfsmenn
ríkisstöðvanna eru mun hógværari.
Þá er bara að vona að Sjallaferðin
glæði áhuga sunnanmanna á norð-
lensku skemmtanalífí einsog til stóð.
ítakt
Þátturinn í takt við tímann var
svo sannarlega í takt við tímann að
þessu sinni. Olafur Hauksson kynnti
hið nýjasta í tölvutækninni, einkum
þó einkatölvumar. Einnig kynnti Ól-
afur hina ævintýralegu „teiknitölvu",
er ónefnt kvikmyndafyrirtæki hefír
fest kaup á, en þessi undragripur
getur breytt myndverkum að því er
virðist áreynslulaust. En dýr myndi
Hafliði allur; ein klukkustund við
töfraskjámn kostar allt að 100 þús-
undkall. Á endanum greiðir náttúru-
lega neytandinn fýrir allan þennan
kostnað, en á móti kemur verulegur
tímaspamaður listafólksins. Til stóð
að senda þáttinn í takt við tímann
út frá Höfða en svo færðu menn sig
um set í hús Rafveitunnar við Ell-
iðaárvoga. Virðast umsjónarmenn
þáttarins hafa þá stefnuskrá að
kynna helstu stofnanir Reykjavíkur-
borgar. Kann ég þessu vel en biðst
þó undan beinni útsendingu frá ösku-
haugunum. Einhverjir gestir mættu
í salarkynni Rafveitunnar en áhorf-
endur sáu því miður aldrei framaní
þær skuggaverur nema þá afreks-
mennina Jón L. Ámason skákmann
og Jón Pál kraftajötun. Jón Páll aug-
lýsti grimmt í þættinum, enda frekur
á fóðrunum. Er ekki við hæfí að fast-
launa þennan mikla afreksmann rétt
einsog skákmennina okkar?
ViÖfótskör . . .
Síðast á dagskrá ríkissjónvarpsins
í fýrradag var ríflega 20 mínútna
þáttur þar sem yfírmaður innlendrar
dagskrárgerðar, Hrafn Gunnlaugs-
son, ræddi við Ingmar Bergman.
Nefndist þátturinn Meistari Berg-
man á íslandi og var þar vísað til
heimsóknar Bergmans á Listahátíð
'86. Það er óþarfí að titla Bergman
meistara; þeirri nafnbót hefír að
undanfömu verið klínt full ótæpilega
á ýmsa minni spámenn hér á sker-
inu. Einsog allir vita er Ingmar
Bergman sennilega frægasti núlif-
andi kvikmyndaleikstjóri plánetunn-
ar ásamt Fellini og Woody Allen.
Hefír Bergman um langan aldur
skyggt á kollegana í Svíþjóð, ekki í
krafti klíkuskapar eða bægslagangs,
heldur einstaklega persónulegrar
myndsýnar, er hefír markað nýtt
skeið í kvikmyndasögunni, sem
gjaman er nefnt tímabil hinna
skandínavísku vandamálamynda.
Bergman var lítillátur að hætti
sannra listamanna. Þess vegna hefði
Hrafn eins getað verið að rabba við
snjallan húsasmið, vísindamann, rit-
höfund, lækni, stjómmálamann,
kennara, fóstru eða pabba. Viðhorf
Bergmans til starfs síns er viðhorf
hins sanna fagmanns: Ég vildi kynna
mér og hafa vald á öllum þáttum
kvikmyndagerðar! Ég held að menn
geti verið sammála um að Ingmar
Bergman hafí tekist að sigrast á hin-
um margbrotna miðli er kvikmynd
nefnist. Þannig er hann í senn snill-
ingur í að laða fram innri heim
leikarans, myndsýnin er skörp og það
sem skiptir ekki minnstu máli að
hann er snjall handritasmiður, en á
handritinu hvílir kvikmyndin. Hitt
er svo aftur annað mál að sum við-
fangsefna Bergmans eru ekki beint
hjartastyrkjandi — en það er nú önn-
ur saga.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/ SJÓNVARP
Rás 1:
Það er eitthvað sem enginn veit
í dag er þriðji
-j a 00 'estur miðdegis-
14: — sögunnar „Það
er eitthvað sem enginn
veit“. Þetta eru bernsku-
minningar Líneyjar Jó-
hannesdóttur og les hæún
sjálf, en Þorgeir Þorgeirs-
son skráði.
Líney er frá Laxamýri í
Suður-Þingeyjarsýslu,
bróðurdóttir Jóhanns
skálds Sigurjónssonar. Hér
segir hún frá æskustöðvum
sínum og fólki sem henni
var nákomið, einkum Jó-
hannesi föður sínum.
Margt annað fólk í Þingeyj-
arsýslu kemur við sögu í
þessari minningabók, sem
skráð er af miklu listfengi.
Líney er fædd árið 1913
og hefur sjálf ritað nokkrar
bækur, smásögur,
barnabækur og skáldsög-
ur. Bókin „Það er eitthvað
sem enginn veit" kom út á
vegum bókaforlagsins Ið-
unnar árið 1975. Sagan er
átta lestrar.
RÚV Sjónvarp
Sælt er í
sveitinni
■■■■ Tékknesk bíó-
OQ35 mynd. Einfeldn-
ingurinn Ota,
ákveður að flytjast frá sam-
yrkjubúinu í borgina. For-
stöðumaðurinn reynir að fá
hann ofan af því í fýrstu, en
í raun vilja ekki margir hafa
Oda en ágimast kofa hans.
UTVARP
FOSTUDAGUR
13. febrúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.
Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og Lára
Marteinsdóttir. Fréttir eru
sagðar kl. 7.30 og 8.00 og
veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Erlingur
Sigurðarson talar um dag-
legt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03Morgunstund barnanna:
„Stúlkan í glerkistunni".
Elísabet Brekkan endurseg-
ir þetta þýska ævintýri úr
safni Grimmsbræðra.
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiö úr forustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ljáðu mér eyra
Umsjón: Málmfriður Sigurð-
ardóttir. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Það
er eitthvað sem enginn
veit.“ Líney Jóhannesdóttir
les endurminningar sínar
sem Þorgeir Þorgeirsson
skráði (3).
14.30 Nýtt undir nálinni. Elin
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn
Lesið úr forustugreinum
landsmálablaða.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Síödegistónleikar.
a. „Helena fagra", forleikur
eftir Jacques Offenbach.
Fílharmoníusveitin í Berlin
leikur; Herbert von Karajan
stjórnar.
b. „Slæpingjabarinn", op.
58 eftir Darius Milhaud.
Franska ríkishljómsveitin
leikur; Leonard Bernstein
stjórnar.
c. Souffle Parfume, vals eft-
ir Joseph Vézina. Útvarps-
hljómsveitin í Winnipeg
leikur; Eric Wild stjórnar.
17.40 Torgið — Viðburðir
helgarinnar
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Erlingur Sigurð-
arson flytur.
19.40 Þingmál
Umsjón: Atli Rúnar Hall-
dórsson.
20.00 Lög unga fólksins.
Valtýr Björn Valtýsson kynn-
ir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Úr Mímisbrunni
Þáttur íslenskunema við
Háskóla (slands: Galdra-
Loftur, þjóðsaga og leikrit.
Umsjón: Bjarki Bjarnason.
b. Vestan um haf
SJÓNVARP
■Q.
AT
FÖSTUDAGUR
13. febrúar
18.00 Nilli Hólmgeirsson
Þriðji þáttur. Þýskur teikni-
myndaflokkur gerður eftir
kunnri barnasögu eftir
Selmu Lagerlöf um ævin-
týraferö drenghnokka í
gæsahópi. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir.
18.25 Stundin okkar — Endur-
sýning frá 8. febrúar.
19.00 Á döfinni
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.10 Þingsjá
Umsjón: Ólafur Sigurðsson.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Spítalalíf
(M*A*S*H). Átjándi þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyðar-
sjúkrastöð bandaríska
hersins í Kóreustríðinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýöandi Kristmann Eiösson.
20.00 Fréttir og veður
20.36 Auglýsingarog dagskrá
20.40 Unglingarnirífrumskóg-
inum. Valin atriði úr þáttum
á liðnu ári. Umsjón: Árni
Sigurösson.
21.10 Mike Hammer
Þriðji þáttur. Bandarískur
sakamálamyndaflokkur
gerður eftir sögum Mickey
Spillane um einkaspæjar-
ann Mike Hammer. Aðal-
hlutverk Stacy Keach.
Þýöandi Stefán Jökulsson.
22.00 Kastljós — Þáttur um
innlend málefni. Umsjónar-
maður Gunnar E. Kvaran.
22.30 Seinni fréttir
22.35 Sælt er í sveitinni
Tékknesk bíómynd gerð
árið 1985. Leikstjóri Jirí
Menzel. Aðalhlutverk: János
Bán, Marián Labuda, Ru-
dolf Hrusínský, Milena
Dvorská og Evzen Jegorov.
Skondin saga úr sveitaþorpi
um einfeldning sem fær þá
flugu í höfuðið að flytjast til
borgarinnar. Margir vilja
komast yfir kotið hans og
beita til þess ýmsum brögö-
um. Þýðandi Baldur Sig-
urðsson.
00.25 Dagskrárlok
0
0
STOÐ-2
Föstudagur
3. febrúar
§ 17.00 Undir áhrifum (Under
The Influence). Ný sjón-
varpskvikmynd frá CBS-
sjónvarpsstöðinni. Mynd
um þau áhrif sem ofneysla
áfengis getur haft á fjöl-
skyldulífiö. Fjögur uppkomin
börn neyðast til að horfast
í augu viö staðreyndir eftir
að hafa horft fram hjá
vandamáli foreldra sinna
um áraraðir. Endursýning.
§ 18.30 Myndrokk.
19.00 Teiknimynd. Glæfra-
músín (Dangermouse).
19.30 Fréttir.
20.00 Um víða veröld. Frétta-
skýringarþáttur í umsjón
Þóris Guömundssonar.
§ 20.20 Geimálfurinn (Alf).
Bandarískur gamanþáttur.
§ 20.55 Háskaleg eftirför
(Moving Violations).
Bandarísk bíómynd frá
1976 með Stephen
McHattie, Kay Lenz og
Eddie Albert i aðalhlutverk-
um. Að undirlagi eins
broddborgara bæjarins
fremur lögreglustjóri morð.
Ungt par verður vitni að
morðinu. Þegar þau eru
sökuð um verknaðinn leggja
þau á flótta og er þeim veitt
glæfraleg eftirför.
§ 22.30 Benny Hili. Breskur
gamanþáttur.
§ 22.66 I upphafi skal endinn
skoða (The Gift Of Life).
Hjón hafa árangurslaust
reynt að eignast barn.
Vandinn leysist þegar þau
fá konu til að ganga með
barnið fyrir sig. En engan
hafði órað fyrir þeim sið-
ferðislegu og tilfinningalegu
átökum sem fylgdu í kjölfar-
ið.
§ 00.20 Cabo Blanco.
Bandarísk bíomynd með
Charles Bronson, Jason
Robards, Simon MacCork-
indale og Camillu Sparv I
aöalhlutverkum. Giff Hoyt
ákveður að snúa baki við
skarkala heimsins og flytur
til Cabo Blanco, lítils fiski-
þorps við strendur Perú. En
Adam var ekki lengi í
paradís. Breskt rannsóknar-
skip rýfur kyrrð þessa rólega
þorps.
§ 1.66 Myndrokk.
3.00 Dagskrárlok.
Fyrri hluti frásöguþáttar eftir
Játvarð Jökul Júlíusson.
Torfi Jónsson les.
c. Úr sagnasjóði Árnastofn-
unar
Hallfreður Örn Eiríksson tók
saman.
21.30 Sígild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hliómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
23.00 Andvaka
Þáttur í umsjá Pálma Matt-
híassonar. (Frá Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.10 Næturstund í dúr
og moll með Knúti R. Magn-
ússyni.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til
kl.03.00.
FOSTUDAGUR
13. febrúar
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Oskalög hlust-
enda á landsbyggðinni og
getraun.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Gunnlaugs Sigfús-
sonar.
13.00 Bót i máli.
Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynnir óska-
lög þeirra.
15.00 Sprettur. Þorsteinn G.
Gunnarsson kynnir tónlist
úr ýmsum áttum og kannar
hvað er á seyöi um helgina.
17.00 Fjör á föstudegi með
Bjarna Degi Jónssyni.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin - Andrea
Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt með Þor-
geiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Föstudagsrabb. Inga Eydal
rabbar við hlustendur og les
kveðjur frá þeim, leikur létta
tónlist og greinir frá helstu
viðburðum helgarinnar.
989
BYLGJAN
FOSTUDAGUR
13. febrúar
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blööin og
spjallar við hlustendur dg
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Föstu-
dagspoppið allsráðandi,
bein lína til hlustenda, af-
mæliskveðjur, kveðjur til
brúðhjóna og matarupp-
skriftir. Fréttir kl. 10.00,
11.00 og 12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með þvf
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla við fólk.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—16.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síðdegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
síödegis. Þægileg tónlist
hjá Hallgrími, hann lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk
sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson. Þorsteinn leikur
tónlist úr ýmsum áttum og
kannar hvað næturlífið hefur
upp á að bjóða.
22.00—03.00 Jón Axel Ólafs
son. Þessi sfhressi nátt-
hrafn Bylgjunnar kemur
okkur i helgarstuð með
góðri tónlist. Spennandi
leikur með góðum verðlaun
um.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
ALFA
Kristllef ÉtvarfaitM.
FM 102,9
FÖSTUDAGUR
13. febrúar
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
21.00 Ljóskorn. Stjórnendur:
Alfons Hannesson og Eiður
Aðalgeirsson.
24.00 Á réttum nótum. Stjórn-
endur: Andri Páll Heide og
Óskar Birgisson.
4.00 Dagskrárlok.