Morgunblaðið - 13.02.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
11
Þessar hugleiðingar eða ábend-
ingar eru ekki settar á blað sérstak-
lega vegna ljóðakvers Matthíasar
Magnússonar, Við segjurn ekki
nóg, heldur gilda þær um mörg
skáld sem undirritaður hefur fjallað
um. En ljóð Matthíasar eins og
margra annarra ungra skálda bera
það með sér að hann er að þreifa
fyrir sér, fínna ljóðhugsun sinni
stað í skáldskaparlandslaginu.
Matthías Magnússon hefur verið
að þjálfa sig í súrrealisma eins og
fleiri Medúsumenn, ýmist heimatil-
búnum eða samkvæmt uppskrift.
Eitt ljóðanna í Við segjum ekki nóg
nefnist Með hundrað augu eins og
venjulega:
einhvers staðar á efstu hæð
er hvítt völundarhús
bamalega byggt og hvítt eins og sápuþvegið tré
þar hef ég birst og stirðnað af hræðslu
og þar hef ég hitt konu sem færði mér
þrjár hvelfdar krukkur hálfar af ljósi
hún var búin til úr dálitilli stjömuskímu
fullu herbergi af ryki sem settist á kinnar hennar
og tveimur spenntum bogum sem vora auga-
brúnir þessara
stóru lokuðu augna
Fuglar og fiskar eru algengir í
súrrealískum ljóðum og reyndar öll-
um ljóðum. Matthías Magnússon
yrkir um tvíklofinn fisk sem datt
af baki á bresku veðreiðunum. I
upphafsljóðinu mjálma fuglar og í
ljóði sem nefnist Niður Breiðholtið
smýgur vagninn í beygju eins og
fugl og jafnvel konan minnir á vél-
fugl: „sé konuna mína úr fjarlægð /
eins og hún sé lítil hvít flugvél".
Fleiri dæmi mætti nefna um físka
og fugla í Við segjum ekki nóg.
það eru góðar ljóðmyndir í bók
Matthíasar Magnússonar og víða
er komist skemmtilega að orði. En
hann heldur sig að mestu á kunnug-
legum slóðum súrrealismans þótt
sum ljóðin vitni um þróun í átt til
opnari og raunsærri ljóðstfls, til
dæmis Italía, Porsche Etienne
Aigner og Dvergar. Við bíðum með
nokkurri eftirvæntingu eftir fram-
haldinu. Þolinmóð.
Ritdómurinn er birtur aftur,
þar sem hluti hans féll niður í
gær.
Flokkur manns-
ins með lista
á Austurlandi
Á FUNDI kjördæmisráðs Flokks
mannsins á Austurlandi um
síðastliðna helgi var ákveðin röð
frambjóðenda á framboðslista
flokksins til Alþingiskosninga í
vor.
Efstu fimm sætin skipa: Methú-
salem Þórisson skrifstofumaður,
Reykjavík, Magnea Jónasdóttir
húsmóðir, Eskifírði, Sveinn Jónas-
son verslunarmaður, Eskifirði,
Svanur Jóhannsson sjómaður,
Höfn, og Heimir Magnússon bóndi,
Vopnafirði.
(Fréttatilkynning)
Ráðstefna
BSRB um opin-
bera þjónustu
BANDALAG starfsmanna ríkis
og bæja efnir til ráðstefnu undir
heitinu „Ráðstefna um gildi og
framtíð opinberrar þjónustu“.
Ráðstefnan verður haldin i Borg-
artúni 6, Reykjavík, á 45 ára
afmæli BSRB þann 14. febrúar
nk. og hefst kl. 08.45.
Á ráðstefnunni verður einkum
fjallað um opinberan rekstur eins
og hann er nú og hugsanlegar
breytingar í framtíðinni. Ennfremur
verður á ráðstefnunni rætt um
stöðu starfsmanna hins opinbera,
t.d. hver launakjör þeirra ættu að
vera í sambandi við starfsmenn hjá
einkaaðilum og álit almennings á
störfum opinberra starfsmanna.
Hinn stórkostlegi
Tommy Hunt, sem sleg-
ið hefur í gegn að
undanförnu í Þórskabar-
ett, skemmtir matar-
gestum.
Hljómsveitin SANTOS
ásamt söngkonunni
Guðrúnu Gunnarsdóttur
leika fyrirdansi.
Glæsilegt ferðabingó
Ásadans stiginn: Heppið
par fær vinning.
Stjórnandi kvölds-
ins er hinn eldhressi
Guðlaugur T rygg vi
Karlsson
Matseðill:
Sveppasúpa
Eldsteikt nautafillé
með koníakssósu
Leynigestur
kvöldsins
skemmtilegur leikur —
hver getur rétt upp á
leynigestinum? Veg-
leg verðlaun.
Borðapantanir hjá
veitingastjóra i símum:
23333 og 23335
FERÐA- OG SKEMMTIKVOLD
Sunnudaginn 15. febrúar 1987
frá kl. 19.00-01.00.
Tekið á móti gestum með fordrykk milli kl. 19.00-20.00.
Vinnufólagar, hópar og vaktavinnufólk:
Ferðahátíð í Þórscafé er góð skemmtun fyrir þá sem ekki eiga þess
kost að heimsækja okkur önnur kvöld, eða sem framlenging á góðri helgi.
ÞÓRSCAFÉ — LYKILLINN AÐ ÁNÆGJULEGRI KVÖLDSTUND
Við bjóðum:
Allar gerðir IBM System/36-tölva
Fjölbreyttan hugbúnað fyrir IBM S/36
Námskeið fyrir IBM S/36-notendur
Uppsetningu og kapallagnir
Margar gerðir prentara fyrir IBM S/36
á hagstæðu verði
Sem sagt heildar lausn
hagkvæma lausn
GÍSLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16 — sími 641222