Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
53
Pessir hringdu . . .
Hringur tapaðist
við Hagaskóla
Guðrún
Ég tapaði hring fyrir rúmri viku
á göngustígnum við íþróttahús
Hagaskóla. Finnandi er vinsam-
legast beðinn um að skila honum
til húsvarðar Hagaskóla. Þetta er
gullhringur með litlum hvítum
steini.
Truf lið ekki
teiknimyndirnar
um helgar
Eyjólfur Karlsson hringdi:
Mér finnst að Stöð 2 eigi ekki
að trufla teiknimyndirnar á laug-
ardögum og sunnudögum. Um
síðustu helgi urðu ég og frændi
minn fyrir miklum vonbrigðum
yfir að geta ekki séð þær.
Týndi poka með
prjónum
Guðrún hringdi:
Ég varð fyrir því óláni að týna
poka með pijónagarni, pijónum
o.fl. nýlega. Ég fór með leið 4
niður á Hlemm og var með plast-
poka merktum Garnbúðinni
Tinnu. Ég hef tapað pokanum
annað hvort í strætisvagninum
eða biðskýlinu. Honum hafði þó
ekki verið komið til vagnstjórans,
ég hef athugað það. Ef einhver
hefur fundið hann bið ég hann
um að koma honum til óskila-
munadeildar strætisvagnanna við
Hlemm.
Ég vil líka koma því á fram-
færi að mér finnast öll þessi
upphróp og læti um ástandið á
Hlemmi vera stórlega ýkt. Þetta
er ekki nærri því eins slæmt eins
^0£^aðerjátið^^^^^^^^^
Seljið
viðvörunar
merki við Kúa-
gerði
Sigrún hringdi:
Mér finnst að þeir sem sjá um
Reykjanesbrautina ættu að
merkja betur við Kúagerðina,
setja þar upp viðvörunarmerki út
af beygjunum. Það myndi draga
stórlega úr slysahættu.
Eru engar regl-
ur um verð á
vídeóleigum?
Vídeóeigandi hringdi:
Eru engin lög til sem ná yfir
videóleigur. Hér í Breiðholtinu eru
einar átta videóleigur og þær eru
held ég allar með sama verð á
öllum myndum, sama hvort þær
séu ótextaðar eða ekki. Þetta er
líka svona á öðrum stöðum í bæn-
um. Manni finnst þetta svo lítið
skrýtið, að þurfa að borga sama
verð fyrir spólurnar, sama hvort
þær séu nýjar eða gamlar, textað-
ar eða ótextaðar.
Fleiri bekki fyrir
farþega
Eldri kona hringdi:
Ég hef sett grein áður í blaðið
um ástandið á Hlemmi og vil nú
láta gleði mína í ljós yfír því, að
nú verður sennilega eitthvað bætt
úr því sem ég drap þar á. En fyr-
ir alla muni setið þið fleiri bekki
fyrir farþega og útrýmið pönkur-
um þeim sem hafa setið þama
með ólæti undanfarna daga og
klippt hvorn annann með raf-
magnsklippum.
Umferðarljós í
Arbæjarhverfið
Helga hringdi:
Af hveiju eru ekki látin um-
ferðarljós þar sem maður fer út
úr Árbæjarhverfinu? Það eru oft
mikil vandræði að komast út úr
hverfinu, sérstaklega þegar mikið
liggur á.
Föðurleg
ábending til
menntamála-
ráðherra
ÉG GET ekki lengur setið á mér
að láta í ljósi álit mitt á fræðslu-
stjóramálinu svokallaða. Þegar
réttlætiskennd manns er mis-
boðið á jafnharkalegan hátt, fer
ekki hjá því að maður fari að
íhuga málin og spyíji, hvað sé
að gerast.
Hvemig má það vera, að ráð-
herra úr stjómmálaflokki, sem
kennir sig við lýðræði og mann-
gæskuhugsjónir, fremji þvílík
afglöp, að reka fyrirvaralaust úr
starfi opinberan embættismann,
mann sem sannanlega hefur gegnt
starfi sínu af viti og trúmennsku í
hvívetna og umfram allt eftir lands-
ins lögum?
Sverrir Hermannsson má vita
það, að ég hef fylgt Sjálfstæðis-
flokknum að málum í gegnum tíðina
og ekki fundist ég þurfa að skamm-
ast mín fyrir, fyrr en nú, þegar
menntamálaráðherra flokksins
verður þvílíkt á í messunni. Fer
ekki hjá því, að ég fylgi fjölda
flokksmanna og segi bless. Að svo
skrifuðu, föðurleg ábending: Eng-
inn er alfullkominn, jafnvel ekki þó
hann sé menntamálaráðherra. Mik-
ið stækkaði hann í huga alþjóðar,
ef hann stæði upp á Alþingi og
segði: Mér hefur orðið á. Mér skjátl-
aðist. Ég vil sættir. Þetta væri
kallað að bijóta odd af oflæti. Þá
yrði Sverrir Hermannsson stórt
nafn í huga alþjóðar.
í kærieika sagt.
Hjálmar Lúðvíksson.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Er Jóhanna
hrekkjalóm-
ur, eður ei?
Heiðraði Velvakandi.
Sunnudaginn 1. febrúar birtist í
dálkum Víkveija grein um tak-
markaðar tekjur atvinnurekenda og
var þar vitnað til greinar í Morgun-
blaðinu þar að lútandi eftir konu
vestur á ísafirði. í grein Víkveija
var og talað um fyrirspumir Jó-
hönnu Sigurðardóttur á Alþingi, er
lutu að sama efni.
Nú var grein Víkveija hreint
ekki óvinsamleg í garð þessara
tveggja kvenna, nema síður væri.
En í greininni var Jóhanna nefnd
„hrekkjalómur". Nú er undirrituð
ekki flokkssystir Jóhönnu, en þetta
orðalag kann ég ekki við. Það segja
mér einnig fróðir menn, að Jóhanna
Sigurðardóttir sé almennt talin ein-
hver duglegasti þingmaðurinn, og
ekki nóg með það, heldur sé hún
mjög lagin að koma fram málum.
Nefni aðeins, að ég held, að eina
breytingartillagan sem stjórnarand-
stöðuþingmaður fékk samþykkta
við afgreiðslu fjárlaga hafi verið
tillaga Jóhönnu um athugun á tann-
læknakostnaði.
Þetta vil ég sem sagt ekki flokka
undir hrekki, heldur hæfileika til
að vekja athygli á hlutum, sem
verðir eru eftirtektar, svo og hæfni
til að koma málum fram.
Með þökk fyrir birtingu,
Sigríður Sigurðardóttir
Börnin í umferðinni eru börnin okkar. Þar sem þau eru
á eða við akbrautir, er nauðsynlegt að sýna sérstaka
aðgát. Oll viljum við vernda börnin okkar fyrir hættum
í umferðinni. Það gerum við best með því að sýna gott
fordæmi.
Svefnbekkur með
dýnu og 3 púðum.
Kr. 8.260,-
Yfirhillur
Kr. 5.450,-
Skrifborð með hillu
Kr. 4.450,-
Skrifborð með hillu
Kr. 5.560,-
Svefnbekkur með dýnum + 3 púðum + hillum
Kr. 11.650,-
Kommóður, 8 skúffur
Kr. 5.380,-
6 skúffur
Kr. 4.250,-
4 skúffur
Kr. 3.250,-
Öll húsgögnin spónlögð með eikar-
fólíu sem er mjög slitsterk og auðveld
að þrífa.
30% útborgun og eftirstöðvar á 6 mán.
Við höfum margar aðrar gerðir af húsgögnum fyrir
börn og unglinga og milli 20—30 gerðir af tvíbreið-
um svefnsófum.
Útborgun á afborgunarsamninga má að sjálfsögðu
greiða með kreditkortum og þeirsem nota Eurokred-
it geta fengið keypt án útborgunar.
húsgagna-höllin
REYKJAVlK
MOBLER