Morgunblaðið - 13.02.1987, Blaðsíða 56
BRUIMBÓT
r -AFÖRYGGISASTÆDUM
Nýjungar
í 70 ár
ftgtmlrifafetfe
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Auka verður gæslu
í skýlinu á Hlemmi
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„ÞAÐ eina sem við getum gert
er að bæta gæsluna i biðskýlinu
bæði af okkar hálfu og lögregl-
unnar,“ sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri um viðbrögð við því
ástandi, sem skapast hefur í bið-
skýli Strætisvagna Reykjavíkur
við Hlemm. „Fólki verður að
finnast það vera öruggt þarna.“
Davíð sagðist hafa átt fund með
Böðvari Bragasyni lögreglustjóra
um málið. Þar hefði verið rætt um
að leita nýrra leiða gegn þessu
vandamáli og verða þær væntan-
lega kynntar á næstu dögum.
„Þetta er erfítt við að eiga þar sem
þarna er um almenning að ræða
og ekki gott að visa fólki burt, ein-
ungis vegna klæðaburðar. Það er
ekki hægt að fjarlægja neinn nema
hann hafí gert eitthvað af sér,“
sagði Davíð. „Vandamálið er að
þegar talað er um að opna annan
stað fyrir þetta fólk þá er í raun
verið að tala um að opna búllu, sem
borgin ræki og 14 til 16 ára ungl-
ingar gengju um. Það er engin
lausn."
Loðnufrysting hafin
í Vestmannaeyjum
LOÐNUFRYSTING hófst í Vest-
mannaeyjum síðdegis í gær.
ísleifur VE kom með fyrstu
frystingarhæfu loðnuna á vertið-
inni, um 300 tonn, og var þegar
hafist handa við frystinguna i
^fjórum frystihúsum.
„Stærðin á loðnunni er góð og
hrognafyllingin í lagi, um 15%, eða
nægileg til þess að við getum byij-
að,“ sagði Hjörtur Hermannsson í
samtali við Morgunblaðið, en hann
hefur jrfirumsjón með loðnufryst-
ingu og hrognatöku í Eyjum. Gert
er ráð fyrir að frysta verulegt magn
á þessari vertíð enda afkastageta
frystihúsanna í Eyjum mikil. Hjört-
ur bjóst við að hrognataka gæti
hugsanlega hafíst þegar kemur
fram undir mánaðamótin.
— hkj.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Útskipun á saltsíld ífullum gangi
ÚTSKIPUN á saltsíld er nú í fullum gangi að loknu verkfalii undirmanna á kaupskipum. Um þessar mundir
er verið að ferma 6 skip og auk þess verið að ganga frá smærri sendingum. Myndin var tekin er verið var
að lesta Lagarfoss í Grindavík.
Morgunbladid/Sigurgeir
Hertar reglur um frádrátt
dagpeninga og bílastyrkja
Frádrátturinn nam 1,4 milljörðum í fyrra, en á að verða um 500 milljónir
ÞEGAR staðgreiðslukerfi
skatta tekur gildi verða dag-
peningar á ferðalögum og
ökutækjastyrkir taldir til launa
og af þeim staðgreiddir skattar
eins og öðrum tekjum. Við upp-
gjör staðgreiðsluárs, þegar
fram fer endanleg álagning
tekjuskatts og útsvars, geta
skattgreiðendur hins vegar lagt
fram gögn, er sýna að um raun-
verulegan kostnað í þágu
vinnuveitenda var að ræða, og
fengið hann endurgreiddan
með verðbótum, ef þeir skulda
ekki önnur opinber gjöld. Þeir,
sem ekki geta lagt fram ótvíræð
gögn um útgjöld sín, missa rétt.
til að draga þessa liði frá skatt-
skyldum tekjum sínum.
Jón Guðmundsson hjá embætti
ríkisskattstjóra sagði í viðtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að hugmyndin væri sú að tak-
marka frádrátt dagpeninga og
ökutækjastyrks við þá, sem raun-
verulega hefðu lagt út kostnað á
Hart deilt um þingsályktunartillögu Eyjólfs Konráðs um Þjóðhagsstofnun:
Sýndarplagg, segir Jón Baldvin
Kerfiskarlar, segir Birgir Isleifur
í FRAMSÖGURÆÐU fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að
Þjóðliagsstofnun verði lögð niður sagði Eyjólfur Konráð Jónsson
meðal annars á Alþingi í gær, að margar ríkisstofnanir væru að
„bjástra við sömu eða náskyld verkefni“ á kostnað skattborgar-
anna. Tímabært væri að fara ofan í saumana á þessum málum
og hagræða og samhæfa starfsemi til að nýta betur starfskrafta
og skattfé.
stöðumanns stofnunarinnar
skamms tíuma.
til
I framhaldi af framsöguræð-
unni spunnust harðar deilur milli
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðuflokksins. Jón Baldvin
Hannibalsson sagðist ekki vita
hvort hann ætti að taka tillöguna
alvarlega og sagði nana sýndar-
plagg, illa grundaða og illa unna.
Eiður Guðnason sagði að ef
grannt væri skoðað væri tillagan
mikil viðurkénning á Jóni Sigurðs-
syni, gem gegnt hafi starfi for-
Birgir ísleifur Gunnarsson
sagði formann Alþýðuflokksins
hafa farið eins og hvítan storm-
sveip um landið lofandi því að
bijóta kerfísmúrinn. Þegar þessi
meinti baráttu- og byltingarmað-
ur stæði frammi fyrir hagræðing-
artillögu reyndist hann hreinrækt-
aður kerfískarl. Ástæðan væri sú
ein að kerfiskrati sæti á fleti fyr-
ir. Við kerfiskrötum mætti ekki
hrófla.
Eyjólfur Konráð mótmælti
harðlega fullyrðingum Jóns Bald-
vins þess efnis efnis að flutnings-
menn tillögunnar væru að vega
úr launsátri að einum eða neinum.
Hvert er þetta launsátur? spurði
hann. Alþingi, þar sem tillaga er
flutt?
Sjá nánar á blaðsíðu 32.
móti. Hann kvað það almenna
skoðun, sem m.a. væri haldið fram
í nýlegri skattsvikaskýrslu fjár-
málaráðherra, að mikið af þessum
greiðslum væri í raun og veru laun.
Ætlunin væri að koma í veg fyrir
þetta með því að herða mjög regl-
ur um mat á því, hvort um
raunveruleg útgjöld er að ræða
eða ekki.
Jón Guðmundsson benti jafn-
framt á, að samkvæmt 8. gr.
frumvarpsins um staðgreiðslu op-
inberra gjalda væri fjármálaráð-
herra heimilt að setja reglugerð
og ákveða með henni, að ákveðin
laun eða tegund launa skuli ekki
falla undir staðgreiðslu. Hugsan-
legt er, að fella ökutækjastyrki og
dagpeninga undir þennan lið, en
það er þó ekki áformað samkvæmt
frumvarpinu.
Þess má geta, að samkvæmt
skattframtölum fyrir árið 1985
nutu 22.015 manns skattafrá-
dráttar vegna notkunar ökutækja.
Samtals nam upphæðin rúmum
einum milljarði króna. Á sama ári
nutu 9.664 manns frádráttar
vegna dagpeninga fyrir samtals
377 milljónir króna. Hér er um
að ræða 1,4 milljarða króna í frá-
drátt. Gert er ráð fyrir því, að
með hertum reglum um sönnun á
útlögðum kostnaði lækki þessi
upphæð verulega og verði 500
milljónir króna. Aukatekjur ríkis-
sjóðs verða af þessum sökum um
900 milljónir króna.