Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987 3 Helgi og Mar- geir gerðu jafntefli HELGI Ólafsson og Margeir Pét- ursson gerðu báðir jafntefli í fystu umferð opna skákmótsins í New York sem hófst á þriðju- dag. 92 keppendur eru í opna flokknum, þar af 45 stórmeistar- ar, og mun mótið vera sterkasta opna mót sem haldið hefur verið. Helgi Ólafsson gerði jafntefli við spænska stórmeistarann Femendez í 53 leikjum. Helgi hafði svart en Spánverjinn tefldi til jafnteflis og skipti fljótlega upp á flestum mönn- um. Helgi fékk þægilega stöðu en tókst ekki að nýtajiana til vinnings. Margeir Pétursson tefldi við Júgóslavann Kapetanovic og hafði svart. Margeir náði eitthvað betra endatafli og hafnaði jafnteflisboði en var síðan að eigin sögn of fljótur á sér og lenti í vandræðum. Honum tókst samt að snúa sig út úr þeim og jafntefli var samið eftir 50 leiki. Mjög mikið var um jafntefli í fyrstu umferðinni. Skákmönnunum var raðað þannig saman að sá stiga- hæsti tefldi við þann 46. í röðinni og meðalstigamunur keppendanna í þessari fyrstu umferð var aðeins um 100 stig. Tefldar verða 11 umferðir eftir monradkerfí. Af keppendum í mótinu má nefna Spassky, Portisch, Seirawan, Sax, Adorjan, Miles og Smyslov. Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi: Starfseminni stefnt í óefni vegna uppsagna LÆKNARÁÐ heilsugæslustöðv- arinnar á Seltjarnarnesi telur að þjónustu stöðvarinnar sé stefnt í óefni vegna uppsagna háskóla- menntaðra hjúkrunaifræðinga. í frétt frá læknaráðinu segir að vel menntaðir og áhugasamir hjúk- runarfræðingar hafi ráðist til stöðvarinnar og hafi lagt metnað sinn í að taka þátt í að byggja upp góða þjónustu. Þetta hafi skilað þeim árangri að aðsókn að stöðinni sé meiri en hægt er að anna. í fréttinni lýsir læknaráð heilsu- gæslustöðvarinnar síðan yfir þungum áhyggjum af uppsögnum háskólamenntaðra hjúkrunarfræð- inga sem tóku gildi 1. apríl og skorar á samningsaðila að ganga frá viðunandi kjarasamningi við hjúkrunarfræðinga hið fyrsta þann- ig að starfsemi geti komist á ný í eðlilegt horf. Fiskimjöls- verksmiðjan kaupir Kap VE Vestmannaeyjum. EIGENDASKIPTI urðu um helg- ina á loðnuskipinu Kap II VE 4. Einar Ólafsson skipstjóri og Ágúst Guðmundsson vélstjóri seldu Fiskimjölsverksmiðjunni í Vestmannaeyjum hf. bátinn. Kaupverð fékkst ekki uppgefið. Hinir nýju eigendur munu taka við skipinu að lokinni vetrarvertíð en Kap stundar nú netaveiðar að lokinni fengsælli loðnuvertíð. Kap II er 335 brúttólestir að stærð, smíðað í Garðabæ 1968. Skipið var lengt 1972 og yfirbyggt 1974. Á síðasta ári voru gerðar umfangs- miklar endurbætur á skipinu. Fiskimjölsverksmiðjan á fyrir annað loðnuskip, Sighvat Bjamason VE. Fyrir skömmu yfirtók fyrirtækið Gunnar Ólafsson og Co. hf. rekstur Helgu Jóh. VE 41, sem var í eigu Vinnslustöðvarinnar hf. Tanginn, eins og fyrirtækið er kallað í dag- legu tali Eyjabúa, er dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar. Tanginn rek- ur stærstu matvöruverslun bæjarins og er umboðsaðili Eimskips í Eyj- um. Helga Jóh. er 155 brúttólesta skutbátur keyptur frá Skotlandi fyrir nokkrum árum. — hkj. (ÍÍSi KARNABÆR Laugavegi 66 og Glæsibæ Umbodsmenn um land allt: Adam og Eva, Vestmannaeyjum. Báran, Grindavík. Fataval, Keflavík. Lindin, Selfossi. Nína, Akranesi. ísbjörninn, Borgarnesi. Tessa, Ólafsvík. Þórshamar, Stykkishólmi. Eplið, ísafirði. Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga. Sparta, Sauðárkróki. Díana, Ólafsfirði. Mata Hari, Akureyri. Garðarshólmi. Húsavík. Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn. Nesbær, Neskaupstað. Skógar, Egilsstöðum. Viðarsbúð, Fáskrúðsfirði. Hornabær, Höfn Hornafirði. Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli. Ylfa, Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.