Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987 45 Morgunblaðið/Þorkell Fullti-úar þeirra sem ætla að halda baráttuskemmtun í Hressingar- skálanum á laugardag. Frá vinstri: Ragnheiður Þorláksdóttir, Ríkharður Hörgdal, Guðný Helgadóttir, Björk Gísladóttir. Fyrir framan þau standa Hildur Kjartansdóttir, Pétur Gunnarsson og Anna Kristjánsdóttir. Baráttuskemmt- un gegn niður- rifi gamalla húsa Isafjörður: Byggja fullkomið íþróttahús Mor^unblaðið/Úlfar Ágústsson Hafin er vinna við byggingu nýs íþróttahúss á Isafirði. Gert er ráð fyrir að steypa sökkla hússins í sumar. OLL íbúasamtök í og við gamla miðbæinn efna til baráttu- skemmtunar í Hressingarskálan- um laugardaginn 11. apríl kl. 15. Skemmtunin er haldin til að minna á að frestur til að skila inn athugasemdum um deili- skipulag miðbæjarins rann út 1. apríl síðast liðinn. Að sögn Ragnheiðar Þorláks- dóttur, fulltrúa íbúasamtaka Gijótaþorps, hafa félagasamtök og einstaklingar sent inn fjölda at- hugasemda og mótmælt fyrirhug- uðu niðurrifi húsa í miðbænum. „Hressingarskálinn er eitt þeirra húsa sem á að rífa samkvæmt skipulaginu og þess vegna höldum við skemmtunina þar um leið og vakin er athygli á þeim húsum sem fyrirhugað er að rífa,“ sagði Ragn- heiður. „Okkur virðist sem almenn- ingur hafi ekki áttað sig á hvað þau eru mörg. Þetta er of stór skammt- ur til að kyngja í einum bita.“ Onnur hús sem eiga að víkja eru Aðalstræti 7 og 16, að stofm fra tíma Innréttinga Skúla fógeta, Austurstræti 8 (ísafold), Hafnar- stræti 21 (Zimsen), Lækjargata 4, 6A, 6B og 8 (Skalli), Thorvaldsens- stræti 2 (Kvennaskólinn, síðar Sjálfstæðishúsið) og Vallarstræti 4 (Hótel Vík). Af lóð hins nýja al- þingishúss mun hverfa Kirkjustræti 8 (Skjaldbreið), 8A og 10 (Kirkju- munir) og Tjarnargata 3C og 5B. Vegna ráðhúss við Tjömina þarf að íjarlægja Tjarnargötu 11 (Fé- lagsmálastofnun). Á samkomunni í Hressingarskál- anum munu UnnurG. Sehram, Flosi Ólafsson, Sigurður A. Magnússon og Ásta Kristjana Sveinsdóttir flytja ávörp. Helgi Þorláksson og Guðjón Friðriksson Qalla um gömlu byggðina. Þórarinn Eldjárn og Ingi- björg Haraldsdóttir iesa upp og hópur leikara flytur brot úr „Reykjavík er perla“, þættir úr sögu Reykjavíkur eftir Stefán Baldurs- son. Dómkirkjukórinn syngur við innganginn. ísafirði. NÚ ER hafinn undirbúningur að þyggingpi nýs íþróttahúss á ísafirði. Húsið á að rísa sunnan við byggingar menntaskólans á Torfnesi. Húsið, sem er teiknað af Vilhjálmi Hjálmarssyni arki- tekt menntaskólans, er 2.184 fermetrar að flatarmáli, en iþróttasalurinn er 27x45 metrar. Þá er gert ráð fyrir að seinna megi byggja 25 metra sundlaug við íþróttahúsið, sem nýtir að hluta þá aðstöðu sem skapast í íþróttaliúsinu. Áætlaður byggingarkostnaður er um 86 milljónir og greiðir bæjar- sjóður um 34,5 milljónir. í fram- kvæmdaáætlun er gert ráð fyrir að hægt verði að taka húsið í notkun haustið 1991. Undirbúningur að byggingu hússins hófst með kjöri nefndar undir forystu Guðmundar H. Ingólfssonar árið 1979. Nefndin átti ítarlegar viðræður við mennta- málaráðuneytið og gerði ýmsar athuganir. Skilaði hún áliti þá strax um haustið. Ný nefnd var svo kosin 1982 og hefur verið unnið að undirbúningi málsins viðstöðulaust síðan. Ólafur Erlingsson verkfræðingur hefur verið ráðgjafi nefndarinnar og á grundvelli tillagna hans var. gerð hússins ákveðin. Tækniþjónusta Vestfjarða sér um teíknivinnu og Reynir Vilhjálmsson, landslagsarki- tekt, hefur verið ráðinn til að skipuleggja lóðina umhverfis húsið. Formaður byggingamefndar húss- ins er Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri. Kristján K. Jónasson, forseti Bæjarstjórnar ísafjarðar, tók fyrstu skóflustunguna og sagði í ræðu: Æskan er verðmætasta eign þjóð- arinnar, því ber að búa hana sem best undir lífið. í nútímaþjóðfélagi em freistingarnar margar. Til að sporna við freistingunum er það reynsla margra sveitarfélaga að fullbúið nútímaíþróttahús sé vörn númer eitt. 1 samningum við menntamálaráðuneytið var tekið til- lit til þess, að húsið yrði það eina um nokkra framtíð á Vestfjörðum, sem verður löglegt til keppni í ölium inni- og hópíþróttum, og er því ætlað að þjóna Vestfirðingum «11- um. Samið hefur verið við Ögra sf. í Bolungarvík um jarðvegsskipti, en Ögri var með lægsta tilboð í verkið, 1,9 milljónir, en það er 61,7% af Fræðslumiðstöðin Þrídrangur heldur helgarnámskeið í svokall- aðri djúpslökun um næstu helgi og fylgir námskeiðinu snælda og Iesefni. Leiðbeinandi verður Gunnhildur H. Axelsdóttir. I frétt frá fræðslumiðstöðinni segir að hvíldarþjálfun sovéska læknisins Dr. A. G. Odessky verði gerð ítarleg skil á námskeiðinu, sem hefst á laugardag. Slökunaraðferð læknisins var sérstaklega hönnuð með sovéska geimfara í huga og byggir á áhrifamætti sjálfsefjunar, öndunartækni úr þjálfunarkerfi jóga og ákveðinni tónlist. kostnaðaráætlun. Vinnan við jarð- vegsskiptin er þegar hafín, en ekki veður hægt að ljúka henni fyrr en bæjarsjóður hefur byggt nýtt áhaldahús og brotið hefur verið nið- ur núverandi áhaldahús sem er að hluta á lóð nýja íþróttahússins. Þá segir í frétt þessari að kennd- ar verði leiðir til að bæta sjálfsí- mynd einstaklingsins og efla sjálfstraust hans, fjallað um mikil- vægi ímyndunaraflsins og kynntar fyrirbyggjandi aðferðir gegn streitu. Þátttaka er öllum heimil. Leiðrétting í greininni Pólýfónkórinn.i flokki beztu kóra í heimi, eftir Björgu Jakobsdóttur, birtist röng mynd. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á mistökunum. Úlfar Námskeið í djúpslökun Akranes: Ólafur B. Ólafsson og Hallgrímur Jónsson, fyrrverandi og núver- andi framkvæmdastjórar Bókaverslunar Andrésar Níelssonar. breytt ánið 1980. Það má því segja að Bókaverslun Andrésar Níels- sonar hafíí gegnum árin lagað sig að framþróun í bættum verslunar- háttum, sem orðið hefur til hagsbóta fyrir hina íjölmörgu við- skiptavini verslunarinnar. Nýjasta dæmið er að í desember 1986 urðu þau tímamót, að verslunin setti á fót fílmuframköllun — Hraðframköllun — en verslun með ljósmyndavörur og móttaka á fílmum til framköllunar fyrir Hans Petersen hf. hefur verið snar þáttur í starfseminni um ára- raðir. Bókaverslunin hefur allt frá árunum milli 1950 og 1960 séð um bókamarkaði á Akranesi fyrir Féiag íslenskra bókaútgefenda. Hafa þeir mælst vel fyrir, enda margir gert þar góð kaup. Fyrir utan það, sem áður hefur verið nefnt, hefur verslunin lagt áherslu á sölu á allskyns skrifstofuvörum, þar á meðal reiknivélum, ritvélum, ljósritunarvélum og tölvupappír. Einnig má nefna listmuni, gjafa- vörur og ýmiss konar afþreyingar- efni fyrir böm og fullorðna. Starfsmenn hjá fyrirtækinu eru níu og eiga margir þeirra langan starfsferil að baki, lengstan þó Ólafur B. Óíafsson, sem hóf störf 1954 sem framkvæmdastjóri. Núverandi framkvæmdastjóri er Hallgrímur Jónsson, sonur Andr- ésar heitins Níelssonar, en auk hans em í stjóm fyrirtækisins þau Margrét Jónsdóttir og Ólafur B. Ólafsson. Eins og áður segir mun verslun- in minnast þessara merku tímamóta fostudaginn 10. apríl í verslunum sínum og em allir við- skiptavinir og aðrir velunnarar velkomnir þann dag til að þiggja veitingar. - JG Bókaverslun Andrés- ar Níelssonar 50 ára Akranesi. Bókaverslun Andrésar Níels- sonar á Akranesi á um þessar mundir 50 ára afmæli, en stofn- andi hennar, Jón Andrés Nielsson, setti verslunina á fót í janúar 1937. Á þessum tíma hefur verslunin bæði eflst og dafnað og eiga Ak- urnesingar góðar minningar um hana, enda hefur verslunin gegnt miklu þjónustuhlutverki í bæjarfé- laginu í hálfa öld. Andrés Níelsson hóf verslun í húsinu á Skólabraut 2, sem þá var í eigu Sláturfélags Suður- lands, en hann hafði áður verið útibússtjóri félagsins á Akranesi í nokkur ár. Auk bóka og ritfanga verslaði Andrés með leikföng, úr og skartgripi, ljósmyndavömr og ýmsar gjafavömr. Andrés fæddist 10. apríl 1917, en lést löngu fyrir aldur fram 24. júli 1950. Hann hefði orðið sjötug- ur næstkomandi föstudag ef hann hefði lifað og þann dag mun þess verða minnst í verslunum fyrir- tækisins að það hefur starfað í 50 ár. Enn þann dag í dag er verslun- in rekin á upphaflegum stað. Eftir því sem byggð á Akranesi óx og færðist ofar á skagann var opnað útibú verslunarinar; fyrst á Heið- Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson. Bókaverslun Andrésar Níelssonar á Akranesi. í þessu húsnæði hefur verslunin verið til húsa í 50 ár. arbraut 47, en frá 1961 í eigin húsnæði á Kirkjubraut 54. Eftir því sem árin hafa liðið hafa kröf- ur aukist og hafa eigendur versl- unarinnar fylgst vel með nýjungum á hveijum tíma. Þannig var húsnæðið á Skólabraut 2 stækkað 1974 og versluninni komið í nútímalegt horf og útibú- inu á Kirkjubraut var sömuleiðis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.