Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
Svíþjóð), er sérfræðingur í haglýs-
ingu þriðja heimsins. Hann ritaði
eftirfarandi málsgrein í bók sinni
Harmleikur í Asíu (1968):
„I rannsóknum í hagfræði þessa
heimshluta er nánast bannað að
gera spillingu að umfjöllunar-
eða viðfangsefni. Hún er sjaldan
nefnd á nafn í alvarlegum um-
ræðum um forystumenn í stjóm-
málum eða í áætlunum um
efnahagsmál. Jafnvel vestrænir
sérfræðingar sýna hlutdrægni 'í
slíkum mæli, að rannsóknafrelsi
hefur í raun verið fórnað á altari
alþjóðasamskipta. Félagsvísinda-
menn, hvort sem þeir hallast til
hægri eða vinstri í stjórnmálum,
leiða hjá sér þetta illræmda
vandamál."
Þetta stafar af því að sérfræðing-
um í þjónustu alþjóðlegra stofnana
myndi fljótlega vera sagt upp störf-
um, ef þeir færu að gefa hlut
spillingar gaum í mati sínu á hinni
þrálátu fátækt í þriðja heiminum.
Gagnrýnin myndi að sjálfsögðu
beinast að sömu stjórnmálaleið-
togum og ráða meirihluta atkvæða
í alþjóðlegu stofnununum, sem þeir
starfa fyrir.
Hvers vegna þá að undrast, að
fulltrúar stofnana Sameinuðu þjóð-
anna leggi auðmjúklega blessun
sína yfir hrollvekjur eins og harð-
ræðið í Eþíópíu? Hvílíkt umburðar-
lyndi hefur stjómvöldum í Eþíópíu
ekki verið sýnt, sem í miðri hung-
ursneyð misnotuðu peninga, sem
höfðu verið gefnir til hjálpar hungr-
uðum, og notuðu þá til að flytja
sveltandi þjóðflokka langar leiðir
með þeim afleiðingum að hundrað
til hundrað og fimmtíu þúsund létu
lífið! Við höfum einnig orðið vitni
að háværum mótmælum ríkis-
stjórna í Afríku gegn þeirri ákvörð-
un óháðra hjálparstofnana að veita
aðstoð sína í vörum og matvælum
og koma henni sjálfar beint til hinna
þurfandi. Vitleysan ríður ekki við
einteyming! Stjórnvöld sögðu; nei,
hjálpin verður að berast í reiðufé,
sem verður að fara um hendur
stjórnardeilda.
Spillingin í
kommúnistaríkj unum
I þriðja heiminum stendur spill-
ingin í vegi þess, að efnahagur
dafni, en í kommúnistaríkjunum er
þessu á annan veg farið. Aðeins
spillingin kemur í veg fyrir að þau
koðni niður, eða öllu heldur, það
er einungis í skjóli spiUingar, sem
hjól efnahagslífsins virðast snúast.
Tvenns konar spilling virðist við
lýði í kommúnistaríkjum; annars
vegar spilling leiðtoganna, sem er
eins og uppistaða í stjómkerfisvefn-
um, og hins vegar hinn svarti
markaður, sem allur almenningur
ástundar, (sem. m.a. felur í sér
mútur til embættismanna til að
hljóta hlurinindi).
Algjör samþætting stjórnmála og
efnahagsmála og örbirgðin, sem af
henni leiðir, gerir spillingu óhjá-
kvæmilega, bæði fyrir valdamenn
og almúga, arðræningja og arð-
rænda. Félagar Khrústsjefs steyptu
honum af stóli 1964, þegar hann
reyndi að svipta höfðingjana aðal-
tekjulindum með því að taka frá
þeim umboð, sem samkvæmt hefð-
um veittu þeim forréttindi, og gerðu
þeim kleift að hrifsa til sín gögn
og gæði.
ílýa Zemtsof var áður félagi í
miðstjórn kommúnistaflokks í sov-
étríkinu Azerbajan, en fluttist fyrir
nokkrum árum til Israel. Árið 1976
gaf hann út hina gagnmerku bók
TJm spillingvna í Sovétríkjunum.
Þar dregur hann upp mynd af hinu
gegnumrotna kerfi, sem virðist
óumbreytanlegt, og lýsir þeim fáu
árangurslausu atlögum, sem gerðar
hafa verið að spillingunni. Elstine,
einn af leiðtogum kommúnista-
flokksins í Moskvu og stuðnings-
maður Gorbatsjofs, lýsti því yfir
opinberlega 1986, að nauðsyn bæri
til að uppræta alla spillingu, en
hann virtist ekki gera sér neina
grein fyrir því fremur en fyrirrenn-
arar hans, að það er ekki mögulegt
nema til komi gagngerar breytingar
á stjórnarfari. Herferðir til að upp-
ræta spillingu virðast fremur nýtast
nauta eða andstæðar klíkur, eins
og nýlegt dæmi í Kína sannar, held-
ur en því markmiði að efla heilindi
og uppræta orsakir spillingar.
Valdið spillir og
algjört vald gjörspillir
Því stærra hlutverki, sem ríkis-
valdið gegnir, því fleiri eru tilbrigði
spillingar og því fleiri eru tækifær-
in til spillingar. Þessi fylgni hefur
verið til staðar á öllum tímum. Mic-
hael Rostoftsjeff lýsir í hinu snjalla
riti sínu Samfélags- og efnahags-
saga Rómarveldis, hvaða lífsreglur
menn urðu að tileinka sér, ef þeir
vildu hreppa hnossin á tímum
Konstantíns:
„Sköpunargáfa, hugvit og snilld
við að nýta auðlindir skipti ekki
lengur sköpum, né heldur endur-
bætur og framfarir í landbúnaði,
iðnaði og verzlun. Mestu máli
skipti, að vera nógu ófyrirleit-
inn í að nýta sér stöðu sína og
forréttindi í rikiskerfinu til að
féfletta bæði ríki og þegna.“
Jafnvel í háþróuðu lýðræði er
unnt að féfletta borgarana á ótal
vegu; stofna rannsóknardeildir, sem
hafa þann einn tilgang, að fá
greidda skáldaða reikninga; búa til
störf í opinberri þjónustu fyrir
dygga flokksfélaga og ráða menn
í ónauðsynleg embætti. í þessu
samhengi býður aukið vald sveitar-
félaga og landshluta, þótt margt
mæli með slíkri valddreifingu, upp
á fleiri tækifæri til að maka krókinri
á kostnað almennings.
Það þarf að gera sérglögga grein
fyrir þessari hættu og gera tilsvar-
andi ráðstafanir. í Frakklandi er
ekki þörf á því að breyta lögum eða
reglugerðum um góðgerðarstofnan-
ir, sem tryggja lágmarksréttindi
hinna bágstöddu, heldur er þörf á
að endurskoða ákvæði, sem skil-
greina, hvenær veita má aðstoð eða
styrki án eftirlits. Hér er brotalöm,
sem veldur því, að milljarðar franka
flæða út úr opinberum sjóðum til
flokka og bitlingabaróna. Nýleg
greinargerð ríkisendurskoðunarinn-
ar um TFl-klúbbinn, sem stjóm
TFl stofnaði 1985, og hefur fjár-
hagsáætlun og fjárveitingu, sem
nemur fimm til tíu milljónum franka
án þess að nokkur nákvæm skila-
grein sé gerð, er aðeins eitt nýlegt
dæmi af ótalmörgum um misnotkun
almannaíjár. Fyrir skömmu olli það
mikilli hneykslun á Spáni, er uppvíst
varð, að nokkrum forystumönnum
spænskra jafnaðarmanna og fjöl-
skyldum þeirra hafði á svig við
allshetjarreglu verið veitt leyfi til
að reka u.þ.b. fímmtán mjög ábata-
samar umboðsskrifstofur fyrir
Þjóðarhappdrættið á Spáni.
Spilling' í lýðræðisríkjum
Það eru tvö megintilbrigði spill-
ingar. Hið fyrra kemur einkum við
sögu í lýðfíjálsum ríkjum og á ræt-
ur að rekja til mögulegrar samvinnu
stjómvalda og einstakra viðskipta-
fyrirtækja; fyrirtæki fá sérstakt
tækifæri til að gera tilboð vegna
innkaupa ríkis, fyrirtæki fá einka-
söluaðstöðu, reglugerðir eru
afnumdar til að þóknast fyrirtækj-
um, fyrirtækjum em veittar
undanþágur frá skattgreiðslum eða
þeim veittur styrkur. Allt em þetta
dæmi um hugsanlegan samleik.
Eftir því sem ríkisafskipti em meiri
og miðstýring öflugri, eykst hættan
á slíkri samvinnu.
Síðara tilbrigðið er algengara,
þar sem sameignarhugsjón hefur
haslað sér völl eða þar sem víðtæk
þjóðnýting hefur átt sér stað — þar
sem greinarmunur á þjóðararfí og
ríkiseign verður óljós og jafnvel
hverfur. Þegar Francois Mitterrand,
Frakklandsforseti, ávarpaði þjóðina
14. júlí 1986, varði hann það sjónar-
mið, að einungis sá hluti þjóðar-
auðsins, sem beinlínis væri
ríkiseign, gæti talizt eiginleg sam-
félagseign. Þetta er hættuleg
hugmyndafræði, því hún býður
heim þeirri hættu, að farið sé að
lögfesta, að ríkisvaldið — í góðri trú
að sjálfsögðu — útdeili opinberum
fjármunum í formi stöðuveitinga,
úthlutun styrkja og bitlinga. Auð-
vitað eiga þessi tvö tilbrigði spilling-
ar margt sameiginlegt. Þau
blandast á mismunandi vegu eftir
því, hver er hneigð þeirra stjómar,
sem með völdin fer hveiju sinni.
Á Spáni og í Frakklandi tala jafn-
aðarmenn svo fjálglega um eigið
siðgæði, að það liggur nærri að
halda, að þeir telji spillingu viður-
kvæmilega, þegar þeir sjálfir
ástunda hana — fremur en þeir
telji það álitshnekk; þegar þeir láta
flekkast af henni.
Spilling fer minnkandi með
auknu lýðræði og öfugt. Hvorki
hneykslismálin, sem nýlega hafa
skotið upp kollinum í Frakklandi,
né hin, sem ekki eru enn opinber,
og verða það e.t.v. aldrei, hefðu
nokum tímann geta átt sér stað,
ef jafnvægi hefði ríkt milli lýðræðis-
legra stofnana og gagnkvæmt
eftirlit þeirra verið virkt. Þar sem
lýðræðis nýtur ekki við, stendur
spillingin í vegi þess, að það kom-
ist á og eflist. Þar sem lýðræði
er við lýði, stafar því einna mest
hætta af spillingu.
Höfundur er franskur rithöfund-
ur og blaðamaður. Þessigrein er
þýdd úr tímaritinu Encounter
mars 1987.
stofim
og stómr plöntur
Um er aö ræöa fjölbreytt fal'egum og
Tilboðið gildir f ram að paskum.
GróöurhúSfvið Sigtún: Símar 36770-68634