Morgunblaðið - 09.04.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
21
an dag, í gegnum sjón, heym og
reynslu. Hinn þroskahefti ein-
staklingur tileinkar sér ekki þessa
kunnáttu og fæmi á sama hátt
og við, sem heilbrigð teljumst,
þ.e.a.s. með því að prófa, reyna
og herma eftir. Það verður því
að notast við sérstaka þjálfunará-
ætlun, sem felur í sér að ef athöfn
eða ákveðinni fæmi er skipt niður
í þrep þá er hinum þroskahefta
kennt hvert þrep í einu og síðan
fíkrað sig áfram eftir þrepunum
þar til viðkomandi hefur náð fullri
fæmi í athöfninni. Oft em notaðar
aðferðir, sem kenndar em við at-
ferlismótun, í þessari þjálfun, en
út í það verður ekki farið nánar
hér. Við hijótum að gera okkur
grein fyrir því hversu mikilvæg
ADL-þjálfun (þjálfun í athöfnumn
daglegs lífs) er, því það skapar
öllum visst sjálfstæði að geta
klæðst, matast, viðhaft viðunandi
borðsiði, séð um eigið hreinlæti
og verið þannig félagslega viður-
kenndur.
Undir þjálfun fellur líka:
Málörvun. Gmndvöllur sam-
skipta er að geta gert sig skiljan-
legan, en margir hinna þroska-
heftu eiga erfítt með að tjá sig
þannig að aðrir skilji. Það kemur
því oft í hlut þroskaþjálfa að fínna
leið/tæki til þess að auðvelda hin-
um þroskahefta öll samskipti við
aðra. Hafa þroskaþjálfar nýtt sér
meðal annars aðferð, sem nefnd
er Tákn með tali, til málörvunar
og gefíst vel. Einnig hefur verið
unnið með Bliss, einkum fyrir þá
sem em mikið líkamlega fatlaðir
auk greindarskerðingarinnar.
Félagsleg þjálfun. Slík þjálfun
felur m.a. í sér að gera hinum
þroskahefta kleift að eiga sam-
skipti við aðra utan stofnunar, það
er að bjarga sér sem mest sjálfur
úti í samfélaginu.
Þjálfun sem flokkuð hefur
verið undir vitræna starfsemi.
Þá er átt við að einstaklingur sé
þjálfaður m.t.t. líkamsvitundar,
skynjunar, hugtaka o.fl.
Tómstundir. Þroskaheftir
ættu líka að fá tækifæri til að
nýta sér tómstundir, en þar sem
þeir sýna yfírleitt ekki framkvæði
í þeim efnum kemur það oft í hlut
þroskaþjálfa að finna einhveija
tómstundaiðju, sem höfðar sérs-
taklega til þeirra, og leiðbeina í
þeim efnum.
Hér hefur verið stiklað á stóm
m.t.t. þess sem felst í þjálfun
þroskaheftra. En starfssvið
þroskaþjálfa er ekki takmarað við
þjálfunina. Það nær mun lengra.
Ber að nefna gott samstarf við
foreldra sem er mikilvægt til að
góður
árangur náist í þjálfun. Endur-
mat á allri þjálfun með ákveðnu
millibili er hluti af starfi þroska-
þjálfa ásamt því að hafa samráð
við aðra fagaðila svo sem sál-
fræðinga, lækna, félagsráðgjafa,
iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, sérkenn-
ara og kennara. Slík samvinna er
mikilvæg m.t.t. þess að allir ofan-
greindir aðilar vinni samhent við
uppeldi hins þroskahefta einstakl-
ings. Það er einnig í höndum
þroskaþjálfa að samræma vinnu-
brögð á deild, miðla þekkingu
varðandi þjálfunaraðferðir til
meðferðarfulltrúa og að sjá um
deildarfundi.
Að lokum skal hér nefndur
umönnunarþátturinn í stafí
þroskaþjálfa. Líkamlegir sjúk-
dómar era oft fýlgifiskar greind-
arskerðingar (s.s. flogasveiki,
öndunarfærasjúkdómar o.fl.) en
þroskaþjálfar hafa undirstöðu-
þekkingu á slíkum sjúkdómum og
þeim lyfjum, sem gefin em m.t.t.
þeirra. Undir starfssvið þroska-
þjálfa fellur því að sjá um lyfjagjöf
í þeim tilfellum sem nauðsyn er
samkvæmt fyrirmælum frá
lækni.
Líkamlegar fatlanir fylgja oft
greindarskerðingu og fellur það
undir starfssvið þroskaþjálfa að
hafa samráð við sjúkra- og iðju-
þjálfa um æfíngar fyrir viðkom-
andi, svo og hjálpartæki sem
stuðla að bættri líðan og auknum
möguleikum fyrir viðkomandi ein-
staklinga.
Markmið allrar þjálfunar og
starfs þroskaþjálfa er því að gera
hinn þroskahefta sem mest sjálf-
bjarga í því umhverfi sem hentar
honum best.
Eftir lestur ofangreinds ritmáls
má segja að starfssviðið, sem
heyrir undir þroskaþjálfa, sé ansi
viðamikið og að mikil ábyrgð hvíli
á herðum þeirra. Þeim bæm því
laun samkvæmt því myndu ein-
hveijir segja, en hvemig er starf
okkar metið og hver em laun
okkar?
Launakjör þroskaþjálfa
Nýútskrifaður þroskaþjálfí hef-
ur í gmnnlaun eftir 3ja ára
sémám skv. 63. flokki, 1. þrepi
kr. 28.490 á mánuði. Gmnnlaun
deildarþroskaþjálfa em skv. 65.
flokki, 1. þrepi kr. 30.225 á mán-
uði. Mestu laun, sem þroska-
þjálfí/deildarþroskaþjálfí getur
náð, em eftir 18 ár og greiðast
skv. 63./65. flokki, 8. þrepi eða
kr. 38.772/41.132 á mánuði.
Við þroskaþjálfar getum því
ekki státað okkur af laununum,
hvað þá lifað af þeim. Því er það
svo að margir þeir sem vinna á
stofnunum fyrir þroskahefta
(einkum á dagheimilum) ná sér í
aukavinnu eða einfaldlega skipta
alveg um vinnu, þ.é.a.s. vinna
ekki við það sem þeir hafa mennt-
un til heldur fá sér aðra þá vinnu
sem betur er launuð í samfélag-
inu. Þess vegna: Örar manna-
breytingar á stofnunum fyrir
vangefna.
Gera ber sér grein fyrir því að
hinar öm mannabreytingar, eink-
um á dagheimilum, bitna verst og
mest á hinum þroskaheftu ein-
staklingum. Það tekur oft langan
tíma að ná þeim tengslum við hinn
þroskahefta að þjálfun geti farið
að bera árangur. Oft fer því mik-
il vinna fyrir lítið þar sem þroska-
þjálfí sér sér ekki fært að halda
áfram vinnu sinni sökum lélegra
launa og hættir því, en eftir situr
hinn þroskahefti með sárt ennið.
Sá þroskaþjálfi, sem síðan tekur
við starfí þess er hætti, verður
síðan oft að byija aftur frá gmnni
við þjálfun viðkomandi einstakl-
ings.
Og skyldi ekki koma uppgjöf
og áhugaleysi í hinn þroskahefta
ásamt þreytu við það að þurfa
sífellt að vera að kynnast nýjum
þroskaþjálfa. Við vitum öll hvað
það er t.d. að byija á nýjum vinnu-
stað og þurfa að kynnast nýju
samstarfsfólki ásamt að setja sig
inn í þá starfsemi sem fram fer
á nýja staðnum. Því fylgir aukið
álag. Það er því aldrei of mikil
áhersla lögð á þau orð að hinar
öru mannabreytingar á ofan-
greindum stofnunum eru mest
til skaða fyrir hina þroskaheftu
einstaklinga sem við eigum að
vinna með.
Þess má geta að lokum að
sunnudaginn 22. mars gengust
Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands fyrir
kosningavöku fyrir fatlaða í
Súlnasal Hótel Sögu. Bar þar
hæst kröfuna um að staðið yrði
við lögbundið framlag í Fram-
kvæmdasjóð fatlaðra. Er það
brýnt málefni að beijast fyrir.
Þroskaheftir (greindarskertir) em
hópur meðal þeirra er vöktu at-
hygli á sér á þessari kosninga-
vöku. Bakvið þroskahefta
stöndum við þroskaþjálfar, sem
fagstétt (uppeldisstétt), og ber
okkur ekki síður að beijast fyrir
því að við sem stétt fáum viðun-
andi laun og sjáum okkur fært
að stunda okkar vinnu. Er það
vonandi að lesendur þessarar
greinar hafí öðlast aukna vitn-
eskju um starfssvið og kjör þeirrar
uppeldisstéttar, sem við þroska-
þjálfar emm, og styðji okkur í
baráttu okkar í framtíðinni.
Höfundur er þroakaþjálfi á dag-
heimilinu Lyngási.
Lngerhillur
oq rekkur
Eigum á lager og útvegum með
stuttum fycirvara allar gerðir af
vörurekkum og lagerkerfum.
Veitum fúslega allar nánari
SSrazsmzsr
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 6724 44
Félag___________
járniönaðarmanna
Auglýsing frá Félagi
járniðnaðarmanna
um orlofshús 1987
Félagsmenn og nemar í járniðnaði
geta sótt um dvalarleyfi í eftirtöld-
um orlofshúsum félagsins.
Ölf usborgir..................................3 hús
Syðri Reykir, Biskupstungum...................1 hús
Svignaskarð, Borgarfirði......................2 hús
Kljá, Helgafellssveit (jörð)..................1 hús
lllugastaðir, Fnjóskadal......................1 hús
Einarsstaðir, Héraði.................... 1 hús
Skipalæk, Héraði..............................1 hús
Tekið á móti pöntunum I húsin
í síma 83011. Sigríður Snorradóttir gefur
allar nánari upplýsingar ásamt starfs-
mönnum félagsins.
Félag járnidnaðarmanna.
Frumsýningarvika
á þriðju kynslóðinni í öllum regnbogans litum
Aldrei betri — Aldrei ódýrari
Verð frá kr. 319.500.-
BÍLASÝNING ALLA DAGA Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Akureyri: BÍLVIRKI sf.,
Fjölnisgötu 6b,sími 96-23213.
Njarðvik: DAIHATSUSALURINN
við Reykjanesbraut, sími 92-1811.
Akranes: BÍLAÞJÓNUSTAN PÁLL JÓNSSON,
Kalmannsvöllum 3, sími 93-2099.
Daihatsuumboðið,
Ármúla 23, s.685870-681733._