Morgunblaðið - 09.04.1987, Page 24

Morgunblaðið - 09.04.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987 SPRENGITILBOÐ SEM SLÆR ALLTANNAÐÚT! Þú gctur sparad meira cn 300 krónur mcð því að láta Myndsýn framkalla filmuna þína Nú veitír Myndsýn þér ærna ástæðu til að kætast! Þér býðst ómótstæði- legt tilboð sem á sér fáar hlið- stæður: Framköllun, "kópering" og 24 mynda litfilma fyrir sama verð og framköllun og "kóperíng” kostar annars staðar. Dæmi: Venjulegt verslunarverð: 24 mynda litfilma.......kr. 310,- * Framköllun og "kópering” . kr. 590,- samtals kr. 900.- Okkar verð: 24 mynda litfilma, framköllun og "kópering" . kr. 590.- * fibnuyerö geiur verið mi&mDnandi etiu oogit'....... Eftirtaldír móttökustaðir bjöða sprengítilboð Myndsýnar: Ljósmyndaþjónustan - Laugavegi 178 Bókabúðín Embla - Vðlvufellí Sportlíf - Eiðístorgí /ndabúðín - Rauðarárstíg Fónborg - Kópavogí Bókabúðír Bððvars - Hafnarfírðí Mars - Hafnarfírðí Ljósmyti Tc Orð og efndir í skattamálum eftir GeirH. Haarde Það er alkunna að lítt vandaðir stjómmálamenn gefa kosningalof- orð á báða bóga og hirða síðan lítt um efndir þeirra. Það er ekki síður vel þekkt að þeir hinir sömu reyna gjarnan, þegar samviska þeirra er slæm, að núa andstæðingum sínum því um nasir að þeir standi ekki við orð sín, jafnvel þótt staðreyndir tali öðm máli. Skattamálin eru gott dæmi um þetta. Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með þau mál í tíð núverandi ríkisstjórnar. Hann gaf kjósendum þau loforð fyrir síðustu kosningar að skattar skyldu lækkaðir og stefnt skyldi að afnámi tekjuskatts á almennum launatekjum. Nú koma andstæðingar flokks- ins, sem hafa það raunar flestir á stefnuskrám sínum að hækka skatta, og halda því fram að þessi fyrirheit hafi verið svikin og að lof- orðin séu nú aðeins orðin tóm. Hvað er hæft í þessu? Svarið er einfalt. Þetta eru ósannindi. A valdatíma þessarar ríkisstjómar hafa orðið meiri lækkanir á skött- um, beinum og óbeinum, en nokkm sinni áður á einu kjörtímabili. Ég nefni dæmi. Tollar hafa verið lækkaðir vemlega á fjölmörgum algengum neysluvörum almenn- ings, nú síðast á ýmsum smávömm eins og myndavélum og úmm sem áður borgaði síg að láta kaupa fyr- ir sig í útlöndum. Þyngst vegur þó í þessu sambandi stórfelld lækkun tolla á bifreiðum og ýmsum öðmm svokölluðum varanlegum neyslu- vömm. Verðjöfnunargjald á raforku var fellt alveg niður með þeim afleiðing- um að raforkuverð til almennings lækkaði víðast hvar vemlega. Sér- stakur 10% skattur á ferðamanna- gjaldeyri var einnig felldur niður og launaskattur sömuleiðis að hluta til. Þóknun ríkisins vegna gjaldeyr- isviðskipta var lækkuð. Þess verður þó að geta að söluskattur var á tímabilinu hækkaður úr 23,5% í 25% og nokkur aukning varð á bensíngjaldi og þungaskatti um- fram verðlagshækkanir. 1 Þessar lækkanir nema engu að síður sam- tals um 1,6 milljarði króna nettó miðað við verðlag 1986. Tekjuskattur í ár 1600—1700 milljónum króna lægri en 1983 En stærsta málið í þessu sam- bandi tengist tekjuskattinum. Þar hafa orðið miklar lækkanir sem fyrst og fremst hafa gagnast þeim, sem lægri hafa tekjumar. Við álagningu skatta sumarið 1986 var álagður tekjuskattur 1.100 milljónum króna lægri en hann hefði verið miðað við álagn- ingarkerfi það, sem fjármálaráð- herra Alþýðubandalagsins skildi eftir sig vorið 1983. Er þá að sjálf- sögðu tekið tillit til verðlagsbreyt- inga á tímabilinu. Hér er því um Könnun á merkingn sælgætisumbúða: Tæpur þriðjungur sýna í ólagi KANNAÐAR hafa verið merk- ingar á umbúðum á sælgæti sem selt er hér á landi. Tekin voru 154 sýni af innlendri og erlendri framleiðslu og reyndust 31,8% þeirra gölluð, segir í frétt frá Félagi íslenskra iðnrekenda og Neytendasamtökunum. Sýnin vom tekin af handahófí í 27 söluturnum og verslunum á höf- uðborgarsvæðinu og voru 74 inn- lend framleiðsla og 80 erlend. Af innlendri framleiðslu reyndust 28,4% sýna gölluð og af innfluttu sælgæti 35%. Merkingamar á um- búðum vom eingöngu kannaðar og þau sýni sem ekki vom merkt sam- kvæmt ákvæðum heilbrigðisyfir- vaida vom flokkuð sem gölluð. í fréttinni segir enn fremur að „Sá hluti sýnanna þar sem innihald- slýsing er ófullnægjandi að miklu leyti eða vantar alveg og þar sem aukaefna er ekki getið gæti verið varasamur. Alvarlegustu sýnin em því þau sem flokkast undir þessa galla eða þau sem innihalda ólögleg aukaefni, samkvæmt innihladslýs- ingu. í þessa flokka, einn eða fleiri, falla öll gölluð sýnin íúrtakinu, inn- lend og erlend. Greinilegt er því af þessari könnun að herða þarf allt eftirlit með sælgæti sem og öðmm vömm sem hér em á boðstólum." Geir H. Haarde „Við álagrnngu skatta sumarið 1986 var álagður tekjuskattur 1.100 milljónum króna lægri en hann hefði verið miðað við álagn- ingarkerfi það, sem fjármálaráðherra Al- þýðubandalagsins skildi eftir sig vorið 1983. Er þá að sjálf- sögðu tekið tillit til verðlagsbreytinga á tímabilinu. Hér er því um að ræða raunveru- lega lækkun tekju- skatts á verðlagi ársins 1986.“ að ræða raunvemlega lækkun tekjuskatts á verðlagi ársins 1986. A þessu ári bætist við 300 millj- ón króna viðbótarlækkun og sé miðað við verðlag ársins í ár er ljóst, að álagður tekjuskattur nú í sumar verður 1.600—1.700 milljón- um króna lægri en verið hefði að óbreyttu. Hér er að sjálfsögðu um að ræða vemlega lækkun, því tekju- skatturinn skilar samkvæmt fjár- lögum nettó í ríkissjóð á þessu ári rúmega 5,2 milljörðum króna. Að auki hafa bamabætur verið hækk- aðar umfram verðlagshækkanir svo nemur 350 milljónum króna miðað við síðasta ár. Hvert hefur þessi skattalækkun mnnið? Margir þeir sem hafa rífleg- ar tekjur vilja meina að þeir hafi ekki orðið varir við þessa lækkun. Það má að einhveiju leyti til sanns vegar færa, vegna þess, sem áður er komið fram, að lækkuninni var fyrst og fremst beint til hinna tekju- lægri. Þeim hefur því fjölgað mjög vemlega, sem greiða alls engan tekjuskatt til ríkisins, því skattfrels- ismörkin hafa hækkað vemlega umfram breytingar á launum og verðlagi. Nú er raunar svo komið að meirihluti framteljenda eða 53% greiða engan tekjuskatt og vemleg- ur hluti hinna greiðir lága skatta, því það hefur komið fram að aðeins 13% gjaldenda standa undir um 2/3 hlutum tekjuskattsins. Tekjuskatts- lækkuninni á árinu 1987 er hins vegar ætlað að ná í meira mæli til þess hóps en áður. Enn frekari lækkun á næsta ári árangur. En sagan er ekki öll sögð þar með, því samhliða lögfestingu staðgreiðslukerfis skatta á Alþingi nú í vor, sem Þorsteinn Pálsson íjár- málaráðherra var frumkvöðull að, vom einnig ákveðnar breytingar á álagningarkerfi tekjuskattsins, sem hafa munu í för með sér frekari lækkun skattbyrði hjá þorra launa- fólks. Þannig munu tekjur einhleypinga í hinu nýja skattkerfi verða skatt- fijálsar að u.þ.b. 33 þúsund krónum. Viðkomandi greiðir síðan 35% í skatt af þeim tekjum sem umfram þetta mark em. Einhleyp- ingur með 50 þúsund króna mánaðarlaun myndi greiða 6 þús- und krónur í skatt tekjuskatt og útsvar til samans) og sambærilegur aðili með 100 þúsund króna tekjur greiddi 23,5 þúsund krónur í skatt. Skattbyrði hins fyrmefnda yrði því 12% en hins síðarnefnda 23,5%. Ástæða fyrir því að þetta hlutfall er breytilegt er sú að allir hafa fastan skattafslátt, sem í þessum útreikningum er miðað við að sé 11.500 krónur á mánuði, óháð því hvort þeir hafa háar tekjur eða lág- ar. Fyrir hjón og einstæða foreldra em þessi mörk hærri enda koma þá til sögunnar bamabætur sem greiddar munu viðkomandi beint til hliðar við sjálfa skattinnheimtuna. Til dæmis má nefna að skattfrelsis- mörk einstæðs foreldris með tvö böm undir 7 ára aldri verða um 60 þúsund krónur á mánuði og síðan greiðir viðkomandi 35% skatt af viðbótartekjum sínum. Hjón með tvö böm byija hins vegar ekki að borga skatt í nýja skattkerfínu fyrr en 80 þúsund króna mánaðarlegum heimilistekj- um er náð og greiðsla tekjuskatts til ríkisins hefst ekki fyrr en 90 þúsund króna heimilistekjum er náð. Menn geta deilt um hvað séu „almennar launatekjur" en þær em vafalaust ekki fjarri þessari upp- hæð. Launatekjur fólks á árinu 1987 verða síðan skattlausar eins og kunnugt er, þótt fólk borgi skatt af þeim tekjum sem það hafði í fyrra. Nefna mætti fleiri dæmi til marks um það hver áhrif hið nýja skatt- kerfi hefur. Það er þó ástæðulaust hér. Meginatriðið er það að stað- greiðslukerfi skatta og þær breyt- ingar sem gerðar voru á tekju- skattslögunum samhliða því markar stórfellt framfaraspor fyrir allan almenning og mun færa þorra laun- þega skattalækkun. Marklaus mál- flutningur stjórn- arandstöðunnar unum almennt hefur Sjálfstæðis- flokkurinn látið verkin tala. Athafn- ir hafa fylgt orðum. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur náð árangri á • þessu sviði sem öðmm. Ummæli og aðdróttanir forystu- manna stjórnarandstöðuflokkanna sem nú gapa upp í himininn út af skattamálum í tíð þessarar ríkis- stjómar falla dauð og ómerk. Þau eru hin kátlegustu í sjálfu sér, þeg- ar þess er gætt að stefna vinstri flokkanna er að hækka skatta en ekki lækka þá. Þó er kannski at- hyglisverðast af öllu í þessu sambandi að sá aðili sem einna mest hafði sig í frammi gegn stað- greiðslukerfi skatta og breytingum því samfara, skipar nú efsta sæti á lista Borgaraflokksins í Reykjanes- kjördæmi. Það ættu kjósendur í því kjördæmi að hafa í huga. Höfundur er aðstoðarmadur fjár- málaráðherra og skipar 6. sætiá framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykja vík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.