Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
um áður. Alþýðubandalagið lofaði
miklum úrbótum í húsnasðismálum
og fékk að sjálfsögðu félagsmála-
ráðuneytið í sinn hlut og sjálfur
forsprakkinn Svavar Gestsson varð
félagsmálaráðherra. Hans fyrsta
verk var að svipta byggingarsjóði
ríkisins sínum stærsta tekjustofni,
þ.e. launaskattinum, og lánshlut-
fallið féll niður í 12% af byggingar-
kostnaði og hefur það aldrei verið
lægra enda varð á þessum árum
ein mesta kreppa í byggingariðn-
aði á íslandi vegna dugleysis
Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið lofaði miklum
framförum í iðnaði enda horfðu
allir vonaraugum til iðnaðarins á
þessum árum sem eins nærtækasta
vaxtarbroddsins í íslensku atvinnu-
lífí og í þessum málaflokki fékk
Alþýðubandaiagið einnig kjörið
tækifæri til að sýna dug sinn með
Hjörleif Guttormsson sem iðnaðar-
ráðherra, en skemmst er frá því
að segja að í þessum málum sem
og öðrum réðu þröngsýni og for-
dómar ferðinni og íslenskur
iðnaður hefur aldrei frá upphafí
gengið í gegnum annað eins niður-
lægingartímabil, og þjóðarhags-
munum var stefnt í voða með
tortryggni og þröngsýni alþýðu-
bandalagsmanna sem m.a. álitu
að besti virkjunarkostur íslendinga
væri sá að loka álverinu f
Straumsvík!
Að sjálfsögðu flaggaði Alþýðu-
bandalagið siagorðunum „ísland
úr NATO...“ og við myndun ríkis-
stjómarinnar komst Alþýðubanda-
lagið, þessi mikli þjóðfrelsisflokk-
ur, í oddaaðstöðu því að hann gat
beitt neitunarvaldi um allar helstu
framkvæmdir vamarliðsins, en
þrátt fyrir það fór nú svo að á
þessu kjörtímabili voru ákveðnar
einhveijar mestu framkvæmdir í
þágu vamarmála á íslandi í skjóli
Alþýðubandalagsins og ísland
treysti stöðu sína í NATO betur
en áður.
í kosningunum árið 1983 höfn-
uðu kjósendur Svavari Gestssyni
og flokki hans í ljósi fenginnar
reynslu. Sú reynsla kostaði miklar
fómir fyrir allt þjóðfélagið en lág-
launafólkið bar þó þyngstu byrð-
amar, svipt sjálfsvirðingunni, því
að allt kjörtímabilið var verkalýðs-
forystan algjörlega máttlaus enda
að miklum hluta enn undir jámhæl
Alþýðubandalagsins og gaf ekki
frá sér bofs frekar en hlýðinn rakki
þrátt fyrir þá óvirðingu sem rfkis-
sijómin sýndi launþegum.
Nú í kosningabaráttunni í apríl
1987 boðar Alþýðubandalagið með
Svavar Gestsson ennþá í farar-
broddi „Góðærið til fólksins". í
mínum eyrum og annarra í ljósi
fenginnar rejmslu sem launþegi á
ríkisstjómarárum Alþýðubanda-
lagsins hljómar það sem veikt óp
í eyðimörkinni að heyra þessi slag-
orð frá þessum fyrrverandi verka-
lýðsflokki sem nú svífur um f
málefnalegu tómarúmi með þung-
ar klyfjar svikinna loforða á
samviskunni, eirðarlaus vegna
málefnafátæktar og máttleysis í
stjómarandstöðu, yfírgefinn af
vinnandi fólki sem þorir ekki að
setja traust sitt lengur á flokk sem
er niðumjörvaður í úreltar hug-
myndir og býður kjósendum aðeins
svikin loforð til sölu!
í komandi kosningum er aðeins
um tvo kosti að velja í kjörklefan-
um. Annar kosturinn er sá að kjósa
einhvem smáflokkanna sem hafa
aðeins loðna eða tækifærisstefnu
fram að færa og munu hópa sig
saman í ríkisstjóm verði úrslit
kosninganna þeim í hag með öllum
þeim pólitísku hrossakaupum sem
svo sundurleitum hópum fylgja, en
hinn kosturinn og sá betri er að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem hef-
ur verið kjölfestan í íslenskum
stjómmálum í nær 60 ár og hefur
frá upphafí verið leiðandi afl um
sjálfstaeði, framfarir og velsæld
íslensku þjóðarinnar. Frá stofnun
Sjálfstæðisflokksins hefur grunn-
tónninn í stefnuskrá hans ávallt
verið vinna að innanlandsmálum
með víðsýnni og þjóðlegri umbóta-
stefnu á grundvelli einstaklings-
frelsis og atvinnufrelsis með
hagsmuni allra stétta fyrir augum.
Með þetta að leiðarljósi hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn unnið að því á
þessu kjörtímabili að koma á meiri
stöðugleika í efnahagslífí þjóðar-
innar en þekkst hefur í áratugi og
lagt gmnninn að auknum hagvexti
og stöðvað erlenda skuldasöfnun
og þar með staðið við þau loforð
sem gefín voru í síðustu kosninga-
baráttu. Á þessu kjörtímabili hefur
Sjálfstæðisflokkurinn átt gott
samstarf við aðila vinnumarkaðar-
ins og lagt grunninn að því trausti
sem þarf að ríkja milli þessara
aðila eigi ftiður að ríkja í þjóð-
félaginu og í ljósi þessa trausts
hafa þessir aðilar átt gott sam-
starf um ýmis mál, s.s. úrbætur í
húsnæðismálum, skattamálum,
auk ýmissa ráðstafana í tengslum
við kjarasamninga. Þá hefur samn-
ingamálum opinberra starfsmanna
verið breytt stórkostlega og ný lög
um þau efni tekið gildi sem tryggja
launþegum miklar umbætur í
kjarabaráttu sinni en færa þeim
meiri ábyrgð og allri óvissu um
starfsemi löggæslu, tollgæslu og
stjómarráðsins í verkföllum er al-
gerlega eytt.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn
settist í ríkisstjóm árið 1983 vom
ýmsar blikur á lofti í atvinnumálum
vegna dugieysis fyrri stjómar. At-
vinnufyrirtækin vora í sáram og
atvinnuleysi blasti við en með
ábyrgum og markvissum aðgerð-
um hefur þessari þróun verið snúið
við þannig að full atvinna hefur
haldist og reyndar vantað fleira
fólk á vinnumarkaðinn og nú í lok
kjörtímabilsins blasir við mikil
gróska á flestum sviðum atvinnu-
lífsins.
Á þessu kjörtímabili hafa skatt-
ar verið lækkaðir stórlega og ýmsir
skattar afnumdir með öllu og fram-
undan era mestu umbætur í
skattamálum einstaklinga í langan
tíma. Frelsi almennings hefur au-
kist í viðskipta- og gjaldeyrismál-
um. Fijálst útvarp og sjónvarp er
orðið að veraleika og húsnæði-
skerfíð hefur verið stokkað upp frá
granni og fjárstreymi stóraukið í
þann málaflokk og aðaláherslan
verið lögð á þá sem era að byggja
í fyrsta sinn í samræmi við gefín
loforð. Mikið starf hefur verið unn-
ið í markaðsöflun erlendis, heil-
brígðisþjónustu og vegagerð.
Afkoma atvinnuveganna hefur
styrkst og markvisst er unnið að
uppbyggingu orkufreks iðnaðar.
Að öllum þessum málum svo og
mörgum öðrum hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn unnið markvisst á þessu
kjörtímabili og á þessari braut mun
Sjálfstæðisflokkurinn starfa áfram
fái hann til þess stuðnings kjós-
enda í komandi kosningum með
hagsmuni allra stétta fyrir augum.
Höfundur er formaður Málfunda-
félagsins Óðins ogskipar 16. sæti
á framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins i Reykjavík.
4
að eigin sparifé!
(AUUíWt