Morgunblaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRIL 1987
55
Hvert stefnir?
eftir Björgu
Ivarsdóttur
Hvað hafa heilbrigðisstéttir verið
að gera undanfarin 20 ár? Er furða
þó að spurt sé. Það hefur verið
aukin menntun á öllum sviðum inn-
an heilbrigðisstétta og sérmenntun.
Er þetta allt unnið fyrir gýg og að
engu haft, þannig að hægt sé að
tæma sjúkrastofnanir af sjúkum og
senda þá heim, ef sérmenntað
starfsfólk innan heilbrigðisþjón-
ustunnar fer fram á mannsæmandi
laun fyrir störf sín? Er þá engin
þörf fyrir sérmenntað fólk til þess-
ara starfa lengur?
Af hveiju eru þá foreldrar að
hvetja börn sín til menntunar og
aukinnar þekkingar, ef engin þörf
er fyrir það lengur og málið er svona
einfalt? Það kostar mikla fjármuni
fyrir heimili og ríki að mennta ein-
staklinga, auk þess sem því fylgir
mikið álag á heimili þar sem mennta
þarf mörg böm. Við viljum hafa
menntað og vel starfshæft fólk í
öllum störfum, en fólk þarf líka að
hafa lífvænleg laun fyrir alla sína
fyrirhöfn.
Hvers vegna þurfa sumir hópar
í þjóðfélaginu að hafa miklu meiri
laun en aðrir? Vinna t.d. þingmenn
mikið meira en þeir, sem hafa með
líf og heilsu fólks að gera og vinna
daga og nætur, jafnt helgidaga sem
aðra?
Það skyldi þó aldrei vera, að
kaupið hækkaði í hlutfalli við það,
að fleiri og fleiri konur koma út á
vinnumarkaðinn og fleiri og fleiri
þeirra sérmenntast. Hvernig stend-
ur á því, að fólk virðist aldrei ætla
að skilja það, að konur em mann-
eskjur jafnt á við karlmenn. Þróunin
hefur orðið sú, að í dag á það ekki
við sem áður fyrr, að tala um karl-
manninn sérstaklega sem fyrir-
vinnu heimilisins, það verður hver
að beijast fyrir sig og reyna að
halda í horfinu og því hefur konan
á síðari tímum axlað þetta hlutverk
í æ ríkari mæli.
Karlmaður, þó að menntaður sé,
hefur sjaldnast þau laun, að þau
hrökkvi til að sjá heimili og fjöl-
skyldu allt að 4—5 manna eða meira
farborða, svo að vel sé. Því hefur
konan einnig þurft að koma til og
afla heimilinu beinna tekna. En
enda þótt konur séu yfirleitt ekki
síður menntaðar en karlmenn, hafa
þær þurft að sæta því, að vera mun
lægri í launum á hinum almenna
vinnumarkaði, þrátt fyrir allt talið
um jafnrétti kynjanna. Ber hún því
yfirleitt ekki hið sama úr býtum
fýrir sömu vinnu og karlmenn. Það
er því eðlilegt að mörgum verði á
að spyija hvað sé að gerast og
hvar allt góðærið sé, sem ráðamenn
þessa þjóðfélags hafa verið að guma
af undanfarið.
♦
í framhaldi af framanrituðum
hugl'eiðingum mínum langar mig
að vekja sérstaka athygli á þjóð-
félagshópi, sem hið opinbera þyrfti
að styðja meir og betur en gert er,
en það eru listamennimir okkar á
hinum ýmsu sviðum, sem margir
hveijir lifa við sult og seyru. Það
hvarflar stundum að mér, vegna
þess ófremdarástands, sem nú ríkir
á ýmsum sviðum þjóðfélagsins,
hvort við séum á leið í moldarkof-
ana okkar aftur, þar sem fólk fær
að deyja drottni sínum án umönnun-
ar og engin list fær að þrífast. Nei,
í guðanna bænum, rísum upp og
vemm manneskjur, og ræktum með
okkur tillitssemi og náungakær-
leika. Við verðum að læra að lifa
fegurra mannlífi, til þess var okkur
gefið vit og ráð. Þið, sem valin
hafíð verið af fólkinu í landinu til
forystu um málefni þess, megið
ekki hafa það að markmiði fýrst
og fremst að skara eld að ykkar
köku og hugsa um einhveija valda-
stóla. Þið eruð líka hluti fólksins í
landinu og hafið ekki rétt til miklu
meiri launa eða meiri hlunninda en
aðrir, og dettur mér í þessu sam-
bandi í hug, að þingmenn og
ráðherrar, bankastjórar og aðrir
stjórar, hækka svo og svo mikið í
„Við viljum hafa
menntað og vel starfs-
hæft fólk í öllum störf-
um, en fólk þarf líka
að hafa lífvænleg laun
fyrir alla sína fyrir-
höfn.“
launum á meðan allur almenningur
þarf að heyja harða og iangvinna
baráttu I sínum kjaramálum.
I fullri einlægni sagt, haldið þið
virkilega, að þið getið svæft íslend-
ingseðlið eða þurrkað út heilar
stéttir vel menntaðar og vel meðvit-
aðar um þjóðarhaginn? Ég held að
það væri því betra því fyrr sem þið
áttið ykkur á því að giftusamlegra
væri að taka með öðrum hætti á
lausn vandans.
Hvað á að gera við allt æskufólk-
ið okkar, sem ráfar um og veit
ekki hvort það tekur því að leggja
það á sig að fara í skóla, eða alla
kennarana sem eru vel menntaðir
og færir, eða alla þá, sem haldið
hafa heilbrigðisþjónustunni gang-
andi, meira og minna sérmenntað
fólk, sem af ósérhlífni og dugnaði
hefur innt sín störf af hendi í sjúkra-
húsunum?
Er ekki sanngirniskrafa að allt
þetta fólk fái notið sómasamlegra
launa fyrir störf sín í góðærinu?
Viljið þið, valdhafar, ekki koma
út úr þessum myrka frumskógi
ykkar og ræða við launafólkið í
landinu. Það hefur tekið á sig ærna
skelli af verðbólgu og erlendum
skuldum. Það er hægt að borga
mannsæmandi laun hér á landi,
bara ef kökunni væri sem jafnast
skipt, en sumir fengju ekki vænar
sneiðar undir borðið. Þá þyrfti að
fylgjast betur með skattsvikurum,
því þeir sem vinna hjá ríkinu geta
ekki svikið undan skatti, en þurfa
hinsvegar að borga skattinn meira
og minna fyrir þá, sem skattsvikun-
um beita.
Það verður að sjálfsögðu að meta
laun fólks að verulegu leyti eftir
menntun og starfshæfni. Allir, sem
vinna störf sín vel, eru verðir launa
sinna, hvort sem þeir eru mennta-
menn eða „bara“ verkamenn.
Laun frá kr. 70.000.- —
100.000,- á mánuði myndu ekki
kollvarpa fjárhag þjóðfélagsins, ef
rétt væri á málum haldið.
Gefumst ekki upp. Höldum vörð
um okkar litla eyland. Tryggjum
öllum þeim menntun, sem vilja
menntast, því menntun er máttur.
Sýnum nú mátt og samstöðu og
tryggjum hinum vinnandi stéttum,
hveiju nafni sem nefnast, mann-
sæmandi laun, svo að við getum
orðið sjálfstæð í sjálfstæðu landi:
Upprætum óheiðarleika og brask
og stöndum saman um sjálfstæða
einstaklinga. Þá getum við hrósað
sigri sem sannir sjálfstæðismenn.
Höfundur er sjúkraliði.
s
IHer inn á lang JL flest heimili landsins!
:í
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Námskeið
í ráðgjafatækni
og samskiptum
(Impression management)
Markhópur: Ráðgjafar einstakra atvinnugreina.
Markmið: Styrkja ráðgefandann í samskiptum sínum
við viðskiptamann sinn og þar með laða fram þarfir
hans og markmið.
Framkvæmd: Námskeiðið er uppbyggt af fyrirlestrum,
æfingum og leikhlutverkum.
Krafist er mikillar virkni þátttakenda. Æfingar og leik-
hlutverk eru tekin upp á myndband og þau síðan
skoðuð.
Námsgögn: Þátttakendur fá möppu með efni nám-
skeiðsins, æfingum o.fl.
Innihald námskeiðsins: Farið er yfir eftirfarandi atriði:
Táknmál líkamans, áhrifabeiting, traustvekjandi viðmót,
samtalstækni, kynningartækni, raddbeiting, stefnumið-
unaráhrif.
Staður og tími: Námskeið I 4.-6. maí, námskeið II 6.-8.
maí 1987 í Borgarnesi.
Þátttaka tilkynnist í síma 687000.
Eg kýs
Sjálfstæðis-
flokkinn
Magnús
Kjartansson
hljómlistarmaður, Hafnarfirði:
„Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
vegna þess að traust upp-
bygging atvinnulífsins,
sérstaklega á Suðurnesjum,
er komin undir forystu
flokksins í kjördæminu.
Vegna eigin reynslu hafna
ég upplausnarstefnu vinstri
flokkanna í efnahagsmálum.
Við erum á réttri leið“.
ÁRÉrmiBÐ
#ull & Énlfur
Tvöfaldi silfurfægikluturínn
• Innri klúturinn hreinsar.
• Ytri klúturinn gefur borðsilfrinu og kertastjökunum sterkan gljáa.
• Slípiefni eru í algjöru lágmarki, engin óþægileg lykt, ekkert ryk.
Mildari höndum er tæpast hægt að fara um silfurmunina!
Silfurfægilögur
með rósailmi
- sérstaklega áhrifaríkur en mildur. Lögurinn er borinn á silfrið og síðan skolaður
af með köldu vatni. Silfrið verður sem nýtt og það fellur síður á það á eftir. Og
tvöfaldi silfurfægiklúturinn er svo tilvalinn til viðhalds.
connoisseurs
þjónusta
ár
flokks
Fyr
siiver
poiisti
#ull&é>tlfuru/f
20620
Laugavegi 35
simi
Vero
495