Morgunblaðið - 09.04.1987, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
77
KKÍ fékk hundrað
þúsund frá Hagkaup
HAGKAUP ákvað að styrkja
Körfuknattleikssamband ísiands
vegna þátttöku i Norðurlanda-
móti karlalandsliða og gaf KKÍ
hundrað þúsund krónur upp i
ferðakostnaðinn.
Magnús Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri fýrirtækisins, af-
henti Birni Björgvinssyni, formanrii
KKÍ, ávísunina, þegar landsliðs-
hópurinn var tilkynntur, en endan-
legt tíu manna lið verður valið á
þriðjudaginn fyrir pressuleik í
Njarðvík.
Norðurlandamótið fer fram í
Horsens í Danmörku 23. - 26. april
og hefur landsliðsnefnd valið 15
leikmenn til æfinga. Gylfi Þorkels-
son er meiddur og Þorvaldur
Geirsson gaf ekki kost á sér, en
eftirtaldir leikmenn skipa hópinn:
PálmarSigurðsson Haukum
Henning Henningsson Haukum
Jóhannes Kristbjörnsson UMFN
Jón Kr. Gíslason ÍBK
Tómas Holton Val
ívar Webster Þór
Helgi Rafnsson UMFN
Valur Ingimundarson UMFN
Guðmundur Bragason UMFG
Hreiðar Hreiðarsson UMFN
Guðni Ó.Guðnason KR
Hreinn Þorkelsson ÍBK
LeifurGústafsson Val
Sturla Örlygsson Val
Bragi Reynisson ÍR
MorgunblaðiÖ/Þorkell
• Magnús Olafsson afhendir Birni M. Björgvinssyni ávísunina frá
Hagkaup. ‘
íslandsmót fatlaðra:
Tíu íslandsmet
voru sett í sundi
Ljósmynd/Björn Pálsson
• Elvar Thorarensen, ÍFA, sigraði í boccia í flokki hreyfihamlaðra
standandi.
Knattspyrna
í kvöld
ÞRÍR knattspyrnuleikir verða í
kvöld. Reykjavíkurmót kvenna
hefst á gervigrasvellinum klukk-
an 18.45 og þá leika KR og Valur
og má segja að það sé úrslitaleik-
ur mótsins.
Annar stórleikur verður í
Reykjavíkurmótinu og er hann í
karlaflokki. Valur og Fram leika og ,
hefst viðureignin klukkan 20.30.
Úrslitaleikurinn í Alison-bikarn-
um verður á Vallargerðisvelli
klukkan 20 og leika þar ÍK og
Breiðablik en bæði liðin hafa hlotið
sjö stig.
ÁTTUNDA íslandsmót íþrótta-
sambands fatlaðra var haldið f
Keflavík 3.-5. apríl sl. Á mótinu
kepptu 180 keppendur frá 16 fé-
lögum.
Tókst mótið í alla staði mjög vel
og góð afrek unnin, sér í lagi í
sundi, þar sem samtals 10 íslands-
met voru sett í flokkum hreyfihaml-
aðra, blindra og sjónskertra og
þroskaheftra, svo sjá rhá að fram-
farir eru miklar hjá sundfólkinu.
Sund:
Bestum árangri samkvæmt
stigatöflu náðu eftirfarandi:
Hreyfihamlaðir:
Kristín Rós Hákonardóttir ÍFR 413
Blindir og sjónskertir:
HalldórGuðbergsson ÍFR 330
Heyrnardaufir:
Bjarki Ólafsson ÍH 220
Þroskaheftir:
Sigrún H. Hrafnsdóttir Ösp 352
Bogfimi:
Helgi Eyjólfsson ÍFR 441
Lyftingar:
Reynir Kristóferss. ÍFR 110 kg 68,2
Boccia:
Einstaklingskeppni
Hreyfihamlaðir — sitjandi flokkur:
Sigurður Björnsson IFR
Ljósmynd/Björn Pálsson
9 Sigri fagnað eftir sundið. Frá vinstri: Sigrún H. Hrafnsdóttir, sem
var stigahæst í flokki þroskaheftra, Bára B. Einarsdóttir og Sigrún
Ólafsdóttir.
Hreyfihamlaðir — standandi flokkur.
Elvar Thorarensen ÍFA
U-flokkur:
Stefán Thorarensen ÍFA
Þroskaheftir:
Ólafur Þormar, Gáska
Sveitakeppni
Hreyfihamlaðir: A-sveit ÍFR
U-flokkur: A-sveit ÍFA
Þroskaheftir: A-sveit Eikar
Borðtennis:
Lokaður flokkur
Einliðaleikur:
Hreyfihamlaðir karlar:
Ólafur Eiríksson ÍFR
Hreyfihamlaðar konur:
Elsa Stefánsdóttir ÍFR
Þroskaheftir karlar:
Jón G. Hafsteinsson Ösp
Þroskaheftar konur:
Sonja Ágústsdóttir Ösp
Heyrnardaufir karlar:
Guðmundur Kjartansson ÍH
Heyrnardaufar konur:
Elsa G. Björnsdóttir ÍH
Tvfliðaleikur:
Hreyfihamlaðir:
Ólafur Eiríkss./Stefán Magnúss. ÍFR
Þroskaheftir:
Jósep Ólas./Jón G. Hafsteinss. Ösp
Heyrnardaufir:
Guðm. Kjartanss./Bjarki E. Ólas. ÍH
Opinn flokkur
Karlar: Jón G. Hafsteinssdn Ösp
Konur: Elsa Stefánsdóttir ÍFR
• Það ertalið hæfilegt að æfingapúls sé u.þ.b. tvöfaldur hvflc'arpúls.
Hreysti
Maður þarf að æfa þrisvar í viku ekki skem-
ur en 20-40 mínútur í senn til að njóta
jákvæðra áhrifa heilsuræktar
VEGNA mistaka féllu úr setningar
í þættinum um hreysti, er var i
blaðinu á þriðjudaginn. Hann
birtist hér þvf aftur eins og hann
á að vera og um leið er beðist
velvirðingar á mistökunum.
Áður en við hefjum fræðslu um
einstakar greinar, sem allir geta
stundað til að njóta jákvæðra
áhrifa heilsuræktar, ætla ég að
nefna nokkur almenn atriði, sem
vert er að hafa í huga, þegar mað-
ur hefúr stigið á stokk og ákveðið
að gera holla hreyfingu hluta af
hinu daglega lífi til að geta notið
ávaxta hennar til fulls. Sum þess-
ara atriða hafa verið nefnd í
þessum pistlum áður en verða
endurtekin hér sökum mikilvægis,
Setjið ykkur ákveðið markmið með
þeim æfingum, sem þið veljið, þ.e.
hafið í huga, að maður þarf að
æfa þrisvar í viku og ekki skemur
en 20—40 mínútur til að njóta já-
kvæðra áhrifa heilsuræktarinnar
fyrir hjarta, blóðrás og lungu. Hér
er þá átt við skokk, gönguferðir,
sund, hjólreiöar og skíðagöngu.
Gott er að nota púlsinn sem mæli-
kvarða á álagið. Maður finnur púls
t.d. með því að þreifa eftir slagæð
á hálsi eða úlnlið. Hvíldarpúls er
fjöldi slaga á einni mínútu (má t.d.
telja í 10 eða 15 sekúndur og
margfalda með 6 eða 4). Algengt
er, að hann sé milli 60—70 slög á
mínútu. Æfingapúlsinn er fjöldi
slaga á mínútu í miðri áreynslu,
þegar hjartað hefur aðlagað sig
álaginu. Segja má til viðmiðunar,
að áreynslan sé hæfileg, ef æf-
ingapúlsinn er u.þ.b. 120—140
slög á mínútu, þ.e. tvöfaldur
hvíldarpúlsinn.
Varast verður sérstaklega að fara
ekki of geyst af stað vilji maður
ekki „njóta" neikvæðra áhrifa
heilsuræktarinnar og verða ófær
um að stunda þá hreyfingu, sem
maður hefur valið, vegna ákafa —
verða í þess stað pirraður og
svekktur og hætta við allt saman.
í þessu sambandi má nefna að
hafi maður aldrei æft áður má
byrja á gönguferð, sem maður
getur síðar breytt í skokk, eða
halda sig við gönguna en bæta
einungis smám saman við.
Mjög mikilvægt er að velja sér
íþrótt, sem maður hefur gaman
af að stunda. Það eykur líkur á að
maður geri ástundunina hluta af
lífsmynstri sínu, sem hefur geysi-
mikla þýðingu. Regluleg hreyfing á
að vera skemmtileg upplifun, en
ekki leiðinleg skylda. Þarna kemur
félagshlið íþróttaástundunar inn í
myndina, en margir sækja félags-
lega næringu í ýmiss konar íþrótta-
hópa.
Harðsperrur eru bandvefsmeiðsl í
vöðvum sem koma fram eftir mikla
áreynslu óþjálfaðra vöðva. Þessi
einkenni koma yfirleitt fram einum
til þremur sólarhringum eftir
áreynsluna. Vöðvarnir jafna sig
fullkomlega og besta leiðin til að
slá á einkennin er áframhaldandi
hreyfing. Hættið ekki að stunda
æfingar vegna harðsperra, en farið
varlega vegna þess að álagshæfni
vöðvanna minnkar um skeið og
hætta eykst á meiðslum í sinum
og vöðvum. Hér sannar góð upp-
hitun gildi sitt.
Best er að borða ekkert í tvær
klukkustundir fyrir æfingar og alls
ekki þunga fituríka máltíð. Þetta
gefur maganum tækifæri á að
tæmast en það minnkar hættu á
vanlíðan frá meltingarfærum og
blóðflæði til þeirra er minna. Við
höfum annað við blóðið að gera á
meðan á áreynslunni stendur (súr-
efnisflutningur til vöðva).
ítrekað skal að nauðsynlegt er að
hita vel upp áður en maður byrjar
æfinguna og vera vel klæddur og
skóaður fyrir þá grein sem stunda
skal. Það hafa margir farið flatt á
því að ætla að spara við sig t.d.
kaup á hlaupaskóm eða sund-
skýlu(!?).
í næstu pistlum mun Jóhann Heið-
ar Jóhannsson fræða menn nánar
um skokk.