Morgunblaðið - 09.04.1987, Síða 78
Árni Friðleifsson, Kristján Sigmundsson og Einar Jóhannesson virða hér fyrir sór hinn glæsilega bikar sem Reykjavíkurborg gaf í tilefni 200 ára afmæHs^Revklavnrnr
ingar höfðu mikla yfirburði f 1. deild og tryggðu sér sigur í íslandsmótinu beqar briár umferðir voru eftir. y
Víkingar
þegar þrjár umferðir voru eftir.
VERTU ÖRUGGUR-
VELDU VEL I LIÐIÐ ÞITT~
VELDU VOLVOVARAHLUTI.
VORTHBOD:
Kerti B-19, B-20, B-230 44 1,-
Platína B-19, B-21, B-230 165,-
Membra í blöndung 286,-
Framdempari 240 2.982,-
Afturdempari 240 1.373,-
Olíusía Allar bensínvélar 354,-
Pústkerfi 240 7.222,-
Tímareim B-19, B-21, B-230 548,-
Spindilkúla 240 1.232,-
Framhjólalegusett 240 frá 968,-
SUÐURLANDSBRAUT I6 S.iMI 35200
„Úrslitin aldrei
jafn óvænt og nú“
- segir Guðmundur Guðmundsson, fyrirliði íslandsmeistara Víkings
„ÞETTA íslandsmót hefur verið
mjög skemmtilegt. Handknatt-
leikurinn hér á landi er á uppleið
eftir að hafa verið í öidudal í tvö
ár. Það er að koma upp mikið af
efnilegum strákum sem eiga eftir
að iáta mikið að sér kveða í fram-
tíðinni,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, fyrirliði íslands-
meistara Víkings, eftir að hann
tók við hinum veglega bikar sem
Reykjavíkurborg hefur gefið til
keppninnar.
„Seinni leikurinn við Breiðablik
í Höliinni og við Stjörnuna í Digra-
nesi voru skemmtilegustu leikirnir
í vetur," sagði Guðmundur að-
spurður um eftirminnilegustu
leikina. Hann hefur leikið með
Víkingum síðan 1979 og sagði að
úrslit mótsins hafi aldrei verið jafn
óvænt og núna. „Það bjóst enginn
við að Víkingur stæði uppi sem
sigurvegari í upphafi móts, enda
við með ungt liö. En ungu strákarn-
ir hafa staðið sig vel og stjórnin
hefur stutt vel við bikið á okkur.“
„Breiðablik kom mest á óvart í
deildinni vetur fyrir góða frammi-
stöðu. KA er einnig með mjög
gott lið og ætti að vera ofar. Valur
og Stjarnan voru hins vegar slak-
ari en búist var við í upphafi rnóts."
En hvað segir Guðmundur um
mótið næsta vetur.
„Það verður örugglega erfiðara
að verja titilinn næsta ár. Ég reikna
með að við verðum með sama
mannskap, en allir vilja jú vinna
íslandsmeistarana. Ég fagna því
að tvö lið frá Akureyri skuli vera
komin í fyrstu deild. Akureyri hefur
verið að þróast upp í það að verða
handboltabær og alltaf mikil gam-
an að leika þar.“
- Hvað segir fyririiðinn um leik-
inn gegn KA í gærkvöldi?
„Við vorum búnir að vinna mót
ið fyrir þremur umferðum og því
ekki mikið í húfi. Það voru okkur
mikil vonbrigði að vera slegnir út
úr bikarkeppninni og við náðum
okkur einfaldlega ekki á strik í
þessum leik."
KA lagði íslands-
meistarana að velli
ÍSLANDSMEISTARAR Víkings
töpuðu síðasta leik sínum í Is-
landsmótinu f handknattleik gegn
KA, 23:26, í Laugardalshöll í gær-
kvöldi. Víkingar höfðu tryggt sér
sigur í mótinu þegar þrjár um-
ferðir voru eftir og þvf ekki að
mikið í húfi í þessum leik. Staðan
í hálfleik var 14:10 fyrir KA.
KA-menn komu ákveðnir til leiks
og staðráðnir í að veita íslands-
meisturunum harða keppni. Þeir
komust í 4:1 eftir 12 mínútna leik
og hélst þessi munur út hálfleik-
inn. Vörn KA og markvarsla
Brynjars vóg þungt á metunum í
fyrri hálfleik. Markvarslan var hins
vegar slök hjá Víkingingum.
Víkingar minnkuðu muninn í tvö
mörk í upphafi seinni hálfleiks, en
síðan dró aftur sundur með liðun-
um og KA vann verðskuldað. Þeir
léku af skynsemi og oft á tíðum
góðan handknattleik.
Bestu leikmenn Víkings voru
Guðmundur Guðmundsson og
Bjarki Sigurðsson, aðrir léku undir
getu. Hjá KA léku allir vel, þó ber
að geta frammistööu Brynjars í
markinu sem varði alls 17 skot þar
Víkingur—KA
23 : 26
1. deild í handknattleik. Laugar-
dalshöll, 8. aprfl 1987.
Víkingur—KA 23:26 (11:14).
1:0, 1:4, 3:6, 4:7, 6:9, 6:10, 7:12,
10:12, 10:14, 12:14, 13:17, 15:17,
15:19, 16:20, 18:23, 20:24, 23:26.
MÖRK VÍKINGS: Guðmundur
Guðmundsson 7, Karl Þráinsson
5/5, Bjarki Sigurðsson 4, Ámi Frið-
leifsson 3, Siggeir Magnússon 2 og
HUmar Sigurgíslason 2.
MÖRK KA: Friðjón Jónsson 5, Pét-
ur Bjamason 5, Jón Kristjánsson
4, Hafþór Heimisson 4, Guðmundur
Guðmundsson 3, Eggert Tryggva-
son 3/2 og Axel Bjömsson 2.
af 10 í fyrri hálfleik, Friðjóns og
Jóns Kristjánssonar. Pétur var
sterkur í seinni hálfleik og eins lék
Guðmundur Guðmundsson vel.
Björn Jóhannsson og Sigurður
Baldursson dæmdu leikinn ágæt-
lega ef frá eru talin mistök þeirra
við að gefa Árna Indriðasyni rauða
spjaldið. Hann fékk spjaldið fyrir
að koma inna leikvöllinn þegar einn
leikmanna Víkings lá í gólfinu og
tíminn hafði verið stöðvaður rétt
fyrir leikhlé. Þeir viðurkendu síðan
mistök sín í leikhléi og drógu rauða
spjaldið til baka og Árni fékk að
leika með og stjórna sínum mönn-
um það sem eftir var. Vajo
Blak kvenna:
Víkingur
meistari
VÍKINGUR vann ÍS 3:1 í meistara-
flokki kvenna í blaki í gærkvöldi
og hlaut þar með íslandsmeist-
aratitilinn ■ fimmta skipti.
Stúdínur unnu fyrstu hrinuna
16:14, en síðan unnu Víkingsstúlk-
urnar 16:14, 16:14 og 15:3. Björk
Erlingsdóttir, Sigrún Sverrisdóttir
og Særún Jóhannsdóttirvoru best-
ar hjá Víkingi, en Úrsúla Juneman
og Málfríður Pálsdóttir hjá (S.