Morgunblaðið - 09.04.1987, Page 79
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
79
Essen varði titilinn
Alfreð og Jóhann Ingi
Þýskalandsmeistarar
„ALFREÐ Gíslason er einn besti
varnarleikmaðurinn í bundeslig-
unni, leikmaður sem vinnur álit
allra og hann hefur verið hreint
frábær í vetur. Alfreð hefur auk
þess skorað hundrað mörk á
tímabilinu og á stóran þátt í þess-
um árangri," sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson, þjálfari Essen og
yngsti þjálfarinn, 32 ára, til að
leiða lið sitt til sigurs í bundeslig-
unni í handbolta, við Morgun-
Kæruleysi
hjá Haukum
og KR
KÆRULEYSI sat í fyrirrúmi í leik
Hauka og KR í 1. deild karla í
handbolta f gærkvöldi. Leikurinn
var slakur enda lítið í húfi og eft-
ir jafnan fyrri hálfleik sigraði
falllið Hauka örugglega.
Fyrri hálfleikur var mun skárri
hjá báðum liðum. KR-ingar sýndu
þá baráttu og einkum var Konráð
góður, en hann skoraði sex mörk
í hálfleiknum eftir að hafa snúið
Sigurjón af sér í horninu.
í byrjun seinni hálfleiks dró í
sundur með liðunum. Haukarnir
spiluðu upp á Sigurjón og kom
fyrir að leikmaður í opnu færi gaf
frekar aftur út, en reyna að skora
sjálfur.
ágás
Haukar — KR
33:25
íþróttahúsið Hafnarfirði, 8. apríl
1987. 1. deild karla í handbolta.
4:4, 9:10, 11:11, 14:12, 17:12, 19:16,
22:17, 24:21, 28:23, 30:24, 33:25.
Mörk Hauka: Sigurjón Sigurðsson
'13/3, Pétur Guðmundsson 5, Jón Öm
Stefánsson 5, Sigurður Öm Amarson
3, Þórir Gíslason 3, Sindri Karlsson
2, Ingimar Haraldsson 1, Helgi Ás-
geir Harðarson 1.
Mörk KR: Konráð Olavson 8, Þor-
steinn Guðjónsson 4/3, Páll Ólafsson
3, Guðmundur Pálmason 3, Ólafur
Lárusson 3, Sverrir Sverrisson 3, Jó-
hannes Stefánsson 1.
blaðið f gærkvöldi eftir að Essen
hafði unnið Schutterwald 22:13
og þar með tryggt sér meistara-
titilinn.
„Þetta er fyrsti meistaratitillinn
minn og ég er mjög ánægður. Það
var erfitt verkefni að taka við
meisturum og í byrjun móts töldu
margir að Essen myndi ekki þola
spennuna. En liðið hefur haft mikla
yfirburði allt mótið og er þriðja lið-
ið til að verja titilinn, en það hafa
aðeins Gummersbach og Gross-
waldstadt gert áður. Þetta hefur
verið erfitt en skemmtilegt og því
er ekki að neita að það er mikill
léttir að þessu takmarki skuli hafa
verið náð,“ sagði Jóhann Ingi.
Alfreð var bestur hjá Essen og
skoraði sjö mörk. Þetta er fjórða
árið hans með Essen og annar
meistaratitillinn, en fyrsta árið
hafnað liðið í 3. sæti og það næsta
í 2. sæti. Áður hafði Alfreð orðið
íslandsmeistari utanhúss og bikar-
meistari með KR, en Jóhann Ingi
þjálfaði einmitt KR-ingana þá.
• Alfreð Gíslason fagnaði vestur-þýska meistaratitlinum handknatt-
leik í annað sinn á jafnmörgum árum í gærkvöldi. Jóhann Ingi
Gunnarsson er yngsti þjálfarinn, 32 ára, til að leiða lið sitt til sigurs
í Bundesligunni í handknattleik.
Stórsigur Bayern
BAYERN Miínchen vann Real
Madrid 4:1 í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum Evrópukeppni
meistaraliða. Real lék án Hugo
Sanchez, sem var í banni, og
Jorge Valdano, sem var veikur.
Tveir leikmanna liðsins voru
reknir af velli og tvö marka Bay-
ern voru skoruð úr vitaspyrnum.
Bayern komst í 3:0 í fyrri hálf-
leik, en Butragueno minnkaði
muninn á 45. mínútu. Augenthaler
England
TVEIR leikir fóru fram í 1. deild
ensku knattspyrnunnar í gær-
kvöldi. West Ham vann Arsenal
3:1 og Newcastle sigraði Norwich
4:1. I 2. deild vann Derby Hudd-
ersfield 2:0 og Hull og Leeds
gerðu markalaust jafntefli.
Nýliðarnir í
Evrópukeppni
„AUÐVITAÐ er ég ánægður.
Markmiðið í byrjun móts var að
halda sætinu í deildinni á fyrsta
ári og þessi árangur hvarflaði
aldrei að okkur,11 sagði Björn
Jónsson, leikmaður UBK, eftir
stórsigur gegn Ármanni í gær-
kvöldi. Með sigrinum tryggði UBK
sér þátttökurétt í IHF keppninni
næsta vetur, en þar verður að
leika betur, ef ekki á illa að fara.
Breiðablik var lengi í gang og
ekki bætti úr skák að Guðmundur
Friðriksson í marki Ármanns lokaði
nær markinu fyrstu mínúturnar.
En Ármenningar veittu litla sem
enga mótspyrnu og eftirleikurinn
var auðveldur.
Flest mörk UBK komu eftir hrað-
aupphlaup, þar sem Blikar voru
tveir eða þrír á móti Guðmundi í
markinu, og þó hann hafi varið 16
skot, mátti hann ekki við margn-
um. Hjá Ármanni stóðu Guðmund-
ur Friðriksson og Haukur
Haraldsson sig einnig sæmilega.
Sigþór Jóhannesson var bestur
hjá UBK, Guðmundur Hrafnkels-
son var góður í markinu og Jón
Þórir öruggur í vítaköstunum.
Mörk UBK: Jón Þ. Jónsson 8/4, Sigþór
Jóhannesson 6, Aðalsteinn Jónsson 4,
Þórður Davíðsson 3, Ólafur Björnsson 3,
Björn Jónsson 2, Svafar Magnússon 2,
Kristján Halldórsson 2, Elvar Erlingsson
1, Paul Dempsey 1.
Mörk Ármanns: Haukur Haraldsson 6,
Bragi Sigurðsson 6/2, Haukur Olavson
2, Einar Naaby 1, Svanur Kristvinsson 1.
SUS
skoraði fyrsta markið á 11. mínútu,
Mattheus bætti öðru við úr víta-
spyrnu á 30. mínútu og Wohlfarth
skoraði þriðja markið sex mínútum
síðar. Mattheus gerði síðan vonir
Spánverjanna að engu á 52.
mínútu, þegar hann skoraði úr
sinni annarri vítaspyrnu.
Gomez var rekinn af velli fimm
mínútum fyrir hlé fyrir að sparka í
höfuð Matthaus og Serrano á 72.
mínútu og verða þeir í banni í
seinni leiknum.
í hinum undanúrslitaleiknum
vann Porto Dynamo Kiev 2:1.
Paulo Futre skoraði fyrra mark
Porto og fiskaði vítaspyrnu, sem
Antonio Andre skoraði úr. Heima-
menn sóttu látlaust, en Pawel
Yakovenko minnkaði muninn með
skallamarki á 73. mínútu. Andrei
Bal hjá Kiev var vikið af velli í byrj-
un seinni hálfleiks.
Johnny Bosman skoraði tvö
mörk fyrir Ajax í 3:2 sigri gegn
Real Zaragoza í Evrópukeppni bik-
arhafa, en var vikið af velli undir
lok leiksins. Rob Witschge skoraði
eitt, en Ruben Sosa og Juan Senor
skoruðu fyrir Zaragoza.
Uwe Bredow tryggði Lokomotiv
sigur gegn Bordeaux með marki á
62. mínútu og er líklegt að Austur-
Þjóðverjarnir leiki til úrslita við Ajax
í keppninni.
Gautaborg vann Tyrol 4:1 í
Evrópukeppni félagsliða, en
Dundee United og Gladbach gerðu
markalaust jafntefli.
Skrautlegt
LEIKUR FH og Fram var skraut-
legur í meira lagi, leikur mikilla
mistaka, sem líktist einna helst
æfingu, er skipti engu máli.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik, en FH hafði þriggja marka
forystu í hléi, 16:13. í seinni hálf-
leik tóku Hafnfirðingarnir öll völd
og sigruðu með miklum mun.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 11, Guðjón
Árnason 9/2, Óskar Helgason 6/1, Gunn-
ar Beinteinsson 6, Þorgils Óttar Mathies-
en 5, Pétur Petersen 1, Magnús
Magnússon 1.
Mörk Fram: Júlíus Gunnarsson 5, Agnar
Sigurðsson 4, Birgir Sigurðsson 4, Andrés
Magnússon 3, Per Skaarup 3, Hermann
Eins oa létt æfina
STJARNAN sigraði Val, 28:25, í ■eik sem hafði enga þýðingu í 1. deild karla í Digranesi í gær- kvöldi. Leikurinn bar þess merki og var líkari æfingaleik. Staðan í hálfleik var 15:14 fyrir Stjörnuna. Leikurinn var jafn lengst af og bauð upp á spennu sem varð þó aldrei vegna þess hve litla þýðingu hann hafði. Hann var prúðmann- lega leikinn og oft skemmtilegur á að horfa. Bestir hjá Stjörnunni voru Sigm- ar Þröstur, Gylfi og Hannes. Hjá Val voru þeir Júlíus, Jakob og Valdi- mar bestir. Mörk Stjörnunnar: Hannes Leifsson 11/6, Gylfi Birgisson 7, Skúli Gunnsteins- son 3, Hafsteinn Bragson 2, Einar Einars- son, Páll Björgvinsson og Magnús Teitsson eitt mark hver. Mörk Vals: Július Jónasson 8, Jokob Sig- urðsson 7/2, Valdimar Grímsson 5, Gísli Óskarsson 4 og Geir Sveinsson 1. sus
Björnsson 2, Tryggvi Tryggvason 2, Björn
Eiríksson 1, Ragnar Hilmarsson 1.
ágás
1. deild:
Lokastaðan
Víkingur - KA 23:26
Breiðablik - Ármann 32:16
FH - Fram 39:25
Stjarnan - Valur 28:25
Haukar-KR 33:25
Víkingur 18 14 1 3 472:396 29
UBK 18 12 2 4 444:406 26
FH 18 12 1 5 485:420 25
Valur 18 10 2 6 442:401 22
Stjarnan 18 10 2 6 463:429 22
KA 18 9 2 7 421:411 20
KR 18 , 6 1 11 386:428 13
Fram 18 6 0 12 444:452 12
Haukar 18 4 2 12 396:447 10
Ármann 18 0 1 17 336:473 1
Markahæstir:
Sigurjón Sigurösson Haukum 133/38
Hannes Leifsson Stjörnunni 118/52
Birgir Sigurðsson Fram 99
Jakob Sigurðsson Val 96/18
Júlíus Jónasson Val 95/11
Karl Þráinsson Víkingi 95/50
Gylfi Birgisson Stjörnunni 93
Konráð Olavson KR 92/19
Jón Þórir Jónsson UBK 92/30
ÓskarÁrmannsson FH 89/46
Guðmundur Guðmundsson Víkingi 85/1
Héðinn Gilsson FH 83
Jón Kristjánsson KA 75
Gunnar Beinteinsson FH 75
BjörnJónssonUBK 72/19
adidas
Samba
Níðsterkir æfingaskór.
Til nota jafnt inni sem
úti. Kr. 3.299.-
Samba Spezial
Topp malarskór, til nota
í vor á harða ójafna
malarvelli. Kr. 3.766
UWE Frábærir
fótboltaskór fyrir ungu
strákana. Kr. 1.280.-
ZX 500
Einir bestu alhliða
æfingaskórnir frá
Adidas. 4.495.-
Phantom
fallegir, léttir og sterkir
æfingaskór fyrir
metnaðargjarna
hlaupara. kr. 3.389.-
Lady Oregon
Sérstaklega léttir
æfinga- og keppnisskór
fyrir dömur. Kr. 2.340.-
Adilette
Herra og dömu sund-
töflur í bláu og rauðu.
Nauðsynlegir í sólar-
landaferðina Kr. 795.-
Universal
Þennan þekkja allir!
Kr. 2.550.-
Sportval
*við Hlemm. Sími 26690.
Póstsendum
adidas^