Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
90. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skæruliðar tamíla taldir bera ábyrgð á
Colombo, Sri Lanka, Reuter.
ÓTTAST er, að 150 manns hafi
farist og á annað hundrað slas-
ast þegar öflug sprengja sprakk
í helstu strætisvagnamiðstöðinni
í Colombo á Sri Lanka í gærdag.
Fullvíst er talið, að skæruliðar
tamíla hafi komið sprengjunni
fyrir.
Embættismenn á Sri Lanka
segja, að skæruliðar tamíla beri
ábyrgð á hryðjuverkinu en við
sprenginguna urðu einkabifreiðar,
strætisvagnar og nálægar verslanir
alelda á svipstundu. Látið fólk og
slasað lá eins og hráviði um allt
svæðið og yfir því grúfði svartur
reykjarmökkur frá brennandi bílum
og byggingum. Sprengingin varð á
mesta annatímanum þegar þúsund-
ir manna voru á leið heim úr vinnu.
í nótt var útgöngubann í borg-
inni til að koma í veg fyrir, að
sinhalesar, sem eru í meirihluta þar
og í landinu öllu, hefndu sín á tamíl-
hryðjuverkinu
um. Hryðjuverkið í gær kemur í
kjölfar morða tamílskra skæruliða
á 142 sinhalesum síðustu fimm
daga og er nú óttast, að upp úr
kunni að sjóða fyrir alvöru milli
þjóðarbrotanna.
Meðaldrægu eldflaugarnar:
Sovétmenn boða
samkomulagsdrög
Genf, Reuter. ^ J
John Poindexter
Bofors krafið skýr-
inga í mútumálum
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKA stjórnin hefur beðið
Bofors-verksmiðjurna, mesta
Vopnasölumálið:
Poindexter 1
undanskilinn
málssókn
Washington, Reuter.
Rannsóknarnefndin, sem öld-
ungadeild Bandaríkjaþings
skipaði til að kanna vopnasölu-
málið, samþykkti í gær, að John
Poindexter, fyrrum ráðgjafi
þjóðaröryggisráðsins, skyldi
undanþeginn málshöfðun að
mestu leyti.
Eru þessar fréttir hafðar eftir
heimildamönnum á Bandaríkjaþingi
og sögðu þeir einnig, að rannsókn-
amefnd fulltrúadeildarinnar myndi
á morgun samþykkja þessa skipan
mála fyrir sitt leyti til að neyða
Poindexter til að svara spurningum
nefndanna. Við rannsókn vopna-
sölumálsins hafa nokkrir menn
verið undanþegnir málshöfðun síðar
gegn því, að þeir segðu allt af létta,
en enginn hefur verið jafn háttsett-
ur og Poindexter, sem er aðmíráll
að tign.
vopnaframleiðanda í Svíþjóð, um
að upplýsa hvort greiddar hafi
verið stórfelldar mútur til að
tryggja vopnasölusamning við
indversku stjórnina.
Talsmaður sænska utanríkisvið-
skiptaráðuneytisins skýrði frá þessu
í gær en á fimmtudag í fyrri viku
flutti ríkisútvarpið þá frétt, að Bo-
fors-verksmiðjumar, sem era
dótturfyrirtæki Nóbel-samsteyp-
unnar, hefðu greitt indverskum
embættismönnum fimm milljónir
dollara til að greiða fyrir vopnasölu-
samningi upp á 1,3 milljarða doll-
ara. Hefur þetta mál valdið miklum
úlfaþyt á Indlandi og kemur í kjöl-
far ásakana um, að embættismenn
í stjórn Gandhis hafi þegið 23 millj-
ónir dollara í mútur frá vestur-
þýskum vopnaframleiðendum.
Sjá frétt á bls. 39.
Sri Lanka:
Reuter
Mikil ringulreið var fyrst eftir sprenginguna á umferðamiðstöðinni og leið nokkur tími áður en björgun-
armenn gátu farið að huga að slösuðu fólki. Óttast er, að hátt á annað hundrað manns hafi látið lifið
og álika margir slasast.
Á annað hundrað fer st
í mikilli sprengingu
Ný uppreisn inn-
an Argentínuhers
Buenos Aires, Reuter.
NÝ heruppreisn var gerð í borg-
inni Salta í Argentínu í gær,
aðeins tveimur sólarhringum eft-
ir að Raul Alfonsin forseti hafði
, kveðið niður sams konar upp-
j reisn annars staðar í landinu.
Uppreisnin í gær er sögð eiga
rætur að rekja til mikillar spennu
og óánægju innan hersins með nýj-
an yfirmann herráðsins en-d^fyrri-
nótt ákvað Alfonsin, að Jose Caridi
hershöfðingi skyldi taka við emb-
ættinu af Hector Rios Erenu. Þá
hafa einnig tíu hershöfðingjar verið
leystir frá störfum á síðustu dögum.
Að sögn Telam-fréttastofunnar er
það 5. vélaherfylkið undir stjórn
Jorge Duran majórs, sem stendur
fyrir uppreisninni í Salta, en frétta-
stofan hafði það eftir Duran, að
ekki væri um að ræða tilraun til
valdaráns.
Ríkisstjórinn í Salta hvatti í gær
almenna borgara til að koma út á
göturnar og mótmæla uppreisninni
og í ýmsum öðram héraðum var
gæsla hert við opinberar byggingar.
Alfonsin forseti átti fyrr í gær
skyndifund með herráðinu og í sjón-
varpsávarpi til þjóðarinnar nokkra
síðar neitaði hann fréttum um, að
hann hefði samið á laun við þá, sem
stóðu fyrir fyrri uppreisninni. Óá-
nægjan innan hersins stafar af því,
að margir hershöfðingjar og aðrir
háttsettir menn hafa að undanförnu
verið látnir svara til saka fyrir
glæpaverkin, sem framin vora í tíð
herforingjastjórnarinnar í landinu.
Sjá „AJfosin hefur . . .“ á bls. 40.
Raul Alfonsin
Sovétmenn hafa tilkynnt að á
næsta fundi í afvopnunarviðræð-
um stórveldanna muni þeir
leggja fram skrifleg drög að
samkomulagi um upprætingu
allra meðaldrægra eldflauga í
Evrópu. Ekki er vitað hvort vikið
er að deilunni um skammdrægu
flaugarnar í þessum tillögum.
Alexei Obukhov, formaður sov-
ésku viðræðunefndarinnar, sagði,
að samkomulagsdrögin yrðu lögð
fram á næsta fundi, sem verður á
fimmtudag, en ekki vildi hann svara
því hvort komið væri inn á skamm-
drægu eldflaugarnar.
I marsbyijun lögðu Bandaríkja-
menn fram nákvæmlega sundurlið-
aðar tillögur um eyðingu
meðaldrægu eldflauganna og var
þess þá krafist, að Sovétmenn
kæmu með sínar eigin skriflegu til-
lögur og jafn vel útlistaðar. Var
sérstaklega kallað eftir tillögum um
eftirlit með framkvæmd hugsanlegs
samnings og um skammdrægu eld-
flaugarnar.
Talið er, að Sovétmenn hafi níu
skammdrægar flaugar á móti hverri
einni á Vesturlöndum og því gera
Bandaríkjamenn það að skilyrði, að
um báðar eldflaugagerðirnar verði
rætt samtímis. Raunar hafa margir
á Vesturlöndum áhyggjur af að
afsala sér öllum kjarnorkuvopnum
því að Varsjárbandalagið hefur
margfalda yfirburði yfir Vestur-
Evrópuríkin hvað varðar hefðbund-
inn herafla og vopnabúnað.
Á vélhjóli á
norðurpól
Tókýó, Reuter.
JAPANI nokkur hefur unnið
það frægðarverk að komast
fyrstur manna á norðurpólinn
á vélhjóli. Komst hann þangað
í fyrradag eftir 44 daga ferð.
Shinji Kazama lagði upp frá
Ward Hunt-eyju í Kanada 8.
mars sl. og eftir 2000 km og
44 daga ferðalag á ísnum, oft
í miklum branakulda, komst
hann loks heilu og höldnu á
norðurheimskautið á vélhjólinu
sínu. Með honum í förinni vora
fjórir menn, ljósmyndari og fjall-
göngumaður og tveir græn-
lenskir leiðsögumenn. Þeirra
farartæki var hins vegar
snjóbíll.