Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
3
Ferðalög og
tómstund-
ir á sýn-
ingu í Laug-
ardalshöll
SUMAEIÐ ’87, sýning sem
helguð er ferðalögum og tóm-
stundum , opnar sumardaginn
fyrsta kl. 14. Pétur Ásbjöms-
son, fjallgöngumaður, kom sér
fyrir á þaki Laugardalshallar i
gær og mun hann dvelja þar
næstu þrettán daga og safna
Morgunblaðið/Þorkell
Sími, sjónvarp, bækur og tafl stytta Pétri stundir á þakinu
áheitum til styrktar Krýsuvík-
ursamtökunum.
Að sögn Guðmundar Jónssonar
framkvæmdastjóra Kaupstefn-
unnar verður þessi sýning talsvert
frábrugðin fyrri sýningum. „Það
verður skemmtilegri heildarsvipur
yfir sýningunni og munu fyrirtæk-
in meðal annars halda upp starf-
semi í básunum," sagði
Guðmundur. Flugmálastjórn er sá
opinberi aðili sem tengist ferða-
lögum og mun stofnunin kynna
starfsemi sína í samvinnu við flug-
málastjómir Bretlands og
Kanada. Onnur fyrirtæki sýna
meðal annars tjöld og viðlegubún-
að og ferðaskrifstofur kynna
ferðir sem famar em á þeirra
vegum í sumar og haust.
Sýningin verður opin alla virka
daga frá kl. 16 til 22 og frá kl.
13 til 22 um helgar.
Vísitala fram-
færslukostnaðar;
Hækkunin
minni en
spáð var
EFNAHAGSRÁÐGJAFI ríkis-
sljórnariiinar hefur sent frá
sér tilkynningu, þar sem hann
vekur athygli á því, að hækk-
un vísitölu framfærslukostn-
aðar milli mánaðanna mars
og apríl sé heidur minni en
gert var ráð fyrir í spá Þjóð-
hagsstofnunar í febrúarmán-
uði. Samkvæmt spánni átti
hækkunin að verða 1,41% en
varð í reynd 1,39%
í fréttatilkynningunni kemur
fram, að samkvæmt spá Þjóð-
hagsstofnunar hafi vísitala
framfærslukostnaðar átt að vera
185,1 stig í janúar en verið
185,05 stig. í febrúar hafi spáin
verið 187,8 stig en í reynd hafi
vísitalan verið 187,77 stig, í mars
hafi spáin verið 191,2 stig en í
reynd 190,55 og í apríl 193,9 en
í reynd 193,20 stig.
Efnahagsráðgjafi ríkisstjóm-
arinnar segir, að af þessu megi
ráða að vísitala framfærslukostn-
aðar hafi ekki hækkað umfram
það sem síðustu spár Þjóðhags-
stofnunar gerðu ráð fyrir, þar
sem gert hafi verið ráð fyrir
meiri hækkun á fyrsta ársfjórð-
ungi heldur en á síðari hluta
ársins.