Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987 31 Áhugafólk um mið- bæ Reykjavíkur: Brýnt að slá skjaldborg um gamla bæinn ÁHUGAFÓLK um miðbæ Reykjavíkur efndi til baráttu- fundar á Hressingaskálanum fyrir nokkru. I fundarlok var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Undanfarið hefur verið skammt stórra högga á milli í skipulagsmál- um miðbæjarins. Við stöndum andspænis skipulagstillögu þar sem gert er ráð fyrir að mörg eistu hús Reykjavíkur víki fyrir háhýsum, áform eru uppi um byggingu þing- húsbákns sem rýmir út timbur- húsum við Kirkjustræti og ennfremur er auglýst eftir ráðhúsi við Tjörnina. Tjarnarsvæðið er ein- hver fegursti blettur höfuðborgar- innar en jafnframt sá viðkvæmasti vegna þess lífríkis sem í langan tíma hefur laðað til sín innfædda jafnt sem erlenda. Öllum þessum nýbyggingum fylgja að sjálfsögðu áform um bíla- stæði, bílageymslur og breikkun gatna samfara vaxandi umferðar- þunga. Svo virðist að til úrslita dragi einmitt nú eftir samfelldan hrak- fallabálk síðustu ára og er því brýnt að spyrna við fótum og slá skjald- borg um gamla bæinn. Við skorum á borgaryfirvöld að móta loksins stefnu í umgengni við gamla bæinn þar sem tekið sé mið af sögulegu gildi og núverandi handhöfum þessara húsa gert skylt og kleift. að sýna þeim ræktarsemi og virðingu. Miðbærinn er sameign þjóðarinn- ar enda vettvangur okkar elstu sögu og er óhæfa að ætla að skera hann sundur með hraðbrautum, moka burt elstu byggðinni og troða í stað- inn nýbyggingum og bílageymslum. Öllum slíkum fyrirætlunum verður að vísa út fyrir miðbæjarkjamann og gera gamla bæinn að miðstöð þeirra samskipta sem honum hæfa. Fortíð og nútíð verða að semja sátt og ganga hönd í hönd til framtíðar.“ framt því sem eldra fólkinu fjölgar. Kostnaður almannatrygginga myndi því stóraukast í greiðslu elli- launa, en færri þegnar myndu bera kostnaðinn. Það útaf fyrir sig ætti að vera næg ástæða til að breyta 53 ára gömlum lögum um hámarksaldur opinberra starfsmanna, sérstaklega þar sem meðalaldur hefur hækkað um 14—15 ár á þessu tímabili. Eflaust myndu svo aðrar stofnanir fylgja í kjölfarið. Má merkilegt heita að stjórnmálamennirnir skuli ekkert hafa látið í sér heyra um þessi mál. Höfundur er deildarstjóri í Fé- lagsmála- og upplýsingadeild Tryggingastofnunar ríkisins. HÁTÍD í BÆ Á SELTJARNARNESI í kvöld verður á Eiðistorgi, haldin hátíð fyrir alla fjölskylduna Seltjarnarnesi, kl. 18:00-20:00 Dagskrá: Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins til Alþingiskosninga í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi flytja ávörp. Lúðrasveit Seltjarnarness spilar Glæsileg tískusýning sem Módelsamtökin sjá um frá: versluninni Heru, versluninni Fólki og Sportlífi Karnival-bandið skemmtir með léttri Dixieland-músik og kemur öllum í stuð. Selkórinn tekur lagið. Allir velkomnir. Enn um starfslok eftir Margréti Thoroddsen í nóv. sl. skrifaði ég grein í Morg- unblaðið undir yfirskriftinni „Hug- leiðingar um starfslok“. Vakti ég þar máls á hve þungt áfall væri fyrir marga með fullt starfsþrek að þurfa að hætta störf- um við 70 ára aldur. Vitnaði ég í greinar þriggja valinkunnra lækna um að slíkt gæti m.a. leitt til ótíma- bærrar hrörnunar. Nýlega var gerð mjög athyglis- verð könnun á högum aldraðra á Reykjavíkursvæðinu. Voru lagðar fyrir þá ýmsar spurningar í sam- bandi við vandamál elliáranna. Það vakti sérstaklega athygli mína að 60% aðspurðra kváðust vera ósátt við verklokin. Má merkilegt heita hve þessum þætti öldrunarmála hefur verið lítill gaumur gefinn. Stjórnmálamenn okkar tala fjálglega um að hækka þurfi ellilaunin, þannig að þau séu a.m.k. ekki lægri en lágmarkslaun. Það er auðvitað réttlætismál, því margt fullorðið fólk hefur aðeins tryggingabætur sér til framfæris. 5umir eru orðnir lasburða á þessu aldursskeiði og treysta sér ekki til að vinna lengur. Svo eru aðrir, sem hlakka til að komast á eftirlaun til að hafa tækifæri til að sinna sínum hugðarefnum. Hitt er staðreynd, að fjöldi fólks á þessum aldri er við bestu heilsu og hefur ágætt starfsþrek. Þess vegna finnst mér ekki síður mikil- vægt að gefa því fólki kost á að halda áfram störfum, þó það sé orðið 70 ára. Ef þessu fólki væri leyft að vinna áfram, myndu sparast mikil útgjöld hjá því opinbera, auk þess sem ein- staklingunum liði betur að taka þátt í atvinnulífinu og hafa ekki á tilfinningunni að þeim sé útskúfað frá samfélaginu. Þjóðfélagið myndi einnig hagnast á að nýta sér reynslu þess. Nú miðar þróunin í þá átt að fæðingum fækkar stórlega jafn- „Má merkilegt heita hve þessum þætti öldr- unarmála hefur verið lítill gaumur gefinn. Stjórnmálamenn okkar tala fjálglega um að hækka þurfi ellilaunin, þannig að þau séu a.m.k. ekki lægri en lágmarkslaun.“ Margrét Thoroddsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.