Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1987
Gaman og alvara í kosninga
vökum ljosvakamiðlanna
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Lögreglubílar í nýjum lit
FYRSTI lögreglubíllinn í nýjum lit er nú kominn á göturnar i
Reykjavík, en ætlunin er að allir verði þeir komnir með þann
sama lit fyrir sumarið. Bilarnir verða þá hvítir með blárri rönd,
en voru áður svartir og hvítir. Þá er í undirbúningi að skipta
um blikkljós á þaki bilanna og hafa þau blá í stað rauðu ljó-
sanna, sem nú eru. Gert er ráð fyrir að þeirri breytingu verði
lokið fyrir haustið.
Sýning á handavinnu eldri
bæjarbúa á Seltjarnarnesi
LJÓSVAKAMIÐLARNIR kepp-
£yst nú hver af öðrum við að
dndirbúa kosninganætur sínar
sem samanstanda bæði af gamni
og alvöru. Sljórnmálafræðingar
munu verða fréttamönnum til
halds og traust við að spá í spil
stjórnmálanna þegar tölur fara
að berast úr kjördæmum lands-
ins auk þess sem boðið verður
upp á hin ýmsu skemmtiatriði.
Rætt verður við unga sem aidna
stjórnmálamenn og litið verður
inn á kosningavökur víðsvegar.
Ríkissjónvarpið verður með bein-
fer útsendingar frá Akureyri,
Sauðárkróki, Borgarnesi, Selfossi,
Hafnarfirði og Reykjavík með hjálp
örbylgjuhlekkja á kosninganótt.
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri,
gerði ráð fyrir að byija útsendingar
kl. 16.00 á kosningadag, en kosn-
ingasjónvarpið sjálft hefst kl. 22.00.
Tölvubúnaðurinn kemur frá Hew-
lett Packard og Verk- og kerfis-
fræðistofan hefur hannað forritin.
Hermann Gunnarsson verður um-
sjónarmaður skemmtidagskrár og
verða Hljómar og Lónli blú bojs
meðal þeirra skemmtikrafta, sem
verða í beinni útsendingu ríkissjón-
varpsins.
í kvöld og næstu kvöld verður
útvsrpsstöðin Alfa með kynningu
á viðhorfum talsmanna stjórn-
málaflokkanna til kristilegra
! -málefna.
Útvarpsstöðin Alfa vekur athygli á
því að í stjómmálaumræðum að
undanförnu hafí lítið sem ekkert
verið fjallað um kristna trú eða
kristilegt siðgæði á íslandi. Úr því
hyggst Alfa nú bæta og hefur feng-
ið stjómmálamenn til umræðna um
trúarlíf sitt og reynslu, auk annarra
málefna.
Framboðsfundum í ríkissjón-
varpinu verður fram haldið í kvöld
og síðustu tveimur framboðsfund-
unum verður sjónvarpað beint frá
Akureyri annað kvöld, sumardaginn
fyrsta. Þar koma fram frambjóð-
endur Norðurlands vestra og eystra.
A föstudag, daginn fyrir kosningar,
verður „Formannahringborðið" á
dagskrá þar sem formenn þeirra
sjö flokka sem bjóða fram í öllum
kjördæmum mæta til leiks.
Stöð 2 heldur opinn framboðs-
fund í Háskólabíói í kvöld, miðviku-
dag, og verður fundinum sjónvarp-
að beint frá kl. 20.30. Formenn
flokkanna mæta og mun Páll Magn-
ússon, fréttastjóri Stöðvar 2,
stjórna fundinum. Kosningasjón-
varp Stöðvar 2 mun standa í níu
til tíu tíma og sagði Páll áð það
byrjaði hálftíma til klukkutíma áður
en ríkissjónvarpið byrjaði sínar út-
sendingar hvenær svo sem það yrði.
IBM leggur til allan tæknibúnað
fyrir útreikninga og forritið er unn-
ið af Tölvumyndum hf.
Stuðmenn verða í beinni útsend-
ingu Stöðvar 2 á kosninganótt
ásamt íslenska grínlandsliðinu,
þeim Sigurði Sigurjónssyni, Þór-
halli Sigurðssyni, Karíi Ágústi
Úlfssyni, Erni Árnasyni og Rand-
í kvöld verður rætt við Kvennalis-
takonur, formann Alþýðuflokksins
og formann Flokks mannsins. Ann-
að kvöld verður kynning á viðhorf-
um Borgaraflokksins, Bandalags
jafnaðarmanna og Alþýðubanda-
lagsins og á föstudagskvöld
Framsóknarflokksins, Sjálfstæðis-
flokksins og Þjóðarflokksins.
Kynningamar hefiast kl. 21.00.
Stjómandi þáttanna er Gunnar Þor-
steinsson, forstöðumaður Krossins,
kristilegs trúfélags í Kópavogi. Alfa
sendir út á FM 102,9.
veri Þorlákssyni. Stöð 2 hefur
nýlega keypt 20 viðbótarþætti af
„Spitting Image“ og verða bútar
úr því fluttir í kosningasjónvarpinu.
Þá má búast við nýjum og gömlum
stjómmálaleiðtogum í heimsókn
auk annarra gesta. Fréttamenn
munu verða á ferðinni á höfuð-
borgarsvæðinu og heimsækja
kosningahátíðir sunnanlands.
Ríkisútvarpið heldur sinn átt-
unda og síðasta kosningafund á
morgun, sumardaginn fyrsta, í nýja
útvarpshúsinu þar sem fram koma
frambjóðendur í Reykjavík. Kosnin-
gaútvarp RUV hefst kl. 22.00 á
laugardagskvöld og stendur í að
minnsta kosti fjórtán tíma sleitu-
laust, að sögn Kára Jónassonar,
fréttastjóra. Á laugardagsmorgun-
inn verður þó byrjað að flytja fréttir
af kjörsókn, veðri og færð.
Á Rás 1 verður lögð' áhersla á
tölur, viðtöl og tónlist. Á Rás 2
verður áherslan sett á tölur á
hálftíma fresti og tónlist þess á
milli. Á sunnudagsmórgun verður
rætt við eldri stjórnmálamenn og
nýja frambjóðendur. Eftir hádegis-
fréttir á sunnudag verður eins og
hálfs tíma þáttur um úttekt á kosn-
ingunum, viðtöl við stjórnmálaleið-
toga og tölfræðinga um úrslit
kosninganna. Kl. 19.30 til 20.00
sama dag verður síðan kosninga-
spjall um úrslitin. Kári sagði að
allir fréttamenn, fréttaritarar og
tæknimenn RUV yrðu við störf
þessa nótt að ógleymdum fréttarit-
ara Ríkisútvarpsins í ‘Suður-Lan-
deyjum, Jóni Bergssyni.
Kosningaútvarp Bylgjunnar
hefst kl. 22.00. Beint samband
verður við talningastaði í öllum
kjördæmum. Fréttamenn Bylgjunn-
ar verða á ferðinni um höfuðborgar-
svæðið alla nóttina og líta inn á
kosningavökur og fara jafnvel heim
til hins almenna borgara. Hallgrím-
ur Thorsteinsson, fréttastjóri
Bylgjunnar, sagði að það yrði renn-
andi gestagangur fram á sunnu-
dagsmorgun á Bylgjunni. Spjallað
yrði um tölur og spáð yrði í spilin
í betri stofunni um leið og tölur
bærust.
SUMARDAGINN fyrsta, þann
23. apríl, kl. 14.00 verður sýning
á handavinnu eldri bæjarbúa á
Seltjarnarnesi og verður eitt-
hvað af mununum til sölu. Einnig
verður Kvenfélagið Seltjörn með
kaffisölu á sama tíma. Sýningin
verður í félagsheimilinu.
Félagsstarf aldraðra á Seltjamar-
nesi er fjölbreytt, s.s. föndur,
félagsvist og bókband. Einnig hafa
verið farnar skemmti- og fræðslu-
ferðir. Hárgreiðslu- og fótsnyrti-
þjónusta er veitt einu sinni í viku.
Félagsstarfíð fer fram á Melabraut
5-7 og er fyrir alla Seltirninga 67
ára og eldri.
Hér er verið að undirbúa sýninguna sem verður á sumardaginn fyrsta.
Útvarpsstöðin Alfa;
Viðhorf frambjóðenda
til kristilegra málefna
Alusuisse stef nir að hallalausum rekstri dótturfyrirtækja á þessu ári:
ÍSAL fær 3,9 milljarða
í viðbótarrekstrarfé
Gjörbreytir forsendum okkar, segir Ragnar Halldórsson forstjóri ISAL
ÁLVERIÐ í Straumsvik hefur
fengið 150 milljónir svissneska
franka eða 3,9 milljarða
islenskra króna i rekstrarfé frá
Alusuisse frá árslokum síðasta
árs til loka þessa mánaðar. Fé
þessu verður aðaHega varið til
að minnka fjármagnskostnað
með því að afskrifa skuldir svo
afskriftir og vextir verði með
eðlilegri hætti en verið hefur en
þessi kostnaður hefur verið stór
þáttur í tapi ÍSAL undanfarin
ár. Vonast er til að rekstur fyrir-
tækisins verði hallalaus á þessu
ári og benda rekstrartölur fyrsta
ársfjórðungs þessa árs til-að það
takist.
Tap af rekstri íslenska Álfélags-
ins á síðasta ári var 714 milljónir
króna en veltan var 4,3. milljarðar
þannig_ að tapið var um 16% af
veltu. I samtali við Morgunblaðið
__ sagði Ragnar Halldórsson forstjóri
TSAL að viðbótarrekstrarfé það sem
ISAL hefur nú fengið sé liður í
þeirri ákvörðun nýrra stjómenda
Alusuisse að gera upp gamlar
skuldir og byrja reksturinn á nýjum
grunni. Alusuisse hefur selt eða
lagt niður álversksmiðjur í Banda-
ríkjunum og Evrópu og1 ákvað að
minnka skuldahala ÍSAL og annara
fyrirtækja sinna með því að lækka
hlutafé sitt um helming og afskrifa
skuldimar á móti. Einnig var ákveð-
ið að ganga í varasjóði og leggja
fyrírtækjum til rekstrarfé. Þannig
er vonast til að reksturinn geti
víðast hvar orðið hallalítill á þessu
ári. Stjórn Alusuisse .hefur sam-
þykkt þessar ráðstafanir en sú
samþykkt verður lögð fyrir aðal-
fund fyrirtækisins sém verður
haldinn í Zurich á fimmtudaginn.
Ragnar sagði að á þessum fyrsta
ársfjórðungi í ár væri rekstur ISAL
að heita mætti hallalaus fyrir
skatta. ÍSAL fékk T00 milljónir
franka til ráðstöfunar 31. desember
síðastliðinn og 50 milljónir franka
koma til viðbótar 30 apríl. Þessar
150 milljónir verða aðallega notaðar
til að minnka afskriftarstofninn í
rekstrarreikningi og hafa það í för
með sér að afskriftir lækka næstu
átta árin um 16,5 milljónir franka
á ári. Ragnar sagði að vaxtakostn-
aður ÍSAL núna væri nálægt 5% á
ári þannig að um' 7,5 milljónir
franka spöruðust í vöxtum og því
muni afkoman batna um 24 milljón-
ir franka á ársgrundvelli.
„Tapið í fyrra og árið 1985 var
að vísu hærra en þetta,“ sagði
Ragnar, „en í fyrra voru afskrifaðar
súrálsbirgðir vegna þess að súráls-
verðið hafði lækkað. Miðað við
núvérandi álverð út árið má gera
ráð fyrir að reksturinn verði halla-
laus og ef álverð hækkar verður
hagnaður sem yrði þá eftir hjá ÍSAL
en tap ef það lækkar. Og þetta gjör-
breytir auðvitað okkar forsendum.“
Ragnar sagði að þegar stóraukið
rekstrarfjármagn væri frátalið
myndu þrír meginþættir setja svip
sinn á endurbætur reksturs og
framleiðslu ÍSAL á þessu ári. I
fyrsta lagi það að full framleiðsla
væri nú á ný í fyrsta skipti frá
1984. Alusuisse hefur tekið upp þá
stefnu að einbeita sér að fullvinnslu
sérvarnings úr áli og öðrum efnum
og ennfremur gerast kaupandi á
hrááli í stað þess að selja það til
að geta notið þess að kaupa meira
á uppboðsmarkaði þegar verðið fer
niður og spara þegar verðið fer
upp. Ragnar sagði að Alusuisse
ætlaði sér nú eingöngu að framleiða
um 60% þess hrááls sem það vinnur
síðan úr og þá mætti búast við að
ÍSAL geti framleitt með fullum af-
köstum fyrst Alusuiésse þarf að
kaupa viðbótarál.
Ragnar nefndi í öðru lagi aukna
hagræðingu í rekstri ogframleiðslu.
„Við stefnum að því að draga enn
frekar úr mannahaldi, minnka yfir-
vinnu og nýta starfsmennina betur
og taka upp tækni á ýmsum sviðum
sem sparar mannahald. Þetta er sú
þróun sem orðið hefur hvarvetna í
heiminum og þeirri þróun fylgjum
við einnig. í síðustu samningum
náðum við síðan fram samkomulagi
um aukna hagræðingu. Hún er vísu
hægfara því við segjum ekki upp
mönnum en ráðum ekki nýja í stað
þeirra sem hætta nema að takmörk-
uðu leyti. Einnig má flytja menn
til. Miðað er við síðustu áramót og
sparanaður vegna hagræðinga eftir
þann tíma verður metin til hags-
bóta bæði til starfsmanna og fyrir-
tækisins," sagði Ragnar.
Þriðja atriðið er aukin fjölbreytni
í framleiðsluvörunum og stefnt er
að því að um 70% framleiðsluvara
ÍSAL fari til endanlegra nota en
fram að þessu hefur hlutfallið verið
um 50%. Hafin hefur verið fram-
leiðsla á nýjum vörum eins og
álstöngum, valsbörrum og steypu-
melmi. Ragnar sagði að þetta væri
í samræmi við það aðalmarkmið
Alusuisse nú að framleiða verðmæt-
ari vöru en áður, en það væri rauði
þráðurinn í þeirri framtíðarmynd
sem Alusuisse hefur gert sér.
Ragnar sagði aðspurður að það
væri þó ekki líklegt að ÍSAL fari
að framleiða fullunnar verksmiðju-
álvörur. Offramboð væri á úr-
vinnsluvörum úr áli og vonlaust að
keppa við verksmiðjur sem þegar
væru fullafskrifaðar enda yrði að
leggja mikla fjárfestingo í búnað.
Að auki yrði þessi framleiðsla að
miðast nær eingöngu við útflutning
og flutningskostnaðurinn yrði
margfaldur á við núverandi flutn-
ingskostnað á vörum verksmiðjunn-
ar. „Ég er þó ekki að segja að þetta
geti ekki orðið þegar framí sækir.
Það fer eftir því hvernig þróunin
verður hjá þeim sem séð hafa sér
hag í að framleiða úr áli þrátt fyrir
lágt markaðsverð,“ sagði Ragnar.
Ragnar var að lokum spurður
hvað liði hugmyndum um stækkun
álversins í Straumsvík og hvort sá
kostur væri enn áhugaverður miðað
við að ekki er fyrirsjánleg veruleg
aukning á álnotkun eða verðhækk-
un. Ragnar sagði að nokkrir aðilar
í Evrópu hefðu sýnt því áhuga að
taka þátt í stækkuninni. Verksmiðj-
ur í Mið-Evrópu væru fyrirsjánlega
dauðadæmdar því þar væri orkan
dýr og ekki hægt að framleiða þar
ál í samkeppni við ódýra vatns- og
gasorku í öðrum heimshlutum.
Framleiðslan hefði flust til landa
með ódýra vatnsorku eins og Bras-
ilíu, Venezuela, Afríkulanda og
Suð-austur Asíu, einnig Miðaustur-
landa með ónýtta gasorku.
Ragnar sagði að þar sem áætlað
væri að kílóvattstund af raforku frá
Blönduvirkjum kosti í kringum 15
mill ætti að vera hagkvæmt að setja
upp álverksmiðju hér. Því sagðist
hann búast við að af stækkuninni
yrði þótt það færi sjálfsagt að ein-
hverju leyti eftir því hvernigtil tekst
með rekstur ÍSÁL nú þegar þetta
viðbótarfjármagn hefur verið veitt.