Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
Svik voru engin höfð í frammi
eftir Guðbjörn
Jónsson
Ég hef oft velt því fyrir mér
hvers vegna öll umfjöllun um hið
svokallaða Albertsmál er svo ein-
hliða honum í óhag. Ég hef að vísu
aldrei hitt Albert sjálfan, en mér
finnst það ekki hljóma trúlega, að
maður sem búinn er að vera þetta
mikið og víða í opinberu lífi í mörg
ár fari að yfirlögðu ráði að gerast
brotlegur við þann málaflokk sem
hann er í forsvari fyrir. Ég held,
að EF Albert hugsaði þannig hefði
það komið í ljós fyrir löngu. Hann
hefur verið það áberandi og um-
deildur í opinberum umræðum í það
mörg ár að ég er viss um að það
hefði einhvers staðar lekið út ef
grunur hefði verið um misferli.
Þá er kannski komið að þeim
spumingum sem vonandi margir
spyija um þessar mundir. Hvers
vegna er Albert orðinn svona tví-
mælalaust óheiðarlegur nú? Á það
sér kannski rætur í kynslóðaskipt-
ingu í forystusveit flokksins sem
hann starfaði fyrir? Eða er skýring-
arinnar kannski að leita í heiðar-
leika og drenglyndi í málflutningi?
Til er saga um mann sem hand-
tekinn var grunaður um glæp. Við
yfírheyrslu var svo oft stagast á
því að hann hefði framið glæpinn,
að hann var nærri farinn að trúa
því sjálfur. Þetta er eiginlega það
sama og fjölmiðlar hér eru að gera
nú gagnvart Albert. Þeir hamra í
sífellu á fullyrðingunni ALBERT
GERÐI. En hvað gerði Albert? Jú,
Albert framseldi og lagði í banka
tékka sem honum var sendur, tékka
sem átti að fara til fyrirtækis hans.
Nú eru örugglega einhverjir sem
segja fullir vandlætingar: Hann átti
ekki að gera þetta. Hvað átti hann
þá að gera? Átti hann að endur-
senda tékkann og fara fram á að
hann yrði sendur til baka stflaður
á fyrirtæki hans? Hvað myndir þú
gera?
Nú eru vafalaust margir sem
ekki átta sig á því hvemig einka-
reikningur eiganda einkafyrirtækis
virkar. Það má líkja þeim reikningi
við tékkareikning hjóna þar sem
bæði hafa heimild til úttektar en
aðeins annað ber ábyrgð á tekjuöfl-
uninni. Ef við gefum okkur að
karlmaðurinn afli tekna á reikning
hjónanna, þá er fyrirtækið samn-
efnari þar á móti. Ef við gefum
okkur þá að konan sé með úttektar-
heimild væri samnefnari þar á móti
einkareikningur eiganda. Skoðið nú
þetta í rólegheitum og hugsið um
hvað þið mynduð gera ef greiðsla
(ávísun) bærist til ykkar stfluð á
konuna, en væri raunverulega
greiðsla til mannsins. (Þessu má
eins snúa við allt eftir því hvor
aðili er hafður í tekjuöflun í dæm-
inu.) Mynduð þið senda ávísunina
til baka og biðja um að önnur yrði
send á nafn mannsins. Eða mynduð
þið leggja ávísunina inn á sameigin-
legan reikning ykkar?
Annað atriði sem mikilli upphróp-
un veldur í þessu sambandi er sú
staðreynd að þessi greiðsla var ekki
sett á skattskýrslu fyrirtækis Al-
berts. I fyrri umfjöllun er notuð
fullyrðingin Albert sveik undan
skatti. Ég er það kunnugur því
hvemig skattaskil verða til að ég
læt mér ekki detta í hug að Albert
hafi haft hugmynd um hvort þessi
eða hin greiðslan sem fyrirtækið
fékk væri inni í skattframtali hans
eða ekki. Til þess að sinna þeim
málum hafði fyrirtækið bókhaldara
og endurskoðanda. Þeir sáu um
uppgjör og framtal sem Albert síðan
skrifaði undir. Það er kannski ekki
„Ég er það kunnugur
því hvernig skattaskii
verða til að ég læt mér
ekki detta í hug að Al-
bert hafi haft hugmynd
um hvort þessi eða hin
greiðslan sem fyrirtæk-
ið fékk væri inni í
skattframtali hans eða
ekki.“
stórmál þó ég sé nokkuð viss um
hvemig þessu var háttað. Hitt er
kannski stærra mál að ég er full-
viss um að ÖLLUM þeim ráðamönn-
um Sjálfstæðisflokksins, sem mest
hamast á þeirri fullyrðingu að Al-
bert hafi framið skattsvik, ÞEIM
er fyllilega ljós eigin rangtúlkun á
máli þessu. Nú spyr sjálfsagt ein-
hver hvers vegna ég sé svona viss
um þessi atriði. Ég byggi það fyrst
og fremst á menntun forystumanna
Sjálfstæðisflokksins. Fjöldi þeirra
hefur einnig reynslu í rekstri, þann-
ig að það verður að teljast stórlega
ámælisvert fyrir þessa menn að láta
þennan málflutning óátalinn. Það
sem er talinn mesti glæpurinn í
þessu sambandi hjá Albert er að
hann skyldi skrifa undir skatt-
skýrsluna án þess að vera viss um
að allt væri í lagi. Hvemig er það
með þig, lesandi góður. Hefur þú
aldrei látið gera skýrslu fyrir þig?
Hefur þú spurt út í öll atriði skýrsl-
unnar áður en þú skrifar undir?
Hefur þú ekki talið þér óhætt að
treysta því sem sett var á skýrsluna
fyrir þig?
Ein af stærstu upphrópunum
þeirra sem áfellast Albert er sú að
hann skyldi vera fjármálaráðherar
þegar þetta varð. Víst er það rétt,
að SVIK voru engin höfð í frammi.
Þetta atvik höfðaði til vanræksluá-
kvæða skattalaga en ekki dóms og
refsingar fyrir skattsvik. Þett er
öllum forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins fullkomlega ljóst og því
verður allur málflutningur þeirra
að teljast vítaverður. Lesandi góð-
ur. EF þessi mistök starfsmanna
Alberts eru svona afgerandi fyrir
ofan siðferðismörk Sjálfstæðis-
flokksins, hvemig væri þá að
spyija: Hver er ábyrgð Matthíasar
Á. Mathiesen fyrrverandi viðskipta-
ráðherra og Matthíasar Bjamason-
ar núverandi viðskiptaráðherra á
tapi Útvegsbanka íslands?
Að lokum þetta. Ef Albert Guð-
mundsson væri sá refur sem allt
kapp er lagt á að gera hann að um
þessar mundir hefði hann ekki rek-
ið fyrirtæki sitt sem einkafyrirtæki
í öll þessi ár. Hann hefði strax og
refshugsjónin fæddist gert fyrir-
tæki sitt að hlutafélagi. Nú spyr
almenningur hvers vegna? En svona
þurfa sjálfstæðismenn ekki að
spyija, þeir vita svarið. Þeir vita
að EF Álbert hefði gert fyrirtæki
sitt að hlutafélagi hefði hann greitt
miklu minni gjöld til ríkisins en
hann hefur þurft að greiða fyrir
einkafyrirtækið.
Höfundur er fulltrúi ogá heima
íBauganesi 7.
Engin miskunn
í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Engin miskunn
með Richard Gere og Kim Basin-
ger í aðalhlutverkum. Leikstjóri
myndarinnar er Richard Pearce.
Myndin fjallar um Eddie Jillette
(Richard Gere) sem er lögreglumað-
ur í Chicago. Félagi Eddie í
Chicago-lögreglunni er myrtur af
glæpaforingjanum Losado frá New
Orleans. Eina vitnið að morðinu er
ástkona Losados, Michel Duval
(Kim Basinger). Eddie er staðráðinn
í að hefna félaga síns og bíður eft-
ir tækifæri
Richard Gere og Kim Basinger í hlutverkum sínum i myndinni Eng-
in miskunn.
Gullin bráð í moigunsárið...
... smiör á dóðuðu
^ % C/ y* • i
bmuði!