Morgunblaðið - 22.04.1987, Blaðsíða 69
-MORGUNBLAÐIÐ, 'MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
69
Þegar húsmæður eru kallaðar
beint af Guði frá heimilum sínum
verður mikill sjónarsviptir. Heimilið
verður meira en einum einstaklingi
fátækara. Söknuður heimilismanna
og annarra vina fyllir húsið. Jafn-
framt getur nokkur þakkargleði
fylgt sorginni, þá langvarandi veik-
indi og þrautir hafa verið daggestir
hins dána vinar og móður.
Þess eru mörg dæmi, en í þessu
tilfelli er minnst Sigríðar Ingimund-
ardóttur, fyrrum húsmóður í
Asbúðartröð í Hafnarfirði, en nú
Austurtúni 12, Álftanesi.
Foreldrar hennar voru Marta
Eiríksdóttir frá Bíldudal, vestfirskr-
ar ættar, mikil félagskona, og
Ingimundur Hjörleifsson frá Sanda-
seli við Kúðafljót, sannur Skaft-
fellingur.
Foreldrar hennar voru henni og
öllum börnum fyrirmynd, t.d. að
iðjusemi, félagsmálum, og kunn að
reglusemi.
Eiginmaður hennar var Finnur
H. Guðmundsson húsasmíðameist-
ari frá Ástúni, Ingjaldssandi í
Önundarfirði.
Sísí, eins og hún var af flestum
kölluð, ólst upp hjá foreldrum sínum
í mikilli umhyggju og vemd,
lífsglatt barn og greint. Hún var
dugleg við nám í bamaskóla og
lauk gagnfræðaprófi í framhalds-
skóla, er þá var kallað.
Á stríðsárunum síðari var hún í
hópi barna og unglinga að sumar-
lagi í Núpsskóla í Dýrafirði er
Fafnarfjarðarbær fékk til afnota.
Mun bæjarbúum hafa þótt þröngur
leikvöllur barnanna á götunni, þá
hermenn geystust um bæinn með
hertæki sín.
Við dvölina í sveitinni kynntist
hún mörgum Vestfirðingum, þar á
meðal verðandi eiginmanni sínum.
Allir sem þekktu til hennar, og þeir
voru fjölmargir, minnast smitandi
gleði hennar og gáska, bæði á
heimaslóðum og í samfagnaði á
mannafundum.
„Já, hún Sísí, nú tókst henni vel
upp að segja frá og skemmta,“
sögðu margir. Kringum hana var
alltaf glaðværð og fyndni.
Nú er glaðværðin horfin, en ein-
hvern veginn finnst mér hugsun
mín leiða fram í hugann bros og
gleði, þá leitað er leiða til baka um
fjörutíu ára æviskeið. Bros kemur,
og frásögn mun hafa mótast svo
fast í huga þeirra, er henni kynnt-
ustj að engum gleymist.
Á hinum langa biðtíma á Landa-
kotsspítalanum, í höndum ágætra
lækna og hjúkrunarfólks, var oft á
milli þrautastunda hennar hægt að
líta hina „gömlu Sísí“, glaða og
velviljaða.
Margs er að minnast, og hugur
minn leitar til aldraðs föður nær
níræðu og litlu ömmubarnanna
hennar, sem henni þótti svo undur
vænt um. Börn og tengdaböm
sakna móðurylsins, en þau eiga
styrkan föður, sem misst hefur
einna mest, og þá verða öll þessi
börn gleði hans og markmið.
Minnist ég nú Hafdísar, góðrar
tengdadóttur þeirra, sem gift er
Eiríki matreiðslumanni. „Hún er
svo yndirsleg," sagði Sísí. Þau hafa
búið hjá foreldrunum í lengri tíma
og verið þeim stoð og stytta í veik-
indum hennar.
Hin börn þeirra hjóna eru: Hild-
ur, blaðamaður, gift Gunnari
Gunnarssyni rithöfundi, og Gunnar,
/
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
2 fl&tfgittiMfKfrife
Ingunn Gríms-
dóttir — Minning
Fædd 17. júlí 1894
Dáin 7. apríl 1987
rafvirki, búsettur í Súðavík við
Djúp, kvongaður Sigríði Halldórs-
dóttur frá Hnífsdal, verkstjóra í
frystihúsinu þar.
Finnur, faðir þeirra, er nú vakt-
maður hjá Landsíma Islands.
Ég veit að allt þetta fólk hefur
í huga að búa vel að öldungi heimil-
isins, Ingimundi, láta honum líða
sem allra best, þá einkadóttir er
dáin. Fyrir mína hönd og allra góðu
vina hennar, vil ég færa kærar
kveðjur og þakklæti fyrir gjafir
hennar, gleði og bros, er allir nutu.
Ég veit hún ber fram þakkir og
góðar óskir, fyrir handan tjaldið,
kærum eiginmanni, fyrir góðu sam-
eiginlegu störfin, ásamt ferðum
hans á sjúkráhúsið til hennar, sem
hún vissi eigi alltaf af vegna veik-
inda sinna.
Blessun Guðs og friður fylgi
henni og fjölskyldu hennar.
Tengdafaðir, G.B. frá Ástúni.
í gær var til moldar borin föður-
amma mín, Ingunn Grímsdóttir.
Hún fæddist í Skálholtsstað í Bisk-
upstungum 17. júlí 1894 og var því
tæplega 93 ára er hún lést. Ung
að árum fór hún ásamt Eiríki bróð-
ur sínum til Kanada. Þar kynntist
hún manni sínum, Ágúst J. Trom-
berg, sem nú er látinn. Þeim varð
fjögurra barna auðið, eitt dó í æsku
en hin komust til fullorðinsára, en
eru nú látin. Ég vil geta þess hér
að amma var mikil sóma- og at-
hafnakona og öllum mjög góð. Ég
veit að þar tala ég fyrir munn allra,
sem nú syrgja.
Við erum tvö frændsystkini sem
erum heilsuveil, Ingunn frænka og
ég. Á hvetjum laugardegi heimsótti
hún ömmu og fann þar öryggi því
hún er búin að verða fyrir þeirri
lífsreynslu að missa foreidra sína,
og fann hún að hjá ömmu var gott
að vera. Ég veit að þetta er mikill
missir fyrir Ingunni frænku og okk-
ur öll hin, en Guð er sá er ber
smyrsl á sárin, líknar og gefur okk-
ur sem syrgjum það sem við þráum
og þörfnumst í lífinu.
Blessuð veri minning um góða
konu.
Steingrímur Kristjónsson
t
Systir mín,
GUÐRUN ODDSDÓTTIR,
lést á Reykjalundi 1 5. apríl.
Sigríður Benediktsson og aðstandendur.
t
Móðir okkar,
JENNÝ STEFÁIMSDÓTTIR,
Austurbrún 4,
lést í Landspítalanum þann 20. apríl sl.
Guðrún Alfonsdóttir,
Jón Alfonsson.
t
Eiginkona mín,
VALGERÐUR HALLGRlMSDÓTTIR KRÖYER,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
lést aðfaranótt 21. apríl í Landspítalanum.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir mína hönd og aettingja,
Ingi H. Kröyer.
t
Systir okkar og móðursystir,
SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR
frá Stærri-Bæ,
andaöist á Elliheimilinu Grund 15. þ.m. Veröur jarðsungin frá
Fossvogskapellu í dag, miövikudaginn 22. apríl kl. 10.30.
Bjarnfríður Pálsdóttir,
Bergþóra Pálsdóttir,
Guörún Júliusdóttir,
Haraldur Eyjólfsson.
t
Móðir okkar,
KRISTÍN THEODORA V. NIELSEN
frá Seyðisfirði,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, 19. apríl. Útförin verður gerð frá Seyð-
isfjarðarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 11.00. Þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd annarra ættingja,
Hlín og Jónfna Axelsdætur Nielsen.
t
Frændi minn,
STEFÁN PJETURSSON,
fyrrum þjóðskjalavörður,
andaðist á Elliheimilinu Grund á páskadag.
Árni Krisjánsson.
t
Eiginmaður minn,
BÖÐVARLÁRUSHAUKSSON,
Kambaseli 14,
lést á páskadag.
Ása Guðmundsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
DÝRI BALDVINSSON,
rennismiður,
Brúnastekk 9, Reykjavík,
lést á heimili okkar að morgni 17. april.
Þóra Þórðardóttir.
t
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR A. FINNBOGASON
frá Hvoli,
Innri-Njarðvfk,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði að morgni páskadags.
Börnin.
Faðir okkar, t
JÓHANN FRIÐLEIFSSON
frá Siglufirði,
andaðist að morgni páskadags á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Börnin.
t
Faöir minn, tengdafaðir og afi,
VIGBERG ÁGÚST EINARSSON,
Melbæ 12,
lést að morgni hins 16. apríl. Útför hans fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 24. apríl kl. 15.00.
Ásta Vigbergsdóttir,
Axel Björnsson,
Björn Axelsson,
Egill Axelsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
LÁRENTSÍUS DAGÓBERTSSON
frá Hellissandi,
Baldursgötu 12,
lést í Borgarspitalanum að morgni 18. apríl.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Erna Lárentsfusdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Brynjólfur Lárentsiusson, Jóhanna Gunnþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞÓRARINN E. BJARNASON
frá Reyðarfirði,
Álfaskeiði 64d,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi 22. april kl. 1 3.30.
Bjarni Þórarinsson,
Þóranna Þórarinsdóttir,
Ásdís Þórarinsdóttir,
Óskar Þórarinsson,
ívar Þórarinsson,
Þórir Þórarinsson,
Valur Þórarinsson,
barnabörn
ívarsdóttir,
Svanhildur Jónsdóttir,
Ingólfur Árnason,
Bjarni Björgvinsson,
Gunna Kristjánsdóttir,
Maria Jónsdóttir,
Kristín Elisdóttir,
Ólafía Andrésdóttir,
I barnabarnabörn.