Morgunblaðið - 22.04.1987, Side 21

Morgunblaðið - 22.04.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 198.7 21 Átök Einn af okkar efnilegustu ungu málurum er sem stendur með verk sín til sýnis í Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg. Það er Jón Axel Björnsson, sem á í hlut, og þetta er ekki í fyrsta skipti, sem hann vekur eftirtekt og vonir með verk- um sínum. Það hefur nokkuð verið minnzt á manninn og umhverfí hans í sambandi við núverandi sýn- ingu Jóns Axels og rétt er það, maðurinn og umhverfí hans er megintema þessarar sýningar. I mínum huga er það hins vegar fyrst og fremst átak litanna, sem ber þessi verk uppi, gerir þau að því, sem þau eru, og vitnar einna bezt um hæfíleika þessa unga manns. Form, litur og lína hljóta ætíð að vera aðalatriði í öllu málverki og þar með innihald hvers lista- verks. Maðurinn, angist hans á tölvuöld og allt það, sem steðja kann að mannfólkinu á hveijum tíma, er auðvitað alls staðar nærri í túlkun listamanna, en þarf ekki endilega að koma fram í teikningu andlits eða líkama. Þætti þessa má einnig tjá í formspili og litameð- ferð. Þau átök, sem eiga sér stað í verkum Jóns Axels, skapast fyrst og fremst af mætti litanna og því, hvemig litsamaðurinn beitir því afli. Ekki svo að skilja, að ég hafí nokk- uð á móti þeim „fígúrum", sem á þessari sýningu er að fínna, ég vil einungis benda á þá gmndvallar- þætti, sem liggja að baki þeim áhrifum, sem listamaðurinn kallar fram. Þama má vissulega fínna undirtón frá nýja málverkinu, en þau áhrif em svo mýkt og samofín á myndfletinum, að Jón Axel hefur í meðferð sinni á þeim skapað miklu sterkara málverk, en til varð í öllum þeim látum, sem venjulega fylgdu nýja málverkinu. Ofsi og hama- gangur virðast hafa gengið sér til húðar, menn sigla í stilltara far- vatni um þessar mundir. Það em tuttugu olíumálverk á þessari sýningu Jóns Axels og öll bera þau vitni um mikla hæfileika, sem sjálfsagt eiga enn eftir að þroskast og skila meiri árangri. Hér er málari á ferð! ímyndaður vinur með geislabaug. ISUZU lír Vilt þú traustan og aflmikinn bíl? °°0 jL iSr Vilt þú komast leiðar þinnar vandræðalaust? ÍX Vilt þú rúmgóðan og öruggan bíl? 1 ^ ■ ☆ Vilt þú halda rekstrar- og eldsneytiskostnaði í lágmarki? | Efsvoer - ersvarið ☆ ISUZU TROOPER M. a. staolaöur búnaður 2,2 Itr. bensin- eða turbo dísilvól Framdrifslokur Tregðulæsing áafturdrifi Aflstýri Útvarp með kassettutæki MM Lúxusbúnaður Rafdrifnir rúðuupphalarar (í LS gerðum) BnnuH BíLVANGURsf I t I i HOFÐABAKKA 9 5IMI 687300 GRENSÁSVEGUR SÍÐUMÚLA 34 SÍMI 91-681600 Nú höfum við hafið vorsöluna á útsæðinu sem er frá völdum framleiðendum af Suðurlandi. Bjóðum einnig Ágætis stofnútsæði úr Eyjafirði. Valið og meðhöndlað af fagmönnum. Til þæginda fyrir kartöfluræktendur höfum við á boð- stólnum: - Kartöflugarðsáburð - arfaeitur - þaramjöl Horni Síðumúla og Fellsmúla, Fellsmúlamegin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.