Morgunblaðið - 22.04.1987, Page 35

Morgunblaðið - 22.04.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1987 35 er ungur maður en engu að síður með mikla og dýrmæta pólitíska reynslu. Sl. fjögur ár hefur hann verið aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms- sonar sjávarútvegsráðherra. Það hefur komið í hcins hlut að veita stcirfsfræðslunefnd fisk" vinnslunnar forstöðu og þar með að hrinda úr vör stærsta átaki í fullorðinsfræðslu sem ráðist hefur verið í hér á landi. Finnur var á sínum tíma formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands. Hann hefur einnig verið formaður stjómar Félagsstofnunar stúdenta og á þeim tíma beitti hann sér m.a. fyrir því að hafist var handa um byggingu 150 námsmannaíbúða. Fáir þekkja því betur kjör og hagsmunamál íslenskra námsmanna en Finnur Ingólfsson eins og best kom í ljós þegar hann öðrum fremur stóð í vegi fyrir siðlausri atlögu Sverris Hermanns- sonar menntamálaráðherra gegn lífskjörum námsmanna. Nú, þegar upplausnar- öfl frjálshyggjunnar eru í þann veginn að hefja enn eina leiftursóknina gegn lífs- kjömm okkar og menningu þá er þörfin fyrir málsvara á borð við Finn Ingólfsson aldrei brýnni. Kjósum Finn á þing! Æ ___. _ ___. FRAMSOKNARFLOKKURINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.