Morgunblaðið - 22.04.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1987
37
SKRIFBÆR
á sýningu Dramaten á „En liten ö i havet“
Þjóðleikhúsið:
Enn til miðar á söngleik-
inn „En liten ö i havet“
ENN munu vera til miðar á 2.
og 3. sýningu Dramaten á „En
liten ö i havet,“ að sögn Signýjar
Pálsdóttur hjá Þjóðleikhúsinu.
Eins og kunnugt er, er hér um
að ræða leikgerð Hans Alfredson
að Atómstöðinni eftir Halldór
Laxness. Fyrsta sýning sænsku
gestaleikaranna verður fimmtu-
dagskvöld og er hún sérstök
hátíðarsýning í tilefni af 85 ára
afmæli Laxness.
Með hlutverk Uglu fer Lena
Nyman, Sven Lindberg leikur Org-
anistann og Búa Arland, Harriet
Andersson leikur Kleópötru og frú
Árland. Jonas Bergström leikur
Feimnu lögguna, Bítar og Flagara.
Per Mattsson leikur guðinn Brillj-
antín og amerískan offísera. Rolf
Adolfsson leikur guðinn Benjamín
og amerískan diplómat, Sif Ruud
leikur Jónu, móður organistans og
móður Uglu. Helena Bergström
leikur Aldinblóð og Stúlkuna í
brauðbúðinni. Mans Ekman leikur
Arngrím Árland og kommúnistann
og John Zac harias leikur föður
Uglu og forsætisráðherrann.
ítarleg fíkniefnaleit í feijuflugvél:
„Mögulegt að
þessi f lutninga-
leið á f íkni-
efnum sé notuð“
- segir Kristinn Ólafsson tollgæslustjóri
MJÖG ítarleg leit var gerð í smáflugvél á Keflavíkurflugvelli að-
fararnótt annars í páskum af starfsmönnum Tollgæslunnar og
fíkniefnalögreglunnar. Vélin var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til
Austurríkis, en flugmálastjórn barst tilkynning um það frá kanadísku
flugniálastjórninni að vélin hefði ekki flogið eftir flugáætlun og þvi
var ákveðið að leita fíkniefna í henni. Þrátt fyrir ítarlega leit, urðu
leitarmenn einskis varir.
Kristinn Ólafsson tollgæslustjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
að það gerðist ekki oft að tollgæsl-
an réðist í eins nákvæma leit og
þarna var framkvæmd. „Okkur
þótti fullt tilefni til þess að kanna
þetta rækilega," sagði Kristinn,
„eftir að flugstjórninni hér höfðu
borist upplýsingar um það frá
kanadískri flugstjórn að þessi vél
sem var að koma frá Flórida fór
ekki eftir þeirri flugáætlun sem hún
hafði. Við höfum talið mögulegt að
þessi flutningaleið væri notuð til
þess að smygla fíkniefnum frá
Bandaríkjunum til Evrópu og þá
jafnvel einnig hingað.“
Kristinn sagði að leit sem þessi
hefði enn ekki borið árangur, en
full ástæða væri til þess að vera
vel á verði, þegar svona aðvaranir
bærust. Leitin sem var framkvæmd
var mjög ítarleg og flugvirkjar að-
stoðuðu tollgæslumenn við að
skrúfa ákveðna hluta í sundur. Þá
leituðu einnig lögreglumenn frá
fíkniefnalögreglunni og hasshundur
lögreglunnar.
Grétar Óskarsson hjá Loftferða-
eftirlitinu sagði að þegar skýrsla
hefði verið tekin af mönnunum
tveimur, sem eru Austurríkismenn,
hefði engin viðhlítandi skýring verið
gefin á því hversvegna ekki var
flogið samkvæmt flugáætluninni.
Hann sagði að Loftferðaeftirlitið
myndi senda austurrískum flug-
stjórnarmönnum skýrslu um
þennan atburð.
Grétar sagði að það gerðist mjög
sjaldan að flugmenn flygju ekki
samkvæmt flugáætlun. Því hefði
allt verið sett í gang, eftir að flug-
málastjórn í Kanada hefði farið að
undrast um vélina, þegar hún kom
ekki fram, þar sem hún átti að
millilenda. Hefði þá komið á daginn
að vélin var komin hálfa leið til
íslands og því hefði verið haft sam-
band við tollgæsluna og lögregluna.
Fjórhjól á ferð við Þorlákshöfn.
Mikið um kvartanir
vegna gróðurskemmda
Fjórhjólin hafa tætt upp gróðurinn,
segir Þóroddur Þóroddsson, jarð-
fræðingur hjá Náttúruverndarráði
TÖLUVERT var um gróður-
skemmdir sunnanlands af völd-
um fjórhjóla um páskahelgina.
Landgræðslu ríkisins og Nátt-
úruverndarráði hefur borist
fjöldi ábendinga og kvartana um
skemmdir af völdum fjórhjóla
og könnuðu fulltrúar frá Nátt-
úruverndarráði svæði sunnan-
lands úr lofti.
Þóroddur Þóroddsson, jarðfræð-
ingur hjá Náttúruverndarráði, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
ástandið væri vægast sagt slæmt.
Við flugum á sunnudaginn yfir
svæðin hjá Þorlákshöfn, Eyrar-
bakka, Stokkseyri og austur í
Þykkvabæ. „Það er mjög ljótt að
sjá hvernig menn fara með þau
svæði sem verið er að reyna að
græða upp. Fjórhjólin hafa tætt upp
þessi svæði. Verið er að reyna að
hefta sandauðn með melgresi
þarna, en það hefur verið keyrt
yfir sandhólana þar sem melgresið
safnast saman."
Þóroddur sagðist hafa flogið yfir
Reykjanesfólkvanginn, þar sem lítið
hefði verið um umferð. „Hinsvegar
sáum við slóðir við Trölladyngju og
brá okkur mest er við sáum þá
aðför. Okkur sýndust slóðirnar við
fyrstu sýn vera eftir jeppabifreið,
en þær voru af völdum fjórhjóls við
nánari athugun. Slóðirnar lágu um
allar brekkur, í gili á mjög sérstöku
hverasvæði, sem er ein af perlum
Reykjanesfólkvangsins. Þetta er
friðað svæði, ætlað til útivistar.
Við getum ekki verið í lögreglu-
hlutverki. Nýbúið er að lögleiða
þessi hjól. Hjólin eru skilgi-eind sem
torfæruaksturstæki, sem aðallega
eru ætluð til aksturs utan vegar.
Það stríðir algjörlega gegn náttúru-
verndarlögunum þar sem segir
raunar að allur óþarfa akstur utan
vegar sem geti valdið spjöllum á
gróðri eða lýti á landinu er bannað-
ur. Það þýðir því ekkert að lögleiða
einhver tæki, sem ekki má aka á
vegum nema í undantekningartil-
fellum heldur til þess ætluð að aka
utan vega,“ sagði Þóroddur.
DaupHIN
ÞÝSK GÆÐI
MARGAR GERÐIR
HAGSTÆTT VERÐ
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
-----------L--------------------