Morgunblaðið - 22.04.1987, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1987
43
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 50 kr. eintakiö.
Góðæri
fflatast í glundroða
Ikosningunum núna bjóða
fleiri flokkar fram en áður.
Sé það vilji kjósenda geta þeir
skipt um menn á Alþingi með
því að hverfa frá stuðningi við
hina hefðbundnu flokka, þar
sem reynsla og þekking eru
fyrir hendi á stjórn landsmála.
Þeir geta einnig lagt drög að
því, að fjórir flokkar eða fleiri
eigi menn í næstu ríkisstjóm.
Jafnframt er sá kostur fyrir
hendi að velja þá flokka, sem
hafa helst burði til að standa
gegn glundroða og því, sem
honum óhjákvæmilega fylgir.
Öruggasta leiðin til að stuðla
að þeirri festu, sem felst í
síðasta kostinum, er að greiða
Sjálfstæðisflokknum atkvæði.
Kosningabaráttan hefur ver-
ið næsta óvenjuleg, meðal
annars vegna hinna mörgu
stjómmálaflokka. Þar kennir
margra grasa og sumir flokk-
anna forðast beinlínis að láta
í Ijós skoðanir á þeim viðfangs-
efnum, sem em efst á dagskrá
hjá stjómmálamönnum, að
minnsta kosti á milli kosninga.
Engum blandast hugur um,
að í tíð þeirrar ríkisstjómar,
sem enn situr, hafa orðið þátta-
skil í þróun landsmála. A
undanfömum fjórum ámm höf-
um við komist út úr vítahring
verðbólgunnar. A þessum tíma
hefur okkur einnig orðið betur
ljóst en áður, hvílíkur bölvaldur
hún var fyrir afkomu fólks. Er
raunar ótrúlegt á hve skömm-
um tíma hefur tekist að rétta
þá slagsíðu, sem verðbólgan
olli. Á síðari hluta kjörtímabils-
ins höfum við í senn orðið
þeirrar blessunar aðnjótandi,
að ytri aðstæður hafa breyst
okkur í hag, og sæmilegur frið-
ur hefur ríkt um ákvarðanir,
er ráða mestu um tekjuskipt-
inguna.
Við kynntumst því á verð-
bólguárunum, að ytri aðstæður
geta verið hagstæðar, án þess
að dragi úr verðbólgu. Ástæð-
umar fyrir því að verðbólgu-
ástand skapast em að vemlegu
leyti pólitískar. Um þá stað-
reynd þurfum við ekki að deila.
Hún blasir við, þegar við lítum
yfir stjómmála- og efnahags-
þróunina í landi okkar und-
anfarin 16 ár. Nú tala menn
ekki aðeins um góðæri, af því
að ytri aðstæður em hagstæð-
ar, heldur einnig vegna þess
að alls staðar má sjá merki um
að fólkið njóti afrakstursins.
í stjómmálum em menn
fljótir að gleyma. Við tökum
því, sem vel er gert, sem sjálf-
sögðum hlut, en kvörtum
miskunnarlaust undan hinu,
sem aflaga fer. Þau sannindi
em einnig gamalkunn, að læri
menn ekki af reynslunni verða
þeir aftur að reka sig á þau
óþægindi, sem sagan geymir.
Framsóknarflokkurinn var
pólitískur samnefnari verð-
bólguáratugarins, þar til hann
hóf samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn fyrir fjómm ámm á
gmndvelli þeirrar stefnu, sem
sjálfstæðismenn mótuðu og
dugði til að koma böndum á
verðbólguna.
Öll þekkjum við til fólks, sem
varð illa úti fjárhagslega vegna
óðaverðbólgunnar. Það er
óhugnanlegur vemleiki að
standa frammi fyrir því, að
þrátt fyrir skilvísar afborganir
hækki sú fjárhæð jafnt og þétt,
sem eftir stendur á innheimtu-
seðlinum. Við getum hæglega
kosið þetta ástand jrfír okkur
að nýju á laugardaginn. Með
því að leggja glundroðanum lið
stuðlum við best að því að góð-
ærið glatist og breytist í
verðlausa verðbólguseðla. At-
kvæðaseðillinn er besta vopnið
gegn þessari hættu.
Ekki er tilviljun, að þeim
þjóðum famast best, þar sem
mest festa ríkir í stjómarhátt-
um á gmndvelli lýðræðislegra
kosninga. Urslit kosninganna á
laugardaginn em ekki mest
spennandi, af því að þess er
beðið með eftirvæntingu hvaða
einstaklingar ná kjöri, heldur
af því að þá verður kveðið upp
úr um það, hvort áfram verði
stjómað af festu öllum til hag-
sældar eða lausung og valda-
streita taki við og fylgifiskur-
inn, verðbólgan.
Kannanir á viðhorfí kjósenda
sýna, að töluverð hreyfíng er á
milli flokka. Sveiflumar og
fjöldi óákveðinna benda til
þess, að margir ætli ekki að
gera upp hug sinn fyrr en á
síðustu stundu. Hinn óvenju-
lega mikli fjöldi framboðslista
og flokka ætti í raun að auð-
velda kjósendum að kveða upp
sinn dóm. Þeir geta kosið Sjálf-
stæðisflokkinn og þar með
verið vissir um, að at'kvæði
þeirra nýtist vel í þágu festu
og viðspymu gegn glundroða
og glötuðum tækifæmm, eða
þeir geta kosið einhvem hinna
flokkanna og þar með óvissuna.
Góður hljómburður í Leifsstöð
„Við þykjumst hafa upp-
götvað nýtt tónlistarhús þar
sem Leifsstöð er,“ sagði Sverr-
ir Haukur Gunnlaugsson,
skrifstofustjóri varnamála-
deildar Utanríkisráðuneytisins,
í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að í ljós hefði kom-
ið þegar opnunarhátíðin fór fram
að hljómburður og tóngæði væru
betri en nokkum hefði órað fyrir.
Þá sungu og léku karlakórinn
Fóstbræður og Islenska hljóm-
sveitin. Á laugardaginn söng
Karlakór Keflavíkur og Lúðra-
sveit Tónlistarskólans í Njarðvík
leikur á sumardaginn fyrsta fyrir
gestkomandi í Leifsstöð.
Sverrir Haukur sagði að athuga
mætti með tónleikahald í flugstöð-
inni á vetrarkvöldum þegar engin.
flugumferð væri þar. *
Morgunblaðið/Kr. Ben.
(Frá hægri:) Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri, EUert Eiríksson sveitarstjóri og Matthías Á. Mathies-
en utanríkisráðherra ræða við gesti í Leifsstöð á mánudag.
Betri dreif ing léttir
tollafgreiðsluna
I tollhliði því sem farþegar ganga
í gegnum inn í landið var Gottskálk
Ólafsson tollfulltrúi á vakt. „Helsti
munurinn er hversu miklu betri
vinnuaðstaða okkar er miðað við
gömlu stöðina,“ sagði Gottskálk.
„Þar voru þrengsli og erfiðleikár
miklir. Hér höfum við tvær af-
greiðslustúkur og mér sýnist eftir
rejmslu undanfarinna daga að um-
ferðin muni dreifast meira sem mun
auðvelda störf okkar.“
Hann sagði að vissulega væri enn
margt ógert í flugstöðinni, sem
snéri að starfsfólki. „En allt það
sem farþegana varðar er vel úr
garði gert. Ég hef ekki orðið var
við að neinar tafír hafi orði í vopna-
leit eða afgreiðslu flugvéla, jafnvel
þótt við höfum aðeins getað starf-
rækt tvö tollhlið í brottför. Á
miðvikudag fóru 879 farþegar þar
í gegn og gekk það allt snurðu-
laust."
Hálfan annan tíma að
ryksuga teppið
Biðsalur flugstöðvarinnar er
teppalagður og væntanlega ærið
Karlakór Keflavíkur leikur fyrir gesti í Leifsstöð.
Morgunbladið/Gunnar Vigfússon
Ingveldur Bjarnadóttir yfirpó-
stafgreiðslumaður.
verður eins með þessa byggingu,"
sagði hann.
Yndisleg aðstaða og
góður andi
í pósthúsinu í biðsal farþega var
Ingveldur Bjamadóttir yfirpóstaf-
greiðslumaður að störfum. „Þetta
er alveg yndisleg aðstaða," sagði
hún aðspurð um reynsluna af fyrstu
starfsdögum á nýju vinnustað. „Mér
fínnst byggingin ekki ópersónuleg
þótt hún sé alveg ný af nálinni.
Hér hefur þegar myndast góður
andi,“ sagði hún. Ingveldur sagði
að um páskana hefði verið mikill
erill í pósthúsinu, sem var opið á
Starfsfólk almennt ánægt með starfsandann
LEIFSSTÖÐ á Keflavíkurflug-
velli var opin almenningi um
páskana. Tæplega 30.000 manns
skoðuðu bygginguna, að sögn
Sverris Hauks Gunnlaugssonar
skrifstofustjóra varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins. Þá fóru um 7.000 farþegar
um stöðina fyrstu fimm dagana
sem hún var starfrækt. Ætlunin
er að sýna Leifsstöð aftur á
morgun, sumardaginn fyrsta,
milli kl. 11.00 og 15.00.
Sverrir Haukur sagði að allt hefði
gengið eins og í sögu þá daga sem
liðnir eru frá vígslu stöðvarinnar.
„Opið hús“ í flugstöðinni hefði ekki
haft nein truflandi áhrif á flugum-
ferð. Afgreiðsla flugvéla gekk vel
þrátt fyrir stöðugan gestagang,
eins og Sverrir orðaði það.
Hjalti Sigurðsson varðstjóri
ríkislögreglunnar á Keflavíkur-
flugvelli.
Emma Einarsdóttir og Ófeigur Hjaltested.
Gottskálk Ólafsson toUfuUtrúi.
meðan flugstöðin var opin almenn-
ingi. Notuðu margir tækifærið og
keyptu póstkort með mynd af Leifs-
stöð eða fyrstadagsumslög með
Mmerkinu sem gefíð var út á
vígsludaginn.
Pósthúsið í flugstöðinni er opið
allan sólarhringinn. Þar er veitt
venjuleg póstþjónusta auk síma-
afgreiðslu fyrir farþega. Algengt
er til dæmis að farþegar greiði gíró-
seðla sína í pósthúsinu áður en þeir
halda af landi brott. Ingveldur var
ánægðust með að pósthúsið væri
flutt úr litlu og gluggalausu hús-
næði í miðjan biðsalinn. „Við erum
hér alveg miðsvæðis og það breytir
miklu. Það má segja að að við séum
alsæl," sagði hún.
Starfsmenn pósthússins hafa enn
sem komið er enga kaffistofu eða
aðra aðstöðu utan vinnustaðarins.
„Við vissum að margt yrði ógert,
þannig að ég er nokkuð róleg yfír
þessu. Það verður ekki búið að ljúka
við kaffistofuna og pósthúsið á
neðri hæðinni fyrr en í sumar.
Þangað til verður þetta nokkuð
frumstætt," sagði Ingveldur.
Engir örðugleikar sjá-
anlegir
Jóhanna Þórarinsdóttir og
Gestína Sigurðardóttir, starfsmenn
Landsbankaútibúsins í biðsalnum,
lýstu vinnustaðnum sem notaleg-
um. „Viðskiptin hafa verið lífleg
það sem af er. Að vísu er útibúið
ekki enn fullklárað, því okkur vant-
ar beinlínutengingu við aðalbank-
ann. Þar til bankinn á neðri hæðinni
er tilbúinn verðum við heldur ekki
með neina kaffíaðstöðu og fínnst
okkur það mjög óhagstætt. En
þetta horfir allt til bóta," sagði
Gestína.
Hún sagði að ekki væru sjáanleg-
ir neinir örðuleikar í skipulagi
stöðvarinnar, sem þó hefði mátt
búast við í nýju og óreyndu hús-
næði. „Margir hafa á orði að stöðin
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Fjölmenni í Leifsstöð á páskunum. í samtali við blaðamann Iíkti Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri
andanum í stóra salnum við „Strikið" í Kaupmannahöfn á góðviðrisdegi.
sé svo glæsileg að það líti út fyrir
að maður sé þegar kominn til út-
landa," sagði Gestína.
Miklir gallar á loftræst-
ingu í Fríhöfninni
„Aðstaðan fyrir starfsfólkið er
ákaflega slæm sem stendur. Þá
höfum við orðið vör við mikla galla
í loftræstingu og þegar verslunin
fyllist er ástandið vægast sagt
skelfílegt," sagði Brynjar Hannes-
son verslunarstjóri Fríhafnarinnar,
þegar hann sýndi blaðamanni
„kaffistofu" starfsfólks á lager
verslunarinnar. Þar sátu starfs-
menn í herbergi með berum og
órykbundnum veggjum, innan um
kassastafla. Ekki var að heyra að
viðmælendur væru par hrifnir af
þessum aðbúnaði.
„Það sem að farþegunum snýr
er allt mjög vel úr garði gert, en
það er ekki nóg að hlutimir líti vel
út,“ sgaði Brynjar. „Það er búið að
lofa okkur að þessum hlutum verði
kippt í lag eins fljótt og auðið. Þrátt
fyrir þessa annmarka erum við án-
ægð með að vera komin úr gömlu
flugstöðinni og þetta á óefað eftir
að verða áhugaverður vinnustaður."
Farþegar versluðu
minna til þess að skoða
flugstöðina
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stjóri Fríhafnarinnar, tók undir
þessi gagnrýnisatriði. Vonaðist
hann til þess að hlutimir yrðu
komnir í betra horf hið fyrsta. „Af-
greiðslan og öll starfsemi í flugstöð-
inni hefur gengið furðanlega vel
þessa fyrstu daga. Mér lýst mjög
vel á stöðina, hún er hugguleg og
falleg."
Hann treysti sér ekki til að meta
hvort viðskiptin væru meiri eða
minni í nýrri og fjölbreyttari versl-
un. En sennilega hefðu farþegar
gefíð sér heldur minni tíma til að
versla en ella, þar sem svo margt
væri að skoða í flugstöðinni. „Af-
greiðslan hefur gengið áfallalaust,
en það er ljóst að við þurfum að
fjölga starfsmönnum eitthvað. Þar
sem verslunin er stærri getum við
ekki annað eftirspuminni með nú-
verandi fyrirkomulagi," sagði
Guðmundur Karl.
Gestína Sigurðardójttir (stendur)
menn Landsbanka íslands.
uninni vegna aukinna umsvifa.
„Það þarf að sinna þessu meira,
þar sem verslunin er stærri og við-
skiptin eiga eftir að aukast í
sumar," sagði Magnea. „Hér hefur
myndast góður andi og við emm
mjög ánægð."
Minni viðskipti þegar
vélum seinkar
„Það eina sem hefur dregið úr
viðskiptunum em seinkanir á vélum
sem þó em á engan hátt tengdar
flugstöðinni. Reynslan sýnir að far-
þegar með vélum sem em í seinkun
em ekki_ eins kaupglaðir og aðrir,"
sagði Ófeigur Hjaltested fram-
kvæmdastjóri íslensks markaðar.
„Að öðra leyti er salan ágæt og
allt hefur gengið ljómandi vel.“
og Jóhanna Þórarinsdóttir starfs-
<sv
verk að halda þessum mikla gólf-
fleti hreinum. „Það tekur mig
sennilega hálfan annan tíma að
fara yfír allan salinn," sagði Jón
Ægisson sem bytjaði að vinna við
ræstingar í flugstöðinni skömmu
fyrir páska. „Okkar starf er að
ræsta allan biðsalinn, tæma ösku-
bakka, skúra salemin og gólfin á
neðri hæðinni. Þá hreinsum við vél-
amar þegar þær koma inn,“ sagði
Jón.
Jón sagði að enn væri starfsað-
staðan ekki fullklámð. Því þyrfti
starfsfólk í ræstingu að borða úti
í gömlu flugstöðinni, þar til mötu-
neyti Leifsstöðvar yrði tilbúið. „Ég.-,
er mjög ánægður með flugstöðina.
Mér finnst hún mjög falleg. Þetta
er ágætis vinnustaður," sagði Jon.
Geta vaktað og stjórnað
umferð um stöðina úr
stj órnherberginu
„Við eigum varla von á öðmm
eins mannfíölda í bráð, en þetta
gekk allt snurðulaust," sagði Hjalti
Sigurðsson varðstjóri öryggisgæslu
flugstöðvarinnar þegar blaðamaður
ræddi við hann í stjómstöð hússins
í gær. Þar gat að líta hluta af tölvu
og eftirlitskerfi því sem notað er
til að stjóma og vakta umferð um
flugstöðina. Lögreglumennimir
geta séð inn í hvem krók og kima
með fjarstýrðum myndavélum sem
varpa myndum inn á skjá í stjóm-
stöðinni og ef óviðkomandi reynir
að opna læstar dyr gefur tölvan
merki um það.
Ellefu menn vinna nú við örygg-
isgæsluna, en auk starfsmannana
þriggja sem em að jafnaði í stjóm-
stöðinni em tveir vopnaðir verðir á
eftirlitsferðum um húsið. Bjóst
Hjalti við því að fjölga þyrfti í lög-
regluliðinu á næstunni til að sinna
þörfum stærri byggingar.
„Það tekur sinn tíma að aðlagast
þessari tækni sem við búum nú
yfir. Við sjáum þegar að hún gefur
mikla möguleika," sagði Hjalti.
„Við getum fjarstýrt flæði um hús-
ið héðan og ákveðið hvaða menn
fái aðgang að hveijum hluta þess.“
Hjalti var ánægður með starfsað-
stöðuna í Leifstöð. Jafnvel þótt
húsið væri enn ekki fullklárað, hefði
þegar myndast þar góður andi.
„Nýfætt bam hefur líka sína sál
þótt hún eigi eftir að þroskast. Það'
Nýja flugstöðin:
Auðveldar eftir-
lit lögreglunnar
Farþegar í millilandaflugi fara
ekki lengur í gegnum herstöðv-
arsvæðið á Keflavíkurflugvelli
og kemur það til með að hafa
töluverð áhrif á störf lögregl-
unnar þar. Að sögn Gústafs
Bergmann, lögregluþjóns á
Keflavíkurflugvelli er fyrst nú
von til þess að lögreglan geti
unnið verk sín á þann veg sem
til er ætlast þegar ekki er sam-
tvinnuð starfsemi tollfríðinda-
svæðis og alþjóðlegs flugvallar.
Gústaf sagði að svokölluð óvið-
komandi umferð myndi minnka
vemlega inn á herstöðina og lög-
reglan ætti því að eiga auðveldara
með að fylgjast með umferð inn og
út af svæðinu. Á álagstímum í flug-
inu hefði ekki verið mögulegt að
sinna eftirliti sem skyldi. „Þetta er
sú aðstaða sem við höfum þurft að
búa við alveg síðan Flugleiðir fluttu
starfsemi sína hingað suðureftir,
en nú ætti að verða hægt að fylgj-
ast með umferðinni um þetta svæði
af einhveiju viti eins og til er ætl-
ast af lögreglunni. Þetta tekur þó
allt sinn tíma og það er ýmisleg
þjónusta sem á eftir að færa, t.d.
öll flugvirkjunin sem færist ekki
út af hersvæðinu fyrr en búið er
að reisa nýtt flugskýli við nýju flug-
stöðina og ýmislegt fleira mætti
nefna. Við emm búnir að bíða þess
með óþreyju í fímmtán ár að þessi
nýja flugstöð risi og að aðskilið
væri farþegaflugið og starfsemi
hersins,“ sagði Gústaf Bergmann
lögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli.
Ánæg'ð með falleg-a
flugstöð
„Hér er allt að komast í endan-
legt horf,“ sagði Magnea Hauks-
dóttir starfsmaður íslensks
markaðar. „Við höfum ekki lent í
neinum vandræðum með loftræst-
ingu eða annað. Viðskiptavinimir
era ánægðir og mér virðist útlend-
ingar taka undir þá skoðun okkar
að þetta sé bæði falleg og góð flug-
stöð,“ sagði hún.
Magnea var á þeirri skoðun að
fíölga þyrfti starfsmönnum í versl-
Magnea Hauksdóttir starfsmað-
ur Islensks markaðar.
Jón Ægisson ryksugar flugstöð-
ina, meðal annars.
Hátt í 40.000 manns hef-
ur heimsótt Leifsstöð