Morgunblaðið - 22.04.1987, Side 80
80
'*S=
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1987
(1 Vid lofum því
v sem skiptir mestu
máM:
GÓÐRI
ÞJÓNUSTU
Verð og tæknileg
útfærsla við allra
hæfi
Borgartúni 20
Sími 2-67-88
Islenska óperan:
Allraþjóða dansflokkurinn
sýnir dansa
frá mörg-
um löndum
Allraþjóða dansflokkurinn
frá New York í Bandaríkjunum
mun sýna dansa frá mörgum
þjóðlöndum í íslensku óperunni
á fimmtudag, sumardaginn
fyrsta, kl. 17.00. Ellefu manns
eru í flokknum, þar af átta
dansarar. Er þetta fólk af ýms-
um þjóðernum en dansflokkur-
inn hefur sérhæft sig í að sýna
dansa frá fjölmörgum þjóðum.
Allraþjóða dansflokkurinn
(Allnations Dance Company) er
ný kominn úr löngu sýningar-
ferðalagi um Asíulönd. Flokkurinn
kom hingað til lands fyrir 12 árum
og sýndi þá í nokkrum skólum í
Reykjvík og einnig í Hafnarfirði
og á Akureyri. Að þessu sinni
mun dansflokkurinn aðeins verða
með eina sýningu hér á landi en
fer héðan í sýningaferðalag um
Norðurlönd.
Allraþjóða dansflokkurinn var
stofnaður á vegum Intemational
house sem er alþjóðlegt stúdenta-
heimili í New York í Bandaríkjun-
um. Stofnandi þess er Herman
Rottenberg. Hann var fyrrum
auðugur verksmiðjueigandi í
Bandaríkjunumm en seldi fyrir-
tæki sín og stofnaði stúdenta-
heimilið og síðar dansflokkinn.
Stúdentaheimilið hefur stundað
Allraþjóða dansflokkurinn, dansarar og tæknimenn. Fyrir miðri mynd er Herman Rottenberg, stofn-
andi dansflokksins.
alþjóðlegt hjálparstarf við náms-
fólk frá flestum þjóðlöndum og
hafa margir Islendingar verið þar.
Herman Rottenberg hefur sagt
að dansinn sé eins og tónlistin,
eigi sér engin landamæri. Þegar
dansarar frá frá svo mörgum lönd-
um komi saman í eina danssýn-
ingu, þá verði sýningin, auk síns
listræna gildis, alþjóðlegur boð-
skapur um frið og bræðralag.
Miðasala er í Söluskrifstofu
Flugleiða í Lækjargötu og verða
aðgöngumiðar einnig seldir við
innganginn fyrir sýninguna á
fímmtudag. Miðaverð er 250
krónur.
4
!-
Góöar og ferskar kjötvörur.
Kryddaö lambalæri.
Úrval af góöu svínakjöti og
nautakjöti.
Góðir grillréttir.
Mikiö úrval af kjötréttum,
tilbúnum beint á grilliö.
Salöt í úrvali.
Munið hinn vinsæla salatbar.
Eigum líka Ijúffeng hrásalöt.
H