Morgunblaðið - 28.04.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
Snjó-
bílnum
bjarg-
aðaf
.
sprungu
áVatna-
jökli
Ferðalangarnir
létu óhappið ekki
raska ró sinni
Eskifirði.
SNJÓBÍLLINN Tanni sem
er í eign Benna og Svenna
hf. á Eskifirði festist í
sprungu í austanverðum
Kverkfjallahrygg á Vatna-
jökli á föstudaginn langa og
sat þar fastur í á annan sól-
arhring. Bílsljórinn Sveinn
Sigurbjaraarson var á ferð
á jöklinum með hóp ferða-
manna frá fjórum löndum
en alls voru í bílnum tólf
farþegar frá Danmörku,
Þýskalandi og Svíþjóð auk
íslendinga. Farþegunum
varð ekki meira um en svo,
að enginn vildi snúa heim
eftir óhappið og var förinni
haldið áfram eins og ekkert
hefði í skorist og kom hóp-
urinn til byggða á sumar-
daginn fyrsta.
Að sögn Sveins lagði hópurinn
af stað á skírdag og var fyrir-
huguð átta daga ferð um jökulinn.
Það var svo kl. 22.00 á föstudag
að bfllinn festist á sprungu í aust-
anverðum Kverkfjallahrygg.
Morgunblaðið/Sveinn
Sprungan var u.þ.b. 15 metra djúp, 3-5 metra breið og 30-40 metrar á lengd. Á myndinni má sjá hvernig Tanni er þvert yfir sprungunni,
siginn niður hægra megin að aftan.
Sveinn athugar aðstæður áður en hann keyrir Tanna eftir þverslánum yfir á „fast land“.
Rin
ISLAND
Aðalfundur
1987
Aðalfundur FORM ISLAND — félags
áhugamanna um hönnun — verður hald-
inn í dag þriðjudaginn 28. apríl 1987 kl.
17:00 á Hallveigarstíg 1, kjallara.
Að loknum aðalfundarstörfum mun dr.
Ingjaldur Hannibalsson forstjóri Álafoss
hf. halda fyrirlestur um tengsl hönnuða
og framleiðenda og mikilvægi markaðs-
mála.
Fyrirlesturinn hefst kl. 18:00 og eru allir
áhugamenn um hönnun velkomnir.
Aðstæður á jöklinum eru þannig
að mjög snjólítið er þar uppi og
snjóhengjur því þynnri og með
minna burðarþol en að öllu jöfnu.
Farþegamir tólf í bílnum, en sá
yngsti í hópnum var 10 ára gam-
all og annar félagi hans 12 ára,
sýndu allir fullkomna stillingu og
héldu ró sinni þrátt fyrir þetta
óhapp. Hjálparsveit skáta á Fljóts-
dalshéraði sem var stödd í Sigurð-
arskála við æfingar kom fljótlega
á vettvang og veitti aðstoð. Síðar
komu svo menn úr björgunarsveit-
inni Gró frá Egilsstöðum með
búnað úr byggð. Komu þeir á
snjóbflunum Innikrák og Goða,
sem er útbúinn með snjótönn og
spili. Upphaflega var ætlunin að
fylla í sprungumar undir Tanna
með snjó en þegar til kom reynd-
ist ekki vera nægilega mikill snjór
til staðar í nágrenninu en óvenju-
snjólétt er á jöklinum eins og áður
sagði. Þegar þessi leið reyndist
ekki fær var gripið til þess ráðs
að draga Tanna, sem lá 50 gráður
á sprungustefnuna, þannig að
hann lægi í 90 gráður. Var hann
síðan dreginn upp á þverslár og
dregin á þeim yfir sprunguna og
var bfllinn laus um kl. 12.30 á
páskadag.
Sveinn Sigurbjarnarson.
Á meðan á björgunaraðgerðum
stóð dvöldu farþegar í góðu yfir-
læti í tjöldum við sprunguna og
höfðu eldhús í snjóhúsi. Þegar að
loknum björgunarstörfum var
ferðinni haldið áfram áleiðis til
Grímsvatna þar sem dvalið var í
tvo sólarhringa í slæmu veðri.
Snjóbíllinn Tanni sem hópurinn
var á er kanadískur af Bombardi-
er-gerð, árgerð 1974, ogvarfyrsti
snjóbfllinn hér á landi er útbúin
var með snjótönn. Þjónaði bíllinn
fyrst Austfirðingum með ferðum
yfir Oddsskarð í tíu ár með góðum
árangri.
Tanni og Sveinn Sigurbjamar-
son hafa áður órðið fréttaefni en
Sveinn var með þeim fyrstu til
að notfæra sér loran-tæki við
fjallaferðir og er Tanni annar
bfllinn hér á landi er búinn var
slíku tæki. Sagði Sveinn að tæki
þessi væru nú orðin algeng bæði
hjá snjósleða- og jeppamönnum.
Vildi hann þó vara menn við að
treysta tækinu í blindni. Alltaf
þyrftu menn að reiða sig fyrst og
fremst á eigin dómgreind þar sem
loraninn getur breytt sér við viss
veðurskilyrði og eins ef menn em
staddir við fjöll. Loks sagðist
Sveinn vilja koma á framfæri
þakklæti til hjálparmanna úr
björgunarsveit Slysavarnafélags-
ins á Egilsstöðum og hjálparsveit
skáta á Fljótsdalshéraði.
— Ingólfur
■