Morgunblaðið - 28.04.1987, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
Sveit Pólaris Islands-
meistari í sveitakeppni
Vann alla leiki sína í úrslitakeppninni
Forseti Bridssambandsins, BjSrn Theódórsson afhenti verðlaun fyrir Islandsmótíð. Hér afhendir
hann Deltu silfurverðlaunin á mótinu. Talið frá vinstri: Björn Theodórsson, Björn Eysteinsson,
Haukur Ingason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Þorlákur Jónsson og Þórarinn Sigþórsson. Runólf-
ur Pálsson var einnig skráður i sveitina en spilaði ekki með.
Sigfús Örn Amason lentí í skondinni lífsreynslu í leiknum gegn
Samvinnuferðum. Spilaði 2 spaða doblaða og fékk einn slag - á
trompásinn.
Fyrir síðustu umferðina var
Pólaris örugg með 1. sætið en
keppnin um annað sætið var milli
Deltu og Ólafs Lárussonar. Þá var
sú staða komin upp að allar sveit-
imar áttu möguleika á verðlauna-
sæti. Ég læt lesendur um að leika
sér að þeim tölum en staðan fyrir
síðustu umferðina var þessi:
Pólaris 130
Delta 105
Ólafur Lámsson 90
Samvinnuferðir/Landsýn 82
B.M. Vallá 78
Aðalsteinn Jörgensen 76
Sigtryggur Sigurðsson 75
Sigurður Steingrímsson 74
Úrslit í 7. umferð:
Aðalsteinn — Sigurður 23—7
B.M. Vallá — Samvinnuferðir
6-24
Delta — Pólaris 14—16
Ólafur — Sigtryggur 17—13
Lokastaðan:
Pólaris 146
Delta 119
Ólafur Lámsson 107
Samvinnuferðir/Landsýn 106
Aðalsteinn Jörgensen 99
Sigtryggur Sigurðsson 88
B.M. Vallá 84
Sigurður Steingrímsson 81
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson. Áhorfendur vom mjög
fáir allan tímann og þótti ekki
ástæða til að sýna á töflu. Engar
kæmr komu upp á mótinu sem
fór mjög friðsamlega fram. Ef
eitthvað var þá era það hefð-
bundin geðillskuköst sem koma
upp í hverju móti og undirritaður
eins og fleiri vonar að eldist af
viðkomandi.
SÆKJUM/SE NDUM
Við vinnum fyrir þig
Við komum með gáminn til þín og þú gengur frá vörunni í hann
eins og þú vilt. Við sækjum gáminn til þín aftur og komum honum
um borð í Ríkisskip. Það er ástæðulaust að gera einfalt mál
flókið. Komdu og kynntu þér gámaþjónustu okkar.
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
® 28822
Morgunblaðið/Arnór
Sveit Pólaris, Islandsmeistarar í sveitakeppni í brids 1987. Aftari
röð frá vinstri: Karl Sigurhjartarson, Öm Araþórsson, Guðlaugur
R. Jóhannsson. Fremri röð: Hjalti Elíasson og Asmundur Pálsson.
Brids
Amór Ragnarsson
Sveit Pólaris sigraði með
yfirburðum í 8 sveita úrslita-
keppni um íslandsmeistaratítil-
inn í sveitakeppni 1987. Vann
sveitin alla leiki sina í úrslitun-
um og endaði með 146 stig en
það mun vera hæsta skor i úr-
slitakeppni íslandsmótsins frá
því að 25 stiga reglan var tekin
upp fyrir nokkrum árum. Sveit
Samvinnuferða vann alla sina
leiki 1985 og fékk þá 144 stíg
ef lærðir fara rétt með. í sveit
Pólaris eru „gamlir“ refir í
bridsiþóttinni sem allir hafa
spilað í landsliði og allir hafa
þeir áður orðið fslandsmeistar-
ar í sveitakeppni. Þeir eru:
Ujalti Elíasson, Ásmundur
Pálsson, Karl Sigurhjartarson,
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Öm Araþórsson. Þeir Guðlaug-
ur, Öra, Ásmundur og Hjalti
urðu siðast meistarar 1980 en
einnig 1977 og 1978. Karl Sig-
urhjartarson varð íslands-
meistari 1979.
Delta, sveit Þórarins Sigþórs-
sonar, varð í öðra sæti og sveit
Ólafs Lámssonar þriðja. Sveit
Samvinnuferða varð að láta sér
nægja 4. sætið og muna liðsmenn
sinn fífíl fegurri. Sveit Sigurðar
Steingrímssonar gerði mikinn
usla í þessu móti. Þeir byijuðu á
því að vinna Samvinnuferðasveit-
ina í annarri umferð og í 5.
umferð unnu þeir Deltu. Þetta
þýddi það að sveit Pólaris sigldi
lygnan sjó í mótinu og höfðu
reyndar unnið mótið fyrir síðustu
umferðina. Það vom aðeins fræði-
legir möguleikar að Delta gæti
náð þeim. En þeir þurftu að vinna
Pólaris á síðustu umferðinni með
101 punkti (impa).
Úrslit 4. umferðar:
Sigurður Steingrímsson —
Ólafur Lámsson 5—25
Samvinnuferðir — Pólaris 8—22
Aðalsteinn Jörgensen — Delta
9-21
Sigtryggur Sigurðsson —
B.M. Vallá 22-8
Úrslit í 5. umferð:
Delta — Sigurður 7—23
Ólafur — Samvinnuferðir 17—13
B.M. Vallá — Aðalsteinn 20—10
Pólaris — Sigtryggur 25—3
Úrslit í 6. umferð:
Sigurður — B.M. Vallá 10—20
Samvinnuferðir — Delta 14—16
Pólaris — Ólafur 17—13
Sigtryggur — Aðalsteinn 22—8
Sveit Sigurðar Steingrímssonar gerði mikinn usla í keppninni um efsta sætíð. Hér eigast við sveit-
ir Sigurðar og Aðalsteins Jörgensens.