Morgunblaðið - 28.04.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
57
Ftyrst er mæðranna skaut, þar sem maðurinn
naut,
þess mjúktaks er hóf hann á fætur
lagði ástir og yl, það sem albest er til,
inn í augað og viljann og hugarins við-
kvæmu rætur.
(Halldór Helgason)
Anna Hlöðversdóttir, móðir
Geirs, dvaldi og átti heimili á Reyð-
ará fram á efri ár, en var flutt til
sonar síns á Siglufirði nokkru áður
en hún lést. Bræður Geirs áttu einn-
ig heimili sitt á Reyðará, eftir að
Geir og Margrét tóku þar við búi,
en faðir þeirra bræðra dó á meðan
þeir voru enn í æsku. Geir var
þeirra elstur og tók við búinu að
föður sínum látnum með móður
sinni og síðan konu sinni. Heimilið
að Reyðará bar vott um mikla sam-
heldni fjölskyldunnar og góðan
heimilisbrag og snyrtimennsku
jafnt úti sem inni. Böm og fullorðn-
ir voru félagslynd og tóku mikinn
og góðan þátt í félagslífi sveitarinn-
ar og safnaðarlífí. Söngur og
hljóðfærasláttur var mjög iðkaður
á heimilinu enda fjölskyldan öll
söngvin og músíkölsk svo af bar.
Um langan aldur hefur fjölskyldan
á Reyðará verið burðarás kirlq'u-
kórsins í Stafafellskirkju. Aldrei
hefur brugðist ómetanleg liðveisla
þeirra við sönginn í kirkjulegum
athöfnum. Geir, Margrét og bömin
þeirra, öll með góðar söngraddir,
lögðu fram lið sitt — og á heimilinu
þeirra var bæði fyrr og nú velkom-
ið að halda söngæfingar, ef með
þurfti — og þaðan fór enginn þurr-
bijósta. Vigdís, sem nú er húsmóðir
á Reyðará, tengdadóttir Margrétar,
fellur vel að sönghefð hins gamla
hefðarbóls. Alla þá liðveislu vil ég,
sem organisti kirkjunnar, þakka af
heilum huga. Geir var auk þess á
sínum tíma sóknamefndarformaður
og meðhjálpari í kirkjunni sinni, og
síðar gekk Þorsteinn sonur hans í
sömu spor. Að rækja sína kristnu
trú með því að taka þátt í kirkju-
legu starfi og safnaðarlífi er meira
virði en margur virðist gera sér
grein fyrir. Það er gæfulegt og það
akkeri, sem mörgu gæti vafalaust
bjargað, af því sem aflaga fer í
þjóðlífinu, væri því sinnt svo sem
vert er.
Margrét var fríð kona sýnum,
glaðleg og hjartahlý. Bömum sínum
frábær móðir, amma og langamma.
Litli 6 ára langömmudrengurinn
hennar, sem ég sá í gær, grét, því
hann skilur ekkert í að hún besta
langamma hans er farin í himininn.
Hann veit það ekki ennþá að hún
góða langamma fær einhvemtíma
að taka á móti ástvinum sínum,
þegar að þeim kemur að ljúka sínu
lífi á jörðu, — og að þá verða áreið-
anlega fagnaðarfundir.
Blessuð sé minning Margrétar
frá Reyðará. Hafi hún þökk fyrir
allt og allt.
Sigurlaug Arnadóttir
Birtíng afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsbiaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
p
fTILE
• og lokádegr sjomanna
■ bióöiÆm 15% ifslátt
af stö^um jökkiM^
(>t stökum buxum
jakkafötum.
u
n
SNORRABRAUT 56 SIMI 13505
VfSA
> Góðan daginn!
KADET
OPEL
Pessi glæsilegi vestur-þýski bíll
var kosinn bíll ársirís;
af dómharðri nefnd bílagagnrýnenda
þegar hann var fyrst kynntur
fyrirtveimurárumr'
Þessi stórkostlega viðurkénning;
var upphafið að miklum vinsældum
OPEL KADETT:
Áður en þú gerir upp hug þinn
varöandi hugsanleg bílakaup
getur borgað sig fyrir þig
aö kynna þér kosti KADETT bílanna,
ss. rými, hönnun, aksturseiginleika
og lágan eldsneytiskostnaö.
■©■I GM
mmr[
yand^ðuvaliö! BiLVANGURsf?
VGlClU KADETT! HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300