Morgunblaðið - 28.04.1987, Síða 62

Morgunblaðið - 28.04.1987, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987 //Hveig'i&i wiS með ab olían sé bam mo<5\/oig? jpeiirgenxá-ms eftir 10 minútu^" ást er... . . . einmitt það sem ég er að /eita að. TM R*fl. U.S. Pat Off.—all ríghts resarvad • 1987 Los Angdes Times Syndicate Nei. Nei. Ef pabbi kemst að því beinist athyglin heima ekki lengur að mér. Djöfuls uppákoma er þetta. Búinn með blaðið, sjónvarpið bilað. Neyð- umst vist til að tala saman? HÖGNI HREKKVÍSI Svör við kvörtunum um dagskrá ríkisútvarpsins Til Velvakanda. Sif Kjartansdóttir skrifar í blaðið í dag, andmælir ákvörðun ríkisút- varpsins um næturútsendingar og gerir athugasemdir um dreifíngu rásar 2 um landið. Af þessu tilefni vill undirritaður taka eftirfarandi fram: 1. Þeir sem fara að sofa kl. 11, eins og Sif segist gera, hafa lítið af næturútvarpi að segja og teljast tæplega dómbærir á það. Það er gömul saga og ný að notendur ríkisútvarpsins meta þjónustu þess fyrst og fremst út frá persónulegum ástæðum, eigin smekk og hagsmun- um án þess að setja sig í spor annarra. Næturútsending á öllu dreifíkerfí útvarpsins veldur hlutfallslega litl- um kostnaðarauka en hefur mælzt mjög vel fyrir hjá hlustendum um land allt. Sjómenn sem stunda störf sín á fiskimiðum við landið fagna þessari nýju þjónustu sérstaklega, og á það við um austfírzka sjómenn sem aðra. 2. Það er ekki stefna ríkisút- varpsins að endurvarpa efni rásar 2 á dreifíkerfí rásar 1. Markmiðið er að rás 2 í heild sinni nái til þeirra sem kjósa að hlusta á hana. Þess vegna hefur tugum milljóna verið varið til uppbyggingar sendi- stöðva út um allt land fyrir rás 2. Nú geta 95—96% þjóðarinnar, fólk í öllum landshlutum, náð útsend- ingu rásar 2. Með einkunnarorðun- um „rás 2 um land allt“ er því ekkert meira fullyrt en ríkisútvarp- ið getur staðið við. 3. Framkvæmdir við dreifikerfi rásar 2 hafa ekki getað farið fram í einu stökki heldur hafa þær verið unnar stig af stigi í samræmi við þá árlegu framkvæmdagetu, sem ræðst af ákvörðunum stjómvalda. Næsti áfangi verður Breiðdalsvík og nokkrir aðrir staðir á Austur- landi og munu íbúar þar ná rás 2 Til Velvakanda. Gestur Sturluson skrifar: Þá eru páskamir og bænadagamir liðnir með öllum sínum frídögum og í dag, þegar ég hripa þesssar línur, er sumardagur- inn fyrsti. Gleðilegt sumar, og segi ég auðvitað. Það sem mér fínnst einkenna alla þessa frídaga einna mest er að þá fáum við ekki dag- blöð. En meðal annarra orða hvað felst í orðinu „dagblað". Það er blað sem kemur út daglega, eða þannig lít ég á. En samkvæmt þessari skil- greiningu minni kemur ekkert Til Velvakanda. í sambandi við vaxtaokrið, sem Guðrún Jacobsen drap á í Velvak- anda fyrir nokkru, vil ég segja eftirfarandi: Ég er einstæð móðir í hlutastarfí í ríkisstofnun með innan við 20.000 kr. á mán. eftir áratuga starf. Ég fékk lífeyrissjóðslán úr sjóði opinberra starfsmanna að upp- hæð 140 þús. fyrir rúmlega 4 árum til kaupa á 45 fm húsnæði. Ég vann hörðum höndum í 4 _ár á þeim tíma eða tvöfalda vinnu. Ég er búin að borga 80.000 kr. + vexti, búin að missa það sem ég átti, auk þess sem lánið gat ekki hvílt á áður- nefndu húsnæði því það var víst ekki þess virði. Þá fékk ég veð fyr- ir því í húsi móður minnar og lánið óskertri allan sólarhringinn með vorinu. dagblað út á íslandi. Hafið þið ekki veitt því athygli að 60 til 70 daga á ári kemur ekkert blað út, það er hvorki meira né minna en sjötti hluti ársins. Og meira að segja hef- ur orðið um afturför í útgáfu dagblaða. Fyrir rúmum áratug komu flest blöð, sem gefín eru út á morgnana, út á sunnudögum. En nú kemur Mogginn einn út á sunnu- dögum og þó svindlar hann hér svolítið, sunnudagsblað Morgun- blaðsins kemur semsé út á laugar- dagskvöldum. Sem sé, á íslandi kemur ekkert alvörudagblað út. hljóðar nú upp á rúmar 470.000 kr. Um þessar mundir leigi ég fyrir rúmlega 15.000 kr. á mánuði. Ég fékk leigt með þeim skilmálum að ég mundi ekki gefa leiguna upp til skatts. Ekki mánuði seinna var mér sagt upp húsnæðinu. Nú þarf ég að koma dótinu mínu fyrir í geymslu hjá Félagsmála- stofnun borgarinnar. Það er ódýrt. Og nú spyr ég, hvemig stendur á því að kaupið hækkar ekkert en vísitalan svonefnda hækkar og hækkar og lán og vextir éta upp fasteignir sumra og sumra ekki. Hveijir eru svindlarar þessa þjóð- félags eða kannski löggiltir okur- lánarar? Borgari Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri. Engín dagblöð Vaxtaokur Yíkverji skrifar Vegna fjarveru á kjördag þurfa æ fleiri að greiða atkvæði utan kjörstaðar. Þetta er að mörgu leyti mun flóknari aðferð en að fara á kjörstað á kjördag. Skriffínnska er meiri og menn geta ekki sett X við bókstaf þess lista, sem þeir vilja kjósa heldur verða að skrifa lista- bókstafínn sjálfan á atkvæðaseðil, sem síðan er innsiglaður og kjós- andi sjálfur verður að koma til réttra yfirvalda í heimabyggð sinni, hvort heldur hann kýs hér á landi eða erlendis. Flestir leggja leið sína til starfs- manna borgarfógetans í Reykjavík til að greiða atkvæði utan kjörstað- ar. Undanfarin ár hefur hann haft aðsetur í Ármúlaskólanum. Er þar oft þröng á þingi. Sumir hafa alls ekki tíma til að bíða í þeim röðum, sem myndast á meðan uppfylltar eru hinar ströngu reglur um frá- gang utankjörstaðaatkvæða og skráningu þeirra, er nota þennan rétt. Þegar inn í kjörklefann er komið eru stimplar með listabók- stöfum á borði fyrir framan kjó- sandann. Á stimplana hefur verið límdur borði, þar sem bókstafínn er að finna vélritaðan. Víkveiji hef- ur rökstuddan grun um, að þessar upplýsingar séu alls ónógar fyrir margan kjósandann. Eftir að listum hefur fjölgað jafn mikið og raun ber vitni, þarf að láta kjósendum mun ítarlegri upplýsingar í té við utankjörstaðaatkvæðagreiðslu á vegum borgarfó-geta . Ættu stimplamir að minnsta kosti að vera með stærri einkennisstöfum og á þeim eða annars staðar þyrfti að standa skýrum stöfum fyrir hvaða flokk bókstafurinn stendur. XXX Leiðbeiningar á vegum opin- berra aðila eru oft af skomum skammti. Þannig er Víkveiji ein- dregið þeirrar skoðunar, að Vegagerðin þyrfti að gera stórátak til að auka merkingar á þjóðvegum landsins. Menn ættu til dæmis að setja sig í spor útlendings, sem tek- ur sér bíl á leigu og ætlar að skreppa austur að Gullfossi og Geysi. Er Víkveiji þeirrar skoðun- ar, að margir myndu oft vera í vafa um, hvaða leið þeir ættu að aka til að komast á leiðarenda. Uppi á hálendinu er þannig staðið að vegamerkingum, að varla er unnt að komast hjá því að villast. Góðar merkingar stuðla ekki aðeins að öryggi heldur einnig að því að menn séu ekki að fara út á vega- slóða, sem alls ekki eru merktir og níðast þannig á náttúrunni að ástæðulausu. Við Háskóla íslands hafa nú verið sett upp falleg skilti með nöfnum einstakra bygginga eða stofnana. Ætti það framtak að vera öðmm opinberum aðilum og einkaaðilum til fyrirmyndar. Þá er einnig vel frá merkingum gengið við Land-spítal- ann, þannig að þeir ættu ekki að villast, sem eiga erindi inn á lóð hans. Enn má geta nýrra götuskilta í Reykjavík, sem auðvelda mönnum að rata um borgina. XXX Ferðatíminn er nú að hefj'ast. Margir kvarta sáran undan ágangi útlendinga og hve slæm umgengni þeirra við náttúmna er. Hefur Víkveiji meira að segja lent í ritdeilum vegna skoðana sinna á hlut hins opinbera í ferðamálum. Ekki er ætlunin að heQa þær deilur að nýju. Á hitt skal þó enn bent að besta leiðin til að tryggja góða umgengni er að leiðbeiningar og aðstaða öll sé til fyrirmyndar. Hvaða ástæða er fyrir því, að við Geysi era engin skilti úti við, sem upplýsa ferðamenn um það, hvað einstakir hverir . á þessu vinsæla svæði heita. Þá ættu einnig að vera þar kort er lýsa staðháttum og stutt gossaga Geysis. Aðstaða við Gull- foss hefur lengi verið á dagskrá ferðamálafrömuða, en hún er eng- inn. Því miður emm við enn furðulega fmmstæðir í móttöku ferðamanna. Stærsta skrefíð, sem stigið hefur verið á undanfömum ámm, er smíði flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Nú þarf að iaga annað að þessu glæsi- lega andliti landsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.