Morgunblaðið - 17.06.1987, Page 60
60_________
Hæstiréttur
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 17. JÚNÍ 1987
Greiðabílar mega
aka farþegnm
HÆSTIRÉTTUR hefur kveðið
upp dóm 1 máli bflstjóra lyá
Sendibflum hfen honum var gef-
ið að sök að hafa brotíð gegn
lögum um leigubQaakstur með þvi
að aka farþegum f litlum sendibfl,
svoköUuðum Greiðabfl. Meirihlutí
Hœstaréttar sýknaði manninn af
ákærunni, en tveir dómarar ski-
luðu sératkvæði.
Ökumenn Greiðabílanna og
leigubílstjórar deildu mjög hart
vegna þess að hinir fyrmefndu óku
farþegum f bílum sfnum. Leigubíl-
stjórar héldu því fram að siíkur
akstur væri lögbrot, stöðvuðu sendi-
bflana oft f akstri og kölluðu til
lögreglu. Mál það sem Hæstiréttur
dæmdi á miðvikudag var því próf-
mál, en fyrr á þessu ári hafði
sakadómur Reykjavíkur einnig kom-
ist að þeirri niðurstöðu að maðurinn,
sem ákærður var, hafi ekki gerst
brotlegur við lög.
í máli þessu var Gissuri Sveini
Ingólfssyni gefið að sök að hafa not-
að sendibifreið sína til fólksflutninga
allt frá því í janúar 1985, en til-
greind voru f ákæru tvö tilvik, þann
1. og 19. aprfl 1985. í niðurstöðu
Hæstaréttar sagði, að aðeins yrði
dæmt um þessi tvö tilvik, enda ekki
færð fram gögn um þann þátt ákæ-
runnar sem fjallaði um akstur
mannsins að öðru leyti. Hæstiréttur
vísaði til 2. mgr. 1. gr. laga um leigu-
bflaakstur þar sem lagt er bann við
að stunda leiguakstur á fólksbifreið-
um nema _að uppfylltum vissum
skilyrðum. Ákært var í málinu fyrir
akstur gegn gjaldi á sendibifreið, sem
fjallað er um í 3. og 4. grein sömu
laga. Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu, að með því að skýra 2.
mgr. 1. gr. laga samkvæmt orðanna
hljóðan, þætti ákærði ekki hafa brot-
ið gegn henni og því skyldi staðfesta
úrskurð sakadóms.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
amir Magnús Thoroddsen, Guð-
mundur Skaftason, Guðrún
Erlendsdóttir, Guðmundur Jónsson
og Halldór Þorbjömsson. Tveir
síðastnefndu skiluðu sératkvæði og
skildu þeir 2. mgr. 1. gr. laganna
svo, að þar sé lagt bann við því að
aðrir bifreiðastjórar aki farþegum
gegn gjaldi en þeir, sem aka frá við-
urkenndri fólksbifreiðastöð. Töldu
þeir því að Gissur Sveinn hefði gerst
brotlegur við ákvæði þetta og bæri
því að greiða 10 þúsund króna sekt.
Vararefsing sektar töldu þeir hæfi-
lega 5 daga varðhald.
Lög um leigubifreið-
-ar eru allt of óljós
Greiðabílar á Steindórsplani, þar sem starfsemin var f fyrstu.
Vonum að tortryggni í garð fyr
irtækisins hverfi nú að fullu
- segir Sigurður Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Sendibíla hf.
- segir Ingólfur
Ingólfsson, formað-
ur Frama
„MÉR virðist Hæstíréttur komast
að þeirri niðurstöðu að lögin um
leigubifreiðar séu allt of ófjós og
þvi þyrftí auðvitað að breyta,“
sagði Ingóifur Ingólfsson, form-
aður Frama, stéttarfélags leigu-
>i)ifreiðastjóra. Á miðvikudag
komst Hæstiréttur að þeirri niður-
stöðu að ökumaður Greiðabils
hafi ekki brotíð gegn lögum þess-
um með þvi að aka farþegum i
slíkum bíl.
„Það skýtur óneitanlega skökku
við að leigubifreiðastjórar skuli þurfa
að fá sérstakt leyfí samgönguráðu-
neytisins til fólksflutninga, en
ökumenn sendibifreiða geti stundað
slíkan akstur óhindrað, svo framar-
lega sem þeir starfi hjá viðurkennd-
um stöðvum," sagði Ingólfur. „Það
er því greinilegt að þau ákvæði I
lögunum sem fjalla um slíkar leyfi-
sveitingar eru alls ekki nógu skýr
og því þyrfti að breyta. Samkvæmt
þessum dómi virðist sem ökumenn
sendibfla geti farið að stunda far-
þegaakstur. Stefnan hefur hins
vegar verið sú í nágrannalöndum
okkar að takmarka aðgang manna
að stétt leigubifreiðastjóra, vegna
þess að kröfur til þeirra hafa aukist.
Það virðist sem ekki þurfi að gæta
að slíkum atriðum hér.“
Ingólfur sagðist ekki óttast að
dómur Hæstaréttar yrði til þess, að
ökumenn sendibifreiða færu að
stunda farþegaflutninga I miklum
mæli. „Það hefur oft verið sagt að
of fáar leigubifreiðar séu hér á landi,
en þeir sem hafa ferðast víða erlend-
is vita að þjónustan hér er með því
besta sem gerist," sagði Ingólfur.
„Svo á ég nú erfitt með að ímynda
mér að fólk vilji fara í sendibifreið
heim að loknum dansleik, í sínu
finasta pússi. Þessir bflar eru ekki
bara óþægilegri en fólksbflar, heldur
hafa ótrúlegustu hlutir verið fluttir
í þeim.“
„VIÐ erum iqjög ánægðir með að
endanleg niðurstaða skuli fengin
í þessu máfl og vonum að tor-
tryggni f garð fyrirtækisins hverfi
nú að fullu,“ sagði Sigurður Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins Sendibílar hf., sem
starfrækir Greiðabílana. Hæstí-
réttur hefur sýknað bflstjóra
Greiðabfls af ákæru um að hafa
gerst sekur um lögbrot með þvf
að aka farþegum f bflnum.
Sigurður sagði að á sínum tíma
hefði lögreglan gengið hart að
bflstjórum fyrirtækisins vegna far-
þegaaksturs þeirra. „Þessar aðgerðir
lögreglunnar voru fyrir atbeina
Frama, hagsmunafélags leigubif-
reiðastjóra," sagði Sigurður. „Vegna
aðgerðanna varð almenningur fullur
tortryggni I garð okkar, því við vor-
um af mörgum álitnir Iögbijótar.
Þetta álit manna breyttist mikið við
dóm undirréttar, sem Hæstiréttur
hefur nú staðfest, um að ekkert ólög-
legt hafi verið við reksturinn. Ég vil
því gjaman nota tækifærið og biðja
þá farþega okkar, sem urðu fyrir
óþægindum vegna aðgerða lögreglu,
afsökunar á því og jafnframt þakka
stuðning við fyrirtækið."
Sigurður sagði að máli þessu hefðu
fylgt mikil óþægindi fyrir starfsmenn
fyrirtækisins. „Við misstum aðstöðu
okkar að Hafnarstræti 2 vegna þess
að borgarráð treysti sér ekki til að
leyfa starfsemina þar vegna fullyrð-
inga umsjónameftidar leigubifreiða
um að hún væri ólögmæt," sagði
Sigurður. „Þá var ég einnig sviptur
leyfi mfnu til leigubifreiðaaksturs
fyrir að stuðla að lögbroti og fyrir
að neita að vera innan vébanda
Frama, þar sem lög félagsins sam-
ræmast ekki mínum hugsjónum. En
nú hefur Hæstiréttur kveðið upp sinn
dóm um lögmæti starfseminnar og
hún heldur áfram eins og ekkert
hafi í skorist," sagði Sigurður Sigur-
jónsson að lokum.