Morgunblaðið - 17.06.1987, Page 68
68
MOftGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1987
Nakasone fær lán-
aðann stráhatt
Forsætisráðherra
Japans, Yasuhiro Naka-
sone slær á létta strengi
í hópi spænskra ungl-
ingsstúlkna við „EI
Alcazar" virkið í Sego-
via. Hér hefur hann
fengið lánaðann stáhatt
einnar stúlkunnar og
tekur sig bara vel út eins
og sjá má. Opinberri
heimsókn Nakasone til
Spánar lauk á laugar-
daginn.
Systrafélag Víðistaðasóknar í
Hafnarfírði hélt nú nýlega
sinn árlega blómamarkað til
styrktar kirkjubyggingunni.
Markaðurinn var haldinn fyrir
framan Kaupfélagið
Miðvang í
Hafnarfírði og gekk, að sögn ur kirkjan væntanlega vígð í
þeirra systra, mjög vel. haust. Listamaðurinn Baltasar
Systrafélag Víðisstaðasóknar Samper hefur unnið mikið
hefur unnið ötullega að fjársöfnun freskó-kórverk í Víðistaðakirkju
til kirkjubyggingarinnar og verð- og er vígsla hennar mörgum til-
| hlökkunarefni.
Prestsfrú
hjólar
kringum
landið
Holti, Veatur-Eyjafjallahreppi.
HVAÐA útlendingur skyldi
þetta vera, hugsaði frétta-
ritari þegar brosandi kona kom
hjólandi í hlað, sté af baki og
bauð góða kvöldið. Þarna var
komin Auður Guðjónsdóttir, sem
nú býr með manni sínum sr.
Kristjáni Róbertssyni í Bergland
í norð-vesturhluta Ontario í
Kanada, en þar þjónar hann litl-
um lútherskum söfnuði.
Aðspurð sagði Auður að sig hefði
lengi dreymt um að fara svona ferð,
en það hefði aldrei verið neinn tími
þegar þau bjuggu hér. Hugurinn
hafí þá leitað út fyrir landsteinana.
Eitt sumar hafði það verið Færeyj-
ar, annað sumar Utah. Nú þegar
hún hefði verið búsett í Kanada
hefði henni vaknað sterk löngun til
að halda upp á 30 ára stúdentsaf-
mæli og 50 ára afmæli með því að
leggja upp í svona hringferð. Kynn-
ast landinu betur, sem hún hefði
ólæknandi ást á. Ferðin væri einnig
farin til að bjóða liðagigt birginn,
sem hún hefði þjáðst af í nokkur
ár og þakka Guði um leið þann
líkamsstyrk sem hún ennþá nyti.
Foreldrar hennar hefðu tekið vel
á móti henni en reynt að letja hana
ferðarinnar. Þegar engu varð
breytt, hefðu þau keypt handa
henni nýtt hjól, sem hún hefði að
iáni. Það myndi síðan bíða systur
hennar sem búsett væri í Svíþjóð —
„sem er jafn skrýtin og ævintýra-
gjöm,“ sagði Auður og hló.
Ferðin hófst á laugardag fyrir
hvítasunnu frá Reykjavík í Hvera-
gerði og var hún þijá og hálfan tíma
á þeirri leið. Hún sagði að það hefði
verið nær stanslaus umferð úr
Reykjavík þennan dag og allir
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Auður Guðjónsdóttir leggur glöð
upp í næsta áfanga.
Sara fer
stuttklædd
til Kanada
láta hvetjum degi nægja sína þján-
ingu og sína gleði og verða því
aldrei fyrir vonbrigðum og sem
mest væri um vert, vera aldrei að
missa af rútu eða koma of seint,
vera þannig ein með sinni gleði og
eftirvæntingu — en vera þó aldrei
ein.
Að síðustu var Auður spurð um
það hvort hún kviði ekki slæmu
veðri eða erfíðum brekkum. „Nei,
ég kvíði engu, ég hlakka aðeins til.
Eg fínn að ég nýt vemdar og leið-
sagnar og hvemig ætti ég þá að
kvíða."
— Fréttaritari
bflstjórar nema fjórir sýnt sér
fyllstu kurteisi. Þessir fjórir flaut-
uðu og flautuðu eins og þeir segðu:
Burt, réttur þinn er enginn. Næsta
dag, hvítasunnudag, tók hjólferðin
þijá tíma, frá Hverageri að Odda,
þar sem guðsþjónustu var náð.
Minntist Auður þá sama dags fyrir
þremur ámm þegar hún var stödd
við hátíðarmessu á Suðurey í Fær-
eyjum og sóknarpresturinn þar
skýrði mágkonu sína nokkurra
vikna gamla. Næsti áfangi var síðan
að Holti undir EyjaQöllum, og þann-
ig ætlaði hún að halda áfram, án
þess að skipuleggja ferðina í heild,
Greifynjan af York.
Greifynjan af York; hin rauðhærða Sara, er farin að undirbúa
heimsókn sína til Kanada, en þangað ætlar hún í júlí ásamt eigin-
manni sínum, Andrew prins. Sara hefur nú losað sig við tæp 15
kg og hefur hún fengið tískuhönnuðinn Alistair Blair til að hanna
á sig fatnað fyrir ferðina. Að sögn hönnuðarins verða fötin í
líflegum litum; einkum rauðu og fjólubláu. Hann hefur talið greif-
jmjuna á að klæðast styttri pilsum en áður, enda þarf hún síst
að skammast sín fyrir fótleggina eftir megmnina. „Sara er af-
skaplega þægilegur viðskiptavinur" segir Blair, „hún kemur ekki
með neinar fyrirfram ákveðnar hugmyndir, heldur er hún opin
fyrir nýungum og tekur klæða burð sinn síður en svo hátíðlega".
fclk i
fréttum
Blómasala
til styrktar
Víðistaða