Morgunblaðið - 17.06.1987, Blaðsíða 76
4
„ v; - . r„:'/ un.ui)W,U
76 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1987
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 26. júní
Baltic 10. júli
Bakkafoss 24. júli
Baltic 7. ágúst
NEWYORK
Bakkafoss
Baltic
Bakkafoss
Baltic
HALIFAX
Baltic 13. júli
Baltic 10. ágúst
24. júní
8. júlí
22. júlí
S. ágúst
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss 21. júní 28. júní 5. júlí 12. júlí
FELIXSTOWE Álafóss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss 22. júní 29. júní 6. júlí 13. júlí
ANTWERPEN Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss 23. júní 30. júní 7.júlí 14. júlí
ROTTERDAM Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss 24. júní 1. júlí 8. júlí 15. júlí
HAMBORG Álafoss Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss 25. júní 2. júlí 9. júlí 16. júlí
IMMINGHAM Dorado Laxfoss 24. júní l.júlí
BREMERHAVEN Dorado Laxfoss 23. júní 30. júní
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
ÞÓRSHÖFN
Reykjafoss 28. júní
Reykjafoss 12. júlí
Reykjafoss 26. júlí
Reykjafoss 9. ágúst
Arhus
Skógafoss 23. júní
Reykjafoss 30. júní
Skógafoss 7. júlí
Reykjafoss 14. júlí
GAUTABORG
Skógafoss 24. júní
Reykjafoss l.júlf
Skógafoss 8. júlí
Reykjafoss 15. júlí
HELSINGBORG
Skógafoss 25. júní
Reykjafoss 2. júlí
Skógafoss 9. júlí
Reykjafoss 16. júlí
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 25. júní
Reykjafoss 2. júlí
Skógafoss 9. júlí
Reykjafoss 16. júlí
FREDRIKSTAD
Skógafoss 26. júní
Reykjafoss 3. júlí
Skógafoss 10. júlí
Reykjafoss 17. júlí
HELSINKI
Dettifoss 7. júlí
Áætlun innanlands.
Vikulega: Reykjavík, ísa-
fjörður, Akureyri, Dalvík,
Húsavík. Hálfsmánaðar-
lega: Siglufjörður, Sauðár-
krókur og Reyðarfjörður.
Vikulega: Vestmannaeyjar
EIMSKIP
Pósthússtræti 2.
Sfmi: 27100
Hefðbundin 17. júní
hátíðarhöld um land allt
HÁTÍÐARHÖLDIN á 17. júní
verða með hefðbundnu sniði um
mest allt land. Farið verður í
skrúðgöngfur um daginn, fjall-
konan mun ávarpa landsmenn
og haldnar verða skemmtidag-
skrár, en síðan dunar dansinn
fram á nótt.
í Reykjavík leggja forseti íslands
og forseti borgarstjómar blóm við
minnisvarða Jóns Sigurðssonar á
Austurvelli en að því loknu flytur
forsætisráðherra ávarp. Að loknu
ávarpi forsætisráðherra ávarpar
flallkonan samkomuna, Karlakór
Reykjavíkur syngur og Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur nokkur lög. Að
þessari dagskrá lokinni verður hátí-
ðarguðþjónusta í Dómkirkjunni.
Skrúðgöngur hefjast kl. 13.45
og verður gengið frá Hallgríms-
kirkju og Hagatorgi niður í miðbæ,
en þar verður skemmtidagskrá á
þremur sviðum. A Tjöminni verður
bátaleiga og hægt að fara í ýmsa
leiki í Hljómskálagarðinum. í Sigt-
úni og VR-húsinu verður dagskrá
fyrir eldri borgarana.
Um kvöldið mun síðan hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar, ásamt
fleirum, leika fyrir dansi á Lækjar-
torgi og í Laugardalshöll verða
tónleikar þar sem fjórar hljómsveit-
ir koma fram.
Tívolí í Garöabæ
Dagskráin í Garðabæ hefst með
víðavangshlaupi yngri flokka kl. 10
frá íþróttavellinum og kl. 11 keppa
bæjarbúar, 30 ára og eldri, í knatt-
spymu, keppt verður milli bæjar-
hluta.
Skrúðgangan hefst kl. 14.30 frá
gatnamótum Hofsstaðarbrautar og
Karlabrautar. Gengin verður Karla-
braut, Móaflöt og Garðaflöt að
hátíðarsvæðinu við Garðaskóla. Kl.
15 hefjast svo hátíðarhöld við
Garðaskóla með fánahyllingu og
helgistund. Formaður íþrótta- og
tómstundaráðs setur samkomuna
en síðan mun forseti bæjarstjómar
flytja ávarp. Að því loknu mun fjall-
konan ávarpa samkomuna. Keppt
verður í knattspymu yngri flokka
og gestir geta skemmt sér í skáta-
tívolíi og sölutjöldum Stjömunnar.
Klukkann 16 hefst kaffisala
Kvenfélagsins í Garðalundi og
16.45 skemmtidagskrá í íþróttahús-
inu Ásgarði. Þar mun m.a. Lúðra-
sveitin Svanur leika, haldin verður
danssýning, Stjaman verður með
fimleikasýningu og bæjarstjómin
keppir gegn fulltrúum félaga í
körfubolta. Klukkann 20 hefst svo
diskótek í Garðalundi fyrir alla
bæjarbúa og mun það standa til
23.30.
Hátíðardagskrá á
Kópavog'svelli
í Kópavogi munu hátíðarhöldin
heQast kl. 10.30 með víðavangs-
hlaupi frá Vallargerðisvelli. Skrúð-
gangan hefst síðan kl. 13.30 frá
Kópavosskóla en síðan verður há-
tíðardagskrá á Kópavogsvelli.
Unglingahljómsveita-
keppni í Hafnarfirði
í Hafnarfirði hefst 17. júní mótið
í frjálsum íþróttum kl. 10 í Kapla-
krika en þar verður einnig keppt í
knattspymu. 13.30 verður safnast
saman í Hellisgerði og mun Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar leika þar undir
stjóm Hans Ploder. 13.45 verður
helgistund í Hellisgerði.
Skrúðgangan hefst kl. 13.45 frá
Hellisgerði. Gengið verður upp
Reykjavíkurveg, Flatahraun, Álfa-
skeið, Sólvang, Tjamarbraut,
Lækjargötu og Fjarðargötu að
Thorsplani. Þar hefst hátíðarsam-
koma kl. 15. Þar verður m.a. flutt
ávarp fjallkonu og skemmtiatriði
verða í höndum Eyjólfs Kristjáns-
sonar, söngvara, trúða frá Leik-
félagi Hafnarfjarðar, Bjarkanna,
Stulla og fjölskyldu, Brandarakarl-
anna frá L.H. og hljómsveitarinnar
Greifanna.
Kl. 18 keppa unglingahljómsveit-
ir á Thorsplani en kvöldskemmtunin
hefst þar kl. 19.45. Kvöldskemmt-
unin stendur til 00.30 og verður
margt til skemmtunar. Greifamir,
Foringjamir og sigurvegaramir úr
hljómsveitakeppninni leika fyrir
dansi.
Karamellurígning á
Akureyrarvelli
Hátíðarhöld hefjast á Akureyri
með hópakstri Bflaklúbbs Akur-
eyrar kl. 9.30.
Bömum verður boðið upp á
skemmtisiglingu kl. 10.15. Kl. 14
fer skrúðganga frá Ráðhústorgi á
íþróttavöllinn þar sem hátíðardag-
skrá hefst kl. 14.30 með því að
séra Þórhallur Höskuldsson flytur
helgistund. Margrét Eyfells flytur
ávarp flallkonu og félagar úr júdó-
deild KA leika listir sínar. Ámar
Bjömsson flytur hátíðarræðu og
Guðlaugur Þór Þórðarson flytur
ræðu fyrir hönd nýstúdenta. Kara-
mellum mun rigna úr flugvél um
kl. 15.45 á Akureyrarvelli og félag-
ar úr „old boys“ sem em úr röðum
KA og Þórs spila fótbolta.
Skemmtidagskrá hefst kl. 17 á
Ráðhústorgi með söng þýsks
drengjakórs. Auk hans skemmta
Stuðmenn og Presleyæskan
skemmta.
Hlé verður gert á hátíðarhöldum
til kl.21 en þá sýnir leikfélagið Saga
nokkur atriði. Dansleikur verður
síðan um kvöldið með Sniglaband-
inu og Stuðmönnum til kl. 01.30.
Karnivalormur í
göngunni á Akranesi
Á Akranesi hefst þjóðhátíðardag-
urinn með fánahyllingu á Akratorgi
kl. 10. Þar mun Lúðrasveit Akra-
ness leika ásamt Skólahljómsveit
Akraness undir stóm Guðmundar
Norðdahl. Bæjarstjóri setur síðan
hátíðina og Kirkjukór Akraness
syngur. Að setningarathöfninni lok-
inni verður hátíðarguðþjónusta í
Akraneskirkju.
Kl. 13 hefst ókeypis kvikmynda-
sýning fyrir böm í Bíóhöllinni.
14.30 hefst skrúðganga frá Akrat-
orgi. í skrúðgöngunni mun geta að
iíta skrautbúin ungmenni og mun
risastór „kamival-ormur" verða
með í göngunni. Lúðrasveitin mun
leika létt göngulög og hestamenn
frá Dreyra fara með göngunni.
Gengið verður upp Kirkjubraut, inn
Stillholt, upp Garðabraut og inn á
íþróttavöll.
Dagskráin á íþróttavellinum
hefst kl. 15.15 með fullveldisræðu
Ingunnar Jónasdóttur, kennara, en
síðan tekur við ávarp fjallkonu.
Hestamen sýna fáka sína og krökk-
um gefst kostur á að fara á hestbak.
Að þessu loknu verður gert hlé
fram til kl. 20.30 en þá hefst
skemmtidagskrá í íþróttahúsinu.
Meðal þeirra sem þar munu koma
fram era Ríó Tríó en hljómsveitin
Tíbrá mun síðan leika fyrir dansi
til kl. 01.00.
Ratleikur um alla
Keflavík
í Keflavík hefst dagskráin kl. 10
en þá hefst við íþróttahúsið ratleik-
ur um Keflavík fyrir alla fjölskyld-
una. Kl. 13 verður hátíðarmessa í
Keflavíkurkirkju og mun forseti
bæjarstjómar flytja þar hátíðar-
ræðu. Síðan verður gengið í
Nýtt símanúmer hefur tekið gildi
fyrir allar deildir Iðnaðarbankans í Lækjargötu 12.
• Almenn afgreiðsla
• Erlend viðskipti
• Lánasvið
• Rekstrarsvið
• Markaðssvið
• Lögfræðisvið
• Verðbréf og innheimtur
• Endurskoðun
• Fjármálasvið
• Bankastjórn
• Iðnlánasjóður
Lækjargötu 12. Sími 6918 00.
3
S