Morgunblaðið - 17.06.1987, Page 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1987
Evrópukeppnin U-21:
Leikur Sigurður Jónsson
með gegn Dönum?
ÍSLENSKA landsliöiö í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum
tuttugu og eins árs og yngri
leikur gegn Dönum á Akureyri
eftir viku. Þetta verður þriöji
leikur íslands í Evrópukeppn-
• Arnþór Ragnarsson
Sund:
Arnþór
, setti
íslands-
met
ARNÞÓR Ragnarsson, SH,
setti íslandsmot í 60 metra
bringusundi á alþjóðlegu móti
í Örbyhus f Sviþjóö um helg-
ina.
Arnór synti á 31,7 sekúnd-
um, en met Eðvarðs Þórs
Eðvarðssonar var 32,04. Þrett-
án krakkar úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar tóku þátt í mót-
inu.
inni að þessu sinni, en í fyrra
tapaði liðið 2:0 fyrir Finnum í
Finnlandi og 4:0 fyrir Tókkum
á Akureyri. íslenski hópurinn
verður valinn í dag eða á
morgun, en þar sem flestir
leikmennirnir, er koma til
greina, leika með félögum
sínum f 1. eða 2. deild um
helgina, koma strákarnir ekki
saman fyrr en eftir helgi.
Leikir f Evrópukeppninni fara
fram á tveimur árum, en sam-
kvæmt reglunum eru leikmenn,
sem eru löglegir í fyrsta leik, lög-
legir út keppnina. Það þýðir að
strákar, sem ekki voru orðnir tutt-
ugu og eins árs 1. ágúst í fyrra,
koma til greina í liðið. Þá er leyfi-
legt að hafa tvo eldri leikmenn.
Guðni Kjartansson velur liðið og
er víst að hann verður að gera
nokkrar breytingar á því frá leikjun-
um gegn Finnum og Tókkum. Þá
fékk liðið mörg mörk á sig og því
þarf að styrkja vörnina. Sigurður
Jónsson lék ekki með liðinu í fyrra,
en að öllu forfallalausu ætti hann
að vera með nú og leikur þá von-
andi á miðjunni.
Margir ungir og góðir strákar
leika í 1. deild og má þar nefna
markmennina Hauk Bragason KA
og Pál Ólafsson KR, varnarmenn-
ina Júlíus Tryggvason Þór, Þor-
stein Guðjónsson KR, Þorstein
Halldórsson KR, Henning Henn-
ingsson FH og Jóhann Magnússon
ÍBK, miövallarleikmennina Andra
Marteinsson KR, Gauta Laxdal KA,
Ólaf Þórðarson ÍA, Siguróla Kristj-
ánsson Þór, Gunnar Skúlason KR,
Snævar Hreinsson Völsungi og
Eirík Björgvinsson Völsungi, og
framherjana Jón Grétar Jónsson
Val, Hlyn Birgisson Þór og Þorvald
Örlygsson KA.
Uppistaða liðsins verður örugg-
lega úr þessum hópi leikmanna,
en ekki er ólíklegt að annar hvor
eldri leikmannanna eða jafnvel
bóðir verði varnarmenn.
• Leikur Slgurður Jónsson á miðjunnl með U-21 landsliðlnu gegn
Dönum f næstu viku?
Beíntínnáborð...
HRAÐFLUTn/nOAR
BORGARTÚN 33. 105 REYKJAVÍK. simar: 27622/27737
Með DHL hraðflutningum k.emst sending
þín beint inná borð viðtakanda eins fljótt
og örugglega og hugsast getur.
Eitt símtal og DHL sækir skjölin eða
pakkann til þín. Hann er síðan í öruggum
höndum stærstu hraðflutningsþjónustu
heims.
DHL sér um allt! Hafðu samband og
kynntu þér þjónustu okkar — hún
kemur á óvart.
Þjóðar-
átak gegn
hreyfingar-
leysi
TRIMMNEFND íþróttasam-
bands fslands undirbýr nú
annað árið f röð þjóðarátak
gegn hreyfingarleysi undir
kjörorðinu: Heilbrigt Iff — hag-
ur allra.
Samvinna er í starfi þessu
með eftirtöldum aðilum:
(þróttasambandi fslands —
trimmnefnd, Ungmennafélagi
íslands, Ólympíunefnd fslands,
heilbrigðisráðuneytinu,
menntamálaráðuneytinu, fé-
lagsmálaráðuneytinu og
Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga.
Efnt verður til „göngu- og
skokkskóla" um land allt á tíma-
bilinu 1,—19. júní og síðan
verður „göngu- og skokkhelgi"
20. og 21. júní nk. og munu
íþrótta- og ungmennafélög sjá
um skipulag og framkvæmd,
hvert í sinni heimabyggð.
Gefinn er út sérstakur
fræðslubæklingur fyrir almenn-
ing og verður hann sendur
öllum íþrótta- og ungmennafé-
lögin svo og heilsugæslustöðv-
um, íþróttahúsum, sundstöð-
um og íþrótta- og
æskulýðsráðum næstu daga.
Vísast hér með til þessara
staða.
Vonast er til að þetta þjóð-
arátak gegn hreyfingarleysi
verði sem flestum hvatning til
þess að halda áfram. Á Jóns-
messu 1986 voru þrír trimm-
dagar með sama kjörorði:
„Heilbrigt líf — hagur allra" og
tókst vel, og vitað er að þeim
fer fjöigandi sem leggja stund
á líkams- og heilsurækt með
iðkun ýmissa íþróttagreina sér
til heilla og hagsbóta — en tak-
markið er að fá enn fleiri í þann
hóp, á hvaða aldri sem er.
Álafoss-
hlaupið
ekki í dag
ATHYGLI hlaupara og skokk-
ara er vakin á þvf að Álafoss-
hlaup FRÍ fer ekki fram f dag,
17. júnf, eins og auglýst er f
dagskrá Vfðavagnshlaupa.
Þann 20. júní fer aftur á
móti fram Ólympíuhlaupið sem
er almenningshlaup. Það er 10
km götuhlaup og hefst það á
frjálsíþróttavellinum í Laugard-
al og lýkur þar einnig.
1. deild:
KR og Þór
á morgun
SJÖTTA umferð 1. deildar
karla f knattspyrnu hefst
klukkan 20 á morgun með leik
KR og Þórs á KR-velli.
KR er í 2. sæti deildarinnar
með 11 stig, en Þór er í sjötta
sæti með sex stig, sigraði bæði
Fram og Akranes.
Á föstudaginn leika Víðir og
Keflavik, KA og Völsungur og
FH og Fram, en umferðinni lýk-
ur á sunnudaginn með leik Vals
og (A.