Morgunblaðið - 26.06.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
141. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stefnuræða Margaret Thatcher:
Umbylting í mennta-
o g húsnæðismálum
London, Reuter.
RÍKISSTJÓRN Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, hyggst koma á rót-
tækum breytingum á húsnæðis-
og menntakerfinu auk þess sem
lög um útsvar tíl sveitarfélaga
verða tekin til endurskoðunar.
Kom þetta fram í stefnuræðu
forsætisráðherrans í gær sem
Elísabet Bretadrottning flutti
samkvæmt venju við upphaf
þinghalds. Neil Kinnock, leiðtogi
Verkamannaflokksins, gagn-
rýndi harðlega stefnu stjórnar-
innar.
Thatcher hyggst afnema eignar-
skatt sveitarfélaga og taka þess í
stað upp nefskatt á alla þá sem
orðnir eru fullra 18 ára. Að auki
Suður-Afríka:
Níu náma-
menn farast
Jóhannesarborg, Reuter.
NÍU verkamenn létust og 25
slösuðust í námuslysi skammt
frá Jóhannesarborg í gær.
Mennimir voru við störf í
Western Deep Levels-nám-
unni, sem er dýpsta gullnáma
heims, er jarðskjálfti reið
yfir.
Atta hörundsdökkir verka-
menn og einn hvítur létust er
loft námunnar hrundi yfir þá.
Slysið varð nærri botni námunn-
ar, sem er rúmir þrír kílómetrar
að dýpt, og tókst giftusamlega
að ná öllum verkamönnunum
upp á yfirborðið. Enginn þeirra
25 sem slösuðust er talinn í
iífshættu.
Slys eru tíð í gullnámum í
Suður-Afríku og hafa talsmenn
verkalýðsfélags námamanna
fullyrt að öryggiskröfum sé ekki
fylgt.
munu ríkisreknir skólar geta komist
beint undir breska menntmálaráðu-
neytið í stað þess að heyra undir
sveitarfélögin. Þá vill stjómin gefa
því fólki sem nú býr í leiguhúsnæði
kost á að eignast það.
Neil Kinnock fordæmdi þá stefnu
að taka upp nefskatt og gagnrýndi
stjómina harðlega fyrir að ætla að
neyða almenning til að greiða fyrir
læknisþjónustu og menntun. Þá
gagnrýndi hann stefnu stjómarinn-
ar í húsnæðismálum og sagði að
með henni væru réttindi leigjenda
fyrir borð borin.
Denis Healey, fyrrum ráðherra
Verkamannaflokksins og einn helsti
talsmaður hans í utanríkis- og ör-
yggismálum, tilkynnti í gær að
hann hygðist hætta beinum afskipt-
um af stjómmálum.
Sjá ennfremur „Róttækustu
breytingar____“ á bls. 20 og 21.
Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, kemur til setningar
þingsins í gær. Til vinstri við hana er Neil Kinnock, formaður Verka-
mannaflokksins, og fyrir aftan þau er Sir Geoffrey Howe utanríkis-
ráðherra.
Norrænir bankar:
Samvinna
við Rússa
Helsinki, Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fjórir
norrænir bankar veiti ráðgjöf
varðandi fyrirhuguð samstarfs-
verkefni norrænna og sovéskra
fyrirtækja.
Talsmaður fínnska Alþýðubank-
ans skýrði frá því í gær að sérstakur
samningur þar að lútandi hefði þeg-
ar verið undirritaður. Auk fínnska
bankans eru Bergens Bank, Privat-
banken í Danmörku, og Skandinav-
iska Enskilda Banken í Svíþjóð
aðilar að samningnum.
Norrænu bankamir munu veita
ráðgjöf um val á samstarfsverkefn-
um norrænna og sovéskra fyrir-
tækja. Að auki munu þeir kanna
hvemig fyrirtækin geta best nýtt
sér þá fjárfestingarmöguleika sem
fyrir hendi em.
Mikhail Gorbachev á miðstj órnarfundi:
Skríffinnska og aftur-
hald hindra umbætur
Krefst róttækra hagkerfisbreytinga
Moskvu, Reuter.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi
sovéska kommúnistaflokksins,
krafðist þess í gær að þegar f
stað yrði hrundið í framkvæmd
grundvallarbreytingum á hag-
kerfi Sovétríkjanna. Gorbachev
ávarpaði miðstjórn kommúnista-
flokksins og sagði skriffinnsku
og afturhald standa í vegi um-
bóta. Tass-fréttastofan sagði
leiðtogann hafa boðað aukna
sjálfsstjórn ríkisfyrirtækja og
ýmsar aðgerðir til að tryggja
aukið Iýðræði.
„Breytinga' hefur þegar orðið
vart í þessa veru en þær hafa enn
ekki verið djúpstæðar," sagði Gorb-
achev. Hvatti hann til endurskipu-
lagningar efnahagslífsins og
fráhvarfs frá miðstýringu. Þá
kvaðst hann ennfremur telja nauð-
synlegt að breyta framleiðsluskipu-
lagningu ríkisfyrirtækja á þann veg
að tekin yrði upp aukin sjálfsstjóm.
Nafngreindi hann þá menn sem
hann taldi að hefðu gerst sekir um
mistök í starfi og lét að því liggja
Waldheim í Páfagarði:
„Þetta er svívirða“
- segir Yitzhak Shamir
London, Páfagarði, Reuter.
FYRRUM fangar i útrýmingar-
búðum nazista höfðu uppi
mótmæli í Róm og gyðingaleið-
togar víða um heim mótmæltu í
gær harðlega opinberri heim-
sókn Kurts Waldheim, forseta
Austurríkis, til Páfagarðs. Töldu
þeir heimsóknina verða til að
skaða samskipti gyðinga og kaþ-
ólsku kirkjunnar en þau hafa
batnað verulega síðastliðna tvo
áratugi. Forsætisráðherra ísra-
els, Yitzhak Shamir, var mjög
harðorður.
„Þetta er svívirða. Það er hægt
að túlka þetta sem réttlætingu á
þeim glæpum sem Waldheim hefur
verið ásakaður um“, sagði forsætis-
ráðherrann við fréttamenn í gær.
Israel Singer, aðalritari Alheims-
sambands gyðinga, sagði það
ótrúlegt að páfi skyldi ekki minnast
á þær skelfílegu þjáningar sem
gyðingar hafa þurft að þola.
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels, er staddur í opinberri heim-
sókn í Frakklandi. „Þegar tekið er
tillit til vissra efasemda varðandi
hlutverk Páfagarðs í helför gyðinga
í stríðinu og þess að ríkið hefur
ekki stjómmálasamband við ísrael
þá fínnst okkur að páfí ætti að
íhuga stefnu sína vandlega," sagði
Peres.
Kaþólskir biskupar í Frakklandi
hafa gagnrýnt heimsóknina og hol-
lenski sendiherrann í Páfagarði var
ekki viðstaddur móttöku til heiðurs
Waldheim.
Talsmenn Páfagarðs segjast
undrandi og hryggir yfír þessum
viðbrögðum; heimsóknin sé aðeins
liður í eðlilegum samskiptum við
Austurríki.
Sjá einnig „Heimsókn Wald-
heims ...“ á bls. 22.
m
Reuter
Hópur gyðinga heldur á loft spjöldum til að mótmæla opinberri
heimsókn Kurts Waldheim til Páfagarðs í gær.
að andstaða við umbótaherferðina
yrði ekki liðin.
Fjölmargir sovéskir hagfræðing-
ar hafa að undanfömu haidið því
fram að gera þurfi róttækar breyt-
ingar á miðstýrðu efnahagslífínu
ef bæta eigi iðnframleiðslu og
neysluvaming. Ræða Gorbachevs í
gær gefur til kynna að sjónarmið
þeirra hafi orðið ofan á en vitað
er að embættismenn innan stjóm-
kerfísins em margir hverjir andvígir
því að horfíð verði frá miðstýringu
þar eð völd þeirra munu óhjákvæmi-
lega skerðast. „Byltingarkenndar
umbætur hafa leitt í ljós þær and-
stæður sem em milli krafna um
endumýjun og uppbyggingu annars
vegar og íhaldssemi, sjálfsdekmnar
og stöðnunar hins vegar," sagði
Gorbachev.
Miðstjómin hefur fjallað um
lagafmmvarp um breytt rekstrar-
fyrirkomulag ríkisfyrirtækja. Þegar
frumvarp þetta var fyrst kynnt
vísuðu fylgismenn Gorbachevs því
á bug þar eð þeim þótti það ekki
ganga nógu langt. Hagfræðingar
sem fylgja umbótaherferð Gorbach-
evs telja að enn hafí stefna leið-
togans ekki haft tilætluð áhrif og
hafa þeir bent á að sjálft valdakerf-
ið standi í vegi fyrir framfömm.
Harðlínumenn og umbótasinnar
takast því á og bíða menn spenntir
eftir því hvort miðstjómin samþykki
að takmarka völd embættismanna
í Moskvuborg og taki upp verðlags-
og framleiðslukerfi sem byggist á
framboði og eftirspum.
Sjá ennfremur „Uppgjörið við
arfinn“ á bls. 22.