Morgunblaðið - 26.06.1987, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1987
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1987
25
lHttjgtisiHfafeifr
Útgefandi
Framkvœmdastjórl
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstrœti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgrelösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. i iausasölu 50 kr. eintakiö.
Nú er að hrökkva
eða stökkva
ófíð um myndun nýrrar
ríkisstjómar tekur á sig
ýmsar myndir. Yfírlýsingar
stjómmálamanna að loknum
viðræðufundum em mismun-
andi loðnar og oftar en einu
sinni á síðustu dögum hafa
þeir sagt, að til úrslita verði
eða hljóti að draga næsta dag.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit sitj-
um við enn án annarrar ríkis-
stjómar en þeirrar, sem bíður
eftir því einu að fá leyfí til að
hætta.
í stjómlögum okkar em
engin ákvæði um þær leiðir,
sem famar skuli við myndun
ríkisstjóma, né að það skuli
gert innan ákveðins frests að
loknum kosningum. Með at-
kvæði sínu ráða kjósendur því,
hvort stjómmálamönnum er
auðvelt eða erfítt að ná saman
nægum meirihluta á þingi að
kosningum loknum; en af
þingræðisreglunni leiðir, að
engin ríkisstjóm getur setið
nema sú, sem meirihluti þing-
manna styður eða þolir. Þá er
það talin venja í íslenskri
stjómskipun, að forseti skipi
ekki utanþingsstjóm fyrr en á
það hefur reynt, hvort minni-
hlutastjóm kemst á laggimar
og hefur starfsfrið.
Kjósendur gefa stjómmála-
mönnunum spilin, sem þeir
hafa í höndum til að láta
stjómarmyndunar-kapalinn
ganga upp. Spilin vom óvenju-
lega lítið samstæð að þessu
sinni, þannig að minnst þrír
stjómmálaforingjar og flokkar
þurfa að leggjast á eitt til að
meirihluti myndist á þingi.
Eftir kosningar var sú skoðun
almenn, að ekki ætti að hafa
uppi strangar kröfur um skjóta
niðurstöðu um stjómarmynd-
un. Fyrir þremur vikum var
hins vegar þannig komið, að
hér á þessum stað var fullyrt,
að þolinmæði fólks væri á þrot-
um. Þá sagði Morgunblaðið:
„Þess verður ekki langt að bíða
að krafan á hendur flokks-
foringjunum um að þeir komi
sér saman um nýja ríkisstjóm
verði bæði almenn og sterk."
Óhætt er að fullyrða, að þessi
stund sé nú upp mnnin. Æ
fleiri spyija á þessa leið: Vita
mennimir ekki að þeir em
kosnir til að koma sér saman
um starfhæfa ríkisstjóm?
Valda þeir ekki einu sinni
þessu fmm-verkefni sínu?
Öllum var ljóst, að það yrði
erfítt fyrir Alþýðuflokk, Fram-
sóknarflokk og Sjálfstæðis-
flokk að ná samkomulagi um
málefni og menn. Ætíð vakna
spumingar um hvaða leið
heppilegast er að fara til að
samningar takist. Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Al-
þýðuflokksins, tók við forystu
í stjómarmyndunarviðræðum
eftir að þeir Steingrímur Her-
mannsson og Þorsteinn Páls-
son höfðu báðir gegnt því
hlutverki. Hver þeirra hefur
haft sinn hátt á viðræðunum.
Jón Baldvin þurfti ekki að
verja löngum tíma til þess að
komast að því við hvaða flokka
hann ætti að ræða. Að ósk
hans vom skipaðar nefndir til
að fást við eitt og annað, sem
óhjákvæmilegt er að taka á
við myndun ríkissijómar. Með
hliðsjón af framvindunni er
eðlilegt, að spurt sé, hvort
undir forystu Alþýðuflokksins
hafí ekki verið færst of mikið
í fang við að ná fram niður-
stöðu um einstök málefni, sem
eðli málsins samkvæmt em
hversdagsleg viðfangsefni
ríkisstjóma og ráðherra. í
stjómarmyndunarviðræðum
em menn ekki að semja hand-
bók fyrir ríkisstjóm heldur
skipa málum á þann veg, að
pólitísk samstaða sé um skýrar
meginlínur.
I viðræðunum undir stjóm
Jóns Baldvins Hannibalssonar
hafa skipst á skin og skúrir.
Flestir áttu til að mynda von
á því, að í gær yrði það endan-
lega afráðið, hvort Alþýðu-
flokkur, Framsóknarflokkur
og Sjálfstæðisflokkur gengju
til stjómarsamstarfs. Það
gerðist ekki en verkstjóri við-
ræðnanna sagðist á hinn
bóginn vera léttur í skapi eftir
fundinn, en í fyrradag sagðist
hann vera reiður, þegar hann
kvaddi viðmælendur sma og
talaði við blaðamenn. A hinn
bóginn réðst það ekki í gær,
hvort flokkamir mynduðu
stjóm eða ekki. Ákvörðuninni
um það lykilatriði var enn
skotið á frest.
Þófíð um það, hvort Al-
þýðuflokkur, Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur
ætla að ganga til samstarfs
um meirihlutastjóm hefur
staðið nægilega lengi. Nú er
að því komið, að flokkamir
hrökkvi eða stökkvi.
Tillaga Bandaríkjamanna samþykkt á ársfundi hvalveiðiráðsins;
Ríkissljóm íslands verður ráð-
lagl að afturkalla leyfi til veiða
Boumemouth, frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins
ALÞJÓÐA hvalveiðiráðið mun sennilega í dag samþykka til-
lögu þess efnis að hvalveiðar íslendinga i vísindaskyni
samræmist ekki tillögu þeirri sem samþykkt var á síðasta
ársfundi ráðsins um sérstaka undanþágur til hvalveiða í þágu
vísinda. í framhaldi af því verður ríkisstjóm íslands ráðlagt
að afturkalla þau leyfi sem hún hefur gefið til vísindaveiða.
Tillaga þessi, sem Ástralía hefur
lagt fram, kemur í kjölfarið á sam-
þykkt tillögu Bandarílq'amanna hér
í gær um að hvalveiðiráðið fjalli um
allar áætlanir um rannsóknir á hvöl-
um og geti tilkynnt þjóðum ef þær
eru ekki að mati ráðsins innan við-
miðana sem vísindanefnd ráðsins
setur. Nær samhljóða tillögur voru
lagðar fram af Bandaríkjamönnum
og Bretum um að átelja vísindaveið-
ar Japana og Kóreumanna þrátt
fyrir að þeirra áætlanir séu talsvert
frábruðgnar áætlunum íslendinga.
Umræðan um sérstök leyfr til
vísindaveiða var tekin upp að nýju
í gær og þar lögðu Japanir fram
breytingartillögu við tillögu Banda-
ríkjamanna sem gekk lengra í þá
átt að auka viðmiðanir vísinda-
nefndaráðsins í umfjöllun um
rannsóknaráætlanir en tillaga
Norðmanna daginn áður gerði. Ekki
var gert ráð fyrir að ráðið tæki
afstöðu til niðurstaðna vísinda-
nefndarinnar, en íslendingar hafa
lagt fram lögfræðilegan rökstuðn-
ing fyrir að slíkt bijóti í bága við
stofnsamning ráðsins.
Engar umræður urðu um þessa
tillögu því eftir að japanska sendi-
nefndin hafði fylgt henni úr hlaði
krafðist vestur-þýska nefndin þess
að umræðunni yrði lokið og strax
gengið til atkvæða. íslenska nefnd-
in mótmælti því ásamt öðrum en
tillaga Þjóðverjanna var samþykkt
í atkvæðagreiðslu.
Eftir það voru greidd atkvæði
um breytingatillögu Japana sem var
í níu liðum og var atkvæðagreiðslan
umn hvem lið fyrir sig. Einn liður-
inn var samþykktur sem gerði ráð
fyrir nákvæmara orðalagið í banda-
rísku tillögunni en hinir voru felldir.
Að því loknu var gengið til at-
kvæða um tillögu Bandaríkjamanna
og var hún samþykkt með 19 at-
kvæðum gegn 6, en 7 þjóðir sátu
hjá. Þær þjóðir sem samþykktu til-
löguna vom: Argentína, Antigu-
a & -
Barbuda, Ástralía, Brasilía,
Danmörk, Egyptaland, Finnland,
Þýskaland, Indland, Mónakó, Hol-
land, Nýja Sjáland, Oman, Seyselle-
eyjar, Suður-Afríka, Svíþjóð, Sviss,
Bandaríkin og Bretland. Á móti
vom Chile, ísland, Japan, Kórea,
Noregur, Sovétríkin, en Kína,
Frakkland, Mexíkó, St. Lucia, St.
Vincent, Solómoneyjar og Spánn
sátu hjá.
í samtali við Morgunblaðið eftir
atkvæðagreiðsluna sagði Ámi Kol-
beinsson, ráðuneytisstjóri sjávarút-
vegsráðuneytisins, og einn
nefndarmanna hér, að ráðið hefði
lengi skipst í hvalfriðunarsinna og
aðra. Friðunarsinnar hafa haldið
saman og undanfarið haft meiri-
hluta í ráðinu og út frá því mætti
segja að niðurstaðan hefði ekki
komið á óvart. Hinsvegar hefðu
íslendingar vonast til þess fram að
síðustu stundu að menn myndu hika
við að bijóta stofnsamning ráðsins
og þar af leiðandi teygja sig í átt
til samkomulags og reyna að við-
halda því trausti sem þó væri eftir
milli aðildaþjóðanna í þessu ráði.
Umhverfisvemdarsamtök fögn-
uðu í gær niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar um tillögu Bandaríkja-
manna. David McTaggart formaður
Greenpeace-samtakanna sagði að
þetta væri mjög eindregin skilaboð
til hvalveiðiþjóða frá öðmm þjóðum
um að hætta að slátra hvölum í
vísindaskyni og þær þjóðir sem
vildu halda áfram að misnota bæði
hvali og vísindi yrðu nú að gera
slíkt undir fordæmingu annarra
meðlima hvalveiðiráðsins og al-
menningálits heimsins.
Crage Van Note, varaforseti
Monitorsamtakanna, sagði við
Morgunblaðið að með þessu hefði
ráðið skuldbundið sig til að sjá svo
um að lönd fæm eftir ströngum
vísindalegum stöðlum í rannsóknum
sínum, en greinilegt væri af skýrslu
vísindanefndarinnar nú að viðkom-
andi Iönd gerðu það ekki. Van Note
sagði, að með samþykki þessarar
tillögu hefði ráðið aukið á virðingu
sína og áhrif með því að koma í
veg fyrir misnotkun hvalveiðiþjóða
á götum í samningi og samþykktum
sínum. Eins og allir vissu væri eng-
inn tilgangur þjóðanna með vísinda-
veiðum.
íslenska sendinefndin lagði í gær
fram tillögu um að þar sem hún
og aðrar nefndir héldu því fram að
tillaga Bandaríkjamanna bryti í
bága við stofnsamninga ráðsins
verði valdir sérfræðingar í iögum
til að fjalla um þetta álitamál og
skila áliti fyrir næsta ársfund ráðs-
ins. Ef þeir komist að þeirri niður-
stöðu að tillagan sé ólögleg komi
þeir fram með málamiðlunartillögu.
Gera má ráð fyrir eðli málsins
samkvæmt að ef þessi tillaga verði
samþykkt muni ísland ekki ganga
úr ráðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir
næsta ársfund. Ámi Kolbeinsson
vildi í gær engu spá um hvaða af-
greiðslu tillagan fengi. Aðrar þjóðir
sem voru á móti tillögu Bandarílq'a-
manna af sömu ástæðu og íslend-
ingar hafa ekki látið í ljós hug sinn
varðandi áframhaldandi veru í ráð-
inu, þó má geta þess að Japanska
sjómannasambandið hefur krafíst
þess að Japan gangi úr ráðinu á
grundvelli þess að hvalveiðibannið
sjálft sé ólöglegt og hafí engan
vísindalegan grundvöll.
Ljóst er að ef ísland brýtur í
bága við vilja hvalveiðiráðsins, eða
gengur úr því og heldur áfram að
veiða hvali, kunna Bandaríkjamenn
að grípa viðskiptaþvingana. Morg-
unblaðið óskaði í gær eftir viðtali
við formann bandarísku sendi-
nefndarinnar eða fulltrúa hans til
að spyija hann um ýmis atriði varð-
andi tillögu Bandarílq'amanna og
hugsanlegar viðskiptaþvinganir, en
var neitað á þeirri forsendu að öll
sendinefndin væri upptekin á fund-
um allan daginn.
Bandaríkjamenn vildu ekki und-
irrita hafréttarsáttmálann vegna
þess að hann gefur alþjóðlegum
samtökum rétt til að skilgreina frið-
samlegar hafrannsóknir og haf-
rannsóknir í hemaðarlegum
tilgangi.
Halldór sagðist hafa reiknað með
að tillaga Bandaríkjamanna yrði
samþykkt. „Ég bjóst við að álíka
margir væru fylgjandi tillögunni og
á móti, en niðurstaðan varð sú að
19 þjóðir greiddu atkvæði með
henni, en 13 greiddu atkvæði á
móti eða sátu hjá. Við höfum Iagt
fram tillögu um að lögmæti þessa
verði kannað fram að næsta fundi.
Við höldum því fram að tillaga
Bandaríkjamanna, og nýframkomin
tillaga Ástralíumanna um að for-
dæma vísindaveiðar, stangist á við
stofnsamning ráðsins og höfum
Breskir vísindamenn skrifa um hvalamálið í The Times:
Viðbrögð Sir Peter Scott lýsa
samblandi raka og tilfinninga
- sem einkenna umræðuna í Hvalveiðiráðinu
Bournemoth, frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
DAGBLAÐIÐ The Times í Bret-
landi birti í gær lesendabréf frá
tveimur breskum vísindamönn-
um, sem er einskonar svar við
bréfi Sir Peter Scott í sama blaði,
þar sem hann lýsti ástæðum
sinum fyrir að skila aftur fálka-
orðunni. í bréfi sínu segja
visindamennirnir að ákvörðun
Sir Peter Scott sýni vel það sam-
bland raka og tilfinninga sem
hafi verið dæmigert fyrir um-
ræðuna í Alþjóða hvalveiðiráðinu
í nærri tvo áratugi.
Vísindamennimir tveir eru pró-
fessor R.J.H. Everton og R.R.
Anderson, sem báðir eru mjög
framarlega í líffræðirannsóknum
og voru m.a. fengnir af Norðmönn-
um 8em hlutlausir aðilar til þess
að rannsaka hrefnustofninn þar.
í bréfí sínu til The Times segja
þeir að Alþjóða hvalveiðiráðið hafí
verið stofnað til að ná fram bestu
mögulegri nýtingu á hval og ef slíkt
væri framkvæmt á réttan hátt ætti
það að tryggja viðkomu hvalastofn-
anna. Til þess að ná þessu markmiði
hefði ráðið ákveðið að banna hval-
veiðar í ágóðaskyni þar til hægt
væri að sýna nákvæmlega fram á,
á vísindalegum grundvelli, að stofn-
amir þyldu nýtingu.
Þetta, segja vísindamennimir,
krefst nákvæmrar og víðtækrar
þekkingar á_ viðkomugetu hvala-
stofnanna. Ýmislegt sé hægt að
Iæra um hvali með nútíma aðferðum
án þess að drepa þá og stundum
sé nauðsynlegt, meðan verið er að
rannsaka litla hvalastofna sem
liggja við strendur, að fylgjast
reglulega með öllum dýmm til þess
að fræðast um aldursgreiningu,
þroska og fæðingar. Samt sem áður
virðist ekki hafa verið rökstutt,
segja vísindamennimir, hvemig á
að fá þessar upplýsingar um stóra
hvalastofna í úthöfunum öðruvísi
en með krufningu á einstaka dýr-
Höfum ekkert að gera
í ráðinu verði vísinda-
starfsemin stöðvuð
- segir Halldór Ásgrímsson
„EF meirihluti Alþjóða hvalveiðiráðsins kemur í veg fyrir visinda-
starf, höfum við ekkert að gera í þessum samtökum lengur. Afleið-
ingar samþykktarinnar geta því orðið þær, að önnur aðildarríki sem
stundað hafa vísindastarfsemi, Japanir, Sovétmenn og Norðmenn,
segi sig einnig úr ráðinu. Þá bera Bandaríkjamenn ábyrgð á að
hafa eyðilagt Alþjóða hvalveiðiráðið og unnið með þvi mikiím skaða,“
sagði Halldór Ásgrimsson, sjávarútvegsráðherra.
fengið lagalegar greinargerðir um
það, bæði frá íslenskum og erlendum
lögfræðingum. Þeir hafa allir komist
að sömu niðurstöðu. Okkur þykir því
rétt að láta reyna á það hvort aðild-
arríki Alþjóða hvalveiðiráðsins vilja
leita sér lögfræðilegra ráðlegginga,
en þau hafa talið sér fært að ganga
til atkvæðagreiðslu um tillögu
Bandaríkjamanna án þess.“
Halldór sagði að íslendingar hefðu
fullan rétt til að stunda hvalveiðar
áfram, jafnvel þótt tillaga Ástralíu-
manna yrði samþykkt. „Okkur er
heimilt að stunda vísindalegar rann-
sóknir, samkvæmt 8. grein stofn-
samnings hvalveiðiráðsins, sem
skiptir meginmáli," sagði Halldór.
„Framhaldið ræðst síðan af því hvað
Bandaríkjamenn hyggjast fyrir. Þeir
hafa rekið þetta mál í einu og öllu
og notað mátt sinn til að hafa áhrif
á fjölda þjóða. Þennan mikla mátt
höfum við að sjálfsögðu ekki. í
Bandaríkjunum eru lög sem kveða
á um að þeir sem bijóti samþykktir
Alþjóða hvalveiðiráðsins skuli kærðir
til forseta landsins og lagt til að
brotlegar þjóðir verði beittar við-
skiptaþvingunum. Það er auðvitað
ljóst að við höfum ekki brotið gegn
stofnskrá ráðsins eða samþykktum
þess. Telji ráðið hins vegar svo vera,
þá gætu Bandarílq'amenn litið á ís-
lendinga sem brotlega, en sú skoðun
þeirra verður þá byggð á grundvelli
ólöglegrar tillögu."
Halldór Ásgrímsson kvað of
snemmt að segja til um hvemig ís-
lendingar mundu bregðast við
hótunum Bandarílqamanna um við-
skiptaþvinganir. „Ég vil ekki lúta
hótunum, en hins vegar verðum við
íslendingar að vega hluti og meta
eftir aðstæðum. Hver þjóð verður
að getað stundað vísindastarfsemi
með sjálfstæðum hætti. Ég vil engri
þjóð svo illt að vísindastarfsemi
hennar sé ákveðin með atkvæða-
greiðslu á alþjóðavettvangi, þar sem
pólitískur þiýstingur hefur meiri
áhrif en hlutlaust mat,“ sagði sjáv-
arútvegsráðherra.
um. Lágmarksþörf á dýrum til
slíkra rannsókna í hveiju tilfelli
ætti að vera háð hlutlægu vísinda-
legu áliti. Ef það hefði verið gert
og gefíð út af hvalveiðiráðinu varð-
andi íslensku hvalarannsóknimar
væri betur hægt að meta hvort
áætlanir íslendinga um hvalveiðar
f vísindaskyni séu eins „augljós
misnotkun" á reglum ráðsins og
Sir Peter Scott heldur fram, segja
vísindamennimir.
Vísindamennimir segja að lokum
að þessi óheppilega staða sé afleið-
ing þess að Álþjóða hvalveiðiráðið
hefur ekki komist að niðurstöðu um
hvort hvaladráp, í hvaða tilgangi
sem er, sé núna óviðunandi af sið-
fræðilegum eða mannúðarástæð-
um. Ef svarið við þessu er játandi
ætti ráðið að viðurkenna að viðmið-
anir þess séu úreltar og leggja það
niður í stað þess að reyna að rétt-
læta bann við öllum hvalveiðum
eingöngu á vísindalegum gmnni.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir AGNESI BRAGADÓTTUR
Slj órnarmyndun:
Þíða í viðræðurnar eftir
nýjar tillögur Þorsteins
SVEIFLURNAR frá degi til dags í stjómarmyndunarviðræðunum
era með ólíkindum. í fyrradag hélt Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins fund með fréttamönnum, þar sem málflutn-
ingur hans hleypti illu blóði í sjálfstæðis- og framsóknarmenn, eins
og kom fram í innlendum vettvangi í gær. í gærmorgun hittust
þeir Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin svo að máli og gerðu upp
helsta persónulega ágreining sinn, þannig að þíða komst í viðræð-
urnar á nýjan leik. Andrúmsloftið varð svo enn vinalegra á liðlega
tveggja og hálfs tíma löngum fundi formanna Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks síðdegis í gær, þar sem Þor-
steinn Pálsson lagði fram ákveðið tilboð varðandi kaupleiguíbúðir,
hann féllst á þann kost að fyrstu aðgerðir í ríkisfjármálum skili
ríkissjóði tæpum milljarði seinni hluta árs og loks greindi hann
frá því, að tíl þess að auðvelda það að samkomulag gætí tekist,
þá falli Sjálfstæðisflokkurinn frá þvi að gera tilkall tíl forsætisráð-
herraembættísins. Er talið að fundur formannanna í gær hafi orðið
til þess að skammt sé í það að ríkisstjóra þessara flokka verði
mynduð, en þetta er þó ritað með fyrirvara um að enn ein sveiflan
niður á við verði ekki í samskiptum formannanna.
Morgunblaðið/Þorkell
Margir telja að Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins
standi með pálmann í höndunum í stjórnarmyndunarviðræðunum,
eftir fund formannanna þriggja í gær, þar sem Þorsteinn bauðst
m.a. til þess fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins að falla frá kröfunni
um forsætísráðherraembættíð í næstu ríkisstjóra.
Formennimir eru einnig famir að
svara á hófsamari hátt spumingum
þess efnis hvenær ákvörðun verður
tekin um hvort þessfríkisstjóm verð-
ur mynduð, en þeir hafa gert
undanfama daga. Þeir Þorsteinn og
Steingrímur töldu á þriðjudagskvöld
að úr3lit yrðu að ráðast næsta dag.
Að kveldi miðvikudags sagði Jón
Baldvin að það myndi ráðast næsta
dag (þ.e. í gær) hvort málefnaleg
samstaða þessara þriggja flokka
næðist. í máli Jóns Baldvins í gær,
að formannafundinum loknum gætti
meiri hógværðar, er hann var spurð-
ur þessarar spumingar. Hann sagði:
„Ákvörðunin liggur ekki fyrir, en
þetta var mjög góður fundur, gott
andrúmsloft og létt yfír mannskapn-
um.“ Hann bætti við að formönnun-
um sýndist, þótt vel hefði gengið og
vel miðað, að tímaplanið hefði verið
reist á of mikilli bjartsýni og þeir
teldu að trúlega næðist ekki að kalla
saman flokksstjómir og flokksráð á
morgun, eins og stefnt hefði verið
að, en þeir héldu þeim möguleika þó
enn opnum þar til á fundi sfnum í
dag. Hann sagði að samkomulag
hefði náðst um fyrstu aðgerðir í þeim
skilningi að tölur og úrræði væru
afgreidd, en fyrirvari væri um samr-
áð við aðila utan þeirra hóps.
Hverfa frá uppstokkun
ráðuneyta
Á fundi formannanna var einnig
horfíð frá því að hrinda í fram-
kvæmd þeirri uppstokkun ráðu-
neyta, sem verið hefur mikið til
umræðu síðustu daga, samkvæmt
því sem Jón Baldvin sagði, en hann
sagði að aðilar gengju samt sem
áður út frá því sem gefnu að falla
ekki frá því áformi og setja í stjóm-
arsáttmála, ef stjómin yrði mynduð.
Heimildir mínar úr röðum sjálf-
stæðismanna herma að það hafí
komið þeim Jóni Baldvini og
Steingrími í opna skjöldu, þegar
Þorsteinn bauðst til þess að falla
frá kröfu Sjálfstæðisflokksins um
embætti forsætisráðherra. Þor-
steinn sagði í samtali við okkur
fréttamenn í gærkveldi að hann
hefði lagt fram þetta tilboð Sjálf-
stæðisflokksins til þess að greiða
fyrir því að samkomulag gæti tek-
ist með flokkunum um myndun
ríkisstjómar. Hann sagði að þessi
stjómarmyndunartilraun hefði
hangið á bláþræði í fyrradag, en
mál hefðu vissulega þokast í rétta
átt á fundi formannanna síðdegis í
gær. Það hefði verið sitt mat að
það væri mjög óheppilegt, ef þessi
tilraun hefði farið út um þúfur og
sjálfstæðismenn hefðu því viljað
leggja sitt mörkum til þess að finna
lausn á þeim ágreiningsefnum sem
uppi vom. „Við teygðum okkur í
ríkisfjármálaaðgerðum, til þess að
ná saman við sjónarmið hinna
flokkanna í því efni. Við lögðum
fram málamiðlunartillögu varðandi
kaupleiguíbúðir, sem á að tiyggja
ákveðnum fjölda kaupleiguíbúða
fyrirgreiðslu, að því tilskildu að
jafnstór fjöldi eignaríbúða í verka-
mannakerfínu fái sömu fyrir-
greiðslu. Það sem kannski hefur
valdið mestu um að þessi tilraun
hefur gengið svona upp og niður,
er að allir aðilar hafa gert tilkall
til forsætisins, en í þeim tilgangi
að auðvelda lausn málsins, þá
bauðst ég til þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn félli frá ósk um að fara
með forsætið," sagði Þorsteinn við
fréttamenn. Hann sagðist jafnframt
geta sætt sig við hvom hinna for-
mannanna sem væri sem forsætis-
ráðherra.
Kílógjald á bifreiðar
Varðandi fyrstu aðgerðir er hægt
að upplýsa hér að meginuppistaða
fyrstu efnahagsaðgerða, auk lán-
tökugjalds á erlend lán og kjamfóð-
ursgjalds, er afnám undanþága frá
söluskatti og kflógjald á bifreiðar,
sem verður að líkindum 4 krónur á
hvert kfló bifreiðar á ársgrundvelli,
þannig að 2 krónur yrðu lagðar á
hvert kfló síðari hluta þessa árs.
Viðmælendur mínir í gærkveldi
vom sammála um að leikur for-
manns Sjálfstæðisfíokksins á
þessum fundi formannanna hafí
verið mjög sterkur, þar sem hann
hafí í helstu ágreiningsmálum kom-
ið fram með útrétta sáttahönd.
Ekki em þó allir á einu máli um
að tillögur Þorsteins muni greiða
fyrir því að endanlegt samkomulag
takist og telja sumir að vandamál
krata hafi aukist til muna við þess-
ar tillögur. Sjálfstæðismenn telja
að málamiðlunartillaga Þorsteins
varðandi kaupleiguíbúðir, sem gerir
ráð fyrir því að 50 kaupleiguíbúðir
verði byggðar á ári næstu 2 árin,
komi það mikið til móts við kaup-
leiguíbúðaáætlun krata, að ekki sé
stætt á að láta stranda á ágreiningi
um hana.
Alþýðuflokksmenn sem ég ræddi
við í gærkveldi em þó annarrar
skoðunar og segja þeir einfaldlega
að þessi málamiðlunartillaga Þor-
steins gangi ekki upp. Þeir benda
á að tillaga hans geri ráð fyrir því
að verkamannabústaðir og kaup-
leiguíbúðir njóti sömu lánskjara
næstu tvö árin. Hér sé verið að
bera saman hluti sem ekki séu sam-
bærilegir. Segjast þeir einungis
hafa farið fram á að kaupleigu-
íbúðakerfíð, sem þeir segja að sé
þrautreynt víða annars staðar, fengi
tækifæri í tvö ár, til þess að kanna
hvort það ætti sér tilvemrétt hér á
landi. Því hafi þeir farið fram á
þessa sérstöku lánafyrirgreiðslu í
tvö ár.
Sjálfstæðismenn segja að það,
að þeir hafí nú teygt sig upp undir
einn milljarð í tekjuöflun fyrir ríkis-
sjóð það sem eftir lifir ársins, sýni
vemlegan samkomulagsvilja þeirra
við hina fíokkana. Því liggi nú fyr-
ir samkomulag um fyrstu aðgerðir.
Geta Steingrímur
og Jón Baldvin
samið um forsætið?
Vandamálið að mati viðmælenda
minna úr öllum flokkum er tilboð
Þorsteins um að falla frá kröfunni
um forsætisráðherraembættið.
Heimildir mínar herma að kratar
geti jafn illa fellt sig við Steingrím
sem forsætisráðherra og framsókn-
armenn við Jón Baldvin. Er raunar
talið útilokað að þessir tveir geti
sæst á að annar hvor gegni forsæt-
isráðherraembættinu. Þorsteinn
sagðist telja að það yrði auðveldara
fyrir þessa tvo að semja um forsæt-
isráðherraembættið en formennina
þijá, en það þarf alls ekki svo að
vera, samkvæmt mfnum heimildum.
Kostimir sem Alþýðuflokkur stend-
ur frammi fyrir í þessu efni eru
þessin alþýðuflokksmenn geta
reynt að sætta sig við Steingrím
sem forsætisráðherra, reynt að
sætta hann og Framsókn við Jón
Baldvin sem forsætisráðherra, eða
þá að þeir geta reynt að sætta fram-
sóknarmenn við það, að skipting
ráðherrastólanna verði sú sem sjálf-
stæðismenn hafa hingað til gert
kröfu um, samkvæmt núverandi
ráðuneytaskipan: þ.e.a.s. að sjálf-
stæðismenn fái §óra ráðherra í sinn
hlut, þar með talið forsætisráð-
herraembættið, en hvor hinna
flokkanna þijá ráðherra.
Alþýðuflokksmenn líta á tilboð
Þorsteins um að falla frá kröfunni
um forsætisráðherraembættið með
ákveðnum hætti. Þeir telja, a.m.k.
margir, að voldug Qármálaöfl, svo
sem Aðalverktakar, Eimskip, Verzl-
unarráðið, Seðlabankinn, Félag
íslenskra iðnrekenda og Sölumið-
stöð hraðfrystihúsa geti með engu
móti sætt sig við að mynduð verði
ríkisstjóm, þar sem ráðuneyti fjár-
mála, viðskipta og banka verði öll
í höndum alþýðuflokksráðherra. Því
eru kratar þess fullvissir að þessi
öfl hafí beitt áhrifum sínum innan
þingflokks Sjálfstæðisflokksins til
þess að fá Þorstein til að falla frá
kröfunni um forsætið, en stefna í
staðinn á það að tryggja Sjálfstæð-
isflokknum fjóra ráðherrastóla og
fímm ráðuneyti, þar á meðal fjár-
málaráðuneytið.
Búast alþýðuflokksmenn við því
að formaður þeirra muni beijast
fyrir því að fá forsætisráðuneytið í
sinn hlut, enda telja þeir að
Steingrímur geti vel hugsað sér
utanríkisráðuneytið, og þar sem til
standi að skrá í stjómarsáttmála
fyrirhugaðar breytingar á ráðu-
neytaskipan, þannig að utanríkis-
verzlun heyri undir utanríkisráðu-
neyti, muni hann fallast á að taka
við því óbreyttu um sinn. Hvort Jón
Baldvin fer með sigur af hólmi í
slíkri baráttu við Steingrím, er að
sjálfsögðu ekkert vitað um að svo
stöddu, en það getur vart dregist
lengi úr þessu að afgerandi niður-
staða fáist í þessum langvinnu
stjómarmyndunarviðræðum.