Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
157. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ólympíuleikarnir 1988:
N-Kóreumenn
selja fram
nýjar kröfur
Lausanne, Seoul. Reuter.
ALÞJÓÐLEGA Ólympíunefndin lýkur í dag tveggja daga fundi sinum
í Lausanne i Sviss, þar sem ræddar hafa verið kröfur Norður-
Kóreumanna um að þriðjungur Sumarólympíuleikanna 1988 fari
fram í Norður-Kóreu. Arið 1981 var ákveðið að leikarnir færu fram
í Suður-Kóreu, en fjórum árum siðar kröfðust stjórnvöld í Norður-
Kóreu þess, að hluti leikanna færi fram þar í landi og segja að
kommúnistarikin muni eila ekki taka þátt i þeim.
Chang Ung, formaður sendi-
nefndar Norður-Kóreu, sagði við
fréttamenn í Lausanne í gær að
alþjóðlega Ólympíunefndin hefði
boðið að blakkeppni kvenna og 100
km hjólreiðakeppni karla færi fram
í landi hans. Aður hafði nefndin
boðið að borðtennis- og bogfími-
keppnin færi þar fram. Kvað Chang
þétta tilboð ófullnægjandi. Einnig
sagði hann óleystar deilur um hvar
keppnin í knattspyrnu yrði haldin.
Er Asíuleikarnir voru haldnir í
Seoul í fyrra, neituðu sex kommún-
istaríki að taka þátt í þeim. Sov-
étríkin o.fl. kommúnistaríki hafa
stutt kröfur Norður-Kóreumanna
varðandi Ólympíleikana, en hafa
ekki enn hótað því að sniðganga
þá ef ekki verður gengið að ýtrustu
kröfum N-Kóreumanna.
Stjómvöld í Suður-Kóreu hafa
eytt mörgum milljörðum dollara í
undirbúning fyrir Ólympíuleikana
og er talið að það hafi haft áhrif á
ákvarðanir um að taka upp lýðræð-
islegri stjómarhætti í landinu.
Erfiðlega gengur þó að koma á
kyrrð í landinu.
I gær gagnrýndu fjölmargir
stjómarandstæðingar uppstokkun
þá á ríkisstjóm landsins sem gerð
var í fyrradag og sögðu að hún
tryggði ekki nógu vel að hlutlaus
stjóm sæi um framkvæmd forseta-
kosninga sem fyrirhugaðar eru. Um
100 fréttamenn við næststærstu
sjónvarpsstöð landsins hótuðu í gær
að fara í verkfall ef yfirmaður
stöðvarinnar, sem er skipaður af
ríkisstjórninni, yrði ekki látinn víkja
úr starfi. Sögðu þeir stjómvöld
skipta sér of mikið af fréttaflutn-
ingi.
Reuter
Fjarri heimahögum
Víða er nú heitt í Evrópu eftir votviðrasama sumarbyrjun. Þessi ísbjöm í dýragarðinum í Amsterdam brá sér
í sólbað í gær á meðan félagar hans tveir leituðu skjóls í skugganum.
Yfirheyrslunum yfir North lokið:
Lygari og versti þrj ótur
- segir Inouye, formaður þingnefndarinnar
Washington. Keuter.
YFIRHEYRSLUM nefndar
beggja þingdeilda Bandaríkja-
þings yfir Oliver North, ofursta,
vegna íran-Contra-málsins, er
staðið höfðu í sex daga, lauk í
Tugirmanna farast
Keuter
Karachi, Reuter.
Að minnsta kosti 70 manns
fórust og meira en 250 særðust
í tveim sprengingum sem urðu
með hálfrar klukkustundar
millibili á mesta umferðartím-
anum í stærstu borg Pakistans,
Karachi, í gær. Upplýsinga-
málaráðherra landsins sagði að
niðurrifsöfl hefðu staðið að
baki tilræðunum og lofaði að
hafðar yrðu hendur í hári til-
ræðismannanna og þeim refs-
að.
Engin samtök hafa lýst
ábyrgð á hendur sér en síðast-
liðinn fimmtudag réðust
óþekktir menn með eldflaugum
og handsprengjum á aðsetur
íranskra útlaga í borginni en
þeir beijast gegn klerkasljórn-
inni í Teheran. Einn maður lét
þá lífið og 20 særðust.
gær í Washington. Formaður
nefndarinnar, demókratinn
Daniel Inouye, og Lee Hamilton,
er sæti átti í nefndinni, helltu
báðir úr skálum reiði sinnar yfir
North og kölluðu hann lygara
og sökuðu hann um að beita öll-
um ráðum, hversu slæm sem þau
væru, til að ná fram markmiðum
sínum.
North, sem af mörgum hefur
verið kallaður hetja eftir framburð
sinn fyrir nefndinni, sat svipbrigða-
laus undir þessum lestri. Lögmaður
hans, Brendan Sullivan, brást hins
vegar ókvæða við, greip fram í fyr-
ir Inouye og sagði að hann hefði
engan rétt til að ráðast persónulega
á skjólstæðing sinn. Inouye svaraði
því til að lögmaðurinn gæti þá bara
hypjað sig út og hélt síðan áfram
tölu sinni.
North sagði í gær að tvívegis
hefði verið reynt að múta sér til
að tryggja sölu vopna til íran.
Manucher Ghorbanifar, er annast
hefði milligöngu við íranstjórn,
hefði boðið sér eina milljón dollara
er svo virtist sem Bandaríkjamenn
myndu hætta vopnasölunni. Sagðist
North hafa neitað boðinu.
North kvað Ghorbanifar, sem
bandaríska leyniþjónustan áleit
vera á snærum ísraelsku stjórnar-
innar, þá hafa stungið upp á því
að verðið á vopnunum yrði hækkað
og hluti ágóðans látinn renna til
Contra-skæruliða í Nicaragua.
Sagði North að sér hefði litist vel
á þessa hugmynd og hefði hann
haldið að yfirmaður sinn, John Poin-
dexter, þáverandi öryggismálaráð-
gjafi, hefði fengið samþykki
Ronalds Reagan, forseta, fyrir þess-
um aðgerðum. Ekki sagðist hann
hafa neinar sannanir fyrir að svo
hefði verið. Poindexter kemur fyrir
þingnefndina í dag og er vitnis-
burðar hans beðið með mikilli
eftirvæntingu.
Robert McFarlane, er var örygg-
ismálaráðgjafi Bandaríkjaforseta
frá 1983-1985, kom samkvæmt
eigin ósk fyrir nefndina í gær. Hann
hafði verið yfirheyrður í maímán-
uði, en sagðist vilja leiðrétta nokkur
atriði í framburði North. McFarlane
sagði m.a. að hann hefði ekki fyrir-
skipað North að breyta leyniskjölum
Hvíta hússins varðandi stuðninginn
við Contra-skæruliðana. North
hefði sjálfur lagt til að svo yrði
gert. Öryggismálaráðgjafinn fyrr-
verandi sagði einnig að það væri
rangt að hann hefði viljað falsa
skjöl til þess að svo liti út sem
Bandaríkjamenn hefðu ekki vitað
um fyrstu sendingu vopna til íran
seint á árinu 1985.
James Radzinski, fyrrum skjala-
vörður í Hvíta húsinu, átti að koma
fyrir nefndina í gær eftir að Morg-
unblaðið fór í prentun. Var búist
við að hann yrði spurður hvort til
hafi verið afrit skjala er North eyði-
lagði, þar sem farið var fram á
samþykki Reagan, forseta, við fjár-
stuðning til handa Contra-skærulið-
um.
Reagan, forseti, sem alltaf hefur
neitað því að hafa vitað um fjár-
stuðninginn við Contra-skærulið-
ana, sagði í gær við fréttamenn
áður en hann átti fund með leið-
togum Repúblikanaflokksins í
öldungadeild Bandaríkjaþings, að
hann vildi ekkert um yfírheyrslurn-
ar segja. En þegar þeim væri lokið
þá myndu fréttamenn ekki geta
þaggað niður í sér. Er forsetinn var
spurður hvernig hann myndi tjá sig
um málið glotti hann og sagði: „Ég
mun standa uppi á þaki og hrópa."
Afdrif
keisarafj ölsky Idunnar:
Rússum loks
sagt frá
aftökunni
LESENDUR sovéska dagblaðsins
Sovetskaya Rossia fengu nýlega
óvæntar upplýsingar um aftöku
Nikulásar annars, síðasta keisara
Rússaveldis, og fjölskyldu hans.
Var sagt að aftakan hefði verið
hörmulegur en jafnframt óhjá-
kvæmilegur atburður. Frétta-
maður breska blaðsins The
Times í Moskvu segir að þetta sé
í fyrsta skipti sem sovéskir les-
endur fái nákvæmar upplýsingar
um aftökuna.
Dagblaðið birti grein um málið
eftir sagnfræðinginn Genrikh Ioffe
og sagðist með því koma til móts
við lesendabréf frá fólki þar sem
beðið væri um nánari upplýsingar
um fall Romanov-ættarinnar. í ný-
legu lesendabréfí var spurt hvort
nauðsynlegt hefði verið að lífláta
keisarann og alla fjölskyldu hans.
Ioffe segir að byltingarmenn hafi
ekki myrt keisaraflölskylduna i
hefndarskyni eða af mannvonsku.
Hann skellir skuldinni á and-bols-
évíska öfgamenn í Ural-sovétinu er
hafi tekið til sinna ráða þegar
hvítliðar nálguðust aðsetur keisar-
ans í Jekaterinburg í júlí 1918.
Ætlun bolsévikka hafi hins vegar
verið að stefna keisaranum fyrir
rétt.