Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987
"¦47
Ingibjörg Ellertsdóttir i hópi krakkanna í unglingavinnunni.
STYKKISHÓLMUR:
Morgfunblaðið/Árni Helgason
Langamma stjórnar unglingavinnunni
Stykkighólmi.
SKYLDI nokkur bær nema
Stykkishólmur geta státað
af því að hafa sem verkstjóra í
unglingavinnunni langömmu, sem
stjórnar með prýði unglingaskara
í hreinsun gatna og umhverfis í
bænum og það af þeirri prýði að
allir leggja sig fram um að gera
sitt besta. Enda má sjá þegar
ekið er um bæinn að þar er allt
svo snyrtilegt. Og krakkarnir hafa
gaman af að taka til hendinni.
Stykkishólmsbær hefir eflst og
fegrast á síðastliðnum árum og
þeir sem koma af gömlum Hólm-
urum í heimsókn 4. og 5. hvert
ár eru stundarkorn að átta sig á
breytingum. Ingibjörg Ellerts-
dóttir, sem stjórnar bæjarvinnu
unglinga, er einnig með börnun-
um á veturna þar sem hún hefír
umsjón í skólanum svo hún kann
á þeim lagið og hennar létta lund
hjálpar til. — Árni
! Götusóparar á fullri ferð.
Svavar Gests kosinn
alþjóðastjórnandi Lions
Svavar Gests, formaður Lions-
hreyfingarinnar á íslandi, var
kosinn alþjóðastjórnandi Lions á
sjötugasta alþjóðaþingi hreyfingar-
innar á Taiwan nú í byrjun júlí.
Hann mun gegna embættinu í tvö
ár en alþjóðastjórn Lions skipa 33
menn, fímm forsetar og 28 alþjóða-
stjórnendur. Hver stjórnandi er
fulltrúi ákveðins svæðis og er Sva-
var fulltrúi Norðurlandanna í
stjórninni.
Svavar er landskunnur fyrir út-
varpsþætti sína og hljómplótuútg-
áfu auk þess sem hann var
formaður FIH í tíu ár. Hann hefur
verið meðlimur í Lions frá 1965 og
gegnt þar ýmsum ábyrgðarstörfum
m.a. sem klúbbformaður, umdæ-
misstjóri í Reykjavík og fjölumdæ-
misstjóri fyrir allt landið. Hann er
félagi í Lionsklúbbnum Ægi í
Reykjavík.
Lionshreyfíngin er mjög fjöl-
menn, með um 1.3 miljónir meðlima
í 38 þúsund félögum í 162 löndum
um heim allan. Lionsmenn vinna
sem kunnugt er að líknar- og mann-
úðarmálum, bæði með fjáröflun og
beinu sjálfboðastarfi í félögunum
og síðustu árum hafa íslenskir Li-
onsmenn bætt við sig umhverfís-
verndarmálum. Að sögn Svavars
eru íslendingar virkastir í Lions-
hreyfíngunni miðað við höfðatölu
þar sem í flestum þéttbýliskjörnum
á landinu og víða í sveitum eru
starfandi fjölmennir Lionsklúbbar.
Og nú geta konur líka orðið félagar
í Lions og kalla þær sig Lionessur.
COSPER
Svavar Gests.
— Segðu mér góði, hvenær kemur næsti strætisvagn?
SVEFNPOKI
kr. 5.270
FERÐASETT
kr.830
KAUPFÉLÖGIN í LANDINU
KROMHILLU-
SAMSTÆÐURNAR
KOMNAR
Einnig í hvítu og svörtu. Stakar hillur eða
samstæöur með hillum, skápum og skúffum.
DOLJ Ml_i [' JI_U«^g!
_____BÚSTOFNIL
Smiðjuvegi 6, Kopavogi símar 45670 — 44544.