Morgunblaðið - 15.07.1987, Síða 56

Morgunblaðið - 15.07.1987, Síða 56
V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! SKOAVHm ÍBDN MJfjSRSÆUJ SKÓtADONQJ SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. MIÐVIKUDAGUR 15. JULI 1987 VEM) í LAUSASÖLU 50 KR. Morgunblaðið/Kr.Ben. Fyrsta bryggjukerið flutt íHelguvíkurhöfn Grindavík. Tveir dráttabátar, Orion og Þróttur, lögðu af stað frá Straumsvíkurhöfn í gærkvöldi með fyrsta bryggjukerið, sem þar hefur verið í smíðum vegna Helguvíkurhafnargerðarinnar. Verktakafyrirtækið Núpur sf. hefur séð um gerð hafnar- garðsins i Helguvík og nú þegar langt er komið með smíði á fimmta kerinu er kerstæðið fyrir fyrsta kerið tilbúið. Hvert ker er 3000 rúmmetr- ar og er á hæð við áttahæða hús, þar af eru 15 metrar í kafi. Þyngdin er 2400 tonn, þar af eru 400 tonn balllest. Kr.Ben. Hvalveiðideilan við Bandaríkjamennr Beinasérfræðing- ar 1 Borgarfirði Borgarfirði eystra í MIÐJU Bakkagerðisþorpi er staður sem nefnist HjallhóU sem nær niður á sjávarbakka. Fyrir fjórum árum fannst þar fornleg- ur hárkambur sem talinn er frá 14. öld og síðar einhvers konar næla sem ekki er búið að aldurs- greina, en er talin mjög forn. Þetta varð til þess að nú eru komnir hingað tveir bandarískir fomleifafræðingar, sérfræðingar í beinarannsóknum, ásamt Guðrúnu Sveinbjamardóttur fomleifafræð- ingi, til að rannsaka staðinn. Geta má þess að talið er að þama hafi legið sjávargata frá landnámsjörð- inni Bakka og styður þá tilgátu að þar niðri við sjóinn heitir Bakkavör Enn er ekkert hægt að segja um hvort fleira kunni að fínnast þama því að fomleifafræðingamir byij- uðu rannsóknir sínar í morgun. Hætt er við að sjórinn sé búinn að bijóta niður framan af hólnum á liðnum öldum og olíutankar hafa einnig verið reistir á staðnum. Rannsókn þessi er að einhveiju leyti á vegum þjóðminjavarðar. — Sverrir Metsala á íslensk- um hljómplötum „SALA Á íslenskum hljómplötum hefur vaxið gifurlega undanfar- ið, og síðastliðinn mánudag gerðist það í fyrsta skipti, svo vitað er, að meira seldist af íslenskum plötum en erlendum," sagði Steinar Berg ísleifsson, Gengið til viðræðna og hvalveiðum hætt RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að ganga til viðræðna við bandarísk stjórnvöld um hval- veiðar íslendinga. Verða veið- arnar stöðvaðar þegar viðræðurnar hefjast um óákveð- inn tíma að sögn Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra. Samkvæmt heimildum blaðsins fóru Bandaríkjamenn fram á við- Á rni GarðarKrist- insson látinn ÁRNI Garðar Kristinsson, fyrr- verandi auglýsingastjóri Morg- unblaðsins, lést í Landspítalanum í gærkveldi 66 ára að aldri. Ámi Garðar fæddist á Stóra- Grindli í Fljótum 28. desember ►1920. Foreldrar hans voru Pálína Elísabet Ámadóttir og Kristinn Ágúst Ásgrímsson, jámsmíðameist- ari í Hrísey, og þar ólst Ámi upp. Hann lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum á Akureyri 1942. Stundaði síðan laganám við Há- skóla íslands í tvo vetur, en gerðist auglýsingastjóri Morgunblaðsins 1945. Gegndi hann því starfí þar til fyrir fáum árum, er hann tók við öðrum störfum hjá blaðinu. Ámi Garðar var mjög listrænn. Stundaði hann m.a. nám í skóla Félags ísl. frístundamálara og tók *um hríð virkan þátt í Myndlistar- klúbbi Seltjamamess. Þá hélt hann allmargar málverkasýningar. Ámi var mjög virkur félagi innan Oddfellow-reglunnar og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum. Ámi Garðar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Katrín Óladóttir, lést 1965, en síðari kona hans, Árni Garðar Kristinsson Ragnheiður Kristjánsdóttir, lifir mann sinn ásamt fjórum bömum hans af fyrra hjónabandi og tveim- ur stjúpdætrum. Morgunblaðið þakkar Áma Garð- ari langt og mikið starf og sendir konu hans, bömum og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. ræður þegar í þessari viku en íslendingar telja sig ekki geta hafið þær fyrr en næsta mánu- dag í fyrsta lagi. Búist er við því að íslenska sendinefnd, sem enn á eftir að skipa, fari til Was- hington. Dr. Anthony J. Calio, formaður sendinefndar Banda- ríkjamanna hjá Alþjóða hvalveið- iráðinu mun leiða viðræðunefnd þeirra. Þorsteinn vildi ekki láta neitt uppi um hvort ríkisstjópiin teldi viðskiptahagsmunum íslendinga stefnt í voða ef veiðunum væri ekki frestað meðan viðræðumar fara fram. „Það liggur fyrir vilji Banda- ríkjamanna að ganga til viðræðna um þessi mál. Okkar afstaða er sú að rétt sé að eiga þær viðræður og taka síðan ákvörðun um framhald- ið,“ sagði forsætisráðherra. Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. sagðist í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi ekki hafa fengið neina tilkynningu um að stöðva veiðamar. Sagði hann að sér hefði ekki verið kunngert að viðræðurnar væm að fara í gang. Ekki hafði verið ákveðið hvenær fyrirtækið gerði hlé á veiðunum, þar sem venja hefur verið að láta veður og afla- brögð ráða ferðinni í því efni. Sjötíu og ein langreyð er komin á land af þeim áttatíu sem vísindaáætlunin gerir ráð fyrir í sumar. Seinni hluta sumars er ætlunin að veiða allt að 40 sandreyðar, að sögn Kristjáns. Bandaríkjamenn hafa ekki lagt fram ákveðna tillögu um efni við- ræðnanna í Washington. Morgun- blaðið hafði eftir talsmönnum sjávarútvegs og þjónustudeilda bandaríska viðskiptaráðuneytisins í gær að Malcom Baldridge við- skiptaráðherra hefði enga ákvörðun tekið um hvort hann staðfesti að íslendingar bijóti gegn alþjóða- samningum með hvalveiðum sínum. Staðfesting hans ylli því að svo nefnd Pelly-ákvæði tækju gildi, en á ber forseta að taka afstöðu til þess hvort íslendingar verði beittir viðskiptaþvingunum. Að sögn Harðar Bjarnasonar sendifulltrúa í Washington leggja íslendingar áherslu á að um sé að ræða tvíhliða viðræður um utanrík- ismál. Ekki verði fjallað um einstök deilumál innan Alþjóða hvalveiðir- áðsins. Bandaríkjamenn studdu sem kunnugt er ályktun gegn hval- veiðum íslendinga í vísindaskyni innan ráðsins á fundi þess í vor. Hörður sagði að bandarísk stjórn- völd hefðu ekki sett það skilyrði að íslendingar hættu veiðunum áður en viðræðurnar hæfust, en mátt hefði skilja að það gæti greitt fyrir gangi málsins. formaður Sambands hljómplötu- framleiðenda, í samtali við Morgunblaðið. „Aukið ljósvaka- framboð virðist hafa kallað fram kröfur um meiri íslenska tónlist. Það er á hreinu að hún á eftir að auka hlut sinn enn meira.“ Steinar sagði þá íslensku tónlist- armenn sem mest seldust þessa stundina vera Stuðmenn, Sverri Stormsker, Greifana, Stuðkompa- níið, Skriðjökla, Sniglabandið og Súellen. Héðinn Stein- grímsson efstur á heimsmeist- armótinu HÉÐINN Steingrímsson er í efsta sæti á heimsmeistaramóti unglinga 12 ára og yngri sem stendur yfir á Puerto Rico. Tefldar hafa verið fimm um- ferðir og hefur Héðinn unnið alla mótheija sína. í gær bar hann sigurorð af breska þáttak- andanum, Tarshan Kunaran. Motið er haldið af Alþjóða skák- sambandinu og Sameinuðu þjóðun- um og nefnt „Friðar og æskulýðs- mót“. Rösklega tuttugu drengir keppa um heimsmeistartitilinn. Tefldar verða tíu umferðir eftir Monrad kerfí og lýkur mótinu 21. þessa mánaðar. Héðinn er þrefaldur Norður- landameistari í sínum aldursflokki. íslensk föðurnöfn gild 1 Noregi Forsætisráðherra Noregs hef- ur sent stjórnvöldum bréf þess efnis að skrásetning samkvæmt íslenskri nafnvenju verði viður- kennd af norsku þjóðskránni. Fyrr á árinu fór Steingrímur Hermannsson fyrrverandi for- sætisráðherra þess á leit við starfsbræður sína á Norðurlönd- um að böm af íslensku bergi brotin sem fæðast í Skandinavíu fái fornafn föðurins að eftir- nafni. Á þessu munu hafa verið ýmis vandkvæði. { fréttatilkynningu forsætisráðu- neytisins segir að norska þjóðskráin muni viðurkenna íslensk föðumöfn, verði sótt um slílra skráningu á þar til gerðum eyðublöðum. Svipaðrar úrlausnar mun vera að vænta í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.