Morgunblaðið - 16.07.1987, Side 14

Morgunblaðið - 16.07.1987, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987 85 lítra 16 tommu dekk Léttar og meðfærilegar kr. 5.700,- Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKIN N SUPURIANDSBRAUT 8. SÍMI 84670 Jón Baldvinsson FÓLK OG FUGLAR Myndlist Bragi Ásgeirsson Fram til 20. júlí kynnir Menning- arstofnun Bandaríkjanna, Neshaga 16, tvo tugi málverka eftir Jón Baldvinsson. Jón hafði haldið á annan tug sýninga, smárra og stórra, er hann hélt til Banda- ríkjanna og innritaðist í San Francisco Art Institute — eins og hann segir sjálfur, „til að leita á brattann og kanna nýjar leiðir, öðl- ast meiri getu og fá nýjar hugmynd- ir í málverki." Jón hefur nú lokið BFA-áfanga við skólann (Bachelor of Fine Arts) og heldur utan aftur í haust til að ljúka meistaragráðu MFA (Master of Fine Arts). Þessi skóli mun vera mjög frjáls og opinn en gerir þó ákveðnar kröf- ur til nemenda og munu allnokkrir íslendingar hafa stundað þar nám á undanfömum árum að mér skilst. Af myndum Jóns á sýningunni að dæma þá stendur hann í miðri umbrotasamri þróun, sem hann hefur ekki með öllu náð tökum á enn sem komið er. Litir hans eru hvellir og skærir og það þarf mikla ögun og ósérhlífni til að ná valdi á þessari tegund málverks. Það er helst í stærstu myndinni á sýningunni (2), að dæmið gengur upp en einnig í myndinni frammi á gangi (16), sem ég tel vera heilleg- ustu myndimnar á sýningunni. En að öðm leyti er mikill órói í út- færslu myndanna og gerandinn virðist annaðhvort hætta of snemma við myndimar eða ofvinna þær. Myndefnið sækir Jón sem fyrr í sitt nánasta umhverfi og nú virðist það streita og hremmingar stór- borgarlífsins, sem helst leitar á hann og ýtir við hugarfluginu. Hinn sérstæði fugl, sem ein- kenndi hugarflugsmyndir Jóns hér áður fyrr er enn til staðar í nýjustu myndum hans en hefur nú fengið á sig mennskari mynd og endumýj- að tákn. Frammi á gangi hangir ein af gömlu myndum Jóns með fugls- tákninu í landslagi, sú er öllu „artistískari" í útfærslu en þær nýju, og í samanburði virka þær nokkuð hráar. En áðumefndu myndimar nr. 2 og 16, eru ótvírætt spor í rétta átt því að í þeim em þau átök við efni- viðinn, sem maður vildi óska, að væri í hverri einustu mynd á sýning- unni. Slík átök eru meira virði á vettvangi málaralistarinnar en allir titlar og 10.000 námsáfangar ... Jóni fylgja svo góðar óskir um nýja landvinninga í ríki listarinnar á seinni áfanga náms síns. Myndbanda- skáparnir vinsælu komnir. Fjórar gerðir. VALHÚSGÖGN Ármúu 8. símar 82275 > 685575. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! NÝ KJÓLASENDING st. 36-58 v/Laugalæk, s. 33755.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.