Morgunblaðið - 16.07.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987
21
Sverrir Meyvantsson og Jóna Ágústsdóttir við Lundúnaleigubilinn.
Egilsstaðir:
Enskur leigubíll rennir 1 hlaðið
Egilsstöðum.
SEGJA MÁ að ibúar Egilsstaða
hafi horfið aftur til fortíðarinnar
þegar bílar liðinna áratuga
renndu í hlað á Egilsstöðum um
kl. 20 á mánudagskvöldið.
Nokkrir þessara bíla voru komn-
ir á göturnar löngu áður en
Egilsstaðir urðu sjálfstætt sveit-
arfélag. Hér voru á ferðinni
félagar úr Fornbílaklúbbi ís-
lands á hringferð um landið og
eru þeir að halda upp á 10 ára
afmæli klúbbsins jafnframt því
sem þeir eru að safna fé til
styrktar Krýsuvíkursamtökun-
um.
Á Egilsstöðum mætti þessi hópur
öðrum hóp sem einnig er að safna
fé fyrir Krýsuvíkursamtökin. Þar
eru á ferðinni unglingar úr félags-
miðstöðvunum Frostaskjóli og
Þróttheimum í Reykjavík en þeir
ferðast um á nýjustu gerðum reið-
hjóla. Unglingarnir hjóluðu syðri
leiðina og halda héðan norður um
land og áforma að koma til
Reykjavíkur þann 24. júlí. Bílalestin
kom hins vegar að norðan yfir
Möðrudalsöræfi og heldur áfram
héðan suður um og áætlar að koma
til Reykjavíkur þann 17.
Allt þetta ferðalag er eins og
áður sagði farið til að safna fé fyr-
ir Krýsuvíkursamtökin en þau vinna
að því að koma upp heimili fyrir
unga fíkniefnaneytendur í hinum
umrædda Krýsuvíkurskóla sem öðl-
ast þar með verðugan tilgang.
Fréttaritari Morgunblaðsins innti
þátttakendur í þessari hringferð
eftir því hvernig ferðalagið hefði
gengið fram að þessu en á Egils-
stöðum er hringurinn hálfnaður.
Á þvottaplani Esso voru Sverrir
Meyvantsson og Jóna Ágústsdóttir
að þvo forláta enskan leigubíl í sinni
upprunalegu mynd. Þau hjón kváðu
þessa ferð hafa verið einstaklega
ánægjulega. Það eina sem skyggði
á gleðina væri að ein rúta úr hópn-
um hefði farið á hliðina og stúlka
sem í bílnum var hefði meiðst lítils-
háttar. Veðrið hefði leikið við þau
á leiðinni nema hvað moldrok hefði
verið á Öræfunum og þá hefði kom-
ið í ljós að leigubíllinn frá London
hefði ekki verið alveg rykþéttur.
Að öðru leyti hefði þetta verið ynd-
isleg ferð og veitt fullkomna útrás
fyrir bíladelluna. í sama streng tóku
aðrir í hópnum en alls eru um 20
bílar í þessari lest.
Rútan sem fór á hliðina er frá
Sæmundi í Borgarnesi og er allt
útlit fyrir að hún geti haldið áfram
á miðvikudagsmorgun eins og áætl-
un gerir ráð fyrir. Enda er
Sæmundur og hans menn þekktir
fyrir að halda áætlun. Björn
Ahugavert að stofna
slík fyrirtæki á
landsbyggðinni
- segirLárus
Jónsson, sem
undirbýr stofnun
þróunar- og fjár-
f estingarf élaga
úti um land
LÁRUS Jónsson, fyrrverandi al-
þingismaður, hefur tekið að sér
sem sérstakt verkefni fyrir Þró-
unarfélag íslands hf. að und-
irbúa stofnun þróunar- eða
fjárfestingarfélaga í þeim kjör-
dæmum, sem áhugi er fyrir slíku.
Lárus sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þessi þróunar- eða ijár-
festingarfélög yrðu hlutafélög í eigu
sveitarfélaga og fyrirtækja á við-
komandi svæði. Hlutafé hvers
félags þyrfti að vera 10—15 milljón-
ir kr. að lágmarki, en Þróunarfélag-
ið væri tilbúið til að leggja fram
20% þess. Heimamenn bæru því
ábyrgð á þessum félögum og færu
með ákvörðunarvald í rekstri þeirra.
Gert er ráð fyrir að Þróunarfélag
íslands hafi einn mann í stjórn hvers
landshlutafélags og geti veitt félög-
unum margháttaða aðstoð. Einnig
getur komið til greina að lands-
hlutafélögin eignist hlutabréf í
Þróunarfélagi íslands hf. til að .efla
tengslin á milli félaganna.
Lárus sagði að verkefni lands-
hlutafélaganna yrðu hliðstæð
verkefnum Þróunarfélags Islands,
það er fjármögnun arðbærra nýj-
unga í atvinnulifi. Að auki væru
ýmis verkefni á landsbyggðinni sem
slík fyrirtæki gætu leyst og kæmu
þannig að verulegu gagni. Nefndi
hann uppbyggingu ferðaþjónustu
sem dæmi. Lárus sagði að þessi
félög yrðu í sumum tilvikum að
taka nokkra áhættu, þótt leitast
yrði við að halda henni í lágmarki.
„Þegar á heildina er litið felst í
eðli starfsemi slíkra fjármögnunar-
fyrirtækja að þau geta treyst
atvinnulífið í heild. Það ætti að
vera áhugavert fyrir sveitarfélög,
starfandi fyrirtæki og einstaklinga
í kjördæmunum að stofna til slíkra
fjármögnunarfyrirtækja á lands-
byggðinni. Beinn hagur ætti að
felast í stofnun slíkra félaga, auk
þess sem áhrif heimamanna á þróun
eigin mála yrðu efld,“ sagði Lárus
Jónsson.
eS
Við bjóðum húsbyggjendum að reyna ALPALAND mótaborðin
við uppsláttinn. Gulu ALPALAND mótaborðin spara bæði fé og
fyrirhöfn og því meira sem stærra er byggt.
Kostir ALPALAND eru meðal annars:
★ Uppslátturinn er fljótlegri. Niðurrif gengur hraðar.
★ Eftirvinnsla er nær óþörf þar eð steypan fær slétta og fallega
áferð.
★ f’að er fljótlegt og einfalt að hreinsa ALPALAND mótaborðin
og sömu borðin má nota aftur og aftur og aftur . . .
★ ALPALAND borðin eru til í ýmsum stærðum.
Líttu inn til okkar að Krókhálsi. Pað gæti borgað sig.
SAMBANDIÐ..
BYGGINGAVORUR
KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 67 2888